Morgunblaðið - 23.05.2007, Side 29

Morgunblaðið - 23.05.2007, Side 29
✝ Bróðir okkar, mágur og frændi, ÓLAFUR TRYGGVASON, Ytra-Hóli, Eyjafjarðarsveit, lést á dvalarheimilinu Hlíð mánudaginn 21. maí. Friðdóra Tryggvadóttir, Sigurður Sigurðsson, Ólöf Tryggvadóttir og frændsystkini. atorkusöm og hún var bæði traust og áhugasöm. Ég kynntist því fljótt að hún lá ekki á skoðunum sínum sem ég lærði smám saman að voru hreinar og beinar. Hún hafði sínar meiningar og sagði þær skorinort þegar við átti og hún sjálf vildi. Aldrei lagði hún illt orð í mín eyru til nokkurs manns en var þó alls ekki allra. Sirrý var ein þeirra kvenna sem hægt var að treysta og hún stóð alltaf við það sem hún tók að sér og gerði það vel. Hún var oftast eins og hvítur stormsveipur um skólann og gekk í öll verk hvort sem varðaði uppeldi og menntun barnanna, koma röð og reglu á vorverkin, leysa af í mötu- neytinu, en þar var hún afar flink, eða bara að taka til og koma skikki á hlut- ina. Hún Sirrý fágaði allt og gerði það fallega. Hún lagði mér margt gott til í orði og ábendingum þau ár sem við unn- um saman og ég fann að okkar sam- starf var heilt alla tíð og enda þótt samstarfinu lyki fyrir rúmum fimm árum áttum við saman vináttu og virðingu. Án efa minnast hennar mörg þeirra leikskólabarna sem sótt hafa Hlaðhamra síðastliðin 30 ár, bæði fyr- ir sögurnar hennar og það hversu fróð hún var um ýmsa hluti og þá ekki síst náttúruna. Í fjöldamörg ár sáðum við til birkiplantna og komum til í skólanum og plöntuðum síðan út með börnunum í holtið við Hlaðhamra og þá var mín kæra Sirrý í essinu sínu. Í fjöldamörg ár safnaði hún mataraf- göngum og ól hrafnana í þessu sama holti og gaf þeim jafnvel uppi á skúr- þaki við ómældan fögnuð barnanna. Það sem Sirrý byrjaði á og tók sér fyrir hendur var aldrei neitt „happa eða glappa“, stundum eða stundum ekki – það stóð. Við hittumst nokkrum sinnum í veikindum hennar í vetur og ég dáðist að því hvað hún var æðrulaus og gat talað um veikindi sín og það sem hún ætlaði að gera áður en kæmi að loka- stundinni. Þótt hún væri orðin sárlas- in og oft illa haldin var alltaf allt eins og áður heima hjá henni skínandi hreint og fínt. Síðasta skiptið sem við hittumst var á afmælisdaginn hennar 15. mars sl. Það var gestkvæmt þann dag og það líkaði henni vel. Þar hitti ég m.a. sonardætur henn- ar sem hún sagði um „þær eru gim- steinarnir mínir“ og hún hafði gegn- um árin sýnt mér myndir af þeim og Úlfari, elsta barnabarninu sínu, og var afar stolt bæði af þeim og einka- syninum Friðjóni. Þeim öllum, systkinum hennar, vinum hennar og því samstarfsfólki á Hlaðhömrum sem reyndist henni vin- ir í raun í veikindum hennar votta ég samúð mína. Ég þakka áralanga samvinnu og vinsemd Sigríðar Jóhannsdóttur og allt það góða sem hún lagði til mín. Lovísa Hallgrímsdóttir. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2007 29 ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð vegna andláts og útfarar móður okkar, tengdamóður og ömmu, MARGRÉTAR ÁRNADÓTTUR. Nína Hrólfsdóttir, Stígur Steingrímsson, Stefanía Hrólfsdóttir, Ívar Gissurarson, Margrét Jeanette Cela, Hrólfur Karl Cela, Edda Ívarsdóttir. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar móður minnar, tengda- móður, ömmu og dóttur, AUÐAR JÓNSDÓTTUR, Dalalandi 10, Reykjavík. Hlín Sveinbjörnsdóttir, Hávar Sigurjónsson, Hrólfur Þeyr Þorrason, Auður Hávarsdóttir, Sveinbjörn Hávarsson, Margrét Guðmundsdóttir. ✝ Innilegustu þakkir fyrir vinarhug og samúð vegna fráfalls föður míns, tengdaföður og afa okkar, BJÖRNS ÞÓRÐAR RUNÓLFSSONAR frá Hofsstöðum, Skagafirði. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Heilbrigð- isstofnunarinnar á Sauðárkróki. Guðbjörg Björnsdóttir, Jón V. Gíslason, Berglind Eygló Jónsdóttir, Björn Þórður Jónsson. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, ÓLAFUR AUÐUNSSON frá Ysta-Skála, til heimilis að Stuðlaseli 15, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 25. maí kl. 15.00. Áslaug Ólafsdóttir, Guðrún Ólafsdóttir, Auður Ólafsdóttir, Guðmundur Tryggvi Sigurðsson, Ólafur Haukur Ólafsson, Sigrún Konráðsdóttir, Þorri Ólafsson, Guðný Gísladóttir og barnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐNI A. ÓLAFSSON, Núpalind 2, Kópavogi, andaðist á Landspítala háskólasjúkrahúsi Fossvogi miðvikudaginn 16. maí. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 24. maí kl. 15.00. Valgerður Á. Blandon, Ingibjörg Unnur Guðnadóttir, Ragnar Sigurðsson, Valgerður Selma Guðnadóttir, Guðbjörn Björgólfsson, Þorbjörg Guðnadóttir, Helgi S. Reimarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur frændi, ÓLAFUR Ó. GUÐMUNDSSON sjómaður, Hrafnistu, Laugarási, lést sunnudaginn 13. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurður Óli Bjarnason. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR TRYGGVI JÓNSSON, Akurbakka, Grenivík, verður jarðsunginn frá Grenivíkurkirkju föstudaginn 25. maí kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á sambýlið Grenilund, Grenivík. Börn, tengdabörn, afa- og langafabörn. ✝ Okkar innilegustu þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, NÍELS J. KRISTJÁNSSONAR, Hlíðarvegi 19, Grundarfirði. Sérstakar þakkir sendum við þeim Gundu lækni og henni Hildi ljósu fyrir einstaka aðhlynningu í veikindumm hans. Einnig viljum við þakka öllum þeim vinum og ættingjum sem veittu okkur stuðning og hjálp meðan á veikindum hans stóðu. Strákarnir hans á Sóley SH fá hjartans þakkir fyrir allar heimsóknirnar. Jakobína E. Thomsen, Hallgrímur Óðinn Pétursson, Jóhanna S Ingimundardóttir, Friðfinnur Níelsson, Guðgjörg Jóhanna Níelsdóttir,Kristján E Kristjánsson, Birna Björk Níelsdóttir, Kristján Y Brynjólfsson, Margrét Eyrún Níelsdóttir, Ævar Rafn Marinósson og barnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, ELÍN FRIÐRIKSDÓTTIR, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði sunnudaginn 20. maí. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 25. maí kl. 11.00. Ólafur Haukur Símonarson, Birgir Svan Símonarson, Guðjón Símonarson, tengdadætur, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Móðir okkar og tengdamóðir, AGATHA SESSELJA SIGURÐARDÓTTIR ljósmóðir, verður jarðsungin frá Fella- og Hólakirkju föstudaginn 25. maí kl. 15:00. Jóhanna Baldursdóttir, Jóhann Köyer, Stefanía Ellý Baldursdóttir, Guðni Karl Brynjólfsson, Sigrún Baldursdóttir. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÍSAK JÓN SIGURÐSSON, Hjaltabakka 12, lést á heimili sínu aðfaranótt þriðjudagsins 22. maí. Útförin auglýst síðar. Benjamín, Helga, Jóna Guðrún, Birna, Guðlaugur, Vera Björk, Tryggvi, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.