Morgunblaðið - 10.08.2007, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2007 21
Sterki nautakjötsrétturinn –
Kong Po – var alls ekki sterkur og
raunar alls ekki bragðmikill, wok-
aðir kjötbitar með grænmeti og
mildri, daufri sósu. Hvorki fugl né
fiskur.
Pekingöndin – dýrasti rétturinn
sem pantaður var – olli sömuleiðis
verulegum vonbrigðum enda nið-
ursneidd bringan þurr, ofelduð og
óspennandi án þess þó að húðin
næði þeim stökku gæðum sem eru
svo mikilvæg í þessum rétti. Hoisin-
sósa var borin fram með í lítilli skál
en ekkert bólaði á pönnukökunum
og öðru hefðbundnu meðlæti með
þessum rétti. Fyrir 3.900 krónur átti
maður nú von á því að fá nokkrar
pönnukökur með.
Þjónustufólkið var allt af vilja
gert þótt það væri greinilega enn í
strangri þjálfun og erfitt reyndist að
eiga samskipti þrátt fyrir að ensku
væri beitt. Einn aðalrétturinn skil-
aði sér til dæmis aldrei á borðið og
ekki tókst að koma þeim skilaboðum
klakklaust áleiðis og verður því að
bíða betri tíma.
Kínamúrinn er um margt efnileg-
ur staður. Hann er flottur, vel stað-
settur, stemmningin ágæt og starfs-
fólkið vinalegt. Metnaðurinn
greinilegur í öllu ytra byrði. Það
verður hins vegar að gera alvarlega
bragarbót þegar kemur að matar-
gerðinni.
Þetta er synd því kínverska eld-
húsið er hið margslungnasta og fág-
aðasta sem til er samhliða því
franska.
Kínahúsið í Lækjargötunni er enn
langlangbesta kínverska veitinga-
hús landsins.
Hversdagskjúklingur
með púrtvínssósu
4 kjúklingabringur
2 msk. olía
60 g smjör
1 hvítlauksgeiri, fínt saxaður
½ L kjúklingasoð
80 mL púrtvín
2 tsk. hveiti
2 tsk. worcestershire-sósa
60 ml rjómi
Skerið fitu og sinar af kjúklinga-
bringunum. Hitið olíu á þykkbotna-
pönnu og steikið bringurnar á með-
alhita í 4 mínútur á hvorri hlið eða
þar til þær eru gegnumsteiktar.
Takið kjötið af og dekkið með ál-
pappír og haldið þeim heitum. Þerr-
ið alla fitu af pönnunni. Setjið smjör
og hvítlauk á pönnuna og hrærið á
meðalhita í tvær mínútur. Hellið
kjúklingasoðinu og púrtvíninu sam-
an við og látið suðuna koma upp.
Lækkið hitann og látið krauma í 10
mínútur. Hrærið saman hveiti, wor-
cestershire-sósu og rjóma og bætið
smá af heitum vökvanum af pönn-
unni saman við. Hellið smá saman út
í soðið á pönnunni og hrærið vel um
leið. Látið suðuna koma upp.
Raðið á disk, soðnum pastaskelj-
um, fersku salati, litlum tómötum og
kjúklingabringu og hellið sósunni yf-
ir bringuna.
Ávextir í desert
1 epli
1 pera
1 banani
250 g jarðaber
250 g vínber/rauð
100 g rjómasúkkulaði
2 ½ dL þeyttur rjómi
hálfur marengsbotn
Flysjið ávextina og skerið í litla
bita, skerið jarðarber og vínber í
tvennt og súkkulaðið í bita. Blandið
öllu saman við þeyttan rjómann.
Skömmu áður en rétturinn er borinn
fram er marengsbotninn mulinn
(ekki of smátt) og blandað saman
við.
Borið fram með staupi af Grand
Marnier.
Litríkur forréttur Rækjur með danskri sósu sóma sér vel á veisluborðinu.
Lostæti Hversdagskjúklingur með púrtvínssósu. Sætt og gott Ávextir með rjóma og súkkulaði.
Við höfum líka ferðast
töluvert í gegnum tíðina
og á þeim ferðum pikkar
maður upp ýmsa rétti.
3
Ná›u flér í Lottómi›a á næsta
sölusta› e›a á lotto.is
lotto.is
firefaldur pottur!
Skógarhlíð 18 · 105 Reykjavík
Sími: 591 9000 · www.terranova.is
Akureyri sími: 461 1099
Hafnarfjörður sími: 510 9500
Súpersól til
Salou
í ágúst frá kr. 34.995
Terra Nova býður ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Salou og
Pineda í ágúst. Fallegustu bæir Costa Dorada strandarinnar, sunnan
Barcelona. Þar er Port Aventura, stærsti og glæsilegasti skemmti-
garður Spánar. Stórkostlegar strendur, fjölbreytt aðstaða og litríkt
næturlíf. Þú bókar og tryggir þér sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu
að vita hvar þú gistir.
Kr. 34.995
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð í
viku. Súpersól tilboð 17., 24. og 31. ágúst. Aukavika
kr. 14.000 á mann.
Kr. 44.990
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna í
herbergi/stúdíó/íbúð í viku. Súpersól tilboð 17., 24.
og 31. ágúst. Aukavika kr. 14.000 á mann.
Síð
us
tu
sæ
tin
!
KONUR sem annaðhvort tapa mik-
illi þyngd, eða bæta miklu á sig, á
milli fyrstu og annarrar meðgöngu
gætu verið að stofna ófæddum börn-
um sínum í hættu með þyngd-
arsveiflunum að því er fram kemur á
vefmiðli BBC og er þar vísað til
nýrrar könnunar sem birt var fyrir
stuttu í British Medical Journal.
Áhættan er margþætt ef marka
má könnunina sem segir að konur
sem sveiflast mikið í þyngd á milli
meðgangna séu í hættu á að þróa
með sér sykursýki 2, háan blóð-
þrýsting og að líkur aukist á fæðingu
andvana barna. Ástæða þessa er tal-
in sú að meðganga sé eitt mest krefj-
andi tímabilið í lífsskeiði kvenna með
tilliti til næringar og að allar þyngd-
arsveiflur hafi því mikil áhrif á með-
gönguna.
Mótsagnakennd skilaboð
Erfitt getur þó verið að halda
jafnri þyngd í dag þar sem konur fá
mismunandi skilaboð, allt eftir því
hvort þær þykja of þéttar eða of
grannar. Þannig er konum sem eru í
kjörþyngd í upphafi meðgöngu í
kjörþyngd sagt að þær megi ekki
bæta á sig kílóum eftir meðgönguna,
en konum sem eru of þungar er sagt
að þær þurfi að létta sig þegar í báð-
um tilfellum er mikilvægast að halda
sömu þyngd fyrir og eftir með-
göngu.
Eins kemur fram að þar sem um
helmingur allra barnsfæðinga sé
óskipulagður hafi þyngdarsveifl-
urnar mikið að segja þar sem ekki er
verið að hugsa um þyngd út frá
heilsufarslegu sjónarmiði eða kjör-
þyngd þegar meðganga er ekki
skipulögð. Konur þurfi þannig að
vera sér meðvitandi um þau vanda-
mál sem geta fylgt þyngdarsveiflum.
Aukin þyngd á milli meðgangna er
samkvæmt fréttinni því líklegri til að
leiða til alvarlegra inngripa í með-
göngu eða fæðingu en þyngdartap
er hinsvegar líklegra til að gefa af
sér fyrirbura.
Áhætta fylgir þyngdar-
sveiflum milli meðgangna
Morgunblaðið/Kristinn
Þyngdarsveiflur Ný könnun bendir
til þess að þyngdarsveiflur á milli
meðgangna fyrsta og annars barns
geti verið áhættusamar.
Fréttir í tölvupósti