Morgunblaðið - 23.05.2007, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2007 9
FRÉTTIR
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
Gallabuxur og peysur Orkuvinnslugeirinn
stækkar þegar West Siberian
bætist í hópinn
Við bjóðum West Siberian Resources Ltd. velkomið
í Nordic Exchange. West Siberian er sjálfstætt rekið
olíufélag með starfsemi í Rússlandi. Félagið hefur
stækkað ört á undanförnum árum og er núna með
rekstur á þremur olíuframleiðslusvæðum í Rússlandi.
West Siberian verður skráð í OMX Nordic Exchange
í Stokkhólmi 23. maí. West Siberian er flokkað sem
meðalstórt félag í orkuvinnslugeira hjá OMX.
omxgroup.com/nordicexchange
Orkuvinnsla
Fjarskipti
Heilbrigðisgeiri
UpplýsingatækniVeiturHráefni
FjármálaþjónustaNauðsynjavörur
NeysluvörurIðnaður
SIV Friðleifsdóttir heilbrigðisráð-
herra opnar í dag nýjan vef um sjúk-
dóminn vefjagigt, www.vefjagigt.is,
við formlega athöfn í Háskólanum í
Reykjavík. Vefurinn er hugarfóstur
Sigrúnar Baldursdóttur sjúkra-
þjálfara sem vann hann sem
meistaraverkefni í lýðheilsufræðum
við HR.
Að hennar sögn má áætla að allt að
12.000 Íslendingar séu haldnir þess-
um sjúkdómi á hverjum tíma og eru
helstu einkenni hans langvinnir og
útbreiddir verkir frá stoðkerfi, al-
mennur stirðleiki, yfirþyrmandi
þreyta og svefntruflanir.
Sigrún segir ekki vitað nákvæm-
lega af hverju svefntruflanirnar stafi,
en áætlað sé að 90% sjúklinganna
glími við þær. Truflanirnar séu al-
varlegar, þær raski djúpsvefni og
valdi því að svefninn verður ekki
endurnærandi, með þeim afleið-
ingum að viðkomandi vaknar þreytt-
ur.
Hún segir einkennin þó mjög mis-
munandi á milli einstaklinga, bæði
hvað varðar fjölda og hversu alvarleg
þau eru. Vefjagigt
geti verið mildur
sjúkdómur, við-
komandi haldi þá
fullri færni og
vinnugetu þrátt
fyrir verki og
þreytu. Hún geti
líka verið mjög ill-
vígur sjúkdómur
og rænt ein-
staklinginn allri
orku svo að hann er vart fær um ann-
að en að sofa og matast.
Rænir færni til daglegs lífs
Almennt megi segja að hún ræni
flesta sjúklinga hluta af færni sinni
til vinnu og athafna daglegs lífs.
Erlendar rannsóknir sýni að 10–
12% einstaklinga glími við langvinna
útbreidda verki og íslensk rannsókn
gefi til kynna að um enn stærri hóp
kunni að vera að ræða hér á Íslandi.
Auk Sigrúnar skrifa efni á vefinn
Arnór Víkingsson gigtarlæknir, Karl
Örn Karlsson tannlæknir og Magnús
Baldursson sálfræðingur.
Opna fræðsluvef
um vefjagigtina
Allt að 12.000 Íslendingar með sjúkdóminn
Sigrún
Baldursdóttir