Morgunblaðið - 10.08.2007, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 10.08.2007, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ VEÐUR Uppskiptin á bókaforlaginu Eddueru nokkur tíðindi í menningar- lífi okkar. Í raun er gamli Máls og menningarhópurinn að ganga út úr því samstarfi, sem varð til á milli þeirra og Vöku-Helgafells fyrir all- mörgum árum. Þá var stefnt hátt en forsendur reyndust ekki vera fyrir þeim metnaði, sem að baki bjó.     Í ljósi þess, aðbókaútgáfa hefur aldrei ver- ið starfsemi sem til lengdar hefur skilað miklum hagnaði er það kjarkmikil ákvörðun hjá for- svarsmönnum Máls og menn- ingar að leggja á ný út á þessi mið einir síns liðs.     Fróðlegt verður að sjá, hvernig út-gáfurétturinn á hinum gömlu meisturum kemur til með að skiptast á milli Máls og menningar og annarra.     Bjartur er byrjaður að gefa útGunnar Gunnarsson og for- ráðamenn útgáfunnar hafa gefið til kynna, að eitthvert framhald verði á því. Hvar verður útgáfurétturinn á Tómasi, Davíð og fleiri merkum rithöfundum 20. aldarinnar?     Hitt er svo annað mál, að þaðkunna að vera erfiðir tímar framundan hjá rithöfundum að fá bækur gefnar út.     Á blómatíma Máls og menningarog Vöku-Helgafells virtist allt vera hægt en þegar betur var að gáð kom í ljós, að ekki var allt sem skyldi.     Árna Einarssonar bíður erfittverk, en líklegt má telja, að bæði hann og aðrir forleggjarar gangi hægt um gleðinnar dyr að fenginni reynslu. STAKSTEINAR Árni Einarsson Uppskiptin á Eddu SIGMUND                      ! " #$    %&'  (  )                      *(!  + ,- .  & / 0    + -                         12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (  ! !        "#      " :  *$;< $$                       !  !  " #    $% &    '  (   ) $%       *! $$ ; *! %  &$  $ $  '    (  =2 =! =2 =! =2 % '& !  $) !# *$+, !-  ; >         6 2  ., & $$, $ ! ! $!,  !/ !# 0$ !$!! $ $  ($, $ 1$2  $$ $$  1 ;  2& $!, & $ $- 3  $$,  $ $ (0$ !$   /  $&$$.,   !# 1 2 # $ '!!# $  1 /       ., & $ $- 3  $0$3   4$* 1$%"#$ $ ! ! $!, !/ , $ !!# 0$ !$ $, $-    !/$, $ !!# 1$5'$ -" $ $ ( $ # " $ % !# 1$2  $$ $$  0$ !   $$ $$  $ $!,   (!# !1 63 $$77 ! $ $8  ,$) !# 3'45 ?4 ?*=5@ AB *C./B=5@ AB ,5D0C ).B 1 0 0 1 1   1  1 1 1 1  1   1 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0                 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Halla Rut | 9. ágúst 2007 Hvernig gat þetta gerst árið 2007 Fjölskylduvænn bær sem bannar ákveðnum hópum fólks að sækja þá heim. Ég skora á Sigrúnu að biðja af- sökunar á þessari ákvörðum um verslun- armannahelgina. Hvernig getur heilt bæjarfélag útskúfað heilum hópi fólks á þeim rökum að einhverjir af þeim gætu verið til vandræða? Einn bloggvinur minn sagði réttilega að um leið og við leyfðum eina fordóma gagnvart einum hópi réttlæti það for- dóma gagnvart öðrum. Meira: hallarut.blog.is Eysteinn Sigurðsson | 9. ágúst 2007 Gafst upp! Ég er búinn að gefast upp á þessu okri á íþróttum í sjónvarpi. Ég fór og skilaði myndlyklinum. Það er al- veg vonlaust að ráða fram úr þessu áskrift- arkerfi hjá Sýn og Stöð 2, þannig að ég ákvað að fara í bindindi. Ég ætla að láta mér nægja að lesa um þetta í blöð- um, og það sem fram kemur í frétt- um á gömlu gufunni. Þú gerist áskrifandi og eftir 2 mánuði hækkar verðið á þessum „áskriftarflokki“. Þeir borguðu svo mikið fyrir þetta, að það er öruggt að áskriftin á eftir að stórhækka á næstu mánuðum. Meira: eysteinn56.blog.is Ívar Páll Jónsson | 9. ágúst 2007 Uppáhaldsleikarinn Tom Hanks er einn af þessum leik- urum sem maður ólst upp með; föru- nautur í ólgusjó æskunnar. Hann var einn vinsælasti leikarinn á níunda ára- tugnum og það var engin tilviljun. Hann miðlaði til okkar þessu sammannlega og höfð- aði til þess í okkur. Núna kunna einhverjir að segja, eða hugsa með sér: „Tom Hanks var bara leikari. Hann fór með texta annarra fyrir framan myndavél. Hvað var svona merkilegt við það?“ En ég segi: Tom Hanks var meira en bara leikari. Meira: nosejob.blog.is Benedikt Halldórsson | 9. ágúst 2007 Feluleikur Sunnudag einn á miðju sumri í fal- legri sveit fórum við krakkarnir í feluleik. Það var sól og hlaðan var hálffull af heyi. Sá sem fannst fyrstur fékk það hlutverk leita að hinum og grúfði andlit sitt við gamalt hesthús sem var áfast litla bónda- bænum og kallaði „byrjað að leita“ þegar búið var að telja upp í 50. Leikreglurnar voru skýrar, við máttum fela okkur hvar sem var, í næsta skurði, en þeir voru margir, inni í hænsnakofa sem var við hlaðið gegnt bænum, en ekki inni í fjósinu sem var áfast bænum eins og hesthúsið og hlaðan. Það mátti jafnvel fela sig við vatnslitla fossinn, sem steyptist nið- ur af fjallinu sem sást svo vel úr stofuglugganum eða bakvið stóra steina við fjallsrótina sem lágu þar eins og hráviði. En eftir því sem feluleikurinn þró- aðist fækkaði góðum felustöðum. Engum datt lengur í huga að fela sig í hænsnakofanum. Skurðirnir voru svo sem ágætir en gallinn var sá að maður varð votur og skítugur en bóndakonan sem þvoði allan þvott í köldum bæjarlæknum var ekki sátt við svoleiðis háttalag. Ég faldi mig bakvið galta, en þá er kallað að það væri komið kaffi. Við hlýddum skipuninni enda var hús- móðurinni illa við allt slór en hún var nokkuð ströng og ekkert okkar vildi láta skamma sig. Þegar inn var kom- ið sá hún að Steini var ekki í hópn- um, hún sendi þá dóttur sína til að kalla á hann. En Steini ansaði ekki. Þá fór stranga bóndakonan sjálf út og kallaði reiðilegri röddu að hann ætti að koma eins og skot. En ekkert gerðist. Hún kom inn og sagði okkur öllum að klára mjólk- ina og kökuna í snarhasti og koma út að leita að Steina. Við kölluðum og leituðum, gengið var eftir öllum skurðum en allt kom fyrir ekki. Steini fannst ekki, hann var gjör- samlega horfinn. Steini fannst ekki og tíminn leið. Klukkan sex fékk ég það hlutverk að ná í kýrnar á meðan allir aðrir leit- uðu að Steina. Bóndinn á næsta bæ var líka farinn að taka þátt í leitinni, hringt var á alla bæi í sveitinni og spurst fyrir um Steina en allt kom fyrir ekki. Meira: bene.blog.is BLOG.IS PARKET & GÓLF • ÁRMÚLA 23 SÍMI: 568 1888 • FAX: 568 1866 WWW.PARKETGOLF.IS PARKET@PARKETGOLF.IS ÁRATUGA ÞEKKING, ÞJÓNUSTA OG RÁÐGJÖF ClickBoard BYLTINGARKENNDAR VEGG- OG LOFTPLÖTUR Parket & Gólf býður einstaka lausn fyrir vegg- og loftplötur frá þýska framleiðandanum Parador HDF plöturnar frá Parador hafa nær engin sýnileg samskeyti og eru einstaklega auðveldar í uppsetningu. KOSTIRNIR ERU AUGLJÓSIR Hagkvæm og ódýr lausn • einföld uppsetning - 50% fljótlegra höggþolið • auðvelt að þrífa • lítil eða engin sparslvinna losnar við allt ryk • 50 kg. burðarþol á skrúfu stílhreint og nútímalegt útlit • 10 ára ábyrgð Komdu við í verslun okkar og kynntu þér þessa einstöku lausn - við tökum vel á móti þér ka ld al jó s 20 06

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.