Morgunblaðið - 05.06.2007, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 05.06.2007, Blaðsíða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. ALSJÁANDI AUGU Réttur einstaklingsins og per-sónufrelsi eru meðal horn-steina réttarríkisins. En stundum stangast réttur einstak- lingsins á við hagsmuni heildarinnar og þá vaknar spurningin hvað til bragðs skuli taka. Í bókinni 1984 eftir George Orwell er lýst samfélagi þar sem einstaklingurinn kemst nánast aldrei undan vökulu auga yfirvalda, ekki einu sinni á heimili sínu. Á okkar tímum eru eftirlitsmynda- vélar hversdagslegt fyrirbæri. Þær eru inni í verslunum og bönkum, utan á húsum og inni í þeim. Og enginn kippir sér upp við það. Lögreglan í Reykjavík hefur sett upp átta mynda- vélar í miðbænum og nú er stefnt að því að fjölga þeim um helming. Þetta hefur verið gert víða annars staðar. Í London er myndavél við hvert fótmál. Rekja má ferðir fólks um borgina og með hjálp myndavéla hafa komist upp glæpir, sem líklega hefðu ekki leyst með öðrum hætti. Á Íslandi hafa myndavélar einnig reynst vel við að upplýsa ofbeldismál, eins og fram kom í fréttaskýringu eftir Orra Pál Ormarsson í Morgunblaðinu á sunnu- dag. Á Bretlandi hefur mikil áhersla verið lögð á að koma upp myndavél- um og hafa bæjarfélög fengið til þess styrki. Árangurinn þykir hafa verið misjafn og í mörgum tilfellum hafa þær engin áhrif haft á tíðni glæpa. Hefur það þó frekar verið rakið til kunnáttuleysis við uppsetningu vél- anna en að þar með væri gildi þeirra afsannað. Þórður Sveinsson, lögfræðingur Persónuverndar, vísar í Morgun- blaðinu á sunnudag til reglna um raf- ræna vöktun sem kveða á um að hún verði að fara fram í yfirlýstum, skýr- um og málefnalegum tilgangi, svo sem í þágu öryggis og eignavörslu. Ekki megi ganga lengra en brýna nauðsyn beri til og þess skuli gætt að virða einkalífsrétt þeirra sem sæti vöktun. Þórður segir grundvallaratriði að lögreglan virði reglur um rökstuðn- ing vöktunar, meðalhóf og gagnsæi við notkun löggæslumyndavéla og upptökur séu aðeins notaðar þegar uppi sé grunur um að framið hafi ver- ið afbrot á hinu vaktaða svæði og talið að þær geti varpað ljósi á málið. Í máli Þórðar kemur fram að engar vísbendingar hafi borist um að lög- regla hafi notað myndavélarnar í öðr- um tilgangi en kveðið sé á um í reglum og reglugerðum, en Persónu- vernd sé tilbúin að skerast í leikinn gerist þess þörf. Þetta er lykilatriði. Flestum finnst ugglaust fráleitt að vísa til bókarinn- ar 1984 í sömu andrá og fjallað er um myndavélar, sem ætlað er að draga úr því hryllilega og ógeðfellda of- beldi, sem fram fer í höfuðborginni hverja helgi. Það er ástand sem verð- ur að linna og ágætt að ekki skuli ástæða til tortryggni, en það má ekki gleyma því að myndavélarnar, sem ætlað er að gera göturnar öruggari, sjá líka ýmislegt, sem þeim kemur ekki vitund við. Almenningur verður að geta treyst því að þá sé réttur ein- staklingsins virtur. PÚTÍN HÓTAR Pútín, forseti Rússlands, hefur íhótunum við önnur Evrópuríki þessa dagana. Hann hótar að beina eldflaugum Rússa að Evrópuríkjum ef Bandaríkjamenn haldi fast við áform sín um að koma upp vörnum gegn eldflaugum í sumum fyrrum leppríkjum Sovétríkjanna sálugu. Pútín hótar líka að koma í veg fyrir að nýtt skref verði stigið í átt til sjálf- stæðis Kosovo. Rússar eru öflugri nú en nokkru sinni frá því að Sovétríkin hrundu til grunna. Þeir hafa auðgazt mikið á háu verði á olíu og gasi. Þeir hafa borgað upp mikið af skuldum sínum. Pútín hefur aukið festu og dregið úr glundroða í rússnesku þjóðlífi, þótt aðferðir hans til þess séu umdeildar á Vesturlöndum. Hvað vakir fyrir Pútín? Er hann að hefja nýtt kalt stríð? Tæplega. Líklegast er að Rússar séu að láta finna fyrir sér. Að þeir séu að minna bæði Bandaríkin og Evrópuríkin á, að þeir séu enn öflugt veldi í Evrópu og að það sé ekki hægt að ganga fram hjá þeim. Þeir eru að eflast á ný eftir erfitt tímabil í kjölfar falls Sovétríkj- anna. Þjóðarstolt þeirra hefur verið sært á undanförnum árum, þegar aðrar þjóðir hafa talið sér fært að ganga fram hjá Rússum og virða þá að vettugi. Þeir eru að minna á, að það sé ekki lengur hægt. Sumir telja, að Rússar efni til há- vaða út af eldflaugamálum í Evrópu af því að þeir ætli að fá Bandaríkja- menn til þess að hverfa frá áformum um sjálfstæði Kosovo. Á milli Rúss- lands og Serbíu eru sterk tengsl frá gamalli tíð. Ekki má heldur gleyma því, að Bandaríkjamenn seilast nú mjög til áhrifa í Mið-Asíuríkjunum, sem einu sinni voru á áhrifasvæði Sovétríkj- anna. Líkurnar á því að upp úr sjóði á milli Rússa og Bandaríkjamanna eru litlar. Það er báðum þjóðum í hag að starfa saman. Átökin um heimsyfir- ráðin standa ekki lengur á milli þess- ara tveggja höfuðóvina fyrri tíðar. Í Asíu eru að rísa öflug efnahagsveldi, Kína, Indland og Japan, sem munu ógna heimsyfirráðum Bandaríkjanna á næstu áratugum vegna vaxandi efnahagslegs styrkleika. Jafnvel Íran getur komið þar við sögu, ef Írönum tekst að byggja upp kjarnorkuvopna- veldi án þess að Bandaríkjamenn eða Ísrael grípi til aðgerða gegn þeim. Ef Bandaríkjamenn hverfa frá Írak fyr- ir forsetakosningar á næsta ári verð- ur Íran allsráðandi í Miðausturlönd- um. Rússland hefur ekki afl til þess að seilast til heimsyfirráða á nýjan leik. En Rússar geta orðið eitt öflugasta ríkið í Evrópu. Bandaríkin eru senni- lega á fallanda fæti sem heimsveldi. Að því getur komið að Bandaríkja- menn og Rússar snúi bökum saman. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Í BRÉFI framkvæmdastjórnar Sam- taka atvinnulífsins, sem lagt var fyrir forsætis- og utanríkisráðherra á fundi aðilanna í gær, kemur fram að miklum erfiðleikum sé bundið að fá sérhæft er- lent starfsfólk, búsett utan EES, til starfa hér á landi. Telur fram- kvæmdastjórn samtakanna brýnt að greiða fyrir aðgengi þess að íslenskum vinnumarkaði, enda verði aðgengið sí- fellt nauðsynlegra til þess að tryggja eðlilega þróun á vinnumarkaðinum og samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs á næstu misserum. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs- ins, segir að samtökin hafi fundið mikið fyrir þessu vaxandi vandamáli að und- anförnu í samtölum við ýmis fyrirtæki. „Aðgengi erlendra sérfræðinga skiptir miklu máli fyrir vaxtarfyrirtæki á há- tæknisviði og líka ef við erum að fara að hasla okkur völl í útrás orkufyr- irtækja og annarra fyrirtækja í þekk- ingargreinum,“ segir Vilhjálmur. „Það er mjög lítil von um árangur í útrásinni ef henni fylgir ekki virkt flæði af sér- fræðingum fram og til baka, sér- staklega þegar menn beina sjónum sín- um að mörkuðum utan EES-svæðisins.“ Afgreiðslutími umsókna fyrir tíma- ver leng vott næg Eft mán lens vinn um, skil legu Ný við H lend það bre átt að auka s sérfræðinga greinarmunu sendum þú e Einn farvegu sem hér sæk segir Hildur málum erlen verulega að veruleiki bla um, bæði veg lenskra fyrir bundið atvinnu- og dvalarleyfi hjá Út- lendingastofnun er 90 dagar, eftir að fullnægjandi gögn hafa borist stofn- uninni. Vilhjálmur tekur sem dæmi að það taki bandarískan gestaprófessor rúmlega sex mánuði að afla sér dvalar- og atvinnuleyfis hér á landi, enda taki öflun sakarvottorðs frá bandarísku al- ríkislögreglunni (FBI) jafnlangan tíma og afgreiðsla Útlendingastofnunar. Reglum Útlendingastofnunar var þó ný- Krefjast frekari opnuna Vilhjálmur Egilsson Hildur Dungal Eftir Friðrik Ársælsson fridrik@mbl.is FRAMKVÆMDA-STJÓRN Samtaka at-vinnulífsins (SA)þrýsti á stjórnvöld í gær að taka á þeirri sjálfheldu sem SA telur stjórn peninga- mála og hagstjórnina hafa ratað í. Framkvæmdastjórnin gekk á fund forsvarsmanna ríkisstjórn- arflokkanna í gær, Geirs H. Haarde forsætisráðherra og Ingibjargar Sólrúnar Gísladótt- ur utanríkisráðherra, en að mati SA hafa aðgerðir Seðlabankans skaðað atvinnulífið án þess að skila árangri á móti, og segja talsmenn hennar að atvinnulífið geti ekki þolað þá skertu sam- keppnisstöðu sem of há verð- bólga, viðvarandi háir vextir og óhóflegar gengissveiflur hafa skapað. Samtök atvinnulífsins telja að tilraunir Seðlabankans til þess að hafa hemil á verðbólgu með vaxtahækkunum hafi sýnt að þetta tæki bankans dugi skammt í þeirri viðleitni vegna lítillar markaðshlutdeildar óverðtryggðrar krónu og vax- andi hlutfalls erlendra lána. „Niðurstaða okkar er sú að það stjórntæki sem Seðlabank- inn býr yfir, vextirnir, hefur alls ekki dugað og þessar gengis- sveiflur eru mjög skaðlegar. Þetta er bara eitthvað sem at- vinnulífið getur alls ekki búið við,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA. Lækkun lánshlutfalla Íbúðalánasjóðs brýn SA telja þörf á beitingu ann- arra hagstjórnartækja en vaxtatækisins, sem að mati samtakanna hefur í raun verið tekið úr sambandi með ofnotkun þess. Samtökin benda á að skoða þurfi mikilvægustu mark- aði hagkerfisins, hvernig þeir virki og hvort á þeim sé óeðli- legt ástand vegna tilbúinnar eft- irspurnar eða hindrana á fram- boðshliðinni. Fjármál hins opinbera hafi mikla þýðingu un lánshlutfalla Íbúðalánasjóð í fyrrasumar, í kjölfar kjara samninga í júní, hafi verið lyk ilatriði í því að hægja á ver hækkunum og ná betr jafnvægi. Telja samtökin sífel erfiðara að réttlæta það inngri ríkisins á almennan lánamarka sem felist í rekstri Íbúðalána sjóðs og ríkistryggingu lána t almennings. Inntur eftir viðbrögðum fo sætis- og utanríkisráðherra v tillögum Samtaka atvinnulífsin fyrir heildareftirspurn og þurfi þau að vera í góðu lagi. Leggja SA til að hemill verði hafður á aukningu samneyslu og til- færsluútgjalda þannig að rík- isbúskapurinn verði ekki upp- spretta umframeftirspurnar í hagkerfinu. Að mati samtakanna felst ein mikilvægasta aðgerðin við nú- verandi aðstæður í lækkun á lánshlutföllum og lánsfjárhæð- um Íbúðalánasjóðs. Máli sínu til stuðnings benda SA á að lækk- Samtök atvinn gagnrýna hag Á tröppum stjórnarráðsins Framkvæmdastjórn Samtaka atvinnul dóttir, Hannes G. Sigurðsson, Vilmundur Jósefsson, Vilhjálmur Egi Segja stjórn peningamála í sjálfheldu og aðgerðir S

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.