Morgunblaðið - 05.06.2007, Síða 26

Morgunblaðið - 05.06.2007, Síða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Lilja Guðmunds-dóttir fæddist í Heiðardal í Vest- mannaeyjum 4. júlí 1923. Hún andaðist á dvalar- og hjúkr- unarheimilinu Hlíð á Akureyri 26. maí síðastliðinn. For- eldar hennar voru Guðmundur Sig- urðsson bóndi í Litlu-Hildisey, f. 11.10. 1881, d. 22.3. 1975, og kona hans Arnleif Helgadóttir frá Grímsstöðum í Vestur- Landeyjum, f. 29.1. 1882, d. 8.3. 1956. Árið 1917 fluttu þau til Vest- mannaeyja og bjuggu þar allan sinn búskap. Þau hjónin eignuðust sex börn en aðeins tvær dætur komust til fullorðinsára. Þau voru Sigurður Helgi, f. 1910, d. sama ár, Lilja, f. 1911, d. 1923, Helgi, f. 1914, d. 1916, og Sigríður, f. 1922, d. 1932. Systir Lilju sem komst til fullorðinsára var Ásta, f. 31.3. 1917, d. 27.5. 2003, hún var gift Kristinn, f. 10.2. 1981, og Þórunn Lilja, f. 13.9. 1988. 3) Erna Hildur framhaldsskólakennari, f. 24.5. 1959, maður hennar er Gunnar Magnús Guðmundsson fram- kvæmdastjóri, f. 24.4. 1959, synir þeirra eru Guðmundur Egill, f. 1.1. 1989, og Magnús Árni, f. 14.10. 1991. Lilja ólst upp í Vestmannaeyjum og lauk þar gagnfræðaskólaprófi og starfaði síðar á pósthúsi bæjar- ins. Hún tók virkan þátt í skáta- starfi og söng í kirkjukór Landa- kirkju. Hún fluttist til Reykjavíkur á fimmta áratugnum og hóf störf hjá Agli Vilhjálmssyni hf. Veturinn 1946-1947 stundaði Lilja nám við sænskan hússtjórnarskóla í Ljungsile. Lilja og Gunnar bjuggu allan sinn búskap á Akureyri og var Lilja heimavinnandi húsmóðir fram til níunda áratugarins þegar hún hóf störf sem leiðbeinandi á leikskólanum Iðavöllum. Þar starf- aði hún þar til hún lét af störfum sökum aldurs. Um árabil starfaði Lilja með kvenfélaginu Framtíð- inni og söng með Kór aldraðra á Akureyri um margra ára skeið. Útför Lilju verður gerð frá Akureyrarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Hrólfi Benediktssyni prentsmiðjustjóra, f. 23.8. 1910, d. 16.9. 1976. Lilja giftist 25.11. 1950 Gunnari Bergi Árnasyni kaupmanni, f. 27.9. 1924, og flutt- ist með honum til Akureyrar. Gunnar er sonur hjónanna Árna Bergssonar kaupmanns í Ólafs- firði, f. 9.10. 1893, d. 17.9. 1959, og Jó- hönnu Magnúsdóttur, f. 16.6. 1894, d. 18.6. 1965. Lilja og Gunnar eignuðust þrjú börn, þau eru: 1) Guðmundur Örn læknir í Svíþjóð, f. 2.4. 1952, kona hans er Helena Guðbjörg Gunnlaugsdóttir meinatæknir, f. 21.10. 1950, börn þeirra eru Lilja, f. 15.2. 1979, Hulda Edda, f. 30.12. 1982, og Anna Hildur, f. 6.6. 1987. 2) Jó- hanna Arnleif matvælafræðingur, f. 5.3. 1956, maður hennar er Vil- bergur Kristinsson jarðeðlisfræð- ingur, börn þeirra eru Gunnar Það er sólríkur sumardagur á Akureyri. Við krakkarnir tínumst niður á neðri hæðina heima á Ásvegi 28. Gardínan í borðstofunni blaktir í blænum enda dyrnar út á sólpall gal- opnar og mamma komin út. Á garð- borðinu bíður okkar morgunmatur en mamma hvergi sjáanleg. Þegar út á lóðina er komið fara að sjást um- merki eftir hana. Vinnuvettlingarnir liggja á hálffullri arfafötunni við blómabeðið meðfram stéttinni þar sem sextíu himinbláar og hvítar stjúpur standa hæverskar í tvöfaldri röð, döggvaðar eftir vökvun. Nú kemur mamma í ljós á morgunkjóln- um á tali við nágrannakonu. Hún smalar okkur saman og við vitum af reynslunni að framundan er góður dagur við leik og störf úti í garði. Svona er dæmigerð minning um mömmu. Mamma var fædd og uppalin í Heiðardal í Vestmannaeyjum. Hún var yngst sex systkina en aðeins tvær dætur afa og ömmu náðu full- orðinsárum, þær Ásta og mamma. Hún vann lengi á pósthúsinu í bæn- um, var í skátastarfinu og söng í kirkjukór Landakirkju. Mamma tók sig upp og settist á skólabekk í sænskum hússtjórnar- skóla. Óhætt er að fullyrða að þar hafi hún numið sitthvað því mamma var afbragðs húsmóðir. Hún var listakokkur, snjöll saumakona eins og margir jólakjólar okkar systra báru merki, garðyrkjukona og iðinn uppalandi. Hún setti skólagöngu okkar systkinanna ávallt í forgang og við áttum okkur enga undan- komuleið með heimanámið. Sá agi skilaði sér. Í tjaldútilegunum með mömmu og pabba var aðaltilhlökk- unarefnið að fá að borða hjá mömmu. Hún eldaði dýrindis pott- rétt heima, hitaði svo á prímusinum, gerði kartöflustöppu og steikti egg. Ummm! Aldrei smakkaðist nokkuð betur en einmitt þetta. Eins ef við vorum veik pakkaði mamma okkur þéttingsfast inn í sæng, hélt okkur þétt að sér í fanginu og söng barna- gælur þar til við sofnuðum. Ógleym- anleg öryggistilfinning! Einnig er áleitin minning þegar barnmargur faðir kom iðulega í heimsókn til mömmu fyrir jólin og fór með vænan stafla af barnafötum af okkur undir hendinni á ungahópinn sinn. Þá leið mömmu vel. Mamma var glæsileg kona á velli. Hún lét sér afar annt um klæðaburð sinn, fylgdist vel með straumum og stefnum og var ávallt vel til höfð. Síðkjólarnir hennar voru sérlega glæsilegir, sumir saumaðir og hann- aðir af henni sjálfri. Dætur okkar systkinanna hafa komist í feitt í skápunum hennar ömmu. Af fram- ansögðu gæti fólki dottið í hug að mamma hafi verið hin mesta pjatt- rófa en svo var alls ekki. Hún var forkur til líkamlegrar vinnu og vílaði ekki fyrir sér að óhreinka sig í kart- öflugarðinum, skrapa og mála, slá blettinn eða bóna bílinn. Mamma gaf okkur svo sannarlega gott veganesti út í lífið. Hún innrætti okkur sterka réttlætiskennd, sam- viskusemi og almenna siðferðisvit- und. Þetta eru ómetanlegir eigin- leikar sem við búum að meðan við drögum andann. Nú þegar mamma hefur horfið í aðra tilvist minnumst við alls þessa með innilegu þakklæti. Betri gjafir hefði hún ekki getað gef- ið okkur. Minning um heilsteypta og yndislega móður lifir með okkur þar til við hittum hana á ný. Guðmundur, Jóhanna og Erna. Elsku amma, takk fyrir allar stundirnar sem við áttum með þér og fyrir allar minningarnar sem nú fylla huga okkar og hjarta. Við stöndum í eilífri þakkarskuld við þig fyrir alla ástina sem þú sýndir okkur og þann hlýja hug sem við áttum hjá þér og fyrir stuðninginn sem þú veittir okk- ur þegar við þurftum á honum að halda. Það var alltaf hægt að tala við þig um alla heima og geima og þér fannst allt sem okkur við kom áhuga- vert og spennandi. Þú vildir alltaf gera okkur gott og lagðir allt annað til hliðar til að sinna okkur. Þrátt fyrir að við sæjum að heilsu þinni væri farið að hraka þegar við hittum þig síðastliðna páska vissum við ekki þegar við kvöddum þig að það yrði okkar hinsta kveðja. Nú getum við aðeins vonað að þú sért komin á betri stað, stað fullan af hamingju, kær- leika og gleði. Því er oss erfitt að dæma þann dóm, að dauðinn sé hryggðarefni, þó ljósin slokkni og blikni blóm. – Er ei bjartara land fyrir stefni? (Einar Ben.) Gunnar Kristinn Vilbergsson og Þórunn Lilja Vilbergsdóttir. Lilja, móðursystir mín, var fædd og uppalin í Vestmannaeyjum. Amma Arnleif Helgadóttir og afi Guðmundur Sigurðsson í Heiðardal eignuðust sex börn. En af þeim voru það aðeins Ásta móðir mín og Lilja frænka sem náðu fullorðinsaldri. Lilja var glæsileg kona, dökk yfirlit- um og hafði erft brúnu augun hans afa. Við systurnar göntuðumst stundum við hana um að hún hlyti að hafa franskt eða spánskt blóð í æð- um og hún tók því ekki illa. Þegar ég fæddist á Barónsstíg 19 var Lilja í hlutverki ljósmóður og því má segja að við höfum bundist traustum böndum frá fyrsta degi ævi minnar en Lilja bjó um þetta leyti á heimili foreldra minna í Reykjavík. Þessi bönd efldust og styrktust enn frekar þegar ég var í sumarvist á Akureyri hjá þeim hjónum Lilju og Gunnari frá 6 ára til 12 ára aldurs. Lilja hafði þá hitt sinn lífsförunaut, Gunnar Árnason, kaup- mann á Akureyri, en þau gengu í hjónaband árið 1950. Fyrstu árin bjuggu Lilja og Gunn- ar á Skipagötu 1 en Gunnar rak verslun sína í sama húsi. Þegar fjöl- skyldan stækkaði byggðu þau sér hús við Ásveg 28. Gestkvæmt var á heimilinu og ættingjar að sunnan komu gjarnan í heimsókn. Öllum var tekið opnum örmum af miklum rausnarskap og Lilja var hrókur alls fagnaðar. Framan af ævinni var Lilja fastur punktur í tilveru minni og nú að leið- arlokum streyma minningarnar fram. Lilja hafði verið virk í skáta- hreyfingunni í Vestmannaeyjum á sínum yngri árum og ljóst var að hún hafði engu gleymt þegar hún tók fram gítarinn og spilaði og söng. Oft settist hún við píanóið og tók fram nóturnar við lögin hans Fúsa sem hún hafði mikið dálæti á. Við sátum saman og sungum hvert lagið á fæt- ur öðru. Það var kært á milli þeirra systra, Ástu og Lilju, og ávallt fagnaðar- fundir þegar þær hittust. Þær höfðu yndi af að stríða hvor annarri og var þá gjarnan metist um það hvort veðrið væri betra fyrir norðan eða sunnan eða hvor væri fallegri Esjan eða Vaðlaheiðin. Ég átti góða stund með Lilju frænku fyrir um það bil mánuði. Hún var þá rúmföst og augljóst að af henni var dregið. Ég vil að lokum þakka fyrir að hafa fengið að dvelja með þessu góða fólki nokkur sumur ævi minnar og allar þær góðu minn- ingar sem ég á frá þeim tíma. Hjá þeim leið mér vel. Ég bið góðan guð að varðveita Lilju, móðursystur mína, um leið og ég þakka henni samfylgdina. Við systurnar af Barónsstíg 19 og fjölskyldur okkar sendum Gunnari, Guðmundi, Jóhönnu, Ernu og fjöl- skyldum þeirra, svo og ástvinum öll- um, okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Birna Hrólfsdóttir. Lilja Guðmundsdóttir ✝ Egill KristinnEgilsson fædd- ist í Syðsta-Koti í Miðneshreppi 2. september 1910. Hann lést á heimili sínu 25. maí síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Egill Sveinsson sjómaður á Móum í Miðnes- hreppi, síðar vél- stjóri í Baldurs- haga í Sandgerði, d. í Reykjavík 24. mars 1932, og Kristín Jónsdóttir, f. í Neðri- Hrepp í Andakílshreppi í Borg- arfirði 18. júní 1882, d. 19. mars 1964. Systkini Egils voru Svein- gerður Jóna, f. 18. mars 1909, d. í Reykjavík 18. mars 1983, og Gunnlaugur Óskar, f. 8. janúar bifvélavirkjun. Hann var tvö sumur við síldveiðar á Norður- landi. Á Alþingishátíðinni sum- arið 1930 var hann vélstjóri á Þingvallaferjunni. Egill starfaði við bifvélavirkjun til ársins 1942, en það ár fékk hann gaseitrun og hætti þá bifvélavirkjun og hóf nám við vélvirkjun og rennismíði. Egill starfaði hjá Steðja í nokkur ár en hóf síðan rekstur eigin verkstæðis í samstarfi við félaga sinn. Á þessum árum vann hann víða um land við uppsetningu söludælna fyrir eldsneyti ásamt ísetningu kyndibúnaðar fyrir húsnæði. Síðar hóf hann rekstur eigin bifreiðaverkstæðis við Múlakamp í nokkur ár. Egill hóf síðar störf fyrir Málarabúðina, Vesturgötu 21, síðar Rúllugerð- ina og smíðaði málningarrúllur ásamt fleiru og starfaði þar sam- fellt til um 1990. Egill verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu í dag og hefst athöfnin klukkan 13. 1912, d. í Reykjavík 8. júlí 1978. Uppeld- issystir Egils var Að- alheiður Ármann, f. 25. júní 1927, d. 14. febrúar 1992. Egill kvæntist 20. október 1934 Vil- helmínu Guðmunds- dóttur. Þau skildu. Dætur þeirra eru Guðrún María Ei- ríka Egilsdóttir, f. 27. júlí 1934, d. 10. maí 2005, og Elín Kristín Phifer, f. 23. ágúst 1935, búsett í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Egill ólst upp í foreldrahúsum til 17 ára aldurs og byrjaði ungur að vinna á fiskreitum í sinni heimabyggð. Fluttist til Reykja- víkur 17 ára gamall og hóf nám í Merkilegur maður hefur nú kvatt þetta líf. Hann Egill afi var stór- merkilegur maður sem ég er afar stoltur yfir að hafa átt sem afa. Afi minn var barngóður og ljúfur mað- ur. Alveg eins og mamma mín sem hafði ekki langt að sækja þessa mannkosti. Allar mínar minningar um afa eru jákvæðar og ljúfar. Afi átt langt líf. Honum var gefin ótrúlega góð heilsa og langlífi. Hann naut svo sannarlega lífsins. Afi fylgdist vel með öllu og var inni í flestum málum. Fáum er gefin svona stór gjöf hvað varðar langt líf samfara frábærri heilsu og jákvæðu viðhorfi til lífsins og samferða- manna. Afi fór nánast á hverjum degi nið- ur í miðbæ eða eitthvað á flakk á eigin vegum, oftast með strætó. Hann fór á veitingastaði eða kaffi- hús, las blöð og kíkti á mannlífið. Einstakur áhugi hans á bíóferðum er merkilegur, ekki síst fyrir það að allt fram að andláti sínu fór hann reglulega í bíó þrátt fyrir að vera orðinn 96 ára gamall. Hann kvartaði helst yfir því að hljóðið væri svolítið hátt í bíóhúsunum! Afi heyrði sem sagt afar vel, sjónin var í góðu lagi, hann var beinn í baki, kvikur og grannur. Afi hafði ekki áhuga á að fara á sjúkrastofnun eða elliheimili því það var bara miklu betra að búa einn heima hjá sér! Hann lést snögglega heima hjá sér og ég er viss um að þannig vildi hann hafa það. Ekkert vesen, ekki fara á spít- ala, hafa þetta einfalt og snöggt. Afi var aldrei gamall, bara árin sögðu svo. Afi átti marga góða að. Hann var duglegur að heimsækja ættingja sína eða hringja og spjalla. Hann var skipulagður, skrifaði sín jólakort sjálfur og klikkaði aldrei á því ef einhver í annars stórri fjöl- skyldu hans átti afmæli. Þá var komið í heimsókn með kort og gjöf. Alltaf var gaman að tala við afa um hitt og þetta. Þjóðfélagsmálin, bíóin, nýjustu tækni, bíla, skip og hvað- eina. Maður kom aldrei að tómum kofunum hjá honum enda var hann vel lesinn og víðsýnn. Hann sá um sín mál sjálfur og var algjörlega sjálfbjarga og rúmlega það. Eigin- lega fannst manni að hann væri nær því að vera milli sextugs og sjötugs en tæpra hundrað ára! Ég vil sérstaklega þakka Önnu Þóru og Gumma fyrir allt sem þau gerðu fyrir afa en það var honum ómetanlegt og verður aldrei full- þakkað. Ég mun sakna afa míns en minn- ing hans verður mér kær. Afi, þú varst langflottastur. Þinn dóttursonur, Jónas Andrés Þór Jónson. Það er í byrjun sumars þegar gróðurinn er að vakna til lífsins, kaldan en sólríkan dag í lok maí sem annað líf kveður. Egill afi eftir tæpa 97 ára langa lífsgöngu. Það er langur tími, en ekki þar sem Egill átti í hlut. Þú varst eilífðar unglingur, sagð- ist ekki vera gamall eða allavega vildir það ekki og líklega hefur þú verið svona ungur í anda þess vegna. Ekki spillti fyrir að þú hafðir ein- staklega góða heilsu nánast allt þitt líf, og gast búið útaf fyrir þig allt til dauðadags og farið allra þinna ferða annaðhvort fótgangandi eða í strætó sem þér þótti nú ekki mikið mál. Hvort sem var í sund, bíó, þjóðar- bókhlöðuna eða í heimsóknir. Hann hafði þann eiginleika að vera alltaf bjartsýnn á hlutina, stál- minnugur, víðlesinn og áhugasamur um alla hluti. Það hefur eflaust ekki verið al- gengt á hans yngri árum að menn færu utan til náms, en það gerði Eg- ill, hann fór til Kaupmannahafnar og lærði þar bifvélavirkjun sem hann átti eftir að starfa við þangað til hann varð að hætta því af heilsufars- ástæðum. En það átti engu að síður eftir að nýtast honum í gegnum tíð- ina. Síðan lærði hann vélvirkjun. Hann átti eftir að vinna við það fram yfir áttrætt. Síðustu árin vann hann hjá Rúllugerðinni þar sem hann var liðtækur við að koma verkefnum í framkvæmd og fylgja þeim eftir. Og þótt vinnustundunum fækkaði, fylgdist hann með sínu ævistarfi, og heimsótti gamla staðinn langt fram- eftir aldri. Á þessu langa lífshlaupi hafði hann kynnst mörgum og marga vini og ættingja séð hverfa á braut. Fjöl- skyldan var honum mikils virði og lagði hann mikla rækt við hana. Af- komendurnir eru ornir margir og munu þeir sakna afa (eplaafa). Það verður visst tómarúm skilið eftir hjá þeim. En hans tími er liðinn meðal okkar og hefur hann verið kallaður til nýrra starfa á öðrum stað. Ég kynntist honum fyrir um 16 ár- um þegar ég kom inn í fjölskylduna. Og það er svo skrítið að segja frá því að mér hefur aldrei þótt hann gamall hvorki að umgangst hann eða tala við hann, og svo ótrúlegt sem það nú er hefur það ekkert breyst á þessum ár- um sem liðin eru. Stundum þegar ég spurði hann hvernig hann hefði það og hann sagðist vera eitthvað slappur vildi vera hressari, þá sagði ég við hann, veistu það Egill að margir helmingi yngri en þú myndu vilja hafa þá heilsu sem þú hefur, og þá sagði hann alltaf, já Hulda það er víst lík- lega rétt hjá þér! Það sem ég vil segja að lokum, er að þú varst alltaf svo reffilegur, hafðir svo sterkan og hlýjan persónuleika að geyma. Finnst mér ég vera ríkari eftir að hafa kynnst þér og þakka fyrir það Með þér er genginn einstakur og eft- irminnilegur maður, en minningin um þig lifir meðal okkar hinna. Að lokum vil ég votta fjölskyldu þinni mína dýpstu samúð. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Hulda Þorbjarnardóttir. Egill Kristinn Egilsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.