Morgunblaðið - 17.05.2007, Síða 23

Morgunblaðið - 17.05.2007, Síða 23
hjólað í vinnuna MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2007 23 Heimsferðir bjóða frábært tilboð á síðustu sætunum til Montreal 24. og 31. maí. Þetta er ein- stakt tækifæri til að njóta vorsins og lífsins í þessari stórkostlega spenn- andi borg sem er önnur stærsta borg Kanada. Í borginni mætast gamli og nýi timinn, rík sagan og iðandi nýbreytnin á einstaklega skemmti- legan hátt. Það er frábært að skoða sig um, versla og njóta lífsins í Montreal; fallegar byggingar, endalaust úrval verslana og veitinga- staða og mjög hagstætt verðlag. Gríptu tækifærið og smelltu þér til Montreal og njóttu þess besta sem þessi spennandi heimsborg hefur að bjóða. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Montreal Kanada 24. og 31. maí frá kr. 33.990 Vikuferð - siðustu sætin Verð kr. 33.990 - Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir með sköttum. Vikuferð 24.-31. maí Verð kr. 49.990 - Vikuferð Netverð á mann. Flug, skattar og gisting í tvíbýli á Travelodge Montreal m/morgunverði í 7 nætur, 24. eða 31. maí. Aukagjald fyrir einbýli kr. 19.900. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.900. Munið Mastercard ferðaávísunina Flug og gisting í viku - aðeins kr. 49.990 Nú eru Íslendingar uppfullir af umhverf- isvernd en m.v þetta virðist hún ekki rista djúpt. Náttúra landsins á að vera ósnortin en sælgætisbréf, gos- flöskur og dagblöð mega samt liggja út um allt. Með sama áfram- haldi verður ekki gam- an að ganga um þessa ósnortnu náttúru, fal- lega kjarrið flaggar sælgætisbréfi og á milli hverrar þúfu hvílir tóm gosflaska eða áldós. Víkverja finnst fólk þurfa að líta sér nær í umhverf- isverndinni. Auðvitað á náttúran að vera ósnortin en landið okkar verður aldrei fallegt ef meðfram hverjum vegi og götu eru ruslahrúgur og síg- arettustubbar. x x x Víkverji getur ekki beðið eftirreykingarbanninu 1. júní. Vík- verji þolir ekki að geta ekki farið út á lífið án þess að þurfa að anda þess- um eitraða reyk að sér. Fólk má reykja sig til dauða fyrir Víkverja meðan það dregur ekki aðra til dauða með sér. Víkverji þolir ekki að koma heim af lífinu angandi af sígarettureyk og jafnvel með brunagat á fötunum eft- ir einhvern óvitann sem kann ekki að fara með þetta eiturspjót. Það eru ýmsar sög-urnar sem ganga í þessu þjóðfélagi okkar, Víkverji heyrði t.d eina sprenghlægilega um daginn um fólk sem hendir dagblöðum í al- mennar ruslatunnur. Í stigaganginum hjá vini Víkverja býr fólk sem lætur öll dag- blöðin og bæklingana renna niður ruslalúg- una með öðru heim- ilissorpi þrátt fyrir að í um mínútu göngu- fjarlægð sé endur- vinnslugámar fyrir dagblöð, fernur og um- búðir. Víkverji hló mikið yfir þessari sögu og sagði vin sinn fara með ýkj- ur, það væri enginn svo latur og vit- laus að gera þetta. En jú víst er það satt og vinur Víkverja hafði heyrt um fleiri sem stunduðu slíkt athæfi. Fólk heldur víst að það sé endalaust pláss fyrir rusl á okkar elskulegu plánetu. Víkverji varð reyndar vitni að álíka sóðaskap um daginn þegar hann var að keyra um götur borg- arinnar. Þá sá hann koma fljúgandi út um bílrúðu umbúðir utan af sæl- gæti og gosi. Víkverji varð svo undr- andi á þessu athæfi að hann keyrði næstum á ljósastaur. „Er virkilega ennþá til fólk sem heldur að með því að henda rusli á víðavangi þá hverfi það?“ spurði Víkverji sjálfan sig og svarið var augljóslega já.            víkverji skrifar | vikverji@mbl.is HÆGT væri að draga verulega úr umferðarteppu og loftmengun á höfuðborgarsvæðinu ef borgarbúar notuðu fætur sína meira. Einkabíl- anotkun er áberandi meiri í Reykja- vík en í öðrum borgum á Norð- urlöndum og jafnvel víðar í Evrópu. Könnun sem Gallup gerði árið 2002 á ferðavenjum höfuðborg- arbúa leiddi í ljós að 76% allra ferða á höfuðborgarsvæðinu eru farin á einkabíl en könnunin náði til íbúa eldri en 6 ára. Rétt rúm 19% allra ferða eru farin hjólandi eða gang- andi og rétt rúm 4% fara ferða sinna með strætó. „Þegar verið er skoða svona venjur skiptir mestu máli að kanna hvernig við ferðumst til og frá vinnu af því að þær ferðir eru farn- ar á þeim tíma sem álagið er mest á gatnakerfinu,“ útskýrir Þorsteinn R. Hermannsson, verkfræðingur hjá VGK-Hönnun sem hefur unnið greiningu á könnuninni fyrir Reykjavíkurborg. „Könnunin sýndi að 88% ferða í og úr vinnu eru farin á einkabíl. Þannig að þó að fólk labbi og hjóli 19% allra ferða fer það ekki þannig til vinnu. Innan við 8% ganga eða hjóla til og frá vinnu og innan við 3 prósent fara með strætisvagni.“ Hann bendir á að í þeim hópi séu ekki börn sem ganga eða hjóla til skóla né unglingar, sem séu stærsti notendahópur strætós. Þrír kílómetrar á korteri „Okkur þótti áhugavert hversu stuttar ferðirnar eru,“ heldur Þor- steinn áfram. „Í ljós kom að með- allengd ferða til og frá vinnu er rétt rúmir fjórir kílómetrar en miðað við gefnar forsendur er tæplega fjórðungur ferða til vinnu styttri en 1,2 kílómetrar. Þá vegalengd er hægt að ganga á kortéri.“ Aðspurður segir hann að sam- kvæmt ákveðinni þumalputtareglu sé sennilega hægt að hjóla um þrjá kílómetra innan borgarinnar á kortéri. „Þá erum við komin með meirihluta ferða fólks til og frá vinnu því það eru margir sem búa innan við þrjá kílómetra frá vinnu sinni. Þetta sýnir að það eru mjög mikil tækifæri til að auka hér hlut- deild vistvænni ferðmáta vegna þess hversu borgin er lítil og ferð- irnar stuttar.“ Reykjavík í sérflokki Þorsteinn bendir á að borið sam- an við aðrar litlar borgir á Norð- urlöndum, s.s. Árósa, Þrándheim eða Óðinsvé sé Reykjavík í sér- flokki hvað notkun einkabílsins varðar. Eins og sést á stöplaritinu er hlutfall ferða sem farnar eru gangandi, hjólandi eða með al- menningssamgöngum lægst í Reykjavík sé borið saman við evópsku borgirnar.                  !!  " #  "  $ % & '        &   ( )      *! #+          Meirihluti borgarbúa í göngu- eða hjólafæri frá vinnu Morgunblaðið/Golli Hjólreiðar Fleiri borgarbúar gætu notað tvo jafnfljóta til vinnu en raun er. Fáðu úrslitin send í símann þinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.