Morgunblaðið - 05.06.2007, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 05.06.2007, Blaðsíða 21
tíska MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2007 21 Matvöruverslanir á Akranesi hafa verið margar í gegnum tíðina og miklar breytingar hafa átt sér stað á þeim markaði. Verslun Einars Ólafs- sonar er sú elsta sem starfrækt er í dag og Skagaver hefur einnig starf- að í langan tíma. Krónan og Bónus hafa nýverið opnað stórar verslanir á Akranesi og er ljóst að sam- keppnin verður mikil um hylli íbúa bæjarins þar sem búa rétt rúmlega 6.000 manns. Samkaup reka einnig „klukkubúð“ í bænum en nú þegar hefur einni verslun verið lokað eftir að Bónus opnaði nýju verslunina. Kaskó (áður Nettó) var lokað um sl. mánaðamót. Í frétt héraðs- fréttablaðsins Skessuhorns á dög- unum var greint frá því að versl- unarrými á matvörumarkaðnum ætti betur við 20.000 íbúa samfélag en 6.000 íbúa.    Það vakti athygli á dögunum að lítil einkaflugvél sveimaði lágt yfir Akra- neskaupstað í blíðviðri seint að kvöldi í maí. Flugmenn vélarinnar gerðu sér lítið fyrir og lentu vélinni á Langasandi, stigu út, tóku mynd af sér við vélina og héldu síðan af stað aftur. Það er ekki á hverjum degi sem flugvélum er lent á Langasandi en þeir sem þekkja sögu Akraness vel muna eftir því að einkaflugvélar voru tíðir gestir á Langasandi. Þótti það ekki stóratburður en á allra síð- ustu árum hefur flugvélum ekki ver- ið lent á sandinum enda hefur und- irlagið breyst mikið og sandurinn er ekki eins sléttur og hann var áður.    Erlendir ferðamenn voru tíðir gestir á þeim tíma er Akraborgin sigldi úr hjarta Reykjavíkur upp á Akranes mörgum sinnum á dag. Dagsferðir voru skipulagðar og ferðamönnum þótti gaman að sameina siglingu og heimsókn í „íslenskt fiskiþorp“. Með tilkomu Hvalfjarðarganga árið 1998 varð breyting á heimsóknum ferða- manna. Þeir komu alls ekki. Núna hafa skapast nýir möguleikar sem íslensk ferðaskrifstofa hefur nýtt sér. Í síðustu viku kom um 40 manna hópur þýskra ferðamanna með strætó frá Reykjavík. Það er Katla DMI sem skipuleggur ferðirnar í samstarfi við þýsku ferðaskrifstof- una RV Touristik í München. Á með- al þess sem var á dagskrá hópsins var heimsókn á Safnasvæðið í Görð- um, gengið var um Langasand og farið í sund. Ferðamátinn þykir áhugaverður kostur þar sem kostn- aðurinn er aðeins brot af því sem greitt er venjulega fyrir dagsferðir ferðamanna á Íslandi.    Kristín Mist Sigurbjörnsdóttir fékk verðlaun fyrir bestan árangur á stúdentsprófi við útskrift úr Fjöl- brautaskóla Vesturlands á Akranesi á dögunum og Ingólfur Pétursson fékk verðlaun fyrir bestan árangur af iðn- og starfsmenntabrautum. Alls voru 40 nemendur brautskráðir frá skólanum sem fagnar 30 ára af- mæli í haust. AKRANES Sigurður Elvar Þórólfsson, blaðamaður Morgunblaðið/Sigurður Elvar Á ferðinni Erlendir ferðamenn voru tíðir gestir á Akranesi er Akraborgin sigldi þangað. Strætis- vagnaferðir á Akranesið þykja ekki síður góður kostur. úr bæjarlífinu Slör Því er nútímalega komið fyrir slörinu hjá Jesus Peiro tískuhúsinu. Pífur Stuttur hvítur kjóll alsettur pífum frá Rosa Clara tískuhúsinu. Slaufa Hún er áberandi slaufan á þessum kjól Hannibal Laguna. Framúrstefnulegir og klassískir hvítir kjólar Handverkssýning Seltjarnarnesi. Í tilefni Menningarhátíðar á Seltjarnarnesi verður handverkssýning eldri bæjarbúa í Bókasafni Seltjarnarness 5.-9. júní 2007. Sýningin er opin á opnunartíma safnsins. Sumt blogg hefurfrétta- og upplýsingagildi, það hefur sýnt sig, þegar upplýstir og vel tengdir menn eiga í hlut. Slíkt blogg er ágætt aðhald fyrir fjölmiðlana í land- inu. Víkverji botnar aftur á móti ekkert í öllu þessu persónulega bloggi. Hvaða erindi á það við almenning? Það er sök sér ef menn eru staddir er- lendis eða á af- skekktum fjörðum að þeir vilji blogga um æv- intýri sín fyrir sína nánustu en Víkverji skilur ekki fyrir sitt litla líf hvers vegna vandalausir hafa áhuga á kynlífsraunum vin- kvenna Ellýjar Ármannsdóttur sjón- varpsþulu. Hann virðist þó vera þar í miklum minnihluta en samkvæmt könnunum liggur íslenska þjóðin yfir þessu og öðru persónulegu bloggi daginn út og inn. Hefur hún virkilega ekkert betra við tíma sinn að gera? x x x Hann var sorglegur endirinn áfrábærum landsleik Dana og Svía í undankeppni Evrópumótsins í knattspyrnu á Parken á laugardag. Það er með ólíkindum að einn maður geti í ölæði sínu eyðilagt skemmtun fyrir þúsundum manna. En þetta leiðinlega atvik undirstrikar að ekk- ert má út af bera þegar öryggis- gæsla á knattspyrnuvöllum er ann- ars vegar. Árum saman hefurþað verið eins konar íþrótt hjá Vík- verja að velta fyrir sér hvað hafi orðið um hina og þessa menn sem hann hefur haft sam- skipti við með einum eða öðrum hætti gegn- um tíðina. Gamla skólabræður, vinnu- og frístundafélaga. Hvar skyldi þessi maður vera niðurkom- inn í dag? hugsar Vík- verji með sér af engu tilefni. Ætli hann sé læknir, lögfræðingur eða sorptæknir? Ætli hann eigi konu, eða jafnvel mann, börn og hund? Eða innflutta aust- urlenska eðlu? Þetta eru ómet- anlegar pælingar í amstri hvers- dagsins og ímyndunaraflið er þanið til hins ýtrasta. x x x Á þessum síðustu og verstu tím-um er aftur á móti ekkert gam- an að þessum vangaveltum. Hvers vegna? Það eru allir komnir með blogg. Ef Víkverja langar að vita hvernig tilveran hefur leikið tiltek- inn skólabróður hans í núllbekk skoðar hann bara bloggið hans. Þar lætur skólabróðirinn gamm- inn geisa um líf sitt, störf og fjöl- skylduhagi, menn og málefni. Hann hefur skoðun á öllu frá kynlífi til hvalveiða og skráir skilmerkilega á bloggið sitt hvað hann hefur hægðir mörgum sinnum í viku. Í dag vita all- ir allt um alla. Ímyndunaraflinu hef- ur verið úthýst.     víkverji skrifar | vikverji@mbl.is ÞAÐ er alltaf mikið um gift- ingar á sumrin, enda sól og heiðríkt sumar fullkominn bak- grunnur fyrir fallegt brúðkaup. Og þá á helst ekki að vera sýni- leg sú mikla vinna sem lögð var í undirbúninginn – heldur á dagurinn að líða með sem áta- kaminnstum hætti. Undirbúningurinn sem að baki liggur er þó oft heilmikill, stundum er það margra mán- aða vinna að skipuleggja jafn- vel minnstu smáatriði. Klæðn- aður brúðarinnar er eitt þeirra atriða sem venjulega fer mikil hugsun í. Þröngur eða víður, stuttur eða síður, klassískur eða framúrstefnulegur kjóll, eða jafnvel buxnadragt – val- möguleikarnir geta virst ótelj- andi jafnvel þó að liturinn sé oftast hvítur. Nú á dögunum var haldin sérstök brúðartískusýning í Barcelona á Spáni. Eins og sjá má kenndi þar margra grasa og aldrei er að vita nema brúðir framtíðar fái þar hugmyndir að kjólnum hvíta. Reuters Blómleg Blómleg greiðslan við kjól frá Victorio & Lucchino og klassískur brúðarkjóll frá Karl Lag- erfeld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.