Morgunblaðið - 23.05.2007, Síða 20
heilsa
20 MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Rúnar Kristjánsson skáld áSkagaströnd yrkir
Nýviðreisnarbrag, sem hann
tileinkar Geir H. Haarde og
Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur
og flokkum þeirra:
Ingibjörg og Geir með glans
ganga að rekkju saman.
Nú í beggja flokkafans
fer að verða gaman.
Ný skal stjórnin saman sett,
sæludraumar mótast.
Verkið þar mun verða létt,
vilja bæði njótast.
Rædd þó séu málin mörg,
mælist andinn ljúfur.
Enda Geir og Ingibjörg
eins og turtildúfur.
Viðreisn af sér elur þar
ekki neina þrjósku.
Stefnan er á sigursvar,
sérhönnuð af ljósku.
Pólitíkin líkist leir,
lögun marga hlýtur.
Enginn veit þó enn hvað Geir
Ingibjargar nýtur.
– Eða hversu langa leið
létt þau saman ganga.
Þar sem spjótin beitt og breið
býsna marga stanga.
Samfylking því önnur er
á þau fús að herja,
þegar aftur Framsókn fer
félagshyggju að verja.
Vinstri grænir hugvit hart
hafa í mála róti,
meðan þeirra eðli og art
er að vera á móti.
Rekkjuvist í ríkisstjórn
ræðst því enn af mörgu.
Kannski glepur gæfufórn
Geir og Ingibjörgu?
Kannski er valdavíman þar
viskuráðum meiri,
boðinn fram til blöndunar
brotakenndur dreyri?
Margur fyrir völdin veitt
virðingunni fargar.
Fá þar kannski ferlið eitt
forlög Ingibjargar?
Ef þar hugsað vonarverð
virðist ætla að tapast.
Maddömunnar feigðarferð
fer á ný að skapast!
VÍSNAHORNIÐ
Nýviðreisn-
arbragur
pebl@mbl.is
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
E
inn ef velmegunarsjúkdómum vest-
rænna samfélaga er áunnin syk-
ursýki (sykursýki tvö) en ekki er
langt síðan þessi sjúkdómur var ein-
göngu álitinn fullorðinssjúkdómur. Í
Financial Times síðastliðinn miðvikudag er sagt
frá vaxandi viðvarandi vandamálum sem banda-
rísk börn sem tengjast offitu og áunninni syk-
ursýki þurfa að glíma við. Slík sykursýki fer ört
vaxandi meðal bandarískra barna og þeim börnum
sem taka lyf vegna hennar fjölgar mjög hratt.
Einnig fjölgar þeim börnum sem taka lyf vegna
fylgikvilla sykursýki og offitu. Fjöldi þeirra barna
sem taka lyf vegna sykursýki tvö, meira en tvö-
faldaðist á árunum 2001-2005. Sláandi þykir
hversu mörg þeirra barna sem taka lyf vegna syk-
ursýki tvö eru meðhöndluð með lyfjum sem ætluð
eru fullorðnum vegna viðvarandi alvarlegra heilsu-
farsvandamála sem tengjast sykursýki og offitu og
hafa hingað til verið talin fullorðinsvandamál. Þar
má nefna háan blóðþrýsting, hátt kólesteról,
astma og liðverki.
Árið 2006 notuðu 17 prósent sykursjúkra
drengja í Bandaríkjunum og 13 prósent stúlkna,
lyf við of háum blóðþrýstingi og tæp 20 prósent
voru á verkjastillandi lyfjum, þunglyndislyfjum og
lyfjum vegna öndunarerfiðleika. Engan skal undra
að nú heyrast raddir þar í landi um að nauðsynlegt
sé að rannsaka hvaða áhrif það hefur á börn að
taka til langs tíma lyf sem ætluð eru fullorðnum.
Sykursýki tvö er því augljóslega vaxandi heil-
brigðisvandamál í Bandaríkjunum, en árið 2002
voru sex prósent Bandaríkjamanna eða 18 millj-
ónir með sykursýki og fer sú tala ört hækkandi.
Sykursýki tvö er til dæmis mjög vaxandi meðal
indíánaþjóðflokka í Bandaríkjunum. Svo virðist
sem eitthvað sem er meðfætt hjá þeim þjóðflokki
valdi því að hann þolir mjög illa offitu og velmeg-
un.
Íslensk börn ekki meðhöndluð með lyfjum
sem ætluð eru fyrir fullorðna
Árni V. Þórsson, yfirlæknir á Barnaspítala
Hringsins og sérfræðingur í hormónaefna-
skiptasjúkdómum barna, segir að sykursýki tvö
hjá börnum sé hreinlega faraldur í Bandaríkj-
unum.
„Við sjáum þessa miklu aukningu líka í mörgum
öðrum vestrænum löndum og í Evrópu. En þessa
aukningu sjáum við sem betur fer ekki hér á Ís-
landi, þrátt fyrir að offita sé klárlega vaxandi hér á
meðal barna og unglinga. Hér á landi gefum við
ekki sykursjúkum börnum lyf sem ætluð eru full-
orðnum vegna fylgikvilla sykursýki, einfaldlega
vegna þess að það er næstum óþekkt hér á landi að
börn og unglingar séu komin með slíka fylgikvilla
eins og háþrýsting eða kólesterólvandamál.
Aftur á móti er aukning í sykursýki eitt hjá
börnum og unglingum á Íslandi og mjög skörp
aukning hefur verið í nýgengi síðasta áratug. Eng-
in haldbær skýring er til á þessari aukningu sem
er víðast hvar í heiminum á sykursýki eitt. Ný-
gengi er til dæmis hæst í heiminum í Finnlandi.
Umhverfisþættir, fæðuþættir, sýkingar og fleira
hefur verið rannsakað, en engar haldbærar skýr-
ingar fengist. Eftir að múrinn féll í Berlín 1989
hefur mesta aukningin verið í Austur-Evrópulönd-
unum sem voru fyrir austan járntjald. Það sem
hefur breyst í þessum löndum er til dæmis minni
mengun, meiri velmegun og aukið hreinlæti. Það
eru sem sagt tengsl milli almennrar velmegunar
og aukningu í sykursýki eitt.“
Æ fleiri börn með sykursýki
Reuters
Börn Ekki er langt síðan sykursýki tvö var eingöngu álitinn fullorðinssjúkdómur.
Í HNOTSKURN
» Árið 2006 notuðu 17 prósent sykursjúkradrengja í Bandaríkjunum og 13 prósent
stúlkna lyf við of háum blóðþrýstingi og tæp
20 prósent voru á verkjastillandi lyfjum,
þunglyndislyfjum og lyfjum vegna önd-
unarerfiðleika.
» Skörp aukning hefur verið í nýgengi ísykursýki eitt hjá börnum og unglingum
á Íslandi síðasta áratug.
Bandarísk börn með sykursýki sem fá fylgikvilla eins og háþrýsting og
kólesterólvandamál eru meðhöndluð með lyfjum sem ætluð eru fullorðnum
Hvers vegna reykir þú?Tókstþú ígrundaða ákvörðun umað reykja alla ævi þegar þú
byrjaðir að fikta við tóbak? Flest
reykingafólk svarar þessari spurn-
ingu neitandi, en nikótín í tóbaki er
afar ávanabindandi efni sem sleppir
ekki ljúflega takinu. Flestir sem
reykja byrja fyrir 18 ára aldur og á
þeim aldri erum við oft upptekin af
rómuðum fyrirmyndum og mót-
tækileg fyrir hópþrýstingi. Þess
vegna er gott að spyrja sig: Hvers
vegna reyki ég enn og við hvaða að-
stæður?
Að hætta að reykja – breyting
á lífsstíl
Þegar þú ert búinn að taka
ákvörðun um að hætta að reykja
hefur ákveðin hugarfarsbreyting átt
sér stað. Sú breyting er nauðsyn-
legur undanfari þess að geta breytt
lífsstílnum til hins betra. Svo er
mikilvægt að undirbúa sig vel áður
en þú hættir að reykja. Hugurinn
stjórnar jú líkamanum og því þarf
að byrja á því að virkja hugann áð-
ur en tekist er á við líkamlegu fíkn-
ina. Fyrst þarf að stilla hugann inn
á að hætta að reykja. Þegar þú ert
farinn að sjá fyrir þér í huganum
hvernig þú kemur til með að hætta
og hvernig þú munt njóta góðs af
því, þá ertu á góðri leið með að vera
tilbúinn að hætta.
Sömu aðferðirnar við að hætta að
reykja henta ekki öllum og þess
vegna er ágætt að margvísleg að-
stoð og ráð eru í boði. Hver og einn
getur prófað sig áfram til að finna
þá aðferð sem hentar best. Flestir
sem hafa hætt að reykja gerðu
nokkrar tilraunir áður en þeim
tókst það endanlega. Því er mik-
ilvægt að gefast ekki upp strax.
Einnig er gott að hafa það í huga að
allir geta hætt að reykja ef þeir eru
fastir fyrir með þá ákvörðun.
Stuðningur við að hætta að
reykja hefur reynst mörgum vel og
eykur verulega líkurnar á að þér
takist að hætta. Það er því æskilegt
að nýta sér þau úrræði sem í boði
eru.
Til dæmis er hægt að hringja í
Reyksímann – Ráðgjöf í reykbind-
indi (s. 800-6030). Reyksíminn býð-
ur upp á persónulega ráðgjöf til
þeirra sem vilja hætta að reykja
eða nota reyklaust tóbak. Áherslan
er lögð á hvatningu og stuðning.
Ráðgjöfin byggist á reykingasögu
og þörfum hvers einstaklings og
hægt er að fá sent heim fræðsluefni
og eftirfylgd er veitt í formi endur-
hringinga. Símaþjónustan þjónar
öllu landinu og er veitt endurgjalds-
laust.
Um miðjan júní verður opnuð ný
gagnvirk heimasíða, www.reyklaus-
.is, þar sem er að finna ýmsan fróð-
leik um leiðir til reykleysis. Ef þú
skráir þig inn á síðuna færðu reglu-
lega póst sem veitir þér stuðning
við að hætta að reykja. Á síðunni er
einnig hægt að taka þátt í spjalli við
aðra sem eru í svipuðum sporum og
halda dagbók (undir nafnleynd).
Heilbrigðisstarfsfólk veitir ráð-
gjöf um leiðir til að hætta að reykja
og getur vísað á ýmis úrræði og
námskeið í reykleysismeðferð. Sum-
ir kjósa að hætta að reykja með
hjálp lyfja sem þá annaðhvort inni-
halda nikótín eða ekki. Lyfja-
meðferðir geta hjálpað, hvort sem
þær eru notaðar einar sér eða sem
stuðningur með annarri meðferð.
Dæmi um vinsæl lyf eru Champix
og Zyban. En síðan eru til önnur
nikótínlyf eins og t.d. nikótíntyggjó,
plástrar, nefúðar, munnsogstöflur
og tungurótartöflur.
Er tímabært að kveðja tóbakið?
Gerðu skrif-
legan samning
við sjálfa(n) þig
um að hætta að
reykja.
Skipuleggðu
fram í tímann að
hætta. Það auð-
veldar þér að
takast á við erf-
iðar aðstæður.
Veldu einhvern tiltölulega ró-
legan dag til að hætta og haltu
þig við hann. Sumum gefst vel að
draga úr reykingum smám saman
fram að þeim degi.
Gott er að ákveða hvernig þú
getur brugðist við þegar löngunin
grípur þig. T.d. mætti draga
djúpt að sér andann nokkrum
sinnum, fá sér vatnsglas eða
skella sér í stuttan göngutúr.
Drekktu vel af vatni, sér-
staklega fyrstu
dagana eftir að
þú hættir.
Þú getur not-
að nikótínlyf
eða nikótínlaus
lyf til að takast á
við mikla tób-
akslöngun.
Til að byrja
með skaltu forð-
ast aðstæður þar sem þú gætir
freistast til að reykja. Veitinga-
hús og skemmtistaðir verða reyk-
lausir 1. júní nk. og það gæti
hjálpað.
Fylgstu með hvað þú sparar
mikla peninga – og njóttu þess að
nota þá í annað en tóbak.
Þótt þú fallir um stundarsakir
skaltu halda ótrauð(ur) áfram að
reyna að hætta að reykja, því æf-
ingin skapar meistarann.
Nokkur góð ráð sem gera þér auðveldara að hætta
Á heimasíðu Lýðheilsustöðvar,
www.lydheilsustod.is, er einnig að
finna upplýsingar um ýmsar leiðir
til að hætta að reykja. Á síðunni er
t.d. listi yfir þá aðila og félög sem
bjóða upp á námskeið og aðstoð
við að hætta að reykja.
Bára Sigurjónsdóttir verkefnisstjóri
tóbaksvarna á Lýðheilsustöð
Sykursýki tvö er töluvert ættgeng og hefur yf-
irleitt verið bundin við eldra fólk, en fólk sem er
feitlagið á líka á hættu að fá þennan sjúkdóm.
Hjá heilbrigðu fólki framleiða frumur í brisinu
insúlín en sykursýki tvö byggist á því að minnk-
uð framleiðsla verður á insúlíni út úr frum-
unum. En þessi sjúkdómur getur líka birst í því
að truflun verður á verkun insúlínsins í lík-
amanum á aðrar frumur.
Lyf við þessari tegund sykursýki eru oft í
töfluformi og beinist lyfjameðferðin að því að
hjálpa frumunum í brisinu að losa meira insúlín
eða þá því að auka næmið fyrir insúlíninu í lík-
amanum.
Sykursýki eitt er insúlínháð sykursýki sem
greinist aðallega hjá ungu fólki, börnum og
unglingum, en getur reyndar greinst hvenær
sem er á ævinni. Sykursýki eitt orsakast af því
að frumurnar í brisinu sem framleiða insúlínið
verða fyrir skemmdum og eyðileggjast. Senni-
lega er það vegna þess að í líkamanum myndast
einhvers konar mótefni sem ráðast á þessar
frumur og drepa þær. Það verður því klár insúl-
ínskortur og meðferðin felst í insúlíngjöf í
sprautuformi.
Sykursýki eitt og tvö