Morgunblaðið - 05.06.2007, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 05.06.2007, Blaðsíða 36
Í munni gárunganna mun hann vafalaust ganga undir nafninu Höf- uðlausn Egils… 41 » reykjavíkreykjavík Eftir Sverri Norland sverrirn@mbl.is SÍÐUSTU tónleikar starfsárs Sinfóníunnar verða fluttir hinn 29. júní í Laugardagshöll. Þá leiða saman hesta sína Sinfóníuhljómsveitin og hinir valinkunnu rokksérfræðingar í Dúndurfréttum, en þeir hafa um árabil vakið athygli og aðdáun fyrir einkar vandaðan og fagmannlegan flutning á helstu perlum rokksins. Það er því vel við hæfi að verkið, sem fyrir valinu varð að þessu sinni, sé hið rómaða þrekvirki sýrurokkaranna í Pink Flo- yd, The Wall/Veggurinn. Dolfallinn aðdáandi Haraldur Vignir Sveinbjörnsson, píanóleikari og tónsmiður, útsetur verkið. Hann kveður Vegg- inn hafa verið í uppáhaldi hjá sér síðan hann var smápolli. Það sé því gamall draumur að flytja þessa tónlist í jafnglæsilegum búningi og nú stendur til. Hann veitti Dúndurfréttum liðsinni er verkið var flutt í Borgarleikhúsinu árið 2002. „Þá kom til tals hversu gaman yrði að gera þetta svo- lítið grand og setja í sinfóníubúning,“ segir Har- aldur. Síðan þá hafa Dúndurfréttir spilað Vegg- inn nokkrum sinnum, og nú er loks komið að því að stíga skrefið til fulls. Haraldur þekkir verkið út og inn, en hann seg- ist hafa legið í plötunni frá fimm ára aldri. Eðli málsins samkvæmt gekk því ágætlega að skrifa upp nótur að tónlistinni. „Ég er ansi trúr upp- runalegu útgáfunni, enda jaðrar hún við full- komnun,“ segir hann og hlær. „Það er því frekar að ég bæti við en hreyfi við.“ Hljómsveitin Dúndurfréttir er orðin býsna sjó- uð í því að leika þessa tegund tónlistar. Að und- anförnu hefur raunar einnig borið nokkuð á því að Sinfóníuhljómsveitin bregði sér í poppgírinn, og þá ýmist tekið fyrir stóra músíkanta eða stór verk á borð við Vegginn. „Það er samspil þessara tveggja hljómsveita, Sinfóníunnar og Dúndurfrétta, sem verður út- gangspunkturinn á tónleikunum – það er að finna rétta dýnamík á milli þessara tveggja sveita,“ seg- ir Haraldur. Þegar hann er spurður nánar út í staðsetningu flutningsins telur hann að skyn- samlegt hafi verið að velja Laugardagshöll: „Stórt hús fyrir stóra tónlist!“ segir hann. Við erum heppin Innanbúðarmenn hjá Sinfóníunni segja góða stemningu fyrir flutningi af þessum toga hjá hljóðfæraleikurum. Sinfónían virðist enda orðin þaulreynd í að bregða sér í allra tónkvikinda líki. Aðspurð segir Sigrún Eðvalds, fiðluleikari, að spilarar Sinfóníunnar taki aukinni fjölbreytni fagnandi. Hún segir að fólki þyki almennt mjög gaman að takast á við verkefni af þessum toga, og að íslenskir sinfóníuflytjendur séu að þessu leyti heppnir, en úti í heimi er vitaskuld meira um sér- hæfingu hjá klassískum spilurum. Sjálf ólst hún upp hlustandi á verk á borð við The Wall, og svo er einnig um fjölmarga aðra innan Sinfóníunnar. Veggurinn verður fluttur í Laugardalshöll hinn 29. júní. Miðasala er hafin en nú fer hver að verða síðastur þar sem um helmingur miða er þegar rokinn út. Frekari upplýsingar fást í síma 545 2500. Morgunblaðið/ÞÖK Við Níuna „Ég er ansi trúr upprunalegu útgáfunni, enda jaðrar hún við fullkomnun,“ segir Haraldur Vignir Sveinbjörnsson um The Wall. Stór tónlist, stórt hús Hin víðfrægi Veggur Pink Floyd fluttur í Laugardalshöll í lok mánaðarins Í HNOTSKURN » Plata Pink Floyd, The Wall, kom útárið 1979, og þykir með merkari verk- um rokksögunnar. Hún inniheldur lög á borð við Another Brick in the Wall (Part 2), Comfortably Numb og Hey You. » Á þeim tíma sem Veggurinn kom úthafði Roger Waters, bassaleikari sveitarinnar, tögl og hagldir innan Pink Floyd. „Konsept“ plötunnar er því að langmestu leyti hugarsmíð hans. » Tónleikar Pink Floyd á verkinu urðuað sannkölluðu sjónarspili sem m.a. innihélt risastóran vegg, risaskjái, dúkk- ur og flugsvín. Á tíðum minnti flutning- urinn fremur á leikrit en hefðbundna rokktónleika. » Kvikmynd byggð á verkinu leit dags-ins ljós árið 1984. Um gæði hennar eru ákaflega skiptar skoðanir. Litadýrð Tónleikar sýruhljómsveitarinnar Pink Floyd eru jafnan mikið fyrir augað.  Þrátt fyrir mikil vonbrigði eftir 1-1 jafntefli við Liechten- stein á Laug- ardalsvelli á laugardaginn skemmti fyr- irliðinn Eiður Smári Guðjohn- sen sér vel á skemmtistaðn- um Café Oliver við Laugaveginn síðar um kvöldið. Þar var hann ásamt vinum sínum, sjónvarps- mönnunum Sverri Þór Sverrissyni og Auðuni Blöndal. Mikla athygli vakti þegar landsliðsfyrirliðinn skellti sér út á dansgólfið og tók nokkur létt spor sem þóttu hin glæsilegustu. Eiður Smári fékk gult spjald í leiknum á laugardaginn og verður því í banni í leiknum á móti Svíum sem fram fer á morgun. Eiður Smári, Sveppi og Auddi á Café Oliver Eiður Smári Guðjohnsen  Varla hefur farið framhjá nokkrum manni að bann við reyk- ingum á veitingahúsum og skemmtistöðum tók gildi á föstu- daginn. Þrátt fyrir áhyggjuraddir margra gekk helgin stórá- fallalaust fyrir sig á tveimur af vinsælustu skemmtistöðum bæj- arins, Café Oliver og Vegamótum. Engin vandræði voru á Oliver og einungis þurfti að henda einum gesti út af Vegamótum fyrir að neita að drepa í. Þó bar eitthvað á því að fólk reykti á salernum stað- arins. Barþjónar og aðrir starfs- menn taka banninu annars fagn- andi, enda allt annað og reyklaust líf. Enginn reykur!  Hljómsveitin We Made God, sem lenti í þriðja sæti í Músíktil- raunum í fyrra, varð fyrir þeirri óskemmtilegu lífsreynslu ný- verið að missa allar upptökur sem gerðar höfðu verið fyrir fyrstu plötu sveit- arinnar. Brotist var inn hjá upp- tökumanni hennar á Spáni og öllu stolið steini léttara, þar á meðal tölvubúnaði með upptökunum. Í spjalli á rokk.is kemur fram að um mörg hundruð tíma af upptökum hafi verið að ræða og að platan hafi nánast verið tilbúin, en hún átti að innihalda sjö lög. Þá kemur fram að þeir félagar ætli ekki að leggja árar í bát og þrátt fyrir fátækt ætla þeir að að byrja upp á nýtt síðar í þess- um mánuði. Öllum upptökunum stolið á Spáni We Made God

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.