Morgunblaðið - 23.05.2007, Síða 2
Í HNOTSKURN
»Lífeyrishluti almanna-tryggingakerfisins og mál-
efni aldraðra munu færast til
félagsmálaráðuneytisins.
»Sveitarstjórnarmál færastfrá félagsmálaráðuneyti til
samgönguráðuneytis. Verk-
efni tengd ferðaþjónustu fær-
ast til iðnaðarráðuneytisins.
»Einn ráðherra fer meðlandbúnaðar- og sjávar-
útvegsmálin. Iðnaðarráðu-
neyti og viðskiptaráðuneyti
skipt milli tveggja ráðherra.
UMTALSVERÐAR breytingar verða á verkefna-
skiptingu milli ráðuneyta og skiptingu ráðuneyta
milli einstakra ráðherra í nýrri ríkisstjórn Geirs H.
Haarde, að því er fram kom í máli forystumanna og
ráðherra Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks í gær-
kvöldi, þegar samkomulag um myndun nýrrar rík-
isstjórnar var kynnt. Lífeyrishluti almannatrygg-
ingakerfisins og málefni aldraðra munu færast til
félagsmálaráðuneytisins sem gera á að heilsteyptu
fjölskyldu- og velferðarráðuneyti. Fyrir vikið
minnka umsvif heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytisins en tveir af þremur helstu málaflokkum
þess eru, samkvæmt núgildandi reglugerð um
Stjórnarráð Íslands, almannatryggingar og málefni
aldraðra. Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráð-
herra hinnar nýju ríkisstjórnar, segir það eðlilega
þróun að lífeyrismál og málefni aldraðra séu færð
undir ráðuneyti félagsmála sem sé fyrir vikið betur
í stakk búið til að takast á við velferðarmálin með
heildstæðum hætti.
Sveitarstjórnarmálin færast hins vegar frá fé-
lagsmálaráðuneytinu yfir til samgönguráðuneytis-
ins. Stjórnsýsla og verkefni sveitarfélaga, tekju-
stofnar þeirra og fjármál, sveitarstjórnarkosningar
og mörk sveitarfélaga verða því alfarið á könnu
samgönguráðherra. Til að létta undir með ráðu-
neyti samgöngumála hafa verkefni tengd ferða-
þjónustu verið færð yfir til iðnaðarráðuneytisins.
Tvær breytingar verða gerðar á skiptingu ráðu-
neyta milli ráðherra hinnar nýju ríkisstjórnar. Vik-
ið verður frá því fyrirkomulagi að hafa iðnaðar- og
viðskiptamál á hendi eins og sama ráðherrans, líkt
og verið hefur í ríkisstjórn Framsóknarflokks og
Sjálfstæðisflokks. Þá mun einn og sami ráðherrann,
Einar Kr. Guðfinnsson, fara með sjávarútvegs- og
landbúnaðarmál, en ekki liggur ljóst fyrir hvort
ráðuneytin verða sameinuð síðar meir. Fyrir vikið
helst tala ráðuneyta og ráðherra óbreytt; tólf ráð-
herrar mynda hina nýju ríkisstjórn Samfylkingar
og Sjálfstæðisflokks.
„Með þessu samkomulagi er verið að nútíma-
væða stjórnsýsluna og búa til ráðuneyti sem ramma
inn breytt samfélag,“ segir Björgvin G. Sigurðsson,
væntanlegur iðnaðarráðherra hinnar nýju ríkis-
stjórnar.
Miklar breytingar verða
á verkefnum ráðuneyta
„Verið að nútímavæða stjórnsýsluna,“ segir tilvonandi ráðherra í hinni nýju stjórn
2 MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is
Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór
Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
og Friðrik Ársælsson
NÝ ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og
Samfylkingar tekur til starfa að
loknum ríkisráðsfundi á morgun en í
gærkvöldi samþykktu flokksstofn-
anir og þingmenn flokkanna stefnu-
yfirlýsingu og verkaskiptingu stjórn-
arinnar.
Geir H. Haarde forsætisráðherra
mun í dag fara á fund forseta og
greina honum frá myndun nýrrar
ríkisstjórnar. Geir og Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir, formaður Samfylk-
ingarinnar, vildu ekki ræða efni
stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnar-
innar, en þau munu kynna hana á
fundi á Þingvöllum í dag.
Sturla hverfur úr ráðherrastól
Geir H. Haarde verður forsætis-
ráðherra í hinni nýju stjórn og Ingi-
björg Sólrún tekur sæti utanríkis-
ráðherra. Þau Árni Mathiesen,
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
Björn Bjarnason og Einar K. Guð-
finnsson munu áfram verða í forsvari
fyrir sömu ráðuneyti og á síðasta
kjörtímabili, en Einar mun jafnframt
taka við landbúnaðarráðuneytinu.
Guðlaugur Þór Þórðarson, Sjálf-
stæðisflokki, kemur nýr inn í rík-
isstjórnina. Hann mun taka við emb-
ætti heilbrigðisráðherra. Fyrir
Samfylkingu munu, auk Ingibjargar
Sólrúnar, gegna ráðherraembættum
þau Össur Skarphéðinsson, sem
verður iðnaðarráðherra, Jóhanna
Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra,
Björgvin G. Sigurðsson, við-
skiptaráðherra, Kristján L. Möller
samgönguráðherra og Þórunn
Sveinbjarnardóttir sem verður um-
hverfisráðherra. Sturla Böðvarsson,
sem gegndi embætti samgöngu-
ráðherra í fráfarandi ríkisstjórn,
hverfur úr ráðherrastól og verður
forseti Alþingis.
„Komu allar konur í
þingflokknum til greina“
Tillaga Geirs H. Haarde að skipt-
ingu ráðuneyta í röðum sjálfstæð-
ismanna var samþykkt samhljóða í
þingflokknum, að því er fram kom í
máli forsætisráðherra að loknum
fundi hans. „Það er hluti af þessari
tillögu að Sturla Böðvarsson verði
forseti Alþingis og Arnbjörg Sveins-
dóttir formaður þingflokks sjálf-
stæðismanna,“ sagði Geir.
„Þetta er bara niðurstaðan,“ sagði
Geir, þegar hann var inntur eftir því
hvort ekki hefðu verið áform um að
gera fleiri breytingar á ráðherraliði
flokksins. Ein kona sest á ráðherra-
stól fyrir Sjálfstæðisflokkinn en
fimm karlar og var Geir spurður
hvort hann hefði ekki hugleitt það að
hafa fleiri konur í ráðherraliðinu.
Sagðist hann að sjálfsögðu hafa gert
það. „Það komu allar konur í þing-
flokknum til greina,“ sagði Geir sem
ekki kvaðst telja að það yrði óþægi-
legt fyrir sjálfstæðismenn að hafa
aðeins eina konu í ráðherraliðinu.
„Það finnst mér ekki, við leysum það
bara,“ sagði forsætisráðherra.
„Ýmsar óskir uppi“
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir var
spurð að því í gærkvöldi hvers vegna
hún hefði ákveðið að taka að sér ut-
anríkisráðuneytið. „Eitthvað varð ég
að taka og það er einfaldlega þannig
að ef maður horfir á forysturáðu-
neyti í ríkisstjórn þá hafa þau annað
hvort verið forsætis- og utanrík-
isráðuneyti eða forsætis- og fjár-
málaráðuneyti,“ sagði Ingibjörg.
Hún var spurð hvort utanríkisráðu-
neytið hefði verið hennar óska-
ráðuneyti. „Þetta er bara niður-
staðan , hún er þessi. Auðvitað var
margt rætt um ýmis ráðuneyti og
ýmsar óskir uppi, einnig frá hinum
aðilanum. Þetta er bara niðurstaðan
sem maður spilar úr,“ sagði hún.
Varaformaður Samfylkingar
ekki í hópi ráðherra
Ingibjörg Sólrún sagði að verkefni
utanríkisráðuneytisins hefðu breyst
mikið með hnattvæðingunni.
„Ég held að menn verði að fylgjast
vel með þar og vera vakandi þar og
fylgjast vel með stöðu Íslands í sam-
félagi þjóðanna. Ef við pössum ekki
upp á stöðu okkar í þessu alþjóðlega
samhengi getum við verið fljót að
glutra henni innanlands,“ sagði Ingi-
björg Sólrún, sem sagði jafnframt að
Samfylkingin myndi halda Evr-
ópumálum á lofti og umræðum um
þau gangandi. Hún sagði ennfremur
að einhverjir innan Samfylking-
arinnar hefðu orðið fyrir vonbrigðum
með að ekki tækist að mynda vinstri
stjórn en flokksfólk liti björtum
augum á framhaldið og samstarfið.
Ágúst Ólafur Ágústsson, varafor-
maður Samfylkingarinnar, tekur
ekki við ráðherradómi og sagði Ingi-
björg Sólrún að í hans hlut kæmi að
stýra innra starfi flokksins. Kvaðst
hún treysta honum mjög vel til þess.
Ennfremur sagði Ingibjörg Sólrún
að ekki hefði enn verið ákveðið hver
tæki við formennsku í þingflokki
Samfylkingarinnar.
Einhugur
um stjórnar-
myndunina
Sturla Böðvarsson lætur af ráðherra-
embætti og verður forseti Alþingis
Morgunblaðið/Golli
Tilhlökkun Það var létt yfir samfylkingarfólki fyrir fundi þingflokks og síðan flokksstjórnar á Hótel Sögu í gær.
Morgunblaðið/Sverrir
Reyndir Fyrrverandi og núverandi alþingismenn Sjálfstæðisflokks ræddu málin á flokksráðsfundinum í Valhöll.
Þrjár konur og þrír karlar verða
ráðherrar af hálfu Samfylkingar
Sjá einnig á bls. 4