Morgunblaðið - 10.08.2007, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 10.08.2007, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR GENGIN verður gömul þjóðleið sem nefnist Prestastígur nk. sunnu- dag, 12. ágúst. Þjóðleiðin liggur á milli Húsatófta við Grindavík og Kalmanstjarnar í Höfnum. Leiðin er vel vörðuð og ber þess merki að þar hefur verið fjölfarið um aldir. Prestastígur var aðalleið vermanna af Suðurlandi, sem sóttu sjó frá Höfnum og af Rosmhvalanesi. Grindvíkingar lögðu einnig leið sína um Prestastíg til að sækja verslun til Básenda. Leiðin er 16 km löng, ekki mjög erfið en löng ganga. Nauðsynlegt að vera vel búinn og hafa tvöfalt nesti. Rúta sækir ferðalanga frá Keflavíkurkirkju kl. 10.30, Ytri- Njarðvíkurkirkju kl. 10.35 og Njarðvíkurkirkju (Innri) kl. 10.45. Gönguferðin tekur 5-6 klst og lýkur með guðsþjónustu í Kirkjuvogs- kirkju, Höfnum. Leiðsögumaður er Rannveig L. Garðarsdóttir. Prestar eru Baldur Rafn Sigurðsson og Skúli S. Ólafsson. Prestastígur genginn HÓPUR erlendra vísindamanna tekur þátt í alþjóðlegri ráðstefnu um arfgenga heilablæðingu og skylda sjúkdóma sem hófst í gær í Öskju. Níu erlendum gestafyrirles- urum bar boðið að flytja yfirlits- erindi. Arfgeng heilablæðing er sér- íslenskur sjúkdómur sem stafar af uppsöfnun á stökkbreyttu cystatin C-prótíni í heilaslagæðum arfbera í nokkrum ættum á Íslandi. Skv. upp- lýsingum aðstandenda ráðstefn- unnar er mikill áhugi erlendis á ís- lenska sjúkdóminum sökum þess hve margt er skylt með honum og Alzheimer-sjúkdóminum þar sem flestir sjúklingar fá æðaskemmdir. Ráðstefna um heilablæðingu MAÐUR slasaðist í fiskvinnslunni Klofningi á Suðureyri í gær er hann klemmdi fingur í pressuvél. Lögreglu- og sjúkraflutn- ingamenn voru kallaðir á staðinn og maðurinn fluttur til aðhlynn- ingar á Fjórðungssjúkrahúsið á Ísa- firði. Klemmdi fingur TAÍLEND- INGAR efna til hátíðar í Ráðhúsi Reykjavíkur laugardaginn 11. ágúst í tilefni átt- ræðisafmælis Taílands- konungs, hans hátignar Bhumi- bol Adulayadej. Af þessu tilefni eru haldnar hátíðir um heim allan sem helgaðar eru lífi og starfi kon- ungs. Dagskrá hátíðarinnar sem hefst kl. 13 verður fjölbreytt; tískusýning frá 14-14.30, söngur frá 14.30-15.30 og danssýning milli 16 og 17. Hátíð- inni lýkur um kl. 17.30. Að hátíðinni standa Búddistafélag Íslands, Taí- lensk-íslenska félagið og aðalræð- isskrifstofa Taílands á Íslandi. Allir eru velkomnir. Konungur Taílands hefur verið við völd í 61 ár eða lengur en nokk- ur annað þjóðhöfðingi. Hann nýtur mikillar virðingar um allan heim. Afmælisveisla í Ráðhúsinu Bhumibol Adulayadej Eftir Eyþór Árnason í Hollandi SIGURSTEINN Sumarliðason á Kolbeini frá Þóroddsstöðum vann í gærkvöldi fyrsta gullið sem Íslendingar fá á heimsmeistaramótinu í Hol- landi. Sigursteinn renndi sér af miklu öryggi báða sprettina og fór þann seinni á mjög góðum tíma. Þessi góði tími skilaði honum sigrinum þar sem hann og Sigurður Marínusson voru jafnir með 8,25 í einkunn eftir báðar umferðirnar en þá gild- ir hvor hafi verið með betri tíma. Þriðji var Magnús Skúlason á Hraunari frá Efri-Rauðalæk en Magnús keppir fyrir Svíþjóð. Gaman að sjá þrjá Íslendinga í efstu þremur sætunum. Enn meiri Kraftur Keppt var einnig í fimmgangi í gær og aftur voru Íslendingar efstir inn í úrslit. Þórarinn Ey- mundsson og Kraftur frá Bringu eru í miklum ham þessa dagana en þeir eru efstir. Áður höfðu þeir komið sér fyrir í öðru sæti inn í úrslit í tölti. Þórarinn og Kraftur eru langefstir með 7,57 sem verður að teljast mjög gott miðað við aðstæður. Það rigndi stanslaust í allan gærdag og var braut- in því mjög þung og erfið fyrir hestana. Skeið- sprettirnir sem hann tók voru örugglega með þeim betri sem hann hefur tekið. Töltið og brokk- ið voru sem fyrr mjög glæsileg. Næst á eftir Þórarni kemur svo Frauke Schen- zel sem keppir fyrir Þýskaland með 7,13. Þriðja sætinu náði Anna Valdimarsdóttir á Fönix vom Klosterbach með 7,03. Rúna Einarsdóttir Zings- heim á Frey vom Nordsternhof er í fimmta sæti þannig að það verða þrír knapar sem keppa fyrir Íslands hönd í úrslitum á sunnudag. Gullhryssur Yfirlitsýning hryssna fór fram um morguninn og náðu þar tvö íslensk hross að vera efst í sínum flokki. Í flokki 5 vetra hryssna varð Finna frá Feti efst en þurfti að deila efsta sætinu með Hríslu frá Skåneylandi sem var fyrir Svíþjóð. Hrísla og Finna fengu 8,20 í aðaleinkunn. Ævar Örn Guð- jónsson sýndi Finnu og Johan Häggberg sýndi Hríslu. Broka vom Wiesenhof sem kemur frá Þýska- land fékk hæstu einkunn í flokki 6 vetra hryssna. Broka fékk 8,32 í aðaleinkunn en hún var sýnd af Jolly Schrenk. Í flokki 7 vetra hryssna var hin íslenska Urður frá Gunnarsholti efst. Urður fékk 8,54 í aðal- einkunn. Sýnandi var Þórður Þorgeirsson. Rigning og forarsvað Sem fyrr segir þá rigndi gríðarlega mikið í gær og var grasið smám saman að breytast í svað. Stígvél, regnhlífar og regnföt voru rifin út úr sölutjöldunum. Ein verslunin var með 1.000 stíg- vél til sölu og voru þau alveg að klárast þegar síð- ast fréttist. Sem betur fer þá lærðu mótshaldarar af mistökum Svíanna sem héldu síðast heims- meistaramót og settu niður járnplötur þar sem mesti ágangurinn er. Lagðir voru niður þrír kíló- metrar af þessum plötum til þess að gestir þyrftu ekki að vaða forina eins mikið. Spáð er betra veðri í dag sem á að haldast yfir helgina. Efstu 10 í gæðingaskeiði: 1. Sigursteinn Sumarliðason [IS] – Kolbeinn frá Þórodds- stöðum 8,25 2. Sigurður Marínusson [NL] – Eilimi vom Lindenhof 8,25 3. Guðmundur Einarsson [SE] – Sproti frá Sjávarborg 8,21 4. Höskuldur Aðalsteinsson [AT] – Ketill frá Glæsibæ II 7,79 5. Christian Indermaur [CH] – Brynjar frá Árgerði 7,67 6. Emelie Romland [YR] [SE] – Mjölnir frá Dalbæ 7,54 7. Anna Skúlason [WC] [SE] – Lúta frá Dalbæ 7,25 8. Styrmir Árnason [WC] [IS] – Hrani vom Schloßberg 7,13 9. Jaap Groven [NL] – Gimsteinn frá Skáney 6,92 10. Nadine Hahn [YR] [DE] – Ophelia von Stirpe 6,88 Efstu 10 eftir forkeppni í fimmgangi: 1. Þórarinn Eymundsson [IS] – Kraftur frá Bringu 7,57 2. Frauke Schenzel [DE] – Næpa vom Kronshof 7,13 3. Anna Valdimarsdóttir [IS] – Fönix vom Klosterbach 7,03 4. Piet Hoyos [AT] – Kvistur frá Ólafsvöllum 7,00 5. Rúna Einarsdóttir Zingsheim [IS] – Freyr vom Nor- dsternhof 6,93 6. Camilla Mood Havig [NO] – Herjann fra Lian 6,77 7. Jaap Groven [NL] – Gimsteinn frá Skáney 6,73 8. Nicola Bergman-Kankaala [FI] – Bruni frá Súluholti 6,53 9. Rasmus Møller Jensen [DK] – Himna frá Austvaðsholti 1 6,50 9. Christina Lund [NO] – Hrollur frá Árdal 6,50 9. Johan Häggberg [SE] – Oddur frá Mörtö 6,50 Fyrsta gullið í höfn Sigur Sigursteinn Sumarliðason á Kolbeinn frá Þóroddstöðum fékk fyrsta gullið, sem Íslendingar fá á heimsmeistaramótinu í Hollandi. DEILT hefur verið um þá ákvörðun Akureyrarbæjar sem tekin var rétt fyrir verslunarmannahelgina, að meina 18-23 ára ungmennum að tjalda í bænum. Sigrún Björk Jak- obsdóttir, bæjarstjóri Akureyrar, sendi í gær frá sér eftirfarandi yf- irlýsingu um málið: „Akureyri státar sig af því að vera fjölskylduvænn bær. Bæjaryf- irvöld hafa á síðustu árum lagt sig fram um að bjóða fjölskyldufólki góðar aðstæður og leitast við að skapa bæjarfélaginu ímynd öflugs mennta- og menningarsamfélags. Undanfarnar verslunarmannahelg- ar hefur fallið skuggi á þessa við- leitni vegna þess að fjölskyldu- skemmtanir sem skipulagðar hafa verið í bænum hafa farið úr bönd- unum. Sú þróun hefur valdið bæj- arbúum og bæjaryfirvöldum mikl- um áhyggjum og ljóst var að bregðast varð við með markvissum hætti. Eftir miklar umræður um hvaða leiðir væru færar til að tryggja að skipulögð fjölskylduhátíð breyttist ekki í hamslausa útihátíð greip bæj- arstjóri til þess ráðs að takmarka aðgang unglinga að tjaldsvæðum bæjarins um þessa verslunarmanna- helgi. Ákvörðunin var tekin af illri nauðsyn en því miður var þetta eina færa leiðin til að koma böndum á ástandið sem ríkt hefur í bænum um verslunarmannahelgar undanfarin ár. Þessi ákvörðun var tekin og ég stend við hana. Þessar ráðstafanir báru greini- legan árangur og hefur fjöldi bæj- arbúa haft samband við bæjaryfir- völd og lýst ánægju sinni með hvernig til tókst. Allt annar bragur var á tjaldsvæðum bæjarins og sam- kvæmt upplýsingum lögreglu var mun rólegra í bænum en undanfarn- ar verslunarmannahelgar. Í fyrsta sinn í langan tíma var um sannkall- aða fjölskylduhátíð að ræða. Skipuleggjendur hátíðarinnar hafa haldið því fram að þessar að- gerðir séu ástæðan fyrir því að helmingi færri sóttu bæinn heim um þessa helgi en í fyrra, eða um 6.000 manns. Í því sambandi ber að geta þess að veðurspá fyrir landið þessa helgi var verst fyrir Norðurland og ekki er vafi á að slæmt veður hafði mikil áhrif á aðsóknina að hátíðinni. Þetta kom einnig skýrt fram í dræmri aðsókn að Síldarævintýrinu á Siglufirði. Í frétti frá Speli segir ennfremur: „Umferðin um Hval- fjarðargöng var um 4% minni um nýliðna verslunarmannahelgi en um sömu helgi í fyrra. Núna fóru 37.400 bílar um göngin frá fimmtudegi til mánudags en 39.000 á sama tíma í fyrra, sem er fækkun um 1.600 bíla.“ Það er því ljóst að mun fleiri þættir en aldurstakmark á tjald- svæðum ollu minni aðsókn að hátíð- inni í ár en í fyrra. Mikið hefur verið rætt um þessar ráðstafanir meðal bæjarbúa og ann- ars staðar undanfarna daga. Nú þurfa Akureyringar hins vegar að slíðra sverðin og nota næsta árið til að ákveða hvernig standa beri að fjölskylduhátíðum í bænum til fram- tíðar.“ Fleiri þættir en aldurstakmark ollu minni aðsókn á Eina með öllu Morgunblaðið/Þorgeir Á Akureyri Samtökin Vinir Akureyrar hvöttu bæjarstjórnina til að segja af sér en þau telja tekjumissi kaupmanna hlaupa á tugum milljóna króna. Morgunblaðið/Eyþór Efstir Þórarinn Eymundsson og Kraftur frá Bringu eru í miklum ham um þessar mundir og eru langefstir í fimmganginum. Morgunblaðið/Eyþór

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.