Morgunblaðið - 05.06.2007, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 05.06.2007, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur ylfa@mbl.is FJÁRFESTINGARFÉLAGIÐ Samson, í eigu feðganna Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar, mun styrkja nám í rússnesku við Háskóla Ís- lands næstu þrjú árin. Samningur þess efnis var undirritaður í gær af Björgólfi Guðmundssyni og Krist- ínu Ingólfsdóttur, rektor HÍ. Kennsla í rússnesku hefur legið niðri undanfarin ár vegna fjár- skorts en styrkurinn mun fjár- magna eina og hálfa kennslustöðu næstu þrjú árin. Jafnframt liggja fyrir drög að samningi milli HÍ og Moskvuháskólans um samstarf um kennslu, rannsóknir og stúdenta- skipti í tengslum við rússnesk- unámið. Draumur að rætast Við athöfnina lýsti Victor Tat- arintsev, sendiherra Rússlands á Íslandi, ánægju sinni með þennan samning og sagði hann vera draum að rætast en hann hefur unnið öt- ullega að undirbúningi samstarfs HÍ við Moskvuháskólann. Björg- ólfur tók undir með Tatarintsev og bætti því við að með þessu framlagi væru þeir feðgar að endurgjalda þær vinsamlegu móttökur sem þeir hlutu fyrir fimmtán árum er þeir stofnuðu bjórfyrirtækið Bravo Int- ernational í Pétursborg. Í Rúss- landi hafi þeir fengið að stunda við- skipti og þar hafi þeir endurfæðst. Eiga margt sameiginlegt Að mati Björgólfs eiga Rússland og Ísland margt sameiginlegt, m.a. það að þar byggju stórkostlegar þjóðir, og því væru þeir feðgar afar stoltir af framlagi sínu sem mark- aði tímamót í samskiptum þjóð- anna. Það væri þeirra von að styrk- veitingin stuðlaði að góðum og fjölbreyttum tengslum Íslands og Rússlands og efldi samskipti þjóð- anna, jafnt á sviði menningar og viðskipta. Þeir Björgólfur og Tatarintsev töluðu báðir um mikilvægi þess að fyrirtæki hér á landi öðluðust þekkingu í rússnesku. Athafna- menn og bankar horfðu í síauknum mæli til Austur-Evrópu og ljóst að hún skipaði stóran sess í framtíð- inni. Björgólfur sagði að af þessum sökum væri nauðsynlegt að efla kennslu í rússnesku og hann væri sannfærður um að nú væri rétti tíminn. Kristín Ingólfsdóttir sagðist ekki vera í nokkrum vafa um að þessi samningur myndi efla samskipti landanna og auðvelda fólki í at- vinnulífinu að eiga samskipti við Austur-Evrópu. Hún vildi þó benda á að kennsla í rússnesku fælist ekki aðeins í tungumála- kennslu heldur væri einnig komið inn á rússneska menningu og bók- menntir. Að lokum sagði hún þá Tatarintsev og Björgólf eiga mikl- ar þakkir skildar, Tatarintsev fyrir frumkvæði, staðfestu og mikinn áhuga og Björgólfur fyrir ómetan- legt örlæti. Mikil vinna hefði verið unnin til að koma þessu í gagnið og þökk sé þeim að rússneskunámið væri nú mögulegt. Þó nokkur áhugi hefur verið sýndur á náminu og fyrir tilstuðlan Tatarintsev mun Olga Korotkova, doktor í málvísindum við Mosk- vuháskóla, koma hingað til lands sem sendikennari. Rússneska verður kennd til BA- prófs sem aðalgrein og aukagrein auk þess sem unnt verður að stunda MA-nám í þýðingarfræðum. Gert er ráð fyrir að hluti MA- námsins fari fram við Moskvuhá- skóla. Tengsl Íslands og Rússlands efld  Nám í rússnesku hefst aftur við Háskóla Íslands næsta haust eftir nokkurra ára hlé fyrir tilstilli fjárstyrks frá Björgólfsfeðgum  Gott fyrir samskipti landanna, segir Kristín Ingólfsdóttir rektor Morgunblaðið/G.Rúnar Við undirritunina Björgólfur Guðmundsson og Kristín Ingólfsdóttir rektor skoða samninginn, Victor Tatarintsev, sendiherra Rússlands, fylgist með. NÝLIÐINN maímánuður var frem- ur kaldur á landinu. Mjög hlýtt var um land allt fyrstu daga mánaðarins og einnig á stórum hluta landsins síð- ustu dagana. Einkum var kalt á tíma- bilunum 4. til 11. maí og síðan frá 19. til 27. maí og snjóaði þá sums staðar. Mest snjó- dýpt mældist í Bolungarvík, 21 sentímetri, þann 25. maí, en jörð varð al- hvít á nokkuð mörgum stöð- um í flestum landshlutum og flekkótt víða. Óvenjulegt er að það gerist sunnanlands svo seint í maí, segir í yfirliti frá Veðurstof- unni. Meðalhiti í Reykjavík var 6,0 stig og er það 0,3 stigum undir meðallagi, en meðalhiti var lægri í Reykjavík í maí 2005. Á Akureyri var meðalhit- inn 4,5 stig og er það 1,0 stigi undir meðallagi, eins og í fyrra og árið 2005. Meðalhiti á Hveravöllum var 0,6 stig og er það í meðallagi og á Höfn í Hornafirði var meðalhitinn 5,9 stig. Hlýjast á Hallormsstað Hæsti hiti í mánuðinum mældist á Hallormsstað þann 1. maí, 20,7 stig. Á mannaðri stöð varð hiti hæstur á Torfum, 19,2 stig, einnig þann 1. maí. Lægsti hiti á landinu mældist 22. maí á Brúarjökli, -13,1 stig, en lægsti hiti í byggð var á Þingvöllum, -8,0 stig, þann 14. maí. Úrkoma mældist 28 mm í Reykja- vík, og er það 64% af meðalúrkomu, en 18 mm á Akureyri og er það rétt undir meðallagi. Á Höfn mældist úr- koman aðeins 15 mm sem er með allra minnsta móti á þeim slóðum, en þó varð enn þurrara í maí 2005 þegar úrkoman mældist enn minni í Horna- firði eða aðeins 6 mm í Akurnesi og 4 mm í Hólum. Sólríkt syðra Sólríkt var um landið sunnanvert, sólskinsstundir í Reykjavík mældust 282 og eru það um 90 stundir um- fram meðallag. Álíka sólríkt var í fyrra og enn sólríkara í maí 2005. Á Akureyri mældust sólskinsstund- irnar 124 og er það um 50 stundum undir meðallagi. Víðast kalt í maímánuði Kuldi Vinna bænda við sauðburð var oft erfið í maímánuði. NÝSKIPAÐUR heilbrigðisráðherra, Guð- laugur Þór Þórðarson, leysti í gær af hendi eitt síðasta verkefni sitt sem stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur þegar nýr fræðsluvef- ur stofnunarinnar var opnaður. Á vefnum er að finna margs konar efni sem tengist starfsemi Orkuveitunnar, en áhersla er lögð á fræðslu um umhverfi, vatn og raforku. Að auki er þar að finna ýmsar upplýsingar um Elliðaárdalinn, en þar hefur Orkuveitan haft ýmiss konar fróðleik um orkumál á boðstólum fyrir almenning. Um 3.000 börn koma árlega í Rafheima, fræðslusetur Orkuveitunnar í daln- um og gönguferðir eru reglulega skipulagðar þar sem þátttakendur læra sitt hvað um orku, jarðfræði, gróðurfar og sögu. Stefnt er að því að þróa efni vefjarins áfram í samráði við fræðsluyfirvöld í borginni svo að efni hans nýtist við kennslu í raunvísindum, orku- og umhverfismálum. Fyrstu grunn- skólabörnin til að prófa nýja vefinn voru nem- endur úr 1.-3. bekk Breiðagerðisskóla, en þau voru viðstödd opnunina í gær. Fræðsluvefinn má finna á vefsvæði Orku- veitunnar, www.or.is. Fræðsla um umhverfi, vatn og raforku Morgunblaðið/Eyþór Fræðsluvefur Dagný Fjóla Birgisdóttir opnaði í gær nýjan fræðsluvef OR og naut til þess aðstoðar heilbrigðisráðherra. HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hef- ur dæmt ungan mann í 22 mánaða fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnabrot en dómnum þótti ljóst að hann hefði ætlað að selja 418 e-töflur sem fund- ust í herbergi hans í foreldrahúsum. Það er umhugsunarvert að sama dag og lögreglan fann töflurnar hafði faðir unga mannsins verið handtek- inn vegna gruns um fíkniefnasölu og í húsinu fundust jafnframt 12 pakkn- ingar af amfetamíni sem móðir hans sagðist eiga og hafa ætlað að nota á fimmtugsafmæli sínu. Hjá lögreglu og fyrir dómi neitaði ungi maðurinn að hafa ætlað að selja töflurnar en gaf þær skýringar að hann hefði reykt töluvert af hassi og verið orðinn pirraður á að borga 2.500 kr. fyrir hvert gramm. Þegar fíkniefnasali hefði boðið honum ódýrar e-töflur, sem hann taldi að væru 300 talsins, hefði honum dottið í hug að hann gæti skipt á þeim og hassi og þannig fengið hassið ódýr- ara. Hann vildi hvorki lýsa útliti fíkniefnasalans né gefa upp síma- númer hans, þótt hann væri með það, af ótta við afleiðingarnar. Fram kom að maðurinn borgaði ekki fyrir töflurnar, heldur átti að hafa sam- band við fíkniefnasalann þegar hann væri kominn með peninga. Þetta at- riði, að greiðsla var ekki innt af hendi við afhendingu, var meðal þess sem dómnum fannst benda til að við- skiptasamband hefði komist á milli mannsins og fíkniefnasalans og að töflurnar hefðu verið ætlaðar til sölu. Keppnisbann þungbært Meðal þeirra sem báru vitni fyrir dómnum var prestur sem sagðist hafa fylgst með unga manninum frá því hann var unglingur og bar hann einkum um hve körfubolti hefði verið mikilvægur í lífi hans. Það hefði ver- ið honum þungbært þegar íþrótta- hreyfingin tók strangt á broti hans, sem fólst í því að amfetamín mæltist í þvagprufu, en fyrir það var hann dæmdur í tveggja ára keppnisbann. Síðan hefði honum verið meinað að æfa körfubolta. Þá sagði presturinn frá því að ungi maðurinn hefði farið í meðferð og hætta væri á að hann villtist út af beinu brautinni ef hann yrði dæmdur í fangelsi. Við ákvörðun refsingar var tekið mið af því að um mikið magn af hættulegu fíkniefni var að ræða og hins vegar að ákærði átti sér ekki sögu um dreifingu fíkniefna. Málið þótti of alvarlegt til að hægt væri að skilorðsbinda refsinguna. Auk fangavistarinnar var maðurinn dæmdur til að greiða um 470.000 krónur í varnar- og sakarkostnað. Guðmundur L. Jóhannesson kvað upp dóminn. Júlíus Kristinn Magn- ússon sótti málið en Halldór Helgi Backman hrl. var til varnar. 418 e-töflur taldar hafa verið ætlaðar til sölu Faðir hins dæmda handtekinn fyrir fíkniefnabrot sama dag AUGLÝST hafa verið til sölu neðri hæð og kjallari Landshöfðingjahúss- ins, Skálholtsstígs 7, sem einnig var og er enn þekkt sem „Næpan“. Ásett verð er 79 milljónir og er Kvikmyndafyrirtækið Sögn skráður seljandi en eigendur þess eru hjónin Baltasar Kormákur og Lilja Pálma- dóttir. Hús þetta er eitt af merkilegri húsum borgarinnar en það var byggt árið 1903. Magnús Stephensen lét reisa húsið og flutti inn árið 1904 er hann lét af embætti landshöfðingja. Á stríðsárunum var húsið ein af bækistöðvum setuliðsins en Nátt- úrulækningafélag Íslands rak mat- stofu í húsinu eftir það og var það kallað að „borða á næpunni“. Um tíma var útlit fyrir að húsið yrði rifið en þá ákvað Menningar- sjóður í samstarfi við Þjóðvinafélag- ið að kaupa húsið og færði Mennta- málasjóður það síðan til upprunalegs horfs og var aðsetur þessara stofn- ana þarna um tíma. Efri hæðir hússins eru í eigu Guð- jóns Más Guðjónssonar, sem betur er þekktur sem einn af stofnendum Oz hf., eða Guðjón í Oz. Er hann bú- settur þar. Neðri hæðirnar tvær eru 226 fm og eru flokkaðar sem skrifstofuhús- næði. Næpan komin í sölu Húsið var byggt af Magnúsi Stephensen Morgunblaðið/Ásdís Sérstakur Turn hússins er lauk- laga og dregur húsið nafn sitt af honum en það er kallað Næpan.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.