Morgunblaðið - 05.06.2007, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 05.06.2007, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Hvenær sækja puttalingar sjávarþorpanna sinn frumbyggjarétt og koma böndum á ógn- valdinn sem fyrirvaralaust getur rænt þá björginni og gert eignir þeirra verðlausar? VEÐUR Íslenskir skákáhugamenn þekkja veltil skákmeistarans Garrís Kasp- arovs og heimsóknir hans til landsins eru eftirminnilegar. Nú stendur hann í stórræðum í Rússlandi sem einn helsti andófsmaður Pútíns forseta eða í það minnsta einn sá kunnasti.     Í nýlegri bók „How Life ImitatesChess“ fléttar hann heimsmálin saman við atburðarásina á skákborð- inu og veltir fyrir sér hvað megi yf- irfæra úr skákinni yfir í stjórnmálin.     Sumum fellurbókin eflaust helst vegna lýs- inga á skákum, stórmeisturum og eigin ferli, s.s. að 14 ára fékk hann þau ráð frá móður sinni að leggja á minnið nokkrar hendingar úr Évgení Ónegín, ljóði Púshkins, fyrir hverja skák á mik- ilvægu stórmóti. Þannig dreifði tán- ingurinn huganum. Og vann mótið.     Kasparov lýsir einvígi aldarinnarog segir Fischer hafa átt marga aðdáendur í Sovétríkjunum; sjálfur hafi hann verið níu ára og ekki aðeins dáðst að taflmennskunni heldur einn- ig sjálfstæði Fischers. En bókin er einnig forvitnileg inn- sýn í þankagang stjórnmála- og and- ófsmannsins Kasparovs. Á einum stað fjallar hann um baráttuna gegn hryðjuverkum og bendir á að hryðju- verkamenn séu að mestu fjármagn- aðir af olíuríkjum, sem efnist á olíu- sölu til vestrænna ríkja.     Hann segir því mikilvægt að Vest-urlönd verði óháð olíu sem orku- gjafa og nefnir að Ísland ætli sér að ná því árið 2050. Íslensk stjórnvöld hafa reyndar ekki lýst því yfir, þótt fræðimenn hafi orðað þann mögu- leika. Stórmeistarar hafa víst ekki alltaf rétt fyrir sér. En andófið heldur áfram. Og það verður fróðlegt að fylgjast með framvindu skákarinnar hjá Kasparov gegn andstæðingi sem er jafnvel enn voldugri en Karpov. STAKSTEINAR Garrí Kasparov Kasparov sest við skákborðið SIGMUND                      ! " #$    %&'  (  )                    *(!  + ,- .  & / 0    + -     ! "       ! "     12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (    # $%% "&% &                 :  *$;< %%%                       !  "         #    $ %      &'       *! $$ ; *! '( )% %(%!   *  =2 =! =2 =! =2 ')  %+ $ ,%- .  >2?         =7  @    @  /  %0  %)% )%! . !0  !% %!% # %! %("%% $&%1 %%  % % (  %!%  *$& =   1)%  )2%!%. !0  !% %! # %!%  # $%("%% $3 !% ! %%. ( %%4  $& 5  % " %! %"%(! &   ' )% 3% 2%, 3% %! # $%!% * %'2%%62 $ %! 0 ! % %%72%%42 $& 1 % %  % % 3%%%% &%74%  & 80 %%99 % %6! %+ $ 3'45 A4 A*=5B CD *E./D=5B CD ,5F0E ).D & 3 3 3 &   &  & &    &      3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3                    Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Ragnhildur Sverrisdóttir | 4. júní 2007 Bjórþambandi karl- menn í baði Æ, ekki er nú sum- arlegt um að litast á fína, nýja pallinum okkar. Allt á floti og ekkert útlit fyrir að hægt verði að við- arverja á næstunni. Og ég sem sá mig í anda sitja á pallinum alla daga, í steikjandi sól og blíðu. Og suma daga, þegar hitinn færi vel yfir 20 stigin, með ískalt hvítvíns- glas, að sjálfsögðu. Meira: ragnhildur.blog.is Sigríður Laufey | 4. júní 2007 KSÍ veitir „séra Jóni“ vín! Máltækið „það er ekki sama Jón og séra Jón“ á vel við um vínveit- ingar KSÍ á landsleik Íslands. Ekki var leyfð áfengisneysla eða vín- sala nema handa þeim sem sátu í heiðursstúku. Hvernig getur KSÍ leyft sér slíka framkomu, að veita útvöldum vín en banna það síðan öðrum? Erlendis er ofneysla áfengra drykkja vandamál á kapp- leikjum. Meira: logos.blog.is Eiríkur Bergmann Einarsson | 4. júní 2007 Ástæðulaust að atast í Agli Ekki skil ég hvað stjórnendum 365 miðla gengur til með þessum málarekstri gegn Agli Helgasyni. Ef menn vilja frekar vinna ann- ars staðar þá er voða- lega vitlaust að þvinga þá til að vera áfram, þar sem þeir vilja ekki lengur vera. Það er vont fyrir alla. Jafnvont fyrir fyrirtækið og starfsmanninn. Meira: eirikurbergmann.blog.is Ágúst Ólafur Ágústsson | 4. júní 2007 Bestu árin Þeir eru margir sem halda því fram að menntaskólaárin séu bestu ár ævinnar. Á laugardagskvöld hitti ég marga góða vini og félaga úr Mennta- skólanum í Reykjavík þegar við hittumst í tilefni af því að 10 ár voru liðin frá útskrift úr skól- anum. Og það var ótrúlega skemmtilegt að hitta aftur bekkjarfélagana úr náttúrufræðideildarbekknum en suma þeirra hafði ég ekki hitt í mörg ár. Það var ekki síður skemmtilegt að heyra hvað fólk er að fást við. Eðli málsins samkvæmt eru þeir nokkrir læknarnir og verkfræðingarnir í bekknum og nokkrir sem enn eru er- lendis í námi. Bekkurinn hefur líka verið nokk- uð iðinn þegar kemur að barn- eignum. Í upphafi kvöldsins voru höfð mörg orð um það hvað fólk hafði lítið breyst og við vorum eiginlega öll á því að bekkjarfélagarnir væru eins eftir öll þessi ár. En eftir að myndband var sýnt úr útskriftarferð árgangsins mátti glögglega sjá að sú fullyrðing átti ekki alveg við rök að styðjast. Þar mátti sjá fríðan en mjög barnalegan hóp, sem þó stóð sennilega í þeirri trú að mannskapurinn væri ekkert minna en rígfullorðinn. Áratug seinna hafa margir aðeins bætt á sig, fengið velmegunarvömb og ein- hverjir teknir að grána. Baldvin Þór Bergsson fréttamað- ur á Ríkissjónvarpinu var ræðumað- ur kvöldsins og rifjaði upp góðar stundir úr MR. Ræða hans var góð og niðurstaða hans var einmitt sú að árin í Menntaskólanum væru líkast til með þeim skemmtilegri á ævinni. Ég kunni alltaf vel við mig í MR. Mér finnst skólinn sjarmerandi og þær eru skemmtilegar hefðirnar sem þar lifa góðu lífi. Dætur okkar Þorbjargar hafa fengið mátulega hlutlaust uppeldi og Elísabet Una, eldri dóttir okkar, sem nýlega er orðin 5 ára, sagði við okkur foreldrana um daginn: Áður en maður byrjar í Háskól- anum, þá fer maður í MR. Meira: agustolafur.blog.is BLOG.IS Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Rhodos 9. júní frá kr. 29.990 Allra síðustu sætin Heimsferðir bjóða frábært tilboð til Rhodos í byrjun júní. Á Rhodos upplifir þú þrjú þúsund ára gamla sögu á einum sólríkasta stað í heimi, frábært loftslag og einhverjar bestu aðstæður fyrir ferðamann- inn sem þú finnur í Grikklandi. Bjóðum örfáar íbúðir á Les Cocotiers íbúðahótelinu á frábæru verði. Gríptu tækifærið og njóttu lífsins í sumar á eyju sólarinnar. Verð kr. 29.990 Netverð á mann. Flugsæti með sköttum. Verð kr. 39.990 Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í íbúð á Les Cocotiers í viku , 9. júní. Aukavika kr. 14.000. Verð kr. 49.990 Netverð á mann, m.v. 2 í íbúð á Les Cocotiers í viku, 9. júní. Aukavika kr. 14.000.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.