Morgunblaðið - 05.06.2007, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 05.06.2007, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2007 35 Krossgáta Lárétt | 1 stórt landsvæði, 4 húsa, 7 snúin, 8 vesæl- an, 9 elska, 11 forar, 13 kjánar, 14 mannsnafn, 15 köld, 17 slæmt, 20 bók- stafur, 22 glæstur, 23 ólyfjan, 24 kind, 25 mál. Lóðrétt | 1 skordýr, 2 gubbaðir, 3 duglega, 4 álft, 5 kvíslin, 6 korns, 10 veiðarfærið, 12 hnött- ur, 13 púki, 15 róar, 16 krók, 18 bogin, 19 grassvörður, 20 baun, 21 fín. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 sjúkrahús, 8 jurta, 9 arfur, 10 fól, 11 skata, 13 liðna, 15 rispa, 18 slæga, 21 fok, 22 fress, 23 erill, 24 skeleggar. Lóðrétt: 2 jarða, 3 krafa, 4 aðall, 5 úlfúð, 6 ljós, 7 grúa, 12 táp, 14 ill, 15 rófa, 16 stelk, 17 afsal, 18 skegg, 19 æð- ina, 20 afli. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Svona er þá útsýnið frá Ástar- bátnum! Fullt af fallegum andlitum að hitta og aðrar fagrar sýnir. Og þú ert að- alsjarmörinn sem allir vilja kynnast. (20. apríl - 20. maí)  Naut Efasemdum þínum hefur verið eytt. Þú getur nú fullkomlega treyst ein- hverjum sem trúa á þig, því þeir þora að sanna það fyrir þér – fjárhagslega eða á annan álíka frábæran máta. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Í dag er rétti dagurinn fyrir þig til að biðja um hvað sem er. Ekki halda aftur af þér. Fólk á eftir að hafa samband í hrönnum. Mögulega besti dagur ársins. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú ert meistari í að fela tilfinn- ingar þínar. Er mögulegt að vinna sér inn peninga af því sem manni býður við? Já, en þú verður ekki milljónamæringur af því. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Hvort er það það sem þú veist eða þeir sem þú þekkir sem gera þig svona eftirsóknarverðan? Þú ert klár og þú veist það. En þú elskar líka aðdáendur þína og þeir elska þig. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú ert vinsæll og þegar klappað er fyrir þér, þá áttu það skilið. En þú ert hikandi stjarna og hógværð þín er heillandi. Ekki láta hana stela frá þér kastljósinu. Baðaðu þig í því. Þú átt það skilið. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú vilt bara það besta og það er það sem þú heimtar af öðrum. Þá verður þetta spurning um smekk. Hvað er best? Eru allir sammala um það? (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú ert hæfileikaríkur og fólk dáist að hugmyndum þínum. Svo af hverju ætti það ekki að hrósa þér? Taktu því og ekki hafa áhyggjur af að hrósa á móti. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Glæsileiki þinn og útgeislun laða rétta manneskju að þér. Þessi er eins og náttfiðrildi sem sveimar í ljósinu sem stafar af þér. Takið strax til starfa. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Leyndur og týndur hæfileiki kemur upp á yfirborðið í leiðinlegu verk- efni. Ekki taka því með hálfkæringi. Þessi uppgötvun gæti breytt lífi þínu. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Ástin er mikið áhættuspil fyrir þig, en samt þess virði. Það verður spilað lengi og mörg tækifæri gefast. Spilaðu til að vinna, þú ert með réttu spilin. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú hefur gert það að vana þínum að huga að þeim sem þarfnast hjálpar. Fólk tekur mikið mark á ráðum þínum. Þér líður eins og þjóni, en þú ert kóngur. stjörnuspá Holiday Mathis STAÐAN kom upp á minningarmóti Capablanca sem er nýlokið í Havana á Kúbu. Skáksnillingurinn frá Úkra- ínu, Vassily Ivansjúk (2729), hafði svart gegn danska stórmeistaranum Peter Heine Nielsen (2649). 18 … Ra5! Svartur hótar nú Rxc4 og að hrekja þannig hvítu drottninguna frá því að valda hrókinn á c1, t.d., 19. Rc7 Rxc4 20. Df4 e5 21. Dg5 h6 og svartur vinnur. 19. f3 Rxc4 20. Df4 b5! Svartur hótar nú e6-e5 og að vinna hrókinn á c1. 21. Hb1 Dxc3+ 22. Kf2 Rd2 23. He1 Hxa8 24. Bg2 c4, svartur hefur nú létt- unnið tafl. Lok skákarinnar urðu: 25. Dc7 Dd4+ 26. e3 Dd8 27. De5 Hc8 28. Dc3 Dd3 29. Da5 c3 30. He2 Rb3 31. Dxa7 c2 og hvítur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Svartur á leik. Jarðvegurinn plægður. Norður ♠1063 ♥K8 ♦K9742 ♣DG5 Vestur Austur ♠KG842 ♠D75 ♥D7 ♥G1053 ♦G8 ♦D103 ♣9742 ♣1083 Suður ♠Á9 ♥Á9642 ♦Á65 ♣ÁK6 Suður spilar 3G. Útspilið er smár spaði og sagnhafi telur upp í átta slagi. Tígulinn má vissulega fría, en þá er sú hætta til staðar að vörnin fái of marga á spaða. Hvað er til ráða? Í svona stöðum er oft ágætt að leyfa vörninni að taka á líflitinn sinn – það skapar jarðveg fyrir þvingun á síðari stigum. Hér drepur því sagn- hafi spaðadrottninguna og spilar snarlega spaða um hæl. Sagnhafi er í góðum málum ef liturinn skiptist jafnt, og enn Á LÍFI ef vestur reynist eiga fimmlit. Vestur getur lítið annað gert en tekið slagina sína og vænt- anlega hendir austur laufum. En það er bara frestun á hinu óhjákvæmi- lega, því þegar sagnhafi tekur laufs- lagina þrjá þvingast austur í rauðu litunum. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is 1 Hver er forstjóri Vinnslustöðvarinnar í Eyjum sem mjöghefur verið til umræðu vegna tilboðs í fyrirtækið? 2 Ný formaður Landssambands eldri borgara hefur veriðkjörinn. Hver er það? 3 Hversu margir gengu á Esjuna sl. laugardag? 4 Hver var fulltrúi Íslands á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðs-ins? Svör við spurningum gærdagsins: 1. Odd Nerdrum, málarinn norski, mætti ekki á blaða- mannafund í Noregi sem hann ætlaði að halda eftir 5 ára þagnarbindindi gagn- vart norskum fjölmiðlum. Hvað býr hann nú? Svar. Á Íslandi. 2. Friðrik Rafnsson þýðandi hefur verið sæmd- ur virtri orðu. Hverrar þjóðar er hún? Svar: Hún er frönsk. 3. Flensborgarskóli fagnar stórafmæli um þessar mundir. Hversu gamall er skól- inn? Svar: 125 ára. 4. Einn kunnasti körfuknattleiksmaður Bandaríkjanna og Los Angeles Lakers er hættur við að hætta. Hver er hann? Svar: Kobe Bryant. Spurter… ritstjorn@mbl.is dagbók|dægradvöl Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig ÞEGAR Garry Kasparov, þáverandi heims- meistari, klauf sig úr FIDE árið 1993 urðu til tveir heimsmeistaratitlar í skák sem voru síðan samein- aðir í einn þegar Vladimir Kramnik bar sigurorð af Veselin Topalov í heimsmeistaraeinvígi sl. haust. Áður en að því einvígi kom hafði verið ákveðið að heimsmeistaramót yrði haldið í Mexíkó haustið 2007 og að sá sem tapaði sameiningarein- víginu ætti ekki rétt á að taka þar þátt. Á heims- meistaramótinu í Mexíkó verða átta keppendur sem tefla tvöfalda umferð. Fjórir skákmenn hafa þegar tryggt sér þátttökurétt í því móti, heims- meistarinn Kramnik og þeir þrír skákmenn sem lentu í 2.-4. sæti á heimsmeistaramóti FIDE í San Luis árið 2005, þ.e. Vishy Anand, Peter Svidler og Alexander Morozevich. Hinir fjórir skákmennirn- ir eru þeir sem verða hlutskarpastir í áskorenda- einvígjum heimsmeistarakeppninnar sem fara fram þessa dagana í Elista í Rússlandi. Sumir skáksérfræðingar hafa átt í erfiðleikum með að átta sig á hvernig staðið var að vali á þeim sextán skákmönnum sem hófu keppni í áskor- endaeinvígjunum. Reglurnar um það efni voru hins vegar settar fyrir tæpum tveimur árum og samkvæmt þeim öðluðust tíu efstu keppendur á heimsbikarmóti FIDE árið 2005 rétt til þátttöku, síðan fimm skákmenn sem höfðu hæstu meðaltals- stigatöluna á tilteknu tímabili og að lokum Rustam Kazimdzhanov, fyrrverandi heimsmeistari FIDE. Hægt er að nálgast reglurnar á vefslóðinni http:// www.fide.com/official/handbook/D_I_04.pdf. Hvert áskorendaeinvígi getur samanstaðið af sex kappskákum en ef það er jafnt eftir þær tefla keppendur fjórar atskákir. Af þeim átta einvígjum sem lauk í síðustu viku vakti einvígi norska undra- barnsins Magnusar Carlsen (2693) og Armenans Levons Aronjans (2759) mesta athygli. Aronjan hafði eins vinnings forystu í einvíginu þegar fjór- um skákum var lokið en Carlsen náði að jafna í þeirri fimmtu. Í lokaskákinni hafði Aronjan yf- irhöndina en Carlsen bjargaði sér fyrir horn og jafntefli varð niðurstaðan. Áður en fjórða og síð- asta atskákin hófst hafði Aronjan enn á ný vinn- ingsforskot en sem fyrr sýndi Norðmaðurinn ungi mikinn karakter og jafnaði metin í langri skák. Þá þurfti að grípa til hraðskáka og hafði sá armenski sigur í þeim báðum. Von Norðmannsins um sigur á heimsmeistaramóti er því fyrir bí að svo stöddu en hann tefldi frábærlega og féll út með sæmd. Úrslit annarra einvígja í 16 manna úrslitum urðu þau að Leko (2749) lagði Gurevich (2635) að velli, Kamsky (2705) malaði Bacrot (2709), Grisc- huk (2717) bar örugglega sigurorð af Malakhov (2679), Rublevsky (2680) vann Ponomarjov (2717), Bareev (2643) vann Polgar (2727), Shirov (2699) stóð uppi sem sigurvegari eftir atskákareinvígi gegn Adams (2734) og það sama átti við um Boris Gelfand (2733) í einvígi hans við Rustam Ka- simdzhanov (2677). Í næstu umferð ræðst hvaða fjórir skákmenn komast á heimsmeistaramótið í Mexíkó en þá mætast eftirfarandi skákmenn: Levon Aronjan (2759) – Alexei Shirov (2699) Peter Leko (2738) – Evgeny Bareev (2635) Sergei Rublevsky (2680) – Alexander Grischuk (2717) Boris Gelfand (2733) – Gata Kamsky (2705) Ekki er ósennilegt að Aronjan og Leko komist áfram þar sem þeir eru yngri og eru á uppleið ólíkt Shirov og Bareev. Grischuk ætti að leggja Ru- blevsky að velli en ómögulegt er að spá fyrir um úrslitin á milli Gelfands og Kamskys. Gelfand er betur að sér í byrjunum en Kamsky hefur náð frá- bærum árangri í einvígjum. daggi@internet.is Carlsen féll út með sæmd SKÁK Elista í Rússlandi ÁSKORENDAEINVÍGI HM 26. maí – 14. júní 2007 Undrabarnið Hinn 16 ára Magnus Carlsen, t.v., tefldi frábærlega en tapaði að lokum fyrir Aronjan. Helgi Áss Grétarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.