Morgunblaðið - 10.08.2007, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 10.08.2007, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2007 25 gera þann 11. um til í Árbæ ur hús flutt u lengi vel upp í st farið að vegum tar sögu- ssi þáttur mikilla eik- sóttu ins og gjað sem 0 og sýndi urn. n í hálfa öld Morgunblaðið/Frikki Það var fyrsta húsið sem flutt var á Árbæj- á safnið úr miðbæ Reykjavíkur. Hamskipti Gamla kaþólska kirkjan í Landakoti var byggð fyrir 110 ár- um. Hún varð að íþróttahúsi Íþróttafélags Reykjavíkur árið 1929 og gegndi því hlutverki um árabil. Hún var flutt upp í Árbæjarsafn fyrir tveimur árum og hýsir hún sýningarsal og opnar geymslur safnsins. Sýn- ingin sem þar stendur nú lýsir starfsemi ÍR í gegnum tíðina og þar má meðal annars skoða skylmingabúnað og júdóbúninga frá fyrri tíð. Gamlar kempur úr ÍR, þeir Valbjörn Þorláksson, Vilhjálmur Einarsson og Jón Þ. Ólafsson komu þar saman í gær í fyrsta skipti í áratugi. Vil- hjálmur hét á félagana að sýna fimi sína á hestinum, en hafði sitt ekki fram í þetta skiptið. Tindátar Í opnum geymslum safnsins gefur meðal annars að líta fjölda gamalla leikfanga og annarra hversdagsgripa. SKIPULÖGÐ dagskrá stendur frá ellefu til þrjú báða dagana og hefst með hátíðarmessu á laugar- dag. Það verður mikið um að vera á svæðinu þar fyrir utan. Félagar úr Skylmingafélagi Reykjavíkur sýna listir sínar, gestum gefst tækifæri til þess að spreyta sig á glímutök- um og á sunnudaginn sýna félagar úr Fornbílaklúbbnum gamlar glæsikerrur. Árbæjarsafn verður opið frá 10- 17 um helgina og aðgangur verður ókeypis. Hátíð um helgina a reynslu bætir við a sem það afólki. sem a áratug- r að rek- st mjög emmn- segir a upp- na því fa í i tilfinn- fur þörf taka vel barna er er tekið arsafni ma. nnast for- egar fjöl- gað í Ár- þar sem fá innlit í þar með a gaman svo ekki erðist .“ varð- avík og kjör íbúa ir sóknar- , bæði í stur- stræti. „Í borgarlandinu eru líka víða minjar sem ver- ið er að merkja og segja frá. Það var til dæmis fyrir nokkrum árum merkt þorpið sem var úti í Viðey í byrjun tuttugustu aldar. Nú erum við að vinna að varðveislu minja við Grímsstaðavör um sjósókn við Skerjafjörð.“ Hún segir rannsóknirnar gríðarlega mikilvægan þátt í safnastarfinu, því til þess að geta miðlað þekk- ingu þurfi fyrst að rannsaka. „Nú stendur til dæmis yfir mjög ítarleg viðgerð á Smiðshúsi, sem er eitt af elstu húsunum í Reykjavík. Hluti af þeirri vinnu er mikil rannsóknarvinna þar sem húsið er grandskoðað og í rauninni er húsið sjálft látið segja hvernig á að gera við það. Það er flett af málningarlögum og skoð- uð efni og ráðið í breytingar, þá líka með aðstoð skriflegra heimilda.“ Guðný segist horfa til þess í framtíðaruppbyggingu safnsvæðisins að það tengist betur útivistarsvæðinu í Elliðaárdalnum og verði opið öllum. „Við viljum einn- ig gjarnan efla þann þátt í starfseminni sem snýr að varðveislu gamalla húsa. Hér hafa verið haldin nám- skeið fyrir iðnaðarmenn um endurgerð og end- urbyggingu gamalla húsa, sem eru líka opin fyrir fólk sem vill gera við húsin sín og halda þeim vel við.“ þekkja uppruna sinn“ Morgunblaðið/Frikki Borgarminjavörður Guðný Gerður Gunnarsdóttir hefur gegnt starfi borgarminjavarðar frá árinu 2000 NETFYRIRTÆKIÐ Google hefur tekið upp þá nýbreytni að gera fólki, sem vitnað er í eða fjallað um í frétt- um, kleift að tjá sig frekar á fréttavef fyrirtækisins. Hefur þessi nýjung vakið ýmsar spurningar meðal fjöl- miðlafólks, að því er fram kemur í grein á vef bandaríska dagblaðsins The Wall Street Journal. Google News birtir tengla og út- drætti úr greinum sem birst hafa í rúmlega 4.500 fréttamiðlum á ensku. Fyrr í vikunni hóf fyrirtækið til- raunaverkefni sem felst í því að það falast eftir umsögnum eða athuga- semdum einstaklinga og hópa sem fréttamiðlarnir vitna í. Fyrirtækið leitast einnig við að sannreyna að þeir sem tjá sig með þessum hætti villi ekki á sér heimildir og birtir um- sagnir þeirra við hliðina á tenglum á upprunalegu fréttina. Fyrirtækið kveðst gera þetta til að gefa fólki kost á að kynna sér mál- in út frá fleiri sjónarhornum en þeim sem fram koma í fréttamiðlunum. Þessi þjónusta hefur vakið mikla at- hygli meðal stjórnenda fjölmiðla sem hafa stundum átt í útistöðum við netfyrirtækið, meðal annars um réttinn til að birta útdrætti úr grein- um fjölmiðlanna án greiðslu. Að sögn The Wall Street Journal hafa fjölmiðlasérfræðingar meðal annars velt því fyrir sér hvort Go- ogle ætli að koma fram sem nokkurs konar umboðsmaður almennings gagnvart fjölmiðlunum, birta kvart- anir fólks sem er ósátt við frétta- flutning þeirra. Þeir efast um að það sé viðeigandi að Google gegni því hlutverki. Aðrir fréttavefir gefa hverjum sem er kost á að tjá sig um fréttirnar og birta tengla á blogg með slíkum umsögnum eða athuga- semdum. Eitt af álitaefnunum er hverjum Google leyfir að tjá sig með þessum hætti um tiltekna frétt og hvernig fyrirtækið sannreynir að þeir villi ekki á sér heimildir. „Ég tel margt mæla með því að gera þetta, en það er líka margt sem mælir með því að fara varlega,“ hafði The Wall Street Journal eftir Dan Gilmor, forstöðu- manni Center for Citizen Media, stofnunar sem beitir sér fyrir gras- rótarfjölmiðlun og tengist Kaliforn- íu-háskóla, Harvard og Berkeley-há- skóla. „Hvað gerist ef einhver falsar þær og flækir vandamál sem kemur fram í fréttinni?“ Google segist leyfa fólki, sem vitn- að er í eða tengist hópum, samtökum eða fyrirtækjum sem fjallað er um, að láta í ljós álit sitt, svo og frétta- mönnum og ritstjórum sem bera ábyrgð á fréttunum. Starfsmenn Google eigi að sannreyna að þeir, sem tjá sig með þessum hætti, villi ekki á sér heimildir og ýmsum að- ferðum verði beitt í því skyni eftir því sem við eigi hverju sinni. Meðal annars verði haft samband við fyrir- tæki eða samtök og reynt að sann- reyna netföng og símanúmer. Starfsmenn Google falast einnig eftir athugasemdum frá þeim, sem tengjast fréttunum með þessum hætti, en vonast til þess að athuga- semdirnar komi án þess að fyrirtæk- ið biðji um þær sérstaklega þegar fram líða stundir. Segja má að þetta sé fráhvarf frá þeim aðferðum sem Google News hefur beitt til þessa, því fyrirtækið hefur reitt sig á tölvur frekar en starfsfólk til að velja þær fréttir sem mest er gert úr á frétta- vefnum. Talsmaður fréttastofunnar Asso- ciated Press sagði hana bíða eftir þessari nýbreytni „með áhuga“. Jim Brady, ritstjóri WashingtonPost.- com, sagði að þetta væri „flott hug- mynd“ en hún hefði minni áhrif á fréttamiðla sem gerðu fólki nú þegar kleift að tjá sig um fréttirnar. Nokkrir fjölmiðlasérfræðingar segja að með þessari nýbreytni Google fái einstaklingar kjörið tæki- færi til að svara greinum þar sem vitnað er í þá eða fjallað um þá, án þess að senda ritstjórum bréf eða höfða mál gegn fjölmiðlunum. Þetta grafi einnig undan „hliðvarðarhlut- verki“ hefðbundnu fjölmiðlanna við miðlun upplýsinga, líkt og bloggin og aðrir netmiðlar hafa þegar gert, að því er fram kemur í grein The Wall Street Journal. Vic Strasburger, prófessor í barnalækningum við Háskóla Nýju- Mexíkó, kvaðst hafa fengið beiðni frá Google um að tjá sig frekar um grein Associated Press þar sem vitnað var í hann um rannsókn á skyndibita- fæðu. Strasburger sendi Google athuga- semd þar sem hann útlistaði nánar það sem haft var eftir honum í frétt AP. „Ég var í 15-20 mínútna viðtali og af því sem ég sagði voru aðeins tvær setningar birtar,“ hafði The Wall Street Journal eftir Strasbur- ger. „Þannig að þessi viðbót Google gaf mér tækifæri til víkka þessar tvær setningar út og bæta við nokkru af því sem ég sagði í 15-20 mínútna viðtali.“ AP Nýbreytni Merki Google í höfuðstöðvum fyrirtækisins. Það leyfir nú fólki, sem tengist fréttum fjölmiðla, að gera athugasemd við fréttirnar. Google birtir athugasemdir um fréttirnar Fólk, sem fjölmiðlar vitna í, fær að út- lista sjónarmið sín frekar á vef Google »Nokkrir fjölmiðla- sérfræðingar segja að með þessari ný- breytni Google fái ein- staklingar kjörið tæki- færi til að svara greinum þar sem vitnað er í þá eða fjallað um þá, án þess að senda ritstjórum bréf eða höfða mál gegn fjöl- miðlunum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.