Morgunblaðið - 17.05.2007, Blaðsíða 27
berlín
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2007 27
Hjálmar Freysteinsson veltir fyrir
sér kosningabaráttunni og finnst
tryggð kjötkaupmannsins við
flokkinn, sem hann þó telur ofsækja
sig, merkileg:
Jóhannes til kaupa kann
kjötið nýta af skrokknum.
Lítinn blóraböggul fann
en bjargaði sjálfum flokknum.
Um eftirmála kosninganna yrkir
Hjálmar:
Framsóknar er fátt við borðið,
finna má til huggunar,
nú geta þeir allir orðið
einhverskonar ráðherrar.
Og loks yrkir hann:
Íhaldsfylgi fagna má
fyrir því við skálum.
Þeir taka sjaldan ábyrgð á
óvinsælum málum.
Kosningarnar fóru ekki heldur
framhjá Rúnari Kristjánssyni:
Kosningarnar víst með viti tregu
viku mörgu að blindufari kunnu.
Yfirboðin yfirgengilegu
yfir þjóðarsálargreyið runnu.
Og hann bætir við:
Vinstri grænir veginn rata,
viðra rökin slyng.
Þar með fleirum Kolla og Kata
kosnar voru á þing.
Loks yrkir hann um raunir
forsetans:
Að menningarumræðan þyki hér þjál
er þvaður og lygi og blekking og tál.
Því margt getur fjötrað þar fullburða sál
og forsetaþreyta er alvarlegt mál.
Bloggarinn Jóna Guðmunds-
dóttir fylgist með þreifingum
stjórnmálamanna þessa dagana og
skrifar að Jón Sigurðsson reyni nú
allt hvað hann getur að tryggja sér
og sínum mönnum sæti við
kjötkatlana áfram:
Ekkert fær ró hans raskað
þó reyndar sé fleyið laskað
og komið í strand
langt upp á land:
Með brotajárn nú skal braskað.
VÍSNAHORNIÐ
Af braski
pebl@mbl.is
Eftir Ólaf Guðstein Kristjánsson
olafurgudsteinn@googlemail.com
Eitt sérstæðasta safn Berlínar er Jüdisches Mu-seum eða Gyðingasafnið. Safnið er hannað afhinum þekkta bandaríska arkitekt DanielLiebskind. Sá hinn sami og mun vinna að end-
urreisn þess svæðis þar sem Tvíburaturnarnir stóðu.
Sérstaða safnsins er ekki bara sú að þar má kynna sér
sögu gyðinga í Þýskalandi frá upphafi vega heldur vegna
hinnar einkar sérstæðu byggingar sem hýsir safnið og
sker sig mjög frá nærliggjandi byggingum. Raunar varð
safnið aðdráttarafl fyrir forvitna nokkru áður en það var
tekið í notkun árið 2001. Byggingin er í expressjónískum
stíl og táknar sundraða Davíðsstjörnu og er í því sem
kalla mætti „zikk-zakk“ formi. Á henni eru skáhallir
gluggar sem virðast skera silfurlitaða sink-veggi húss-
ins. Þessi lögun hússins er auðvitað táknræn fyrir örlög
gyðinga í landinu og í heiminum. Einnig er að finna inn-
an safnsins svokallaðar eyður sem standa fyrir það sem
eyðilagt hefur verið í landinu (samfélag gyðinga), þótt
Liebskind gefi rúm til eigin túlkunar. Stærsta eyðan er
svo tuttugu og fjögurra metra turn sem stendur ögn frá
safninu og er hugsaður sem helfararminnismerki.
Gólfin hallast
Innrými safnsins er ekki síður sérstakt. Raunar er
inngangurinn ekki á byggingunni sjálfri heldur í húsinu
við hliðina á því; gamalli byggingu (frá 1735) sem þjónaði
áður hlutverki dómshúss og er í barokkstíl. Farið er svo
undir í gegnum eins konar göng til að komast í Liebsk-
ind-bygginguna. Sýningarrýmin eru svo með vilja höfð
frekar kaótísk, gólfin hallast og strúktúrleysi er nokkuð
sem manni dettur fljótlega í hug, þótt vegvísar vísi að
vísu veginn gegnum sýninguna.
Saga gyðinga
Á safninu er eina viðvarandi sýningu að finna sem rek-
ur sögu gyðinga í landinu frá fyrstu skrásettu heimild-
inni frá árinu 321 til dagsins í dag. Einnig eru settar upp
sérstakar sýningar sem standa tímabundið þegar efni
standa til. Til dæmis var sýning frá 29. september 2006
til 9. apríl 2007, tileinkuð þeim gyðingum er flúðu land á
nasistaárunum, undir nafninu Heimat und Exile.
Emigration der deutschen Juden nach 1933. Einnig er
svo í byggingunni að finna hluta tileinkaða samtímalist.
Raunar er talsvert af söfnum og minnismerkjum
tengdum gyðingum í borginni. Skemmst er að minnast
hins flennistóra (19.000 m²) Helfararminnismerkis
(Holocaust-Mahnmal Denkmal für die ermordeten Ju-
den Europas), eftir bandaríska arkitektinn Peter Eisen-
man, sem samanstendur af 2711 misstórum steypu-
stólpum. Er það í nágrenni Brandenborgarhliðsins og
örugglega á dýrasta byggingarlandi borgarinnar. Þar er
svo einnig að finna safn tengt helförinni. Svo má minnast
á Neue Synagoge við Oranienburger Straße, sem er
stærsta gyðinglega bænahús borgarinnar.
Svona má raunar áfram telja og líklegt er að haldið
verði áfram að sinna sögu gyðinga í landinu, enda Þýska-
land þjakað mikilli sektarkennd vegna helfararinnar. En
þess utan er þetta auðvitað allt saman einkar áhugavert
og gaman að skoða. Sérstaklega þó gyðingasafnið, sem
verður að teljast mjög frambærilegt.
Sundruð
Davíðs-
stjarna
Sérstakt Inngangurinn er ekki á byggingunni sjálfri
heldur í húsi við hliðina á því sem er frá árinu 1735.
Byggingin Lögun hússins er auðvitað táknræn fyrir ör-
lög gyðinga í landinu og í heiminum.
Jüdisches Museum (gyðingasafnið) við Lindenstraße 9-
14 í Kreuzberg. Safnið er opið daglega frá 10-8 og 10-10
á mánudögum. Aðgangseyrir er fimm evrur og til að
komast þangað er best að taka neðanjarðarlestirnar U1
eða U6 að Hallesches Tor eða Kochstraße, sem er rétt
hjá hinu þekkta múrsafni Chekpoint Charlie.
http://www.juedisches-museum-berlin.de
Gyðingasafnið í Berlín
Í KÓNGSINS Kaupmannahöfn er boðið upp á þann
skemmtilega valkost, frá 1. maí til 15. desember, að fá lánað
hjól til að skoða borgina á slíkum fararskjótum. Aðeins þarf
að finna sér eitt af þeim 125 hjólum sem standa víðs vegar í
borginni og eru þau sérstaklega merkt. Borga þarf 20 evrur
í rauf, ekki ólíka því sem fólk þekkir með innkaupakörfur,
og þá getur viðkomandi hjólað þvers og kruss hvert sem
honum eða henni hentar. Þegar hjólinu er skilað aftur á
þessa ákveðnu staði fær viðkomandi 20 evrurnar aftur.
Þetta er því frítt, umhverfisvænt og skemmtilegt og fólk er
jafnvel fljótara á milli staða á hjóli heldur en á bíl eða með
strætó. Hjólin eru ekki síður notað af heimafólki en ferða-
mönnum en sumir segja að þessi hjól séu eitt aðalaðdrátt-
arafl borgarinnar. Þegar Bill Clinton þáverandi forseti
Bandaríkjanna kom til Kaupmannahafnar árið 1997, þá fékk
hann eitt svona sérhannað bæjarhjól sem opinbera gjöf frá
borginni. Enda er Kaupmannahöfn þekkt fyrir að vera ein
mesta hjólaborg heims.
Morgunblaðið/Ómar
Hjólað um Köben
á lánshjólum
www.visitcopenhagen.dk www.bycyklen.dk
Fréttir
í tölvupósti
22. daga ævintýraferð á ári Gríssins, 2007
til Kína og Tíbet með
KÍNAKLÚBBI UNNAR
26. ágúst - 16. september
Farið verður til BEIJING, XIAN, GUILIN, YANGSHUO,
SHANGHAI og SUZHOU. Siglt verður á LÍ FLJÓTINU og farið á
KÍNAMÚRINN. Í TÍBET verður dvalið í höfuðborginni LHASA, en
þar verður m.a. POTALA HÖLLIN skoðuð, ein frægasta bygging
veraldar. 5 sinnum verður flogið innanlands í Kína. Ekki verður gist í
Evrópu, hvorki á útleið, né heimleið. Eina lestarferðin sem farin er,
er 35 mín. hraðlestarferð á milli Shanghai og Suzhou.
Heildarverð á mann: kr. 370 þús.
Allt innifalið: þ.e. allar skoðunarferðir, gisting í tvíbýli á lúxushótelum (einb. +
70 þ.), fullt fæði, skattar og gjöld, staðarleiðsögumenn og fararstjórn Unnar
Guðjónsdóttur.
Kínaklúbbur Unnar, Njálsgötu 33, 101 R
sími/símbréf: 551 2596, farsími: 868 2726
Vefsíða: www.simnet.is/kinaklubbur
Netfang: kinaklubbur@simnet.is
Geymið auglýsinguna
Árið 1983 fór ég í fyrsta sinn til Kína. Ég ferðaðist eins míns liðs um landið. Næst fór ég til
Kína 1991, fór víða og dvaldi þar að auki í Beijing í nokkrar vikur, þar sem ég fylgdist með
kennslu í Listdansskóla ríkisins - ég er fyrrv. atvinnudansari í Svíþjóð og fyrrv. ballett-
meistari Þjóðleikhússins.
Þessar 2 löngu ferðir kveiktu í mér brennandi áhuga á Kína og langaði mig til þess að
miðla áhuga mínum og þekkingu til annarra.
Vorið 1992 fór ég með rúmlega 20 manna hóp héðan til Kína, í 2. vikna pakkaferð, sem ég
keypti af kínverska ríkinu. Ekki varð ég ánægð með ferðina, fannst hún of stutt og
skipulagið „hrátt og óþjált”. Farþegar mínir voru þó ánægðir, þeir vissu ekki betur.
Síðan hef ég sjálf skipulagt allar ferðir Kínaklúbbsins til Kína og ætið haft þær 3. vikna,
til þess að fólk fái sem mest út úr ferðinni, eins og ég vona að það geri líka núna í haust,
þegar ég fer með 25. hópferðina mína þangað.
Til Kína með konu sem kann sitt Kína.