Morgunblaðið - 23.05.2007, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 23.05.2007, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÞAÐ var við hæfi að upphaf nýrrar viðreisnarstjórnar væri á uppstigningardegi. Viðreisn sjálf- stæðis- og jafnaðarmanna er langlífasta stjórn lýðveldisins í dögum talið, stóð tæpum mánuði lengur en fráfarandi stjórn. Með þau verkefni framundan í vel- ferðar-, atvinnu- og Evrópu- málum er „ný viðreisn“ eini raunhæfi kosturinn til að ná ár- angri og endurheimta stöð- ugleika. Það stjórnarmynstur sem er að skila Þjóðverjum strax miklum árangri er á sama átt gæfulegt til hagsældar hér á Ís- landi til lengri tíma. Fjöl- skuldufólk, eldri borgarar og al- menningur geta væntanlega séð fram á betri tíð. Þegar kosningahelgarvíman var rokin af hlutu menn að jarð- tengjast eins og reyndin varð. Eins þingmanns meirihluti stóðst ekki. Eða datt raunsæju fólki í hug að farið yrði áfram í stjórn- arsamstarf þar sem Árni John- sen hefði sjálfkrafa neitunarvald í öllum málum? Hvað þá að allir aðrir stjórnarþingmenn gætu kallað eftir tuggu að moða eða dekstri? Slíkt hefði orðið stjórn ríkulegra einkahagsmuna, ávísun á gósentíð sífelldra hrossakaupa margra oddamanna. Það gekk auðvitað aldrei upp, nei! Rauðu sósíalistarnir sem stjórna VG eru enn eina ferðina eins og kamelljónið, liggjandi á grein, skiptandi lit eftir umhverf- inu. Formaður VG sagði í vímu skoðanakannana að þeir seldu sig dýrt, rétt eins þar færu gleði- konur úr rauða hverfinu! Skilyrð- aflaumur safnaðarins var eins og ættaður frá hinni „rauðu og um- hverfisvænu“ Kúbu. Formaður BSRB bætti um betur í Kastljósi fyrir nokkru, sagði raunhæfustu óskastjórn þeirra sósíalgrænna vera samstjórn með Sjálfstæð- isflokki. Þar staðfestust ítrekuð orð Framsóknar um hægri draum VG en ekki einarðan vinstrivilja! Hvað varð svo um óskir VG að fá að kasta rekum á framsóknarnáinn rétt fyrir kjör- dag? Á uppstigningardag vilja þeir faðma „náinn“ og allt fyrir þann flokk gera sem þeir hafa nítt niður og formælt gróflega mánuðum saman! Það er hárrétt hjá Ingibjörgu Sólrúnu að láta ekki tækifær- issinnaða sósíalúlfana í VG villa sér sýn með skyndilegri vinstri- beygju og slægum tungum á ög- urstundu, heldur senda þá í póli- tíska megrun næstu árin og sjálfskoðun. Það var góð lexía öllum jafnaðarmönnum að sjá fulltrúa gömlu kommanna bíða breimandi fyrir utan Valhöll. „Þú tryggir ekki eftirá“ mætti nú segja við þá, svo vitnað sé í þekkt orðatiltæki. En úlfarnir munu sleikja aurugar loppurnar ýlfrandi næstu daga, þeirra tími kemur ekki, það verður ekkert „fúll á móti-stopp“, það verður framþróun! Pálmi Pálmason Ný viðreisn Höfundur starfar við framkvæmdastjórn. Í GREIN minni í gær fjallaði ég um langtíma áhrif þeirrar peninga- málastjórnar sem stunduð hefur verið hér á landi síðan 2001. Slíka stjórnun er aldrei hægt að stunda til lengdar. Stórfelld erlend lántaka leiðir til hækkandi lántökukostnaðar okkar í útlöndum og þrengri að- gangs að erlendu lánsfé. Áhættuá- lag fjármálamarkaðanna á „íslensku áhættunni“ hækkar. Erlendu lánin verða dýrari. Eitt form þessa dýra erlenda lánsfjár eru jöklabréfin sem erlend- ir spákaupmenn eða „carrytraders“ nota í skammtímaveðmálum á ís- lenska vexti og væntingar um styrk- ingu krónunnar. Þetta lánsfé er hvikulla en annað og getur hlaupið út um dyrnar um leið og þeir óttast að áhættan á lækkun krónunnar kunni að vera á næstu grösum. Spenna myndast í kringum við- skiptin með íslensku krónuna, hér vegast á gróðalöngunin vegna góðra vaxta og óttinn um veikingu krón- unnar. Hvenær má reikna með veik- ingu? Hvenær snýr spákaup- mennskan gegn krónunni? Þegar það gerist hríðfellur gengi krónunnar og Seðlabankinn með sín verðbólgumarkmið lendir í sjálf- heldu. Samkvæmt eigin kenningum mun hann þá enn þurfa að hækka vextina til að ráða við ástandið og ýta af stað enn á ný gengishækkunum sem lík- lega myndu hefjast að nýju þar sem útflutningsgreinar myndu sjá hag sínum til skemmri tíma borgið með að taka ný erlend lán og selja gjald- eyristekjurnar framvirkt. Allt þó undir okkar lánstrausti í útlöndum komið og hversu hátt „íslenska áhættuálagið“ verður orðið. Hvað er framundan? Ef ekki verða breytingar hér á megum við eiga von á að þau verði fleiri landsbyggðarþorpin sem verð- ur lokað á næstu mánuðum með til- heyrandi fjárhagstjóni einstakling- anna sem ekki geta flutt á brott nema skilja húsin eftir og taka skuldirnar á bakið í leit að nýju lífi. Ef ekkert verður að gert er nokk- uð víst að krónan mun halda áfram að styrkjast á næstunni og „sig- urinn“ í stríðinu við verðbólguna verður væntanlega sá að „Flateyrarfrostið“ breiðist út með til- heyrandi fjárhagstjóni fólks og fyrirtækja. Tjóni sem á endanum verður gert upp af þjóðinni í heild í gegn- um aukinn vaxtamun og afskriftarreikninga bankanna og Íbúða- lánasjóðs. Samdráttur útflutn- ings- og samkeppn- isgreina mun leiða til minni útflutnings og meiri innflutnings sem þýðir að við þurfum meiri gjaldeyri til að borga fyrir innflutn- inginn en höfum úr minni gjaldeyr- istekjum að spila vegna samdráttar. Að óbreyttu brotnar grundvöllur íslenskra útflutnings- og sam- keppnisgreina og at- vinnuleysi heldur inn- reið sína. Tjónið af óbreyttri stefnu í peningamálum gæti orðið álíka þungbært og úthreinsunin var á sínum tíma í upphafi 10. áratugar síðustu aldar þegar timburmenn verðbólguáranna frá 1972-1990 voru teknir út. Hvað er til ráða? Okkur er einn kostur nauðsyn- legur og hann er að víkka markmið peningamálastjórnunar Seðlabank- ans og auka áherslurnar þar á við- skiptajafnvægi og atvinnustöð- ugleika. Hefja skipulega lækkun vaxta þannig að hér verði stunduð svipuð stefna í þeim efnum og í Nor- egi Svíþjóð og Danmörku. Stefnan hefur gefist vel þar. Við verðum að viðurkenna fánýti stefnu ofurvaxtamunarins og að hún hefur leitt til þess að hér hefur streymt inn erlent lánsfé og kynt þensluna. Samdráttaráhrif stefnunnar eru þau ein að það kreppir að út- flutnings- og sam- keppnisgreinum og framleiðslustörfum í landinu fækkar í sam- ræmi við það. Með lækkun vaxta getum við lagt grund- völl að heilbrigðum framtíðarvexti á Ís- landi. Góðæri sem ekki yrði fengið að láni. Fyrst þarf þó að taka út timburmenn lánsgó- ðæranna og lækka skuldir. Við skulum muna að frelsunin er ekki fólgin í því að afsala okkur peningastjórninni með því að taka upp evru. Afsala okkur frelsinu. Það hjálpar heldur ekkert við núverandi aðstæður nema við tök- um sjálf til fyrst í okk- ar málum. Þetta er stefnubreyt- ing sem ný ríkisstjórn og Seðlabankinn þurfa að framkvæma. Ef þeir veita forystu um málin verður breytingin sárs- aukaminni en ella. Ef ekki, þá mun óttasleginn markaður taka fram fyrir hendur þessara aðila á einhverjum tíma- punkti með ófyrirsjáanlegum afleið- ingum, eða kannski vel fyrirsjáan- legum ef við lítum til gengisvísitölunnar þegar hún sló yf- ir 150 árið 2001 vegna ótta um geng- islækkun. Þrengir að – Kælingin vex Víglundur Þorsteinsson skrifar um íslenska hagkerfið » Við verðumað við- urkenna fánýti stefnu ofurvax- tamunarins og að hún hefur leitt til þess að hér hefur streymt inn er- lent lánsfé og kynt þensluna. Víglundur Þorsteinsson Höfundur er stjórnarformaður BM Vallár ehf. EINN álappalegasti bjálfaháttur sem ríður húsum í ritmáli margra Ís- lendinga nú um stundir er að kalla það „geðveikt“ sem mönnum finnst gott eða fallegt eða skemmtilegt. Og þetta vitlausa unglinga- mál éta fullorðnir hver eftir öðrum eins og af- glapar. Veit þetta fólk ekki að geðveiki er hræðilegur sjúkdómur (reyndar margir sjúk- dómar), sem getur ver- ið lífshættulegur, engu síður en t.d. berklar og krabbamein? Eigum við að hafa slíka hluti í flimtingum eða gera þá að fíflskap- armálum? Skilja menn ekki, að með þessari endalausu tuggu er verið að særa sjúklinga og aðstand- endur þeirra? „Siðmenning“ á Fréttablaðinu Nýlegt dæmi um þessa ómenningu mátti lesa í Fréttablaðinu 21. apríl síðast liðinn, þar sem kvenmaður hælir sér af því að hafa snætt „geðveikan“ mat í útlöndum og segir: „Hvar annars staðar en í Íran getur maður borðað yfir sig af geðveikum heimagerðum mat....“ o.s.frv. (Fréttablaðið 21. apríl, bls. 46). Hvers vegna sagðist hún ekki hafa étið yfir sig af „berklaveikum“ mat? Það hefði þó a.m.k. frekar verið hægt að trúa því að berklasýkill leyndist í matvælum, heldur en að þar væri geðveiki fyrir hendi! En Fréttablaðið – sem vissulega hefur ýmsum góðum mönnum á að skipa – það kallar ekki allt ömmu sína. Það hvetur lesendur sína mjög til þess að senda blaðinu línur, en áskilur sér jafnframt rétt til þess að skemma að vild efni sem því berst. „Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til að stytta efni“ stendur þar. Gott og vel. En hvernig? Án nokkurs samráðs við höf- undana? Eða hvað? Og hvað á að „leiðrétta“? Stafvillur? Álappalegt málfar? Eða kannski skoðanir bréfrit- aranna? Heldur væri það nú reyndar með ólíkindum – og satt að segja ekki hægt að gera ráð fyrir slíku – en hvað á fólk að halda? Blaðið útskýrir ekk- ert, hvers konar „leið- réttingar“ átt er við. Sjálfur hlýt ég að játa, að mér varð það á í einhverju bjartsýnis- kasti fyrir einu ári að senda Fréttablaðinu ör- stutta grein, (sem ég hefði betur látið ógert), og talaði um það við einn af starfsmönnum þess blaðs. Hann stakk upp á ákveðinni til- högun, sem ég sam- þykkti fúslega, og fór prýðisvel á með okkur – fyrst í stað! En til þess að gera nú langa sögu stutta, þá sveik blaða- maðurinn þetta sam- komulag – sem hann átti sjálfur frumkvæði að – eyðilagði greinina, þeg- ar hún birtist, og reyndi síðan að snúa sig út úr þessu með fáránlegum vífilengjum. Þegar ég svo kvartaði yfir þessum að- förum við hann í fullri alvöru, þá skellti hann á mig símanum og sagði að ég hefði sýnt sér ruddaskap. Sem ég kannast alls ekki við. En þetta voru nú hans mannasiðir. Hann var bara svona á vegi staddur. Ég skrifaði alla þessa atburðarás vandlega hjá mér og öll orðaskipti jafnóðum og þau fóru fram, og er reiðubúinn að birta þau opinberlega, hvenær sem henta þykir. – En þegar kvenpersóna lýsir því yfir að hún hafi étið yfir sig af „geð- veikum“ mat í útlöndum, þá sér Fréttablaðið ekki neina ástæðu til að „stytta“ eða „leiðrétta“ efni. Bara gaman, gaman. Og menningarlegt! Til skammar Valgeir Sigurðsson skrifar um málfar Valgeir Sigurðsson » Álappaleg-asti bjálfa- háttur í ritmáli nú um stundir er að kalla það „geðveikt“ ... Höfundur er fyrrv. blaðamaður og félagsmaður í Geðhjálp. FRAMSÓKNARMENN eru ekki öfundsverður minnihlutahópur um þessar mundir. Eftir áralanga stjórn- arsetu, þar sem þeir hafa notið valda langt umfram fylgi sitt, leggja þeir sig svo lágt að fullyrða að forystu- sveit sjálfstæðismanna hafi brotið á þeim trún- að. Varðandi rök þeirra fyrir því að á þeim hafi verið brotinn trúnaður varpa þeir því fram að sjálfstæðismenn hafi rætt við Samfylkinguna áður og á meðan fram- sóknarmenn stóðu í við- ræðum við formann Sjálfstæðisflokksins um áframhaldandi stjórnarsamstarf. Þarna benda þeir m.a. á að sjálfstæð- ismenn hafi vogað sér að ræða við fulltrúa Samfylkingarinnar fyrir kosningar, jafnvel löngu fyrir kosn- ingar og í þeim viðræðum öllum hafi örlög Framsóknarflokksins verið ráðin. Fyrir og eftir kosningar lögðu vinstri grænir og framsóknarmenn áherslu á fjölmörg mál en eitt þeirra mála var að niðurlægja hvorir aðra. Má því með sanni segja að af fjöl- mörgum kosningamálum hafi þeir einna best náð saman um að eiga í ill- deilum. Samfylkingin hefur sjálfsagt eitt- hvað með allt þetta að gera, enda laut hún svo lágt að ganga til viðræðna við sjálfstæðismenn á meðan vinstri grænir og framsóknarmenn stóðu í umtalsverðu skítkasti. Þegar svo kom í ljós að sjálfstæð- ismenn og Samfylking hefðu vilja til að mynda ríkisstjórn, eins og þeim ber í raun skylda til að reyna eftir fremsta megni, eru framsóknarmenn strax tilbúnir að mynda 3ja flokka vinstristjórn þar sem þeir bjóða for- manni Samfylking- arinnar forsætisráð- herrastólinn og að vinstri grænir fái þar að skipa öndvegi ásamt Framsóknarflokknum. Í þessu samhengi verður manni umhugað um hver stefnumál framsóknarmanna eru og hvort þeir séu í raun að huga að þjóð sinni eða sjálfum sér. Það er sorglegt að þessi svo sem ágæti hópur fólks, sem þarf sárlega á hléi að halda til að ná vopnum sínum og mynda trúnað við eigin flokks- menn, sé svo augljóslega tilbúinn að varpa fyrir róða hagsmunum þjóðar sinnar aðeins til þess eins að vera við völd. Eða er það ekki alveg augljóst? Um þessar mundir er vonandi ver- ið að mynda öfluga stjórn Sjálfstæð- isflokksins og Samfylkingarinnar sem getur tekið á fjölmörgum erf- iðum málum á sviði velferðarmála, efnahagsmála, Evrópumála, mennta- mála og mála er snúast um verslun og viðskipti hvers konar. Þessi stjórn þarf þó að gæta þess að aðgerðir af þeirra hálfu stuðli ekki að því að flokkar, sem að mestu eru skipaðir framsóknarmönnum, geti ekki lyft sér upp á óánægju og úlfúð vegna óvinsælla en þó nauðsynlegra að- gerða. Við slíkar lagasetningar eða ákvarðanir ber að gæta þess að und- irbúningur sé nægur og að faglega sé tekið mið af efnum og aðstæðum við innleiðingu slíkra laga eða aðgerða. Að lokum vill undirritaður taka undir ábendingu Illuga Gunn- arssonar í Fréttablaðinu á dögunum þar sem hann gagnrýnir ríkisvæð- ingu stjórnmálaflokka og ósk um að stjórnarandstaðan, í ljósi sögunnar og flókinnar gagnaöflunar í sí flókn- ara umhverfi, fái kost á aðstoð- arfólki. Að öðrum kosti á þjóðin ekki von á öðru en skelfilegri stjórn- arandstöðu hér eftir sem hingað til. Afar mikilvægt er ríkjandi vald- höfum að stjórnarandstaðan sé fag- leg og vinni markvisst í málefnum, afli gagna og að úrvinnsla slíkra gagna sé vönduð og gagnsæ fyrir framsóknarmenn sem og aðra um ókomna framtíð. Stóryrði, stjórnarmyndun og stjórnarandstaðan Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar um viðræður flokkanna um myndun ríkisstjórnar » Fyrir og eftir kosn-ingar lögðu vinstri grænir og Framsókn- arflokkurinn áherslu á fjölmörg mál en eitt þeirra mála var að nið- urlægja hvorir aðra. Sveinn Ó. Sigurðsson Höfundur er viðskiptafræðingur MBA.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.