Morgunblaðið - 23.05.2007, Page 10

Morgunblaðið - 23.05.2007, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Skítt með það þó prinsinn hafi ekki getað riðið úr hlaði á hvítum fáki með prinsessuna, það verður ekki á allt kosið í svona drama. Ólína Þorvarðardóttir | 21. maí 2007 Ber einhver ábyrgð? Hvernig eiga útlend- ingar að vita um hætt- urnar á þekktum ferðamannaslóðum? Þeir þekkja ekki land- ið, eða íslenska veðr- áttu. Hvernig á þá að gruna að vegur sem sagður er tor- fær sé í raun lífshættulegur? Þegar útlendingur kaupir ferð undir leið- sögn telur hann sig öruggan. Hann gefur sér að honum verði ekki teflt í hættu. Við verðum að hafa vit fyrir þeim sem koma hingað ókunnugir. Meira: olinathorv.blog.is Þorleifur Ágústsson | 22. maí 2007 Negldur Ég ætlaði nefnilega suður með fjölskyld- una á morgun – keyr- andi. En eins og allir sem hér búa og líkleg- ast víðar á landsbyggð- inni vita – þá hafði snjóað hressilega í nótt – og spáin er eins fram að helgi […] Flugið er svo dýrt að það er ekki valkostur. Ég á að vísu nagladekk á felgum – tilbúin til notkunar – en úniformin í höf- uðborginni fá kikk út úr því að sekta saklausan landsbyggðarlýðinn. Meira: tolliagustar.blog.is Katrín Anna Guðmundsdóttir | 22. maí Hin árlega konusýning Hin árlega konusýning þar sem konur á aldr- inum 18–24 ára trítla um á bikiníi og háhæl- uðum skóm svo hægt sé að vega og meta virði þeirra út frá lík- amlegum eiginlegum verður á föstu- daginn. Af því tilefni set ég hér inn tvo tengla af bloggsíðum sem staðal- ímyndahópur Femínistafélagsins var með: missiceland.blogspot.com og meyjanam.blogspot.com. Skrifa meira seinna. Meira: hugsadu.blog.is Anna K. Kristjánsdóttir | 22. maí 2007 Change Sex Or Die Þessi fyrirsögn virðist skelfileg og er það í vissu tilliti því hún er sönn. Svona má nefni- lega lýsa ástandi í kynjafræðum í Íran. Í upphafi klerkastjórn- arinnar í Íran snemma á níunda ára- tugnum tókst Maryam Khatoon Molkara sem þá var 33 ára gamall transmaður (þ.e. transsexual frá konu til karls) að sannfæra Ayatoll- ah Khomeni um að ekkert í Kór- aninum bannaði aðgerðir til leiðrétt- ingar á kyni. Það er reyndar alveg rétt að slíkar aðgerðir eru hvorki bannaðar í Kóraninum né Biblíunni. Til þess að fordæma slíkar aðgerðir hafa sértrúarklerkar orðið að beita orðaklækjum og útúrsnúningi til að rökstyðja mál sitt. Ayatollah Khomeni gekk mun lengra en þetta. Karlmönnum sem voru staðnir að samkynhneigð (sem er bönnuð í Íran að viðlagðri dauða- refsingu) var boðið upp á bót meina sinna, að fara í kynskiptaaðgerð en deyja ella. Það er allmörg tilvik þar sem samkynhneigðir karlmenn hafa bjargað lífi sínu með aðgerð. Það er þó engin lausn fyrir þá sem verða fyrir slíku. Bæði eru aðgerðirnar mjög ófullnægjandi og ónákvæmar auk þess sem samkynhneigðir karl- menn hafa venjulega engan áhuga á að missa manndóminn. Því eru slík- ar aðgerðir niðurlæging fyrir þá samkynhneigðu karlmenn sem verða fyrir henni. Meira: velstyran.blog.is Ragnhildur Sverrisdóttir | 21. maí 2007 Ógeðsleg gæludýr Í bílnum leikum við Dýraleikinn, þ.e. ein- hver hugsar sér dýr og hinir eiga að giska. Elísabet hugsar sér dýr og við höfum kom- ist að því að það er fótalaust og ógeðslegt og ekki gæludýr. Þetta reynist vera ánamaðkur og þá mót- mælir Margrét og segir að ána- maðkar geti víst verið gæludýr. En sættist svo á að maðkar sem maður tínir í plastpoka á leikskólanum, set- ur svo í krukkur með mold heima og geymir í töskugeymslu mæðranna flokkist kannski ekki sem gæludýr. Meira: ragnhildur.blog.is VEÐUR Í nýrri ríkisstjórn sitja 12 ráð-herrar og til þess að koma þeim fyrir er litlum ráðuneytum skipt í enn smærri ráðuneyti.     Ætli það sé fullt starf að vera iðn-aðarráðherra? Eða að vera viðskiptaráðherra? Svo að dæmi sé nefnt.     Raunar má hiðsama segja um fleiri ráðu- neyti. Það verður áreiðanlega ekki of mikið starf fyrir Einar K. Guðfinnsson að sinna bæði sjáv- arútvegsmálum og landbún- aðarmálum. Þetta er í sjálfu sér ekkert nýtt en vekur kannski meiri athygli nú en áður vegna skiptingar iðnaðarráðuneytis og viðskiptaráðuneytis í tvennt.     Það er líka spurning, hvort þessifjöldi ráðherra er ekki að verða of mikill. Það eru ekki mikið fleiri ráðherrar í nýrri ríkisstjórn Frakk- lands en sitja í nýrri ríkisstjórn Ís- lands. Geta það verið eðlileg hlut- föll?     Á hinn bóginn er svo spurning,hvort ráðuneytin, sem slík, eru sum hver orðin of litlar einingar. Sum þeirra eru áreiðanlega orðin of veikburða, önnur hafa vaxið hratt og kannski of hratt.     Þetta er umhugsunarefni fyrirforystumenn hinnar nýju rík- isstjórnar, þau Geir H. Haarde og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur. Verkefni ríkisstjórna og ráðherra hafa breytzt mikið í samræmi við minnkandi vægi stjórnmálanna.     Er ekki kominn tími til að sá veru-leiki endurspeglist í fjölda ráð- herra? STAKSTEINAR Margir ráðherrar – lítil ráðuneyti SIGMUND                      ! " #$    %&'  (  )                      *(!  + ,- .  & / 0    + -                    12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (              !   ""#       ""       :  *$;<             ! #  ! !   ""$ %" " " &'   ($$ "  " ! "$!  $! )!! * ! &' !  $!" + ""$ *! $$ ; *! =2 =! =2 =! =2 <>         /    .& " &  ) (    (! ( "% "#/ " ""  ! )(!  0(  .  - 1    =7  2 "  " ( " 3 !+  1##  / " - %  ("""3  (% ""#  .      =   2 "  " % " 3 !+  1##  ""/ " % - %  $(( "# .     /   (""""#  41 (55 "(!  6( ( * "# 3'45 ?4 ?*=5@ AB *C./B=5@ AB ,5D0C ).B                      / /   / / /   / / /   / / /            Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ BLOG.IS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.