Morgunblaðið - 05.06.2007, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 05.06.2007, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI FYRSTA fragtflug Norðanflugs til meginlands Evrópu var farið á sunnudaginn þegar flogið var með 11 tonn af ferskum fiskflökum frá Samherja hf., frá Akureyri til Oos- tende í Belgíu. Forsvarsmenn Norðanflugs hugsa stórt. Þeir sögðust á sunnu- daginn stefna að því að það yrði leið- andi félag í fragtflutningum frá Ís- landi til meginlands Evrópu. Markmiðið væri að bjóða hraða, örugga og samkeppnishæfa flug- flutningaþjónustu á hinum ört vax- andi markaði Íslands. „Við munum sameina hina miklu þörf Norður- lands fyrir fiskútflutning og hið öfl- uga flutningsnet Eimskips innan- lands sem utan til að byggja upp öflugt fragtflugfélag á Norðurlandi,“ segir m.a. í framkvæmdaáætlun fyr- irtækisins. Eimskip og Norðanflug eru í nánu samstarfi og mun Eimskip á Ak- ureyri sjá um flutning innanlands, til og frá Akureyrarflugvelli. Nýráðinn framkvæmdastjóri fé- lagsins er Unndór Jónsson en hann starfaði áður á flugrekstrarsviði flugfélagsins Atlanta. Stofnendur Norðanflugs eru Samherji, Eimskip og Saga Capital Fjárfestingarbanki, og segjast forsvarsmenn þeirra sjá mikil tækifæri í fragtflugrekstri um Akureyrarflugvöll. Flugvélin sem fyrirtækið notar er AN-12 sem á sér langa sögu í fragtflugi og hentar að- stæðum á Akureyri vel með tilliti til skjótrar hleðslu og afhleðslu, að sögn aðstandenda félagsins. Flogið verður þrisvar í viku til að byrja með, á sunnudögum, þriðju- dögum og fimmtudögum. Borgin Oostende í Belgíu varð fyrir valinu vegna góðrar legu með tilliti til dreifingar á fiski innan Evrópu. Með tilkomu ferða frá Akureyri styttist flutningstími fyrir ferskan fisk, sem unninn er á Norðaust- urlandi, um heilan dag þannig að hann kemur enn ferskari en áður til viðskiptavina á meginlandi Evrópu. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Söguleg stund AN-12 vél Norðanflugs hefur sig til flugs í fyrsta skipti á Akureyri um hádegisbil á sunnudaginn. Viðstaddir fylgdust spenntir með. Ætla að verða leiðandi félag Ljósmynd/Ásgrímur Örn Hallgrímsson Hugsa stórt Einar Eyland, svæðisstjóri Eimskips á Norðurlandi, Þorvald- ur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Capital Fjárfestingarbanka, Unnar Jónsson, stjórnarformaður Norðanflugs og forstöðumaður flutningasviðs Samherja, og Unndór Jónsson, framkvæmdastjóri Norðanflugs. Í HNOTSKURN »Fyrsta ferð Norðanflugs fráAkureyri var 3. janúar, ná- kvæmlega 70 árum eftir að Flug- félag Akureyrar var stofnað. »Vél Norðanflugs hóf sig á loftfrá Akureyrarflugvelli á meðan 70 ára afmælishátíð Ice- landir Group – arftaka Flug- félags Akureyrar – stóð sem hæst í nýju húsnæði Flugsafnsins á Akureyri! STARFSMAÐUR í efnaverksmiðju Mjallar-Friggjar á Akureyri varð í gærmorgun fyrir klórgaseitrun þeg- ar gasslanga gaf sig í verksmiðjunni. Maðurinn var fluttur á Fjórðungs- sjúkrahúsið til skoðunar, en hann var með fullri meðvitund og var ástand hans ekki talið alvarlegt. Klórgas getur haft slæm áhrif á slímhúð og öndunarfæri. Klórgas slapp inn í framleiðslu- rýmið þegar slangan gaf sig. Starfs- maðurinn var einn þar inni og brást við með því að loka fyrir innstreymið á slönguna. Húsið var rýmt og voru tveir efna- kafarar með mengunarmæla sendir inn í framleiðslurýmið, að sögn Þor- björns Haraldssonar slökkviliðs- stjóra. Þegar tryggt var að búið væri að loka fyrir lekann, var klórgasský- ið fellt niður, en það er gert með því að sprauta vatnsúða á það. Fékk klór- gaseitrun Fljótsdalur | Hrafnhildur Inga Sig- urðardóttir sýnir í júní 12 olíu- málverk í gallerí Klaustri. Verkin eru flest máluð á þessu og síðasta ári. Hrafnhildur Inga dvaldi í fræði- mannsíbúðinni Klaustri á Skriðu- klaustri vorið 2006 og gekk þá dag- lega um fjöll og firnindi, skóga og eyðilönd í nágrenni Skriðuklaust- urs. Áhrifa þeirrar dvalar gætir mjög í málverkum þeim sem hún sýnir nú, segir í fréttatilkynningu. Grónar hlíðar, öræfi, kræklóttir fúaraftar og sprungur í hraunjaðri eru meðal myndefna Hrafnhildar á þessari sýningu. Sýningin stendur til 29. júní. Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir stundaði myndlistarnám við Mynd- listaskóla Reykjavíkur og Myndlist- arskóla Kópavogs. Hún lauk prófi í grafískri hönnun frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1984. Hrafnhildur Inga rak eigin aug- lýsingastofu um 15 ára skeið en söðlaði um fyrir nokkrum árum og fæst nú eingöngu við myndlist. Hún hefur haldið einkasýningar og tek- ið þátt í samsýningum. Áhrif frá Skriðu- klaustri Egilsstaðir | Hafið er áætlunarflug Iceland Express milli Egilsstaða og Kaupmannahafnar og er það í fyrsta skipti sem flogið er á þessari leið. Þar með eykur félagið enn þjónustu sína við landsbyggðina en Iceland Express mun í sumar einnig fljúga beint milli Akureyrar og Kaup- mannahafnar eins og á síðasta ári. Að auki flýgur Iceland Express frá Keflavík til þrettán áfangastaða í Evrópu. Flogið verður tvisvar í viku milli Egilsstaða og Kaupmannahafnar í sumar, á þriðjudögum og föstudög- um. Fyrsta vél frá Kaupmannahöfn lenti á Egilsstaðaflugvelli á níunda tímanum á föstudagsmorgunn. Lagt var af stað aftur frá Egilsstöðum til Kaupmannahafnar um kl. 9, en full- bókað var í fyrsta flugið út. Matthías Imsland, forstjóri Ice- land Express, opnaði flugleiðina formlega. „Það hefur verið keppi- kefli Iceland Express frá upphafi að gera öllum Íslendingum fært að ferðast til útlanda óháð efnahag og búsetu og það er okkur því sönn ánægja að efla þjónustu okkar við íbúa Austurlands með opnuninni nú. Við vonum jafnframt að bein tenging fjórðungsins við útlönd verði mikil lyftistöng fyrir ferðaþjónustu á svæðinu og munum leggja mikla áherslu á kynningu erlendis á því sem Austurland hefur upp á að bjóða,“ sagði Matthías við það tæki- færi. Heimamanna að nýta tækifærið Eiríkur Bj. Björgvinsson, bæjar- stjóri Fljótsdalshéraðs, ávarpaði samkomuna og sagði meðal annars: „Við íbúar Austurlands erum bæði stoltir og ánægðir með að Iceland Express hafi valið Egilsstaðaflugvöll sem einn af sínum áfangastöðum og fögnum því að fyrirtækið sjái tæki- færi í því að efla starfsemi sína með því að nota Egilsstaði og Austurland sem tengingu við meginland Evr- ópu. Það er ósk okkar að þetta skref megi verða til þess að efla ferðaþjón- ustu í fjórðungnum en það er okkar heimamanna að nýta þetta tæki- færi.“ Iceland Express hefur fjölgað áfangastöðum sínum jafnt og þétt frá stofnun félagsins fyrir rúmum fjórum árum. Þá flaug félagið til tveggja borga, en nú eru þær orðnar 13. Í fyrrasumar hóf félagið jafn- framt að fljúga milli Akureyrar og Kaupmannahafnar og því eru áfangastaðir félagsins á Íslandi nú þrír talsins. Fyrsta árið flutti félagið um 130.000 farþega, en þeim hafði fjölgað í u.þ.b. 400.000 í fyrra og stefnir í enn meiri aukningu á þessu ári. Verður lyftistöng fyrir ferðaþjónustuna Ljósmynd/Gunnar Gunnarsson Flug Benedikt Warén kannar farmiða fyrstu farþegannna sem fóru í áætl- unarflug með Iceland Express frá Egilsstöðum til Kaupmannahafnar. Í HNOTSKURN »Iceland Express flýgurtvisvar í viku milli Egils- staða og Kaupmannahafnar, á þriðjudögum og föstudögum. »Flugfélagið flýgur nú tilþrettán borga, frá þremur flugvöllum á Íslandi. Með fé- laginu fara um 400.000 far- þegar á ári. Egilsstaðir | Háskólinn á Bifröst opnar útibú í húsakynnum Þekk- ingarnets Austurlands á Egilsstöð- um fimmtudaginn 7. júní næstkom- andi. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt til þess að færa starfsemi há- skólans víðar um land. Í útibúinu á Egilstöðum verða veittar upplýsingar um nám og kennslu við Háskólann á Bifröst og er þessi þjónusta jafnt ætluð nýjum nemendum sem og þeim sem eru þegar í námi, segir í frétt á vef skólans, bifrost.is. Nú stunda á annað hundrað manns fjarnám til BS-gráðu í við- skiptafræði við Háskólann á Bifröst auk þess sem fimm af sex náms- leiðum í meistaranámi eru kenndar í blöndu af fjar- og staðnámi. Þá er í símenntunardeild skólans boðið upp tvö námskeið í fjarnámi: Mátt kvenna, sem er þriggja mánaða nám fyrir konur; einkum þær sem huga á sjálfstæðan atvinnurekstur og diplómanám í verslunarstjórnun. Haustið 2007 verður í fyrsta sinn boðið upp á fjarnám við frum- greinadeild skólans. Í fjarnámi við Háskólann á Bif- röst mæta nemendur tvisvar á misseri á svokallaðar vinnuhelgar þar sem nemendum og kennurum gefst færi á að kynnast. Þar fyrir utan fer kennsla fram í gegnum svokallaðan námskjá sem er raf- rænt námsumhverfi nemenda og kennara Háskólans á Bifröst. Kennarar setja námsefni inn á námskjá, þeir leggja þar fram ít- arefni og verkefni og skila þeim og veita endurgjöf. Umsóknarfrestur um nám við Háskólann á Bifröst rennur út 10. júní. Háskólinn á Bifröst opnar útibú AUSTURLAND JÓN Ólafsson heldur í kvöld kl. 20.30 tónleika í Laugarborg í Eyjafjarðarsveit þar sem hann syngur lög af nýrri sólóplötu sinni, Hagamel, sem og eldra efni. Jón, sem er á lokaspretti tónleikaferðar um landið í tilefni nýju plötunnar, held- ur tvenna aðra tónleika í vikunni; í Dalvíkurkirkju á morgun kl. 20.30 og á fimmtudagskvöldið í barna- skólanum á Grenivík á sama tíma. Jón leikur og syngur Jón Ólafsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.