Morgunblaðið - 05.06.2007, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 05.06.2007, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2007 41 WWW.SAMBIO.IS PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 6 - 9 B.i. 10 ára MR. BEAN'S HOLIDAY kl. 6 ZODIAC kl. 8 / AKUREYRI / KEFLAVÍK PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 8 B.i. 10 ára THE REAPING kl. 10 B.i. 10 ára IT´S A BOY GIRL THING kl. 8 LEYFÐ HILARY SWANK SUMT ER EKKI HÆGT AÐ ÚTSKÝRA MEÐ VÍSINDUMHÖRKUSPENNANDI MYND BYGGÐ Á SANNSÖGULEGUM ATBURÐUM FRÁ D.FINCHER LEIKSTJÓRA SE7EN & FIGHT CLUB. eeeee V.J.V. TOPP5.IS eeee B.B.A. PANAMA.IS eeee H.J. MBL. eeee F.G.G. FBL. NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SAMbio.isFÁÐU BÍÓMIÐANN SENDAN Í SÍMANN ÞINN MEÐ MMS eee S.V. - MBL A.F.B - Blaðið 02.06.2007 7 8 27 31 34 0 7 4 6 7 0 8 4 7 8 28 30.05.2007 14 23 30 36 41 48 37 8 Gárungarnir segja að Rík-issjónvarpinu til háðungarhafi Mjólkursamsalan orðið fyrri til að setja á stofn bókmennta- þátt. Reyndar er um að ræða aug- lýsingar um mjólk í bókmennta- þáttaformi þar sem Haraldur Jónsson myndlistarmaður og rit- höfundur fer á kostum í hlutverki yfirvegaðs, víðsýns og hraðmælts stjórnanda. Þannig ætti stjórnandi bók- menntaþáttar Ríkissjónvarpsins einmitt að vera. Og nú virðist stofn- unin hafa fundið mann í hlutverkið en á föstudaginn upplýsti Egill Helgason í Kastljósi að hann myndi frá og með næsta hausti stýra viku- legum þætti um bókmenntir í Sjón- varpinu auk Silfurs Egils. Í stuttu samtali við höfund pistils- ins sagði Egill að fjallað yrði um bækur á breiðum grundvelli í þætt- inum: „Þetta verður opinn, skemmti- legur og lifandi 40 mínútna þáttur á kvölddagskránni. Fjallað verður um strauma og stefnur í bók- menntum, nýjum sem gömlum, en í þættinum verða þó ekki ritdómar um nýjar bækur,“ sagði Egill.    Egill Helgason er vafalaust réttimaðurinn til þess að stýra bókmenntaþætti Ríkissjónvarpsins. Látum liggja á milli hluta hvort hann stenst samanburð við Harald Jónsson. Þó er ljóst að Egill er að minnsta kosti ekki jafn hrað- mæltur. Egill er auðvitað þrautreyndur sjónvarpsmaður. Silfur Egils hefur verið á dagskrá tveggja sjónvarps- stöðva (SkjásEins og Stöðvar tvö) í tvö kjörtímabil og fengið ágætar undirtektir. Þrátt fyrir að mælast með aðeins 9,6% áhorf í október síðastliðnum þá hefur þátturinn talsverð áhrif á umræðuna í sam- félaginu. Hann er ágætt dæmi um að það skiptir ekki minna máli hverjir neyta fjölmiðla en hversu margir. Og líklega eru það þessi áhrif Silfursins sem Ríkissjón- varpið er að fjárfesta í og missir þessara áhrifa er væntanlega á bak við vonbrigði og hörð viðbrögð for- stjóra 365 miðla við brotthvarfi Eg- ils. Það er fátt mikilvægara fyrir fjölmiðil en að vera vettvangur um- ræðu. Og án efa mun Agli takast að gera bókmenntaþátt sinn að áhrifa- miklum umræðuvettvangi um bæk- ur. Áhrifamáttur sjónvarpsmiðils- ins sjálfs er svo mikill að meira að segja stuttaralegir ritdómar í Kast- ljósi hafa haft mikil áhrif á umræðu um jólabækur og þar með sölu þeirra. Takist Agli þetta þá vakna sennilega hjá honum spurningar um áhrif sín. Og kannski myndi það þykja skrýtið í öðrum löndum að einn og sami maðurinn stýrði um- ræðuþáttum um bæði stjórnmál og bókmenntir í jafn mikilvægri menn- ingarstofnun og Ríkissjónvarpinu. En Egill hefur ekki sýnt annað en að hann kunni að fara með áhrifa- vald sitt þótt hann hafi reyndar leg- ið undir ámæli fyrir að kalla ekki jafn margar konur í þátt sinn og karla.    En hvernig þáttur á þetta aðverða? Líklega brennur sú spurning einna helst á þeim sem hafa haft áhuga á að slíkum þætti yrði komið á í Sjónvarpinu. „Þetta verður enginn krúttismi,“ segir Egill, „ég ætla ekki að fá fót- boltamann úti í bæ til þess að lesa bók og segja frá upplifuninni eða eitthvað slíkt heldur tala við fag- fólk um bókmenntir, bæði rithöf- unda, fræðimenn, gagnrýnendur, blaðamenn og aðra. Þetta verður alvöru umfjöllun.“ Egill segist einna helst sækja fyr- irmyndir sínar til Frakklands þar sem mikil hefð er fyrir sjónvarps- þáttum um bókmenntir. Þeir eru einkum frægir fyrir ýtarlegar og djúpar samræður um bækur og höf- unda en stjórnendur þeirra hafa lít- inn smekk fyrir tilfinningalegum uppákomum eða lítilvægu snakki. Gangi þetta eftir má áhugafólk um bækur fara að hlakka til. Egill hefur gott lag á að fá gesti sína til þess að tala um hlutina á umbúða- lausan hátt, hann er flinkur spyrj- andi og sennilega einn af reynslu- mestu samtalsmönnum í íslensku sjónvarpi. En Egill verður auðvitað að gera sér grein fyrir því að áhugafólk um bókmenntir er kröfuhart, jafnvel enn kröfuharðara en pólitíkusarnir sem þykir í flestum tilfellum nóg að fá að segja sitt. Þessi þáttur verður því eins konar prófsteinn á hæfi- leika Egils. Í munni gárunganna mun hann vafalaust ganga undir nafninu Höfuðlausn Egils. Höfuðlausn Egils Egill Helgason Egill verður auðvitað að gera sér grein fyrir því að áhugamenn um bókmenntir eru kröfuharðir. AF LISTUM Þröstur Helgason » „Þetta verður enginnkrúttismi,“ segir Eg- ill, „ég ætla ekki að fá fótboltamann úti í bæ til þess að lesa bók og segja frá upplifuninni eða eitthvað slíkt heldur tala við fagfólk um bók- menntir, bæði rithöf- unda, fræðimenn, gagn- rýnendur, blaðamenn og aðra. Þetta verður al- vöru umfjöllun.“ trhe@mbl.is ÁSTIR fanga hafa hingað til verið málaðar heldur ófögrum litum en auðvitað blómstrar líka al- vöru rómantík í fangelsum eins og annars staðar. I Love You Phil- lip Morris er dæmi um það en þar leikur Jim Carrey fanga nokkurn í Texas, Ste- ven Russell, sem verður ástfanginn af klefafélaga sínum og eftir að hann er látinn laus strýkur hann einum fjórum sinnum til þess að vera með ástmanni sínum. Myndin er byggð á sannri frásögn sem blaðamaðurinn Steve McVicker skráði en myndinni er leikstýrt af Glenn Ficarra og John Requa, handritshöfundum jólamynd- arinnar kolsvörtu Bad Santa. Jim Carrey Ástir sam- lyndra fanga AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.