Morgunblaðið - 23.05.2007, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2007 25
ÞVÍ verður vart á móti mælt að
Vinstrihreyfingin – grænt framboð
vann stórsigur í nýafstöðnum al-
þingiskosningum um allt land.
Þannig var það einnig
í Norðvesturkjör-
dæmi. Flokkurinn jók
fylgi sitt í kjördæm-
inu um nærri 60% frá
síðustu alþingiskosn-
ingum, fór úr 10,7% í
16% og var hárs-
breidd frá því að fá
tvo þingmenn. Þenn-
an árangur má þakka
því að Vinstri-græn
hafa á skömmum
tíma náð að byggja
upp öflugt félagsstarf
um allt kjördæmið.
Við eigum nú á að skipa ferskri og
baráttuglaðri liðsveit sem er
reiðubúin til enn stærri átaka á
næstu misserum. Kosningabarátta
okkar var rekin á eigin málefnum
og af heiðarleika. Á kosn-
ingaskrifstofum víðsvegar um kjör-
dæmið var líf og fjör þar sem bæði
bakkelsi og málefnalegar umræður
voru á borðum. Það var mikill
styrkur fyrir VG og kjördæmið að
fá Ingibjörgu Ingu í baráttusætið
en aðeins munaði hársbreidd að
hún næði kjöri eins og að var
stefnt.
Þingmönnum frá Norðvest-
urkjördæmi hefur því miður fækk-
að hratt á síðustu árum eða úr 15 í
10 með kjördæmabreytingunni og
svo nú síðast úr 10 í níu þannig að
vægi kjördæmisins í landsstjórn-
inni hefur hríðminnkað á skömm-
um tíma. Ég dreg í efa að sú
breyting sé þjóðinni til góðs. Það
er því mín von að við nýkjörnir
þingmenn þessa stóra og víðfeðma
svæðis náum að vinna saman að
sameiginlegum hagsmunamálum
Norðvesturkjördæmis hvar sem
standa í stjórnmálum.
„Óveðursský á himni“
Allar líkur benda nú til að við
taki ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks
og Samfylkingar sem formaður
Framsóknarflokksins hefur nú
þegar nefnt „Baugsstjórn“. Enn
liggur stjórnarsáttmáli ekki fyrir
en því miður finnst mér allt benda
til þess að þessi samsteypa muni
skara enn frekari eld að þeirri
þenslu sem nú ríkir á höfuðborg-
arsvæðinu og áfram-
haldandi samþjöppun
auðæva á fárra hend-
ur. Þannig muni
stjórnin bera nafn með
rentu. Á hina höndina
verður gengið enn nær
landsbyggðinni með
einkavæðingu al-
mannaþjónustu, óheft-
um innflutningi á land-
búnaðarvörum og
óheftum kvóta-
viðskiptum sem hafa
leikið mörg byggð-
arlög grátt. Það verð-
ur fróðlegt að fylgjast með Sam-
fylkingunni í ríkisstjórn þar sem
sumir boðuðu stóriðjustopp og frið-
un jökulvatna í Fagra Íslandi en
aðrir áframhaldandi álvæðingu
með tilheyrandi fórnum á nátt-
úruverðmætum. Hvað verður um
íslenskan landbúnað þegar frjáls-
hyggjuöflin í Sjálfstæðisflokki og
Samfylkingu ná saman? Fer nú að-
ild að ESB og framsal á sjálfstæði
þjóðarinnar á fulla ferð?
Baráttan heldur áfram
Vinstrihreyfingin – grænt fram-
boð er ótvíræður sigurvegari kosn-
inganna og staða okkar í kjördæm-
inu er sterk. Mikil fylgisaukning
okkar sýnir að kjósendur vilja
breytta stefnu. Við viljum efla fé-
lagsleg gildi, samábyrgð, nátt-
úruvernd og sjálfbæra nýtingu
náttúruauðlindanna.
Við viljum að hluti fiskveiðiheim-
ildanna verði bundinn sjávarbyggð-
unum og íbúunum verði þannig
tryggður eðlilegur forgangsréttur
að auðlindum sínum til lands og
sjávar. Það sem nú er að gerast á
Vestfjörðum er enn ein rækileg
áminningin til stjórnvalda og krafa
um algjöra hugarfarsbreytingu í
málefnum sjávarbyggðanna og
landsbyggðarinnar allrar.
Ég vil þakka meðframbjóð-
endum mínum á lista Vinstri
grænna í Norðvesturkjördæmi, svo
og þeim sem stýrðu kosningabar-
áttunni af miklu hugviti og krafti
og þeim fjölmörgu sem lögðu hönd
á plóg í þessum kosningum. Kjós-
endum flokksins þakka ég innilega
fyrir öflugan og góðan stuðning.
Sigur Vinstri-grænna
í Norðvesturkjördæmi
Jón Bjarnason skrifar
um nýja ríkisstjórn
Jón Bjarnason
»Hvað verður um ís-lenskan landbúnað
þegar frjálshyggjuöflin í
Sjálfstæðisflokki og
Samfylkingu ná saman?
Höfundur er þingismaður Vinstri-
grænna í Norðvesturkjördæmi.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
SELFOSS – SKIPTI EÐA 95% LÁN
Tvö falleg raðhús á einni hæð með
stórum innb. bílskúr, samtals 166
fm hvort. Góð staðsetning í botn-
langagötu með stutt í þjónustu. Til
afh. strax fullbúin að utan og rúm-
lega tilbúin til innréttingar að innan.
Áhv. hagstæð lán um 16,2 millj.
með 4,15% vöxtum. Mögul. á 95% láni. Bein sala eða skipti á minni
eign á höfuðborgarsvæðinu. Verð 24,8-25,8 millj.
Höfði fasteignasala Lögmenn Suðurlandi
Runólfur Gunnlaugss. lögg. fasts. Ólafur Björnsson lögg. fasts.
Sími 533-6050 / 895-3000 Sími 480-2900
Vorum að fá í einkasölu glæsilega 112
fm, 4ra herb. íb. á 3. hæð í þessu vin-
sæla húsi. Aðeins ein íbúð á hæð.
Andyri, stofa með stórum suðursvöl-
um, eldhús m. góðum tækjum,
þvottaherb., 3 stór svefnherbergi.
Parket. Frábær staðsetning, stutt í
skóla, íþróttir, sund og fl.
Verð 31,4 millj.
ÁLAGRANDI – 4RA
Vorum að fá í einkasölu fallega 4 her-
bergja neðri hæð í fjórbýli ásamt bíl-
skúr, á þessum vinsæla stað. Gott hol
með parketi, samliggjandi stofa og
borðstofa með parketi, eldhús og
baðherb. Rafmagn og frárennslislagn-
ir endurnýjað. Laus fljótlega.
TJARNARGATA – HÆÐ
Vorum að fá í einkasölu glæsilega 140
fm, 6 herbergja penthouseíbúð á
tveimur hæðum ásamt tveimur sam-
liggjandi stæðum í bílskýli Gott hol,
stofa, eldhús með fallegri innréttingu
og nýl. tækjum, stofa m. suðursvölum,
5 svefnherbergi, sólstofa. Eikarparket.
Glæsilegt útsýni. Tvennar svalir. Stutt í
þjónustu. EIGN FYRIR VANDLÁTA.
Verð 41,9 millj.
FLÉTTURIMI – 6 HERB.
Vorum að fá í einkasölu fallegt einbýli
á tveimur hæðum mjög vel staðsett.
Stofa, borðstofa, eldhús, baðherb. og
4 svefnherb. Parket. Stór lóð með
sólpalli. Stækkunarmöguleikar. Bein
sala eða skipti á 3ja-4ra herb. íbúð.
HÁTRÖÐ KÓP. – EINBÝLI