Morgunblaðið - 17.05.2007, Síða 37

Morgunblaðið - 17.05.2007, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2007 37 Fallegir legsteinar á góðu verði Englasteinar Helluhrauni 10 Sími 565 2566 - www.englasteinar.is Sendum myndalista ✝ Innilegar þakkir sendum við öllum sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar elskulegu móður, UNU BÁRU ÓLAFSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks Droplaugarstaða á 2. og 3. hæð fyrir hlýju og umönnum. Edda Guðmundsdóttir, Magnús Guðmundsson, Lára G. Nielsen. ✝ Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður minnar, tengdamóður og ömmu, GUÐRÍÐAR ERASMUSDÓTTUR frá Háu–Kotey í Meðallandi, er lést þriðjudaginn 10. apríl. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki á Skjóli fyrir frábæra umönnun. Helgi Kristinsson, Elísabet Waage, Guðríður Nanna Helgadóttir, Gunnar Waage, Lísa B. Ingólfsdóttir Waage og fjölskylda. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGURBJARGAR ÞORVALDSDÓTTUR, Laugarásvegi 62, Reykjavík. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki á lungna- deild Landspítalans í Fossvogi fyrir frábæra umönnun og hlýhug. Róslín Jóhannesdóttir, Kristín Jóhannesdóttir, Sigurður Pálsson, Þorvaldur Jóhannesson, Sonja Hilmars, Anna Sigrún Auðunsdóttir, Ásgeir Sæmundsson, Sigurbjörg Þorvaldsdóttir, Jóhannes Páll Sigurðarson og barnabarnabörn. ✝ Sendum okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýju vegna andláts og útfarar okkar ástkæru, HULDU PÉTURSDÓTTUR, Vogatungu 73, Kópavogi. Þórhallur I. Einarsson, Pétur S. Willams Þórhallsson, Ilon Thyss Williams, Einar Kr. Þórhallsson, Sigríður Steinarsdóttir, Hinrik Þórhallsson, Þórarinn Þórhallsson, Halldóra Þórdís Friðjónsdóttir, Þórarinn Pétursson, Heimir Bjarnason, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, SVAVA KRISTÍN BJÖRNSDÓTTIR fornbókasali, Sóltúni 28, Reykjavík, sem lést fimmtudaginn 10. maí, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstudaginn 18. maí kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast Svövu er bent á Styrktarsjóð hjartveikra barna. Hrafnkell Guðjónsson, Soffía Hrafnkelsdóttir, Einar Gunnar Einarsson, H. Jóhanna Hrafnkelsdóttir, Heimir Hrafnkelsson og barnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar HERMANNS LUNDHOLM fyrrverandi garðyrkjuráðunauts Kópavogs. Sigurbjörg Lundholm, Þórir Ólafsson, Ísidór Hermannsson, Elísabet Guðmundsdóttir, Steinn G. Lundholm, Erla Möller og fjölskyldur. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs sonar míns, bróður og mágs, PÁLS GUÐFINNS ELÍASSONAR frá Grundarfirði, síðast til heimilis í Asparfelli 12. Petrea Guðný Pálsdóttir, Steinbjörg Elíasdóttir, Árni Eiríksson, Guðný Elíasdóttir, Ólafur Ægir Jónsson, Margrét Elíasdóttir, Þorkell Pétur Ólafsson, Elín Katla Elíasdóttir, Steinar Helgason, Finnbogi Elíasson, Sigurlaug Jóhanna Björnsdóttir, Kjartan Elíasson, Svanhvít Guðmundsdóttir. ✝ Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra, sem með faðmlögum, blómum, kertum, nærveru og góðum kveðjum, hafa stutt okkur í veikindum og við andlát okkar ástkæra ÁGÚSTAR KRISTJÁNSSONAR, Klettási 25, Garðabæ, áður til heimilis í Selbrekku 9, Kópavogi. Sérstakar þakkir til starfsfólks gjörgæsludeildar Landspítalans við Hringbraut. Guð blessi ykkur öll. Hekla Þorkelsdóttir, Sigríður Ágústsdóttir, Sigurður Ólafsson, Fanný María Ágústsdóttir, Illugi Örn Björnsson, Þorkell Ágústsson, Ingunn Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg dóttir okkar, systir og barnabarn EMMA KATRÍN GÍSLADÓTTIR andaðist á barnaspítala Hringsins í gær, miðvikudaginn 16. maí. Einlægar þakkir eru færðar þeim sem önnuðust hana í veikindum hennar. Gísli Hjartarson, Gréta Ingþórsdóttir, Baldvin Hugi Gíslason, Greipur Þorbjörn Gíslason, Gerða Friðriksdóttir, Þorbjörg Daníelsdóttir Við vorum jafnaldr- ar og leikfélagar í bernsku. Hellisgerði var leiksvæði okkar þar sem Oddrún amma mín bjó í litla bænum við flöt- ina. Hafsteinn fór í sendiferðir fyrir hana og þáði kandísmola að launum. Hann hafði gaman af að rifja þetta upp. Á uppvaxtarárunum hélt hvor sína leið í lífinu eins og gengur. Gam- all vinskapur gekk síðar í endurnýjun lífdaga og hélst upp úr því. Hafsteinn var greiðvikinn maður og ráðhollur. Mikill húmoristi. Ég hafði oft á orði við hann að hann hefði hæfileika til að gerast leikari. Slík var frásagnargáfa hans og tilburðir. Hann kunni líka þá kúnst að gleðjast í góðra vina hópi, örlátur og stórlyndur eins og fertugsafmælisveisla hans bar vitni um. Síðustu mánuðina var Hafsteinn að mála og endurinnrétta íbúðina sína. Gömul húsgögn voru kvödd, en Haf- steinn vildi að þau yrðu í eigu vina. Ég varð þeirrar ánægju aðnjótandi að að- stoða hann við að koma í þakklátar hendur ýmsum nýtilegum og falleg- um hlutum, og naut sjálfur góðs af hugulsemi hans. Hann vildi vita hvað kæmi hverjum að bestum notum. Gamalt rúm gat ég ekki þegið af hon- um vegna plássleysis. Síðustu sendi- ferðinni var slegið á frest og skyldi farin þegar Hafsteinn hresstist. Við gerðum okkur rækilegan daga- mun yfir góðum mat og vínglasi á veitingahúsi hinn þriðja mars síðast- liðinn. Ekki grunaði mig þá hversu orðið var áliðið dags í lífi hans. Ég kveð Hafstein með söknuði, þennan hugljúfa drengskaparmann, og votta systkinum hans og fjölskyld- um þeirra mína dýpstu samúð. Kristbergur Ó. Pétursson. Elsku frændi. Það er skrítið að þú skulir vera far- inn frá okkur. Þú varst í blóma lífsins og varst nýbúinn að undirbúa enn eina ferðina vestur um haf. Þessar ferðir gáfu þér svo mikið og er ég svo feginn að þú fannst áhuga- mál sem þú elskaðir að fást við sem var köfun. Ég er enn að átta mig á fráfalli þínu og á ég verulega erfitt með að skrifa þessar línur. Sá sjúkdómur sem tók þig sýndi enga miskunn og var ekki lengi að klára sitt verk. Frá upphafi náðum við afar vel saman og brölluðum margt skemmti- legt, allt frá því að æfa fótbolta, gera alls konar prakkarastrik, fíflast í sundlauginni og ferðast saman til út- landa. Ekki vorum við gamlir þegar ævintýrin á Nönnustígnum hófust, ég, þú og Garðar bróðir fundum upp á ýmsu sem var ekki alltaf jafnvinsælt hjá þeim fullorðnu. Allar ferðirnar í Hellisgerði þar sem við príluðum í trjánum, skriðum í hellum og busl- uðum við gosbrunninn. Þegar við fór- Hafsteinn Karlsson ✝ Hafsteinn Karls-son fæddist í Hafnarfirði 4. ágúst 1962. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut sunnu- daginn 1. apríl síð- astliðinn og var jarðsunginn frá Víðistaðakirkju 12. apríl. um svo heim til ömmu til að keppast um að borða hafragraut fannstu iðulega eitt- hvað til að hrekkja ömmu með. Eitt er mér mjög minnisstætt, en það var þegar þið Garðar vilduð ekki borða meira og settuð grautinn yfir til mín og þegar ég ætlaði að klaga tókuð þið ykkur saman og dýfðuð mér í skálina sem endaði með því að ég var skammaður fyrir að leika mér með matinn. Eftir það tóku við frábær ár þar sem við æfðum saman fótbolta og var ótrúlegt hvað þú áttir auðvelt með að lesa það sem ég ætlaði að gera, enda var leikskilningur þinn mikill og eins og þú værir að hugsa fyrir okkur báða. Þú varst mikill íþróttamaður og þeim íþróttum, sem þú tókst ákvörð- un um að stunda, varstu mjög góður í, greinar eins og fótbolti, sund og fim- leikar sem nýttust þér vel í sýning- aræfingum á brettinu í Sundhöll Hafnarfjarðar. Ég tel að þau ár sem þú áttir í sund- lauginni hafi verið með þeim betri í þínu lífi, fyrir utan þau ár sem þú áttir með Önnu. Þegar þið byrjuðuð að vera saman var greinilegt að þú hafðir fundið þína einu ást og þinn lífsförunaut enda náð- ir þú þér aldrei eftir að þú misstir hana. Við tveir fórum að vera meira í sam- bandi eftir lát Önnu og reyndum við margt til að koma þér út í lífið aftur. Það er mér minnisstætt þegar við fórum saman til London, þá lenti ég fyrst í þinni miklu skipulagningu sem leiddi til þess við fórum yfir mikið svæði á stuttum tíma en þrátt fyrir þetta var ferðin ótrúlega skemmtileg og lærdómsrík. Næst var komið að einni skemmti- legustu ferð sem ég hef farið. Þá fór- um við félagarnir til Spánar og það er óhætt að segja að þú hafir sleppt fram af þér beislinu á öllum sviðum, sem gerði ferðina miklu skemmtilegri fyrir okkur hin sem vorum með þér í þess- ari ferð. Ég vil þakka þér fyrir þessar minn- ingar sem þú gafst mér og mun ég varðveita þær sem gull. Guð geymi þig og berðu mínar kveðjur til horfinna ástvina, ég hlakka til að hitta ykkur öll þegar minn tími kemur. Ég mun sakna þín, elsku frændi. Sigurjón.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.