Morgunblaðið - 23.05.2007, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
FÆSTIR eru svo sóðalegir að þeir
kasti heimilissorpinu út um eldhús-
gluggann eða losi sig við gömul
húsgögn með því að setja þau út í
garð hjá nágrannanum. Það eru
hins vegar ótrúlega margir sem sjá
hreint ekkert athugavert við að
henda sígarettustubbum, hálf-
étnum hamborgurum, tómum gos-
flöskum og öðru sorpi út um bíl-
gluggann. Þessir sóðalegu letingjar
geta eignað sér stóran hluta af því
rusli sem blasir við þegar ekið er
um þjóðvegi og helstu umferð-
aræðar höfuðborgarsvæðisins en
mikið hefur einnig fokið að veg-
unum, s.s. af flutningabílum og
kerrum.
Vegagerðin sér um að tína upp
rusl við þjóðvegi, þ.á m. þjóðvegi í
byggð líkt og Hafnarfjarðarveginn
og Reykjanesbrautina. Í þennan
starfa velst sumarfólk því ekki er
mannskapur til að sinna rusltínslu
yfir veturinn. Ein þessara sumar-
starfsmanna er Ásdís Bjarnadóttir
sem hefur ásamt tveimur vinnu-
félögum sínum verið að tína rusl við
þjóðvegi í nágrenni höfuðborgar-
svæðisins undanfarna daga. Hún
segir að af nógu sé að taka, fyrir ut-
an borgina hafi mikið verið af stóru
rusli við vegina, s.s. sjónvörpum,
kæliskápum og dekkjum, en innan
borgarmarkanna beri meira á gos-
dósum, sígarettupökkum, umbúð-
um utan af skyndibitafæði o.þ.h.
Hún og vinnufélagar hennar hafa
líka fundið ruslapoka sem greini-
lega hafa verið notaðir til að safna
saman ruslinu í bílnum en hefur síð-
an verið hent út um glugga,
kannski í misheppnaðri tilraun bíl-
stjóra til að vera ekki alveg eins
sóðalegir og ella.
Skárra en fyrir tíu árum
Í nágrenni Borgarness er nú tölu-
vert af „bílgluggarusli“ en Valgeir
Ingólfsson, aðalverkstjóri Vega-
gerðarinnar á staðnum, sagðist þó
hafa tilfinningu fyrir því að það
væri minna en oft áður og ástandið
væri töluvert skárra en fyrir um
áratug. Þriggja manna vinnuflokk-
ur byrjar að tína rusl meðfram veg-
um eftir hvítasunnu en síðan þarf
flokkurinn að fara aftur yfir svæðið
eftir stórar ferðahelgar.
„Þetta er náttúrlega bara helber
sóðaskapur,“ sagði Valgeir. „Það
ætti ekki að þurfa heilan vinnu-
flokk sem fer hér meðfram vegum
[og tínir upp rusl] lungann úr sumr-
inu.“
Sóðalegir bílstjórar víða á ferð um þjóðvegi og helstu umferðaræðar
Bílhlössum af
rusli kastað út
um glugga
Morgunblaðið/Eyþór
Bílgluggarusl Ásdís Bjarnadóttir og vinnufélagar hennar fylla pallinn nokkrum sinnum á dag.
ÞAÐ liggur að lágmarki 10.000 króna sekt við því að
henda rusli á almannafæri, þ.á m. við því að henda rusli
út um bílglugga, og lögregla hefur endrum og sinnum
gert gangskör í því að stöðva sóðana og sekta þá.
Að sögn Ólafs Helga Kjartanssonar, sýslumanns á
Selfossi, mun lögreglan í umdæminu stöðva ökumenn
sem henda rusli út um gluggana í sumar og sekta þá.
„Það vantar talsvert upp á að umgengni sé nægilega góð
í þessum efnum og ef lögregla stendur menn að verki þá
eiga þeir von á þessu.“ Ekki væri um sérstakt átak að
ræða enda hefði lögregla margt annað að gera. Ólafur
sagði að það væri alltof algengt að fólk henti rusli út um
gluggann og sóðarnir væru af öllu tagi og á öllum aldri.
„Maður sér jafnvel fólk með börn aka hér um og kasta
rusli út um gluggana. Ég velti því oft fyrir mér hvort fólk
myndi kasta svona frá sér heima í stofu.“
Sóðarnir sektaðir um 10.000 krónur
Subbur Fernur, bollar, bleiur, dósir, flöskur og sígar-
ettupakkar. Allt fær að fjúka út um gluggann.