Morgunblaðið - 23.05.2007, Side 18
Kynntu þér málið á www.glitnir.is, í næsta útibúi
eða hjá Þjónustuveri í síma 440 4000.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
8
1
3
1
SVONA SAFNAR ÞÚ
GLITNISPUNKTUM
• Kreditkortanotkun
• Viðskiptavinir í Vildarþjónustu
• Bílalán hjá Glitni Fjármögnun
• Viðbótarlífeyrissparnaður
• Eignastýring
• Einkabankaþjónusta
• Tryggingar hjá Sjóvá
og margt fleira
SKRÁÐU ÞIG
NÚNA!
Þeir sem skrá sig fyrir
17. júní fá 10.000
Glitnispunkta strax!
18 MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
SUÐURNES
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Sandgerði | Fyrirtækið Data Ís-
landia stefnir að því að byggja um-
hverfisvæna gagnageymslu og
gagnaþjónustu á Rockville-svæðinu
á Miðnesheiði. Áform fyrirtækisins
voru kynnt á blaðamannafundi í
Sangerði í gær og sýnt líkan af
fyrirhuguðum byggingum.
Gert er ráð fyrir að bygging
húsnæðis Data Íslandia hefjist á
þessu ár en við uppbyggingu fyr-
irtækisins og starfsemi gagna-
geymslunnar verður lögð áhersla á
umhverfissjónarmið. Endurnýjan-
leg orka mun knýja starfsemina,
náttúruleg vindkæling dregur úr
orkuþörf og mannvirkin verða
hönnuð þannig að þau falli vel að
umhverfinu. Þá telur bæjarstjóri
Sandgerðisbæjar að starfsemin
muni styrkja byggð í Sandgerði og
nágrenni.
Þörfin eykst stöðugt
Húsnæðið verður byggt í áföng-
um. Fyrsti áfangi er áætlaður um
800 fermetrar að stærð en að full-
byggt verði húsið 4.000 fermetrar.
Eftir að fyrsti áfangi verður tekinn
í notkun munu 20 störf skapast í
gagnageymslunni og búist er við
að fleiri störf skapist á næstu ár-
um. Þá gerir framkvæmdastjóri
fyrirtækisins, Sol Squire, ráð fyrir
því að fjölbreytt atvinnustarfsemi
skapist til hliðar við starfsemi
gagnageymslunnar.
Hægt verður að varðveita gögn í
gagnageymslunni í Rockville sem
svarar til allt að 30 milljónum gíga-
bæta. „Það er aðeins byrjunin,“
segir Sol Squire enda segir hann
að þörfin fyrir vistun á rafrænum
gögnum aukist stöðugt og hafi að
meðaltali tvöfaldast á hverju ári.
Viðskiptavinirnir eru alþjóðleg
fyrirtæki í Norður-Ameríku og
Evrópu og einnig í Mið-Austur-
löndum. Data Íslandia er þegar í
samvinnu við nokkur fyrirtæki,
meðal annars Breska símann og
gagnageymslufyrirtæki sem vinna
fyrir banka.
Spurður um kosti Íslands í þessu
sambandi segir Squire að land hér
sé ódýrt og orkan umhverfisvæn
og tiltölulega ódýr. Þá nefnir hann
efnahagslegan stöðugleika, tækni-
getu og gott starfsfólk. Hann segir
að allt þetta skipti máli því fyr-
irtækin þurfi að geyma gögnin hér
í langan tíma. Þess má geta að
fram kemur hjá framkvæmdastjór-
anum að nálægðin við flugvöllinn
skipti meira máli upp á öryggi í
gagnaflutningum en sæstrengur
því meginhluti gagnanna verði
fluttur hingað til lands á hörðum
diskum með flugvélum.
Starfsemi Data Íslandia í Sand-
gerðisbæ mun í upphafi þurfa
tveggja megavatta afl í raforku og
alls 10 MW þegar starfsemin verð-
ur komin í full afköst. Hitaveita
Suðurnesja hefur tekið að sér að
útvega orkuna. Þróunarfélag
Keflavíkurflugvallar hefur umráð
yfir landinu sem er á fyrrverandi
varnarsvæði og hefur það gefið vil-
yrði fyrir úthlutun lóðar á Rock-
ville-svæðinu.
Möguleikar á varnarsvæðum
Atvinnumálaráð Sandgerðisbæj-
ar og Jón Norðfjörð verkefnisstjóri
hafa á undanförnum mánuðum
unnið að ýmsum verkefnum til at-
vinnuátaks í bæjarfélaginu. Hug-
myndin að nýta Rockville-svæðið í
þessum tilgangi hefur meðal ann-
ars verið uppi. Það var síðan fyrir
milligöngu ParX viðskiptaráðgjafar
IBM sem samband komst á við
Data Íslandia.
Bærinn hefur gert drög að
skipulagi á fyrrum varnarsvæðum
og kom fram á fundinum í gær að
þar gætu skapast miklir mögu-
leikar, ekki síst í tengslum við al-
þjóðaflugvöllinn sem staðsettur er
í landi bæjarins. Sigurður Valur
Ásbjarnarson bæjarstjóri fagnar
áformum Data Íslandia, segir að
gangi áætlanir eftir verði þetta
gott dæmi um það hvernig hægt sé
að byggja upp umhverfisvæna upp-
lýsingatæknistarfsemi sem nýti í
senn umhverfisvæna orku og ís-
lenska þekkingu.
Torf og grjót
Á fundinum í gær var sýnt líkan
að fyrirhuguðum byggingum Data
Íslandia. Þær eru hannaðar af Ró-
berti Erni Arnarsyni hjá Hoff &
Jörgensen arkitektum í Kaup-
mannahöfn.
Mikil áhersla er lögð á að mann-
virkin falli vel að sléttu landslagi
Miðnesheiðarinnar. Byggingarnar
bylgja sig um landslagið og eru
huldar torfi. Grjóthleðslur koma
einnig við sögu, eins og í fyrstu ís-
lensku byggingunum, torfhúsun-
um, sem arkitektinn hafði til hlið-
sjónar.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Græn gagnageymsla Hús gagnageymslunnar á að falla vel inn í landið. Jón Norðfjörð verkefnisstjóri, Sol Squire,
framkvæmdastjóri Data Íslandia, og Sigurður Valur Ásbjarnarson bæjarstjóri standa við líkan að byggingunum.
Byggja umhverfis-
væna gagnageymslu
Tenging við Keflavíkurflugvöll mikilvægari en sæstrengur
því flogið verður með mikinn hluta gagnanna til landsins
Í HNOTSKURN
»Data Íslandia er íslensktfyrirtæki sem sérhæfir sig
í öruggri og umhverfisvænni
gagnageymsluþjónustu á al-
þjóðamarkaði.
»Viðskiptavinirnir verða al-þjóðleg stórfyrirtæki í
Norður-Ameríku og Evrópu
sem þurfa að geyma rafræn
gögn til langs tíma.
»Viðskiptin aukast stöðugt,hafa tvöfaldast að meðal-
tali á ári síðustu árin.