Morgunblaðið - 23.05.2007, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 23.05.2007, Blaðsíða 44
MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 143. DAGUR ÁRSINS 2007 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Ný ríkisstjórn kynnt  Sjálfstæðisflokkur og Samfylking kynntu í gær hverjir setjast í ráð- herrastóla nýrrar ríkisstjórnar. Geir H. Haarde verður forsætisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir verður menntamálaráðherra, Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra, Björn Bjarnason dómsmálaráð- herra, Einar K. Guðfinnsson sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra. Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir verður utanríkis- ráðherra, Kristján Möller sam- gönguráðherra, Össur Skarp- héðinsson iðnaðarráðherra, Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfis- ráðherra, Björgvin G. Sigurðsson verður viðskiptaráðherra og Jó- hanna Sigurðardóttir félagsmála- ráðherra. »Forsíða Mál Eggerts tekið upp  Hæstiréttur hefur fallist á að auðgunarbrotsmál Eggerts Haukdal verði tekið upp á ný. Ástæða þess er að komin séu fram ný gögn sem ætla megi að hefðu skipt verulegu máli. »8 Samruni ógiltur  Samkeppniseftirlitið hefur ógilt samruna skoðunarfyrirtækjanna Frumherja og Aðalskoðunar. Eft- irlitið telur að samruninn hindri virka samkeppni á markaði fyrir skoðun skráningarskyldra ökutækja og skoðun á aðstöðu, hreinlæti og innra eftirliti vinnsluleyfishafa. »8 SKOÐANIR» Ljósvaki: Hvað á sjónvarpsbarnið…? Staksteinar: Margir ráðherrar – lítil ráðuneyti Forystugreinar: Ráðherraval | Ógnvekjandi ástand UMRÆÐAN» Sigur VG í Norðvesturkjördæmi Þrengir að – kælingin vex Mafíósi kveður sér hljóðs Söguleg tímamót lagadeildar HR .!#7 $-"  * "# 8" ""  ! / / / / / / / / / / / / / / /  / / / / ,9(5 $  / / / /  / / / :;<<=>? $@A><?28$BC2: 9=2=:=:;<<=>? :D2$9 9>E2= 2;>$9 9>E2= $F2$9 9>E2= $6?$$2 G>=29? H=B=2$9@ HA2 $:> A6>= 8A28?$6*$?@=<= Heitast 10 °C | Kaldast 2 °C  V 3–8 m/s. Skýjað með köflum og él eða skúrir en bjartviðri A- lands. N 8–10 m/slyddu undir kvöld NV til. »10 Sigurður Guð- jónsson myndlist- armaður sýnir myndbandsverk um svín, grísi og slátrara. » 36 MYNDLIST» Af mönnum og svínum KVIKMYNDIR» Benedikt Erlingsson gerir stuttmynd. » 36 Nýleg bók sagn- fræðingsins Adams Toozers sýnir óvænta hlið á Þýska- landi undir stjórn nasista. » 40 BÓKMENNTIR» Forvitnileg- ar bækur FÓLK» Brad Pitt heillar í Cannes. » 38 BÓKMENNTIR» Elísa Gyrðisdóttir skrif- ar um ballerínu. »39 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. Sofnaði á rauðu ljósi 2. Ingibjörg Sólrún: Jöfn skipting… 3. Guðlaugur Þór verður… 4. Þrjár konur, þrír karlar… ÍSLENSKA nafn- ið Rúnar er orðið vinsælt í belgíska bænum Lokeren. Ekki þarf að geta sér til um ástæð- ur þess en Rúnar Kristinsson, sem er að yfirgefa knattspyrnu- félag bæjarins einmitt í dag eft- ir að hafa leikið með því í hálft sjö- unda ár, hefur notið gífurlegra vin- sælda meðal stuðningsmanna Lokeren. Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að í það minnsta sex drengir í Lokeren hafi að undanförnu hlotið nafnið Rúnar, í höfuðið á Íslendingnum. Skírt í höfuðið á Rúnari Rúnar Kristinsson NÝ bók um ævi Jónasar Hallgríms- sonar eftir Böðvar Guðmundsson rithöfund kemur út í haust, í tilefni af 200 ára fæðingarafmæli skálds- ins og náttúrufræðingsins, og verð- ur gefin öllum nemendum 10. bekkjar grunnskóla. „Ævisagan verður stutt og hnitmiðuð og á að vekja áhuga ungs fólks og almenn- ings á Jónasi Hallgrímssyni og ljóð- um hans,“ segir formaður Menning- arfélagsins Hrauns í Öxnadal. | 17 Jónas handa ungu fólki Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri Reykjavíkur leggur til að stofnaður verði samstarfshópur með tveimur fulltrúum íbúa í ná- grenni Njálsgötu 74 og tveimur fulltrúum borgarinnar til að fara yfir ólík sjónarmið um stofnun heimilis fyrir heimilislausa á Njálsgötu 74. Það sé skylda borgarinnar að fara yfir öll sjónarmið áður en tekin verði endanleg ákvörðun um hvort heim- ilið verði opnað á þessum stað eða ekki. Þetta kom fram í ræðu Vil- hjálms á fundi um fyrirhugað heimili sem haldinn var í Austurbæjarskól- anum í gær. Jórunn Frímannsdóttir, formaður velferðarráðs, sagði stefnt að því að setja á fót tvö tíu manna heimili fyrir heimilislausa og að við Njálsgötu væri annað þeirra. Hún sagði það hafa verið faglegt mat þeirra sem leituðu að stað fyrir heimilið að hús- næðið á Njálsgötu 74 væri heppilegt. Jórunn sagði tilganginn að hjálpa heimilismönnum til betra lífs og að ná fótfestu í samfélaginu. Sólar- hringsvakt yrði á heimilinu og yrði brugðist strax við ef heimilismenn færu ekki að reglum. Björk Vilhelmsdóttir og Þorleifur Gunnarsson, fulltrúar minnihlutans í velferðarráði, lýstu sig bæði fylgj- andi stofnun heimilisins. Ellý A. Þorsteinsdóttir, skrifstofu- stjóri á velferðarsviði, gerði m.a. grein fyrir öflugri félagslegri þjón- ustu og heilbrigðisþjónustu sem ætl- unin er að bjóða heimilismönnum. Ekki kvartað yfir öðrum heimilum fyrir heimilislausa Íbúar í nágrenninu fjölmenntu á fundinn og komu þar sjónarmiðum sínum á framfæri, bæði úr pontu og úr sal. Einnig afhentu þeir borgar- stjóra mótmæli gegn vinnubrögðum borgarinnar í þessu máli og höfðu 127 íbúar skrifað undir þau. Í máli margra var áberandi ótti við að fá þetta heimili inn í náið þéttbýli við fjölskyldugötu. Fíkniefnaneysla væri þegar mikil á svæðinu og afleið- ingar hennar áberandi, sprautunálar og önnur ummerki fíkniefnaneyslu jafnvel á leiksvæðum barna. Fólki stóð stuggur af því að tilkoma heim- ilis fyrir heimilislausa myndi auka á þann vanda sem væri ærinn fyrir á svæðinu. Þá voru áberandi áhyggjur vegna mikillar nálægðar fyrirhugaðs heimilis við leikskólann Barónsborg og einnig af því að tilkoma heimilis- ins mundi verðfella fasteignir í næsta nágrenni. Geir Jón Þórisson, yfirlögreglu- þjónn, var fundarstjóri og ávarpaði fundinn. Hann sagði nágranna Gisti- skýlisins við Þingholtsstræti og heimilis fyrir heimilislausa við Miklubraut ekki hafa kvartað til lög- reglunnar vegna þeirra sem dveldu á þessum stöðum. Það væri reynsla lögreglunnar að þegar heimilislausir fengju gott atlæti og húsaskjól þá sýndu þeir bæði sjálfum sér og öðr- um mikla tillitssemi og kæmu vel fram. Samráðshópur um Njálsgötuheimili Morgunblaðið/Sverrir Íbúafundur Nágrannar fyrirhugaðs heimilis fyrir heimilislausa við Njálsgötu tjáðu skoðanir sínar tæpitungulaust á fundinum í Austurbæjarskóla og var nokkur hiti í fundarmönnum á stundum. Í HNOTSKURN »Að jafnaði eru um 40–60heimilislausir ein- staklingar í Reykjavík. Flestir karlkyns. »Velferðarsvið borgarinnarsegir að íbúar Njálsgötu- heimilisins verði sérstaklega valdir með tilliti til staðsetn- ingar þess. »Heimilislausir sækja í mið-borgina og því þarf heim- ilið að vera í nágrenni hennar. Íbúar óttast neikvæð áhrif heimilis heimilislausra „ÞAÐ hefur enginn fengið borguð höfundarlaun frá því að Tónlist.is var opnað,“ segir Birgir Örn Stein- arsson tónlistarmaður í samtali við Morgunblaðið í dag en gagnrýni hefur komið fram af hálfu tónlistar- manna um að höfundarlaun berist ekki frá söluvefnum Tónlist.is sem hefur verið starfræktur í fjögur ár. Segir Birgir að STEF og FTT hafi á sínum tíma gefið leyfi fyrir því að Tónlist.is seldi upp úr gagnagrunni sem átti að starfa líkt og bókasafn. Hann viti hins vegar ekki hvernig sá samningur hafi verið upp- byggður enda hafi hann ekki verið borinn undir listamennina. „Okkur var sagt að þetta yrði allt mjög já- kvætt, allir peningarnir myndu renna í STEF […] og svo er það ekkert að gerast.“ Telur hann rétt- ast að STEF og FTT biðji tónlistar- fólk afsökunar á því að hafa opnað gagnagrunninn á þennan hátt en eðlilega ættu eigendur Tónlist.is að bera ábyrgðina. Tónlist.is er í eigu D3 miðla, dótturfélags 365 hf. | 37 Eigendur skulu bera ábyrgðina

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.