Morgunblaðið - 23.05.2007, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 23.05.2007, Blaðsíða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ER NEFIÐ Á MÉR VIRKILEGA SVONA STÓRT? SJÁÐU! BRÉF FRÁ KENNARANUM MÍNUM! HÚN ER BÚIN AÐ GIFTA SIG OG ÞAKKAR MÉR KÆRLEGA FYRIR EGGJASKURNINA... HÚN ÆTLAR AÐ EIGA ÞÆR AÐ EILÍFU... OG HÚN SEGIST SAKNA ALLRA KRAKKANNA, EN VEISTU HVERS HÚN SEGIST SAKNA MEST? MÍN!! HEIMSKA BLAÐRA! HVAÐ VARÐ EIGINLEGA UM ÁRINA ÞÍNA? HRÓLFUR LÉT MIG EKKI FÁ NEINA ÁR FYRIR ÞESSA FERÐ! ÉG HEF HEYRT AÐ STJÓRNENDUR GERI OFT SVONA HLUTI TIL ÞESS AÐ FÁ FÓLK TIL AÐ HÆTTA TALAÐU... TALAÐU... GLEÐILEGA HÁTÍÐ ELSKAN TAKK LALLI MINN EN FALLEGT HÁLSMEN EF ÞÚ VILT SKIPTA ÞVÍ ÞÁ ER ÞAÐ ALLT Í LAGI. ÞEIR ÁTTU MIKIÐ AF HÁLSMENUM ÉG ÆTLA EKKI AÐ SKIPTA ÞVÍ, ÞAÐ ER FRÁBÆRT KVITTUNIN ER Í KASSANUM ÞANNIG AÐ... HORFÐU Á MIG... ÞAÐ ER FRÁBÆRT! ÆTLAR ÞÚ AÐ HALDA EINHVERJU SEM ÉG VALDI? Í TÖSKUNNI MINNI ER ÞAÐ SEM OLLI ÖLLUM ÞESSUM VANDRÆÐUM ÉG ÆTLA AÐ LÍTA Á ÞAÐ EINU SINNI ÁÐUR EN ÉG... ÉG Á EKKI ÞETTA ÉG HEF TEKIÐ VITLAUSA TÖSKU Á FLUGVELLINUM EN... HVAÐ ER EIGINLEGA ÞETTA? dagbók|velvakandi Nýtni fólks ÉG LAS fyrir nokkru viðtal í blaði við 2 menn sem áttu ísskápa af eldri gerð sem virkuðu vel eftir hálfrar aldar notkun, þ.e.a.s. framleiðsluár 1947 og um 1950, Westinghouse- og Kelvinator-gerðir. Þetta kalla ég nýtni. Í dag hrúgast upp í móttöku- stöðum Sorpu í tuga- og jafnvel hundruðatali nýlegir sem lítið not- aðir ísskápar, sömuleiðis gamlir og lúnir sem og ónothæfir. Nú er tískan sú að allt verður að vera nýtt. Ef flutt er í nýtt hús eða íbúð skal allt vera nýtt með stálframhlið (steel frame), kannski aðeins til að sýnast. Ég man ekki betur en að hér áður fyrr hafi fólk tekið með sér það sem það átti, hvort sem flutt var á milli íbúða eða húsa, en ekki skilið það eftir eða hent því. Til dæmis voru Kelvinator- og Westinghouse- ískápar framleiddir í Bandaríkj- unum og þeir entust fólki í tugi ára, enda vel með þá farið. Á þeim fáu stöðum sem ég hef komið til á Kúbu hef ég séð þessa hluti í fínu lagi, sennilega keyptir fyrir árið 1952 en kannski ekki eftir að Fidel Castro tók við völdum 1959. Svanur Jóhannsson. Kurteisi ÞEGAR við lítum til baka og skoð- um fortíðina þá er athyglisvert, sér- staklega á meðal sveitamanna, og í raun ekkert síður í Reykjavík, hvað kurteisi manna var áberandi. Fólk var þægilegt, aðgengilegt, kurteist og velviljað. Það vísaði manni veginn ef með þurfti þótt alltaf væru und- antekningar á þessari reglu. Í dag er þessu öðruvísi farið. Ef maður, til að mynda, kemur að stórmarkaði og á í einhverjum erfiðleikum með að fóta sig þá er nánast regla að ungt fólk opnar ekki fyrir manni dyr. En ef maður bíður örlitla stund og að dyr- unum kemur manneskja yfir fimm- tugt þá ekki bara opnar hún fyrir manni heldur spyr hvort hún geti eitthvað gert frekar til að greiða götu manns og auðvelda manni frek- ari aðgang að stórmarkaðinum. Ég verð að segja eins og er að mér finnst grundvallarmunur á nær- færni, þægilegheitum og kurteisi yngra fólks gagnvart fjölfötluðum og eldra fólki. Þarf ekki að setja þetta fólk á námskeið til að það átti sig á því að við eigum ekki að hunsa þá sem eru hjálparþurfi heldur rétta þeim stuðning? Það er eitthvað óeðlilegt við það að einungis eldra fólk skuli finna hjá sér hvöt til að gera manni greiða og auðvelda manni það sem til þarf til að komast leiðar sinnar. Kurteisi kostar ekki peninga en er erfiði fyrir suma. Þurfum við ekki að hvetja ungt fólk til að taka tillit til allra sem með ein- hverjum hætti geta ekki athafnað sig? Jóna Rúna Kvaran. Þakkir til Karlakórsins Stefnis ÞRIÐJUDAGINN 15. maí kom Karlakórinn Stefnir og skemmti okkur með ljúfum söng og píanóleik. Við þökkum þeim innilega fyrir komuna og óskum þeim góðs gengis á tónleikaferðalagi þeirra til Péturs- borgar. Heimilisfólk og starfsfólk Hrafnistu í Reykjavík. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Okkur vantar fólk í Reykjavík til að selja álfinn dagana 31. maí-3. júní. Skráning í síma 824 7646 Góð sölulaun! ÁLFASÖLUFÓLK! ar gu s - 0 6- 02 80 SKÓLARNIR eru nú óðum að klárast og skólafólk hefur sumarstörf sín. Tiltekt á Laugarnestanga var fyrsta verkefni þessara ungu manna. Morgunblaðið/G.Rúnar Sumarvinna AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.