Morgunblaðið - 05.06.2007, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 05.06.2007, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2007 29 Fallegir legsteinar á góðu verði Englasteinar Helluhrauni 10 Sími 565 2566 - www.englasteinar.is Sendum myndalista ✝ Okkar ágæti félagi og frændi, ELÍAS MAR rithöfundur verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 6. júní kl. 15.00. Ættingjar og vinir. ✝ Systir mín og frænka okkar, MARGRÉT GUÐNÝ ÞYRÍ TÓMASDÓTTIR, Gógó, Hringbraut 50, Reykjavík, sem lést þriðjudaginn 29. maí, verður jarðsungin frá kapellu Hafnarfjarðarkirkjugarðs miðvikudaginn 6. júní kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Bryndís Tómasdóttir, Tómas Guðnason, Þórarinn Guðnason, Eiríkur Eiríksson, Auðunn Eiríksson. ✝ Eiginmaður minn og faðir okkar, ÞÓRIR KRISTJÁNSSON matreiðslumaður, sem lést á Kanaríeyjum 28. janúar verður jarðsunginn frá kirkju Óháða safnaðarins, fimmtudaginn 7. júní kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hugarafl kt. 460204-2240 b. 0303-13-000429. Guðrún Vernharðsdóttir, Nanna Þórisdóttir, Ragnar Þórisson. ✝ Faðir minn og tengdafaðir, TORSTEN JOSEPHSSON, fyrrv. æskulýðs- og sóknarprestur, Lysekil, Svíþjóð, er látinn. Útför hans hefur farið fram frá Stora-Lundby kirkju í Gråbo. Anders Josephsson, Ragnheiður Sigurðardóttir. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, ÓLÖF ÓLAFSDÓTTIR frá Syðra-Velli, Grænumörk 2, Selfossi, lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hring- braut í Reykjavík, laugardaginn 2. júní. Útförin verður auglýst síðar. Ingólfur Kristmundsson, Elín Magnúsdóttir, Eyjólfur Kristmundsson, Jóhanna Þorsteinsdóttir, Ólafur Kristmundsson, Halldóra Óskarsdóttir, barnabörn og langömmubörn. ✝ Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, EGILL EGILSSON vélvirki, Furugrund 75, Kópavogi, lést á heimili sínu föstudaginn 25. maí 2007. Útför hans fer fram frá Fossvogskapellu í dag, þriðjudaginn 5. júní kl. 13.00. Elin Egilsdóttir Phifer og fjölskylda, Jón Andrésson og fjölskylda, Anna Þóra Sigurþórsdóttir og fjölskylda og aðrir aðstandendur. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍN SIGURÐARDÓTTIR, Fögrukinn 9, Hafnarfirði, lést á heimili sínu aðfaranótt sunnudags 3. júní. Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 8. júní og hefst kl. 15:00. Trausti Ó. Lárusson, Auður Traustadóttir, Guðmundur Á. Tryggvason, Anna Kristín Traustadóttir, Sigrún Traustadóttir, Óskar Lárus Traustason, Guðrún Pálsdóttir, Elín Ósk, Trausti, Svava Dís, Bjarni, Tryggvi, Páll Arnar og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, KOLBEINN SKAGFJÖRÐ PÁLSSON, Aðalgötu 1, Keflavík, lést á Landspítala við Hringbraut, laugardaginn 2. júní. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, föstudaginn 8. júní kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á Barnaspítala Hringsins. Kolbrún Sigurðardóttir, Margrét Kolbeinsdóttir, Sigrún María Kolbeinsdóttir, Jósteinn Guðmundsson, Sigurður Kolbeinsson, Dýrleif Rúnarsdóttir, Anna Ósk Kolbeinsdóttir, Helgi S. Skúlason, og barnabörn. ✝ RagnhildurBjörgvinsdóttir fæddist á Úlfs- stöðum í Hálsasveit í Borgarfjarðar- sýslu 3. desember 1932. Hún lést á líknardeild Land- spítalans sunnudag- inn 27. maí síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Björg- vin Þórðarson, bóndi á Úlfsstöðum, f. 31.3. 1908, d. 14.1. 1945, og Ragnhildur Jónsdóttir, f. 22.12. 1898, d. 12.9. 1934. Fósturmóðir Ragnhildar var Helga Eiríks- dóttir, f. 12.12. 1892, d. 26.10. 1961. Systur Ragnhildar eru Svala, f. 26.6. 1930, og Guðrún, f. 10.9. 1931, d. 29.11. 1978. Dóttir Ragnhildar er Hrafn- hildur Hrafnkelsdóttir, f. 4.4. 1958, maki Friðrik Þorbergsson, f. 22.11. 1949. Börn hennar eru Daði Júlíus Agnarsson, f. 15.3. 1975, og Ingileif Friðriksdóttir, f. 18.5. 1993. Sonur Daða og Þóru Kristínar Stein- arsdóttur er Dalm- ar Ingi, f. 22.8. 1997. Sonur Ragn- hildar er Björgvin Guðni Hall- grímsson, f. 12.11. 1965, maki Þor- gerður Eir Sigurð- ardóttir, f. 21.9. 1969. Börn hans eru Ragnhildur, f. 23.1. 1986, Davíð Rafn, f. 6.1. 1989, Askur Þór, f. 10.6. 1993, Máni Snær, f. 10.8. 1996, og Embla Sól, f. 2.10. 1998. Ragnhildur gekk í Reykholts- skóla og útskrifaðist úr Hús- mæðraskólanum á Blönduósi. Ragnhildur starfaði við ýmis þjónustustörf og síðustu 20 starfsárin í mötuneyti Trygg- ingastofnunar ríkisins. Útför Ragnhildar verður gerð frá Hallgrímskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Mín fyrstu kynni af tengdamóður minni voru um það leyti sem við Hrafnhildur dóttir hennar vorum í tilhugalífinu fyrir 25 árum. Þegar við hófum búskap þá hófust nánari kynni milli mín og hennar sem stað- ið hafa með miklum ágætum æ síð- an. Ragnhildur verður fyrir þeirri sorg ung að aldri að missa móður sína. Og upp úr því veikist faðir hennar og deyr nokkrum árum síð- ar. Þær voru þrjár systurnar. Þá var heimilið leyst upp eins og þá var sið- ur. Þær ólust upp hjá vandalausum hver í sínu lagi. Þessi reynsla í æsku setti alla tíð mark sitt á hana þó að hún sýndi með framkomu sinni og samskiptum við aðra engin merki þess. Það sann- ar best mannkosti hennar að hún tók öllu með æðruleysi og stóð rétt eftir. Þess vegna minnti hún mig á mína forfeður sem tóku mótlæti með rósemi og töpuðu engu af með- fæddu ágæti og heiðarleika. Ragnhildur var einmitt af þessari gerð, sjálfstæð, heiðarleg og sá alla tíð vel um sjálfa sig og sína og höfðu börnin hennar alltaf forgang. Á kveðjustund kemur mér helst í hug framkoma Ragnhildar þegar hún færði okkur gjafir, þær sögðu meira um það sem innra bjó og hún gerði lítið af að tjá en við vissum alltaf hversu vænt henni þótti um sína nánustu og vildi hún allt fyrir þá gera þótt hún sleppti öllum ræðuhöldum þar um, þess vegna vissu allir sem henni kynntust hversu góð manneskja hún var. Hugur minn fylgir henni yfir landamærin og ég veit að hún fær góðar móttökur. Ég og fjölskylda mín viljum færa bæði starfsfólki deildar 12G á Land- spítalanum við Hringbraut og starfsfólki líknardeildar á Landa- koti sérstakar þakkir fyrir mikinn hlýhug og umhyggju í garð Ragn- hildar og fjölskyldu. Friðrik Þorbergsson. Elsku Ragnhildur. Ég vissi að sú stund kæmi að þú færir yfir móðuna miklu. Og ég held að það hafi verið mikill léttir fyrir þig að komast úr þessum mikið veika líkama. En á meðan á þessum veikindum stóð kom svo sterkt í ljós það sem ég sá um leið og ég kynntist þér árið 1994, þegar ég og ömmustrákurinn þinn, hann Daði, fórum að fella hugi saman, að þú varst ótrúlega sterk kona. Ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér og umgangast þig þessi 13 ár sem við þekktumst. Þú varst frekar lokuð kona en þú varst alltaf svo indæl og góð við okk- ur fjölskylduna, og þú mundir alltaf eftir öllum afmælisdögum og alltaf léstu fallegar gjafir fylgja í kjölfar- ið. Við áttum margar, góðar og skemmtilegar samverustundir þeg- ar við borðuðum saman og fórum saman í ferðalög. Einnig áttum við ánægjulegar stundir þegar þú flutt- ir af Laugarveginum niður á Klapp- arstíg og þar sá ég best hve rosalega skipulögð og hreinleg húsmóðir þú varst. Ekki var hægt að sjá rykkorn í neinum skúmaskotum. Heimilið þitt var til fyrirmyndar. Þegar ég fékk fréttirnar um að þú værir dáin þá hugsaði ég með mér hvað það væri gott að þú værir búin að fá hvíldina, því þetta var búið að vera erfitt ár fyrir þig. Allar þessar ferðir á sjúkrahúsið í lyfjagjöfina og svo þessir erfiðu tveir mánuðir í lokin. En þó að það hafi verið mjög erf- itt að horfa upp á þig svona mikið veika þótti mér vænt um stundirnar með þér á sjúkrahúsinu. En þegar einhver nákominn manni deyr kem- ur alltaf þetta tómarúm í hjarta manns og mikill söknuður. Ég veit að þú verður áfram með okkur í anda og við varðveitum þær góðu minningar sem við eigum um þig. Elsku Ragnhildur, hvíl í friði. Þín Þóra. Vaktu, minn Jesús, vaktu í mér, vaka láttu mig eins í þér. Sálin vaki þá sofnar líf, sé hún ætíð í þinni hlíf. (Hallgrímur Pétursson) Mig langar að þakka Ragnhildi fyrir allan þann hlýhug og vináttu sem hún sýndi mér alltaf þau 40 ár sem við Hrafnhildur, dóttir hennar, höfum verið vinkonur. Ragnhildur var mikil dugnaðarkona og bar ég ætíð mikla virðingu fyrir henni. Blessuð sé minning hennar. Elsku Hrafnhildur, Bjöggi og fjölskyldur, ég sendi ykkur mínar innilegustu samúðarkveðjur. Ingibjörg Erlendsdóttir. Ragnhildur Björgvinsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.