Morgunblaðið - 17.05.2007, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2007 15
ÚR VERINU
NÝTT! DUX 1001 105x200cm með Xtandard yfirdýnu
(Verð áður kr 186.000) 123.000Kr.
112.000Kr.DUX 1001 Original 90x200cm með Xtandard yfirdýnuán fóta, (Verð áður kr 158.000)
224.000Kr.2 stk DUX 1001 90x200cm og heil Xtandard yfirdýna 180x200cm(Verð áður kr 316.000)
DUX Original
SUMARTILBOÐ
Ármúla 10 • Sími: 5689950
„AUÐVITAÐ er það mikið áhyggju-
efni að sjá fréttir af því að sóknin í
lúðustofninn sé að aukast vegna þess
að við vitum að staða hans er mjög
veik. Við skoðuðum það við síðustu
kvótaákvörðun
hvort fara ætti að
þeim tilmælum að
banna beinar veið-
ar á lúðu eins og
Hafrannsókna-
stofnunin lagði
til,“ segir Einar K.
Guðfinnsson, sjáv-
arútvegsráðherra.
Þetta segir hann í
kjölfar fréttar
Morgunblaðsins
um að nú séu um 20 bátar að byrja
eða byrjaðir línuveiðar á lúðu. Bát-
arnir sækja í auknum mæli í lúðuna
vegna kvótaleysis í öðrum tegundum,
en lúðan er utan kvóta. Þá vilja menn
tryggja sér veiðireynslu komi til þess
að lúðan verði færð inn í kvóta.
„Við yfirferð okkar í ráðuneytinu
sáum við að þessar veiðar skiptu nán-
ast engu máli fyrir heildarveiðina á
lúðunni. Lúðan kemur fyrst og fremst
inn sem meðafli, ekki í beinum veið-
um. Þess vegna hefði bann við beinum
veiðum haft tiltölulega lítil áhrif á
heildarafla.
Þarf að stuðla að minni sókn
Ég held hins vegar að við þurfum
að skoða það núna á næstunni, hvort
við getum með einhverjum hætti
stuðlað að minni sókn í lúðuna. Til
dæmis með því að beita einhverjum
veiðistjórnunaraðferðum öðrum,
svæðalokunum eða einhverju slíku,
sem gæti þá leitt til minnkandi sókn-
ar.
Ég sé til dæmis ekki að kvótasetn-
ing á þessum veiðum gengi upp við
þessar aðstæður, þegar liggur til
grundvallar ráðgjöf um engar veiðar
frá Hafrannsóknastofnuninni. Mér
fyndist sú leið einfaldlega ekki rök-
rétt eins og sakir standa,“ segir Einar
K. Guðfinnsson.
Aukin sókn
í lúðu er
áhyggjuefni
Kvótasetning ekki
rökrétt eins og
sakir standa
Einar K.
Guðfinnsson
EIGENDUR smábáta á Norðaust-
urlandi í félaginu Kletti skora á sjáv-
arútvegsráðherra að auka þorsk-
kvóta yfirstandandi fiskveiðiárs um
25.000 til 30.000 tonn.
Áskorunin er byggð á góðum afla-
brögðum að undanförnu. „Veiði und-
anfarinna missera gefur það til
kynna að mun meira magn sé af
þorski í sjónum en fram hefur komið
við mælingar fiskifræðinga, í ljósi
þess er kvótaaukning bæði fram-
kvæmanleg og skynsamleg,“ segir
meðal annars í áskorun félagsins.
Félagið skorar einnig á sjávarút-
vegsráðherra að taka nú af skarið og
beita sér fyrir friðun innfjarða og
grunnmiða fyrir dragnótaveiðum.
Ásókn dragnótabáta, bæði stórra og
smárra, hefur aukist jafnt og þétt á
félagssvæði Kletts á undanförnum
árum og er nú svo komið að í óefni
stefnir.
Loks fagnar félagið stefnu stjórn-
valda varðandi loðnuveiðar. „Það að
takmarka mjög flottrollsveiðar með
svæðastýringu, svo og láta loðnu-
stofninn njóta vafans við mælingar,
tryggir næga loðnu til hrygningar og
skapar aukið fæðuframboð fyrir
okkar helstu nytjastofna, t.d. þorsk
og ýsu. Þessi stefna hefur gefið þeim
aðilum sem vilja byggja upp þorsk-
stofninn og nýta hann á sama tíma
án þess að skerða veiðiheimildir nýja
von um að uppbyggingin gangi hrað-
ar fyrir sig en annars væri,“ segir í
ályktun stjórnarfundar félagsins.
Vilja aukinn
þorskkvóta
FYRSTU sýnum ársins fyrir vöktun eiturþörunga
sem geta valdið skelfiskeitrun var safnað í Hval-
firði og Breiðafirði í síðustu viku. Sýnataka í Eyja-
firði hefst í þessari viku. Tilgangurinn með vöktun
eiturþörunga er að vara við nýtingu skelfisks ef
þéttleiki eiturþörunga fer yfir þau mörk að hætta
geti verið á eitrun ef menn neyta skelfisks af við-
komandi svæðum.
Af þeim u.þ.b. 320 tegundum svifþörunga sem
fundist hafa hér við land eru 10 tegundir sem geta
myndað þörungaeitur. Svifþörungar eru helsta
fæða skelfisks sem safnar í sig eitri ef hann neytir
eitraðra svifþörunga. Eitrið hefur ekki áhrif á skel-
fiskinn sjálfan en kemur fram þegar hans er neytt.
Vaxtartími eiturþörunga er frá því snemma sumars
fram á haust.
Um er að ræða þrenns konar eitrun: PSP (par-
alitic shellfish poisoning) er eitrun sem veldur doða
og lömun, DSP (diarrhetic shellfish poisoning) er
eitrun sem veldur magaverkjum, uppköstum og
niðurgangi og að lokum ASP (amnesic shellfish poi-
soning), eitrun sem veldur m.a. minnisleysi. Skel-
fiskeitranir af völdum PSP og DSP hafa greinst
yfir hættumörkum hér við land nokkrum sinnum.
„Oft er talað um að varast beri að neyta skelfisks
í þeim mánuðum sem ekki hafa r í nafninu þ.e. maí,
júní, júlí og ágúst. Það er rétt að hætta getur verið
á eitrun ef skelfisks er neytt í þeim mánuðum, en
einnig fram eftir hausti. Niðurstöður vöktunar-
innar undanfarin ár sýna að skelfiskur getur verið
varasamur vegna þörungaeiturs frá maí fram í nóv-
ember. Það er háð skilyrðum hverju sinni hvort eit-
urþörungar eru til staðar í svifinu og því eru þeir
sem hyggjast tína eða veiða skelfisk til matar
hvattir til að fylgjast vel með vöktuninni á slóðinni
hafro.is/voktun,“ segir á heimasíðu Hafrannsókna-
stofnunarinnar.
Vöktun eiturþörunga hafin
Skelfiskur Kræklingur getur tekið í sig eitrun
yfir sumarmánuðina. Í kræklingaræktun er
hægt að láta skelina hreinsa sig í tönkum.
♦♦♦