Morgunblaðið - 10.08.2007, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 10.08.2007, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Á UNDANFÖRNUM misserum hefur erlendum ríkisborgurum far- ið fjölgandi á félagssvæði stétt- arfélaganna í Þingeyjarsýslum sem er í takt við þróunina sem verið hef- ur víðast hvar á Ís- landi, ekki síst eftir opnunina 1. maí 2006. Þá samþykkti Alþingi að heimila frjálsa för launafólks frá nýjum aðildarríkjum Evrópu- sambandsins. Þrátt fyrir að full ástæða sé til að gagnrýna stjórn- völd harðlega fyrir það hvernig staðið var að opnuninni verður það ekki gert í þessari grein. Þess í stað ætla ég að fjalla aðeins um það hvernig Verka- lýðsfélag Húsavíkur og nágrennis hefur tekið á þessari þróun og gera jafnframt grein fyrir sýn félagsins sem miðar að því að taka vel á móti innflytjendum og hjálpa þeim að aðlagast samfélaginu. Í því sam- bandi hefur félagið sett af stað sér- stakt verkefni um aðlögun innflytj- enda með stuðningi frá sveitarfélaginu Norðurþingi. Þá er ekki síður mikilvægt að við Íslend- ingar lærum inn á þeirra menning- arheim. Landnemaskóli Félagið hefur í samstarfi við Þekkingarsetur Þingeyinga staðið fyrir íslenskunámskeiðum og Land- nemaskóla og fór kennslan fram síðasta vetur. Kennslunni verður fram haldið í haust. Tilgangur Landnemaskólans er að auðvelda fólki af erlendum uppruna aðlögun að íslenskum vinnumarkaði og sam- félagi. Í náminu sem er 120 kennslustundir er lögð sérstök áhersla á íslenskt talmál og nyt- sama samfélagsfræði. Mennta- málaráðuneytið hefur samþykkt að meta megi námið til styttingar náms í framhaldsskóla um 10 ein- ingar. Ráðuneytið, fræðslusjóðir og Fræðslumiðstöð at- vinnulífsins hafa einn- ig komið að þessum verkefnum og fjár- magnað þau að mestu. Almenn ánægja er meðal nýbúanna með framtakið og hefur mikið traust myndast milli þeirra og félags- ins. Innflytjendurnir hafa jafnframt verið mjög duglegir við að leita eftir aðstoð og fyrirgreiðslu hjá félag- inu. Um er að ræða alls konar mál sem þau eiga erfitt með að takast á við í nýju landi enda Ísland mjög framandi í þeirra augum. Þeim finnst gott að leita til skrifstofu félagsins á Húsa- vík sem þau líta á sem sitt sendiráð. Tímamótasamningur við Norðurþing Eins og fram hefur komið hefur verkalýðsfélagið unnið markvist að málefnum innflytjenda og sinnt ýmsum verkefnum sem almennt eru ekki í verkahring stéttarfélaga. Sveitarfélagið Norðurþing hefur fylgst með þróun mála og sam- þykkt að koma að verkefninu með verkalýðsfélaginu sem hlotið hefur heitið: „Samvinna og ábyrgð í mál- efnum innflytjenda.“ Sam- komulagið á sér ekki hliðstæður á Íslandi og markar því ákveðin tíma- mót. Samkomulagið tekur mið af stefnu ríkisstjórnarinnar um aðlög- un innflytjenda og styrkir sveitar- félagið verkefnið um 1.000.000 kr. Skrifstofa stéttarfélaganna á Húsa- vík veitir verkefninu forystu og ber ábyrgð á framkvæmd þess í góðu samstarfi við Fjölskylduþjónustu Þingeyinga. Lögð er sérstök áhersla á samvinnu við innflytj- endur á svæðinu um verkefnið og framgang þess. Verkefnið sem staðið hefur yfir frá síðustu ára- mótum er tilraunaverkefni og skal því lokið fyrir árslok 2007. Mark- miðið er að efla innflytjendur í Norðurþingi til þátttöku í atvinnu- lífinu og samfélaginu almennt í samræmi við stefnu ríkisstjórn- arinnar um aðlögun innflytjenda frá því í janúar 2007. Á verkefn- istímanum verður jafnframt unnin þarfagreining á málefnum innflytj- enda í Norðurþingi sem hugmyndin er að nota sem grundvöll fyrir stefnumótandi ákvarðanir af hálfu sveitarfélagsins um þjónustu við nýbúa í framtíðinni. Hluti af fram- angreindri þarfagreiningu er ná- kvæm skráning á allri þjónustu við innflytjendur og greining mála sem upp koma. Ljóst er að verkefnið hefur þegar skilað góðum árangri og auðveldað innflytjendum að að- lagast íslensku umhverfi og þátt- töku í samfélaginu. Samvinna og ábyrgð í málefnum innflytjenda Þingeyingar vinna markvisst að málefnum innflytjenda, seg- ir Aðalsteinn Á. Baldursson » Félagið hefur í sam-starfi við Þekking- arsetur Þingeyinga staðið fyrir íslensku- námskeiðum og Land- nemaskóla og fór kennslan fram sl. vetur. Aðalsteinn Á. Baldursson Höfundur er form. Verkalýðsfélags Húsavíkur og nágrennis. BÆÐI framsóknarmenn og sjálf- stæðismenn hafa oft reynt að eigna sér þau félagslegu framfaramál al- mennings sem Alþýðuflokkurinn barðist fyrir frá stofnun, 1916, og löngum síðan í félagi við aðra vinstriflokka. Oftast hefur maður látið slíkt sem vind um eyrun þjóta, en það eru takmörk fyrir öllu. Austur á Selfossi situr nú nýbakaður framsóknarþingmaður sem skýrir stefnu Framsóknarflokksins meðal annars þannig: „Þetta er hin alda- gamla hugsjón þess sem trúir með öðru á mátt sinn og megin, land sitt og fólk. Trúin á moldina, firðina, dalina fremur en regluverk úr útlendum eða himpigimpislega frjálshygguóra.“ (Mbl. 8. ág., bls. 25) Bjarni telur, eins og margir aðrir framsóknarmenn, að pólitík Fram- sóknarflokksins sé pólitík allrar pólitíkur, rammíslensk að auki, ekk- ert útlenskt moð. Ég man eftir að heyra Halldór Ásgrímsson fullyrða að samvinnustefnan væri alíslensk stjórnmálastefna, engin útlensk hugmyndafræði eins og sú sem aðr- ir flokkar hefðu! En hvernig stend- ur á því að víða í nágrannalöndum okkar blómstrar þessi sama stefna nú? Kooperativet heitir það á skandinavísku og er upp runnið í Bretlandi ef ég man rétt. Hér hrundi samvinnuhreyfingin hins vegar eins og spilaborg um svipað leyti og Sovétríkin, varð þó ekki gjaldþrota, og sniðugir náungar gambla nú með peninga íslenskra bænda í útlenskum frjálshyggjufyr- irtækjum. Nei, Bjarni minn Harðarson; ís- lensk alþýða er ekkert öðruvísi en önnur alþýða og vinstri flokkarnir á Íslandi eru framhald uppreisn- ar alþýðunnar sem hófst á meginlandi Evrópu og í Englandi á 19. öld og baráttu hennar fyrir bættum kjörum. Upp úr þeim jarðavegi spratt verka- lýðshreyfingin. Ætlar þú að afgreiða hana sem eitthvert „reglu- verk úr útlendum“? Sannleikurinn um vinstristefnuna er ein- hvern veginn svona: Alþýðuflokk- urinn studdi minnihlutastjórn Framsóknarflokksins seint á þriðja áratug síðustu aldar og gekk til stjórnarsamstarfs við flokkinn á fjórða áratugnum. Á þessum tíma var komið á mikilvægustu fé- lagslegum framfaramálum alþýðu manna á Íslandi, vissulega í skjóli Framsóknarflokksins, en fyrir til- stuðlan Alþýðuflokksins. Stærsta framfaramálið voru svo- nefndar Alþýðutryggingar, sem út- rýmdu loksins því niðurlægjandi fá- tækraframfæri sem bæði framsóknar- og íhaldsmenn töldu lengi að væri hið eðlilega ástand. Samstjórn Sjálfstæðisflokksins, Al- þýðuflokksins og Sósíalistaflokksins var mynduð 1944 með því skilyrði alþýðuflokksmanna að hún beitti sér fyrir endurbótum á trygg- ingalöggjöfinni, sem Ólafur Thors var nógu framsýnn til að sam- þykkja. Núgildandi almannatrygg- ingalöggjöf var samþykkt á Alþingi 1946. Það verða væntanlega einhverjir sagnfræðingar til þess að andmæla þessari furðulegu grein Bjarna og ég gat ekki orða bundist vegna þess að ég hef undanfarin ár rannsakað einn anga þessa máls og gefið út um hann bókarkorn. En ég held að framsóknarmenn ættu að hafa hægt um sig, sleikja sárin og reyna að bræða það með sér hvernig þeir geta unnið landi sínu og fólki, moldinni, fjörðunum og dölunum mest gagn í framtíð- inni. Ég get aðeins bent þeim á að það gera þeir ekki með því að standa fyrir stórfelldustu nátt- úruspjöllum allra tíma. Hins vegar er ég sammála Bjarna um frjálshyggjuhimpigimpin og ég stend með honum í baráttunni fyrir endurreisn Þingeyinga. Af íslenskum og útlenskum stjórnmálastefnum Þorgrímur Gestsson er lítt sam- mála framsóknarstefnu Bjarna Harðarsonar » Framsóknarmennættu að hafa hægt um sig, sleikja sárin og reyna að bræða það með sér hvernig þeir geta unnið landi sínu og fólki, moldinni, fjörðunum og dölunum mest gagn … Þorgrímur Gestsson Höfundur er blaðamaður og rithöfundur FORMAÐUR viðskipta- og skattanefndar Alþingis, Pétur Blön- dal, varpaði þeirri ótrúlegu og ótrú- verðugu tillögu fram að hyggileg leið væri að leggja fram tvær fjárhags- áætlanir og ákveða svo út frá nið- urstöðum atkvæða- greiðslu álagningarprósentu útsvars í sveitarfé- laginu. Annars vegar varfærna áætlun og hins vegar áætlun sem hefði meiri útgjöld í för með sér. Ég sé fyr- ir mér sveitarstjórn- armenn kynna kjós- endum þessar tillögur og reka áróður fyrir þeim. Ég sé líka fyrir mér sveitarfélög sem nýlega hafa verið sam- einuð þar sem e.t.v. eru stórir byggða- kjarnar með gömlum dreifbýlishreppum. Hvað með fjárlög Alþingis? Samkvæmt þessari hugmynda- fræði hlýtur formað- urinn að vilja brjóta þau niður á kjör- dæmavísu og leggja í hendur kjósenda sér- stök fjárlög fyrir Suð- urkjördæmi eða önnur kjördæmi, annars veg- ar fjárlög þar sem gætt er sérstaklega að velferð íbú- anna, uppbyggingu samgöngu- mannvirkja, skóla, sjúkrahúsa o.s.frv. og hins vegar varfærin fjár- lög þar sem kappkostað væri að eyða sem allra minnstu og skila sem mest- um rekstrarafgangi og miða síðan skattheimtuprósentu tekjuskatts í samræmi við niðurstöður atkvæða- greiðslunnar. Það gefur auga leið að þetta er náttúrlega algerlega út í hött og illframkvæmanlegt. Sjálfur hef ég tekið þátt í að leggja fram átta fjárlagafrumvörp og átta fjárhags- áætlanir sveitarfélaga. Þau verkefni eru hluti af skyldum þingmanna og sveitarstjórnarmanna meðan þeir hafa umboð til þess og eru hluti af hinu svokallaða fulltrúalýðræði. Ég tel að þessi umræða sé fyrst og fremst til þess að drepa á dreif um- ræðunni um að sveitarfélög fái hlut- deild í hinum svokallaða fjármagnstekjuskatti en sá tekjustofn skilar ríkinu liðlega 16 millj- örðum, þar af um 6 milljörðum héðan af Suðurlandi. Nú er svo komið að æ fleiri þegn- ar þessa þjóðfélags greiða einungis fjár- magnstekjuskatt. Þetta leiðir til þess að fjöl- margir íbúar sveitarfé- laga greiða ekki útsvar til sveitarfélagsins sem þeir búa í og njóta þjón- ustu frá og vildu gjarn- an að sveitarfélagið nyti góðs af þessari skatt- heimtu. Á sama hátt hafa einkahlutafélögin haft mikil áhrif á skatt- tekjur sveitarfélaga. Hinn skeleggi formaður viðskipta- og skatta- nefndar, sem er sann- gjarn maður að eðl- isfari, ætti að falla frá þessum óraunhæfu og furðulegu hugmyndum um fjárhagsætlanir sveitarfélaga – ætti heldur að leggjast á árar með sveit- arstjórnarmönnum og þingmönnum og deila af sanngirni fjármagns- tekjuskatti til sveitarfélaganna þannig að þau geti þjónað þegnum sínum af stolti og myndarskap. Myndarleg og vel rekin sveitarfélög eru stolt byggðarlaganna en til þess að svo megi vera verða tekjustofnar þeirra að vera öruggir og traustir. Á hvaða vegferð er formaður viðskipta- og skattanefndar Ísólfur Gylfi Pálmason furðar sig á ótrúverðugum tillögum Péturs Blöndal Ísólfur Gylfi Pálmason » Atkvæða-greiðsla þegnanna um fjárhagsáætl- anir eða fjárlög er út í hött. Tryggja þarf sveitarfélögum hlutdeild í fjár- magnstekju- skatti. Höfundur er sveitarstjóri. Bréf til blaðsins Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is MEÐ einföldum búnaði má minnka eldsneytisþörf farartækja, t.d. bif- reiða, fyrsta hugmyndin var að nota afgasmyndun rafgeymisins sem er vetni og nýta það sem orkugjafa í stað þess að henda því út í loftið. Það var gerð tilraun með þetta en menn vildu prófa án þess að breyta rafgeyminum og notuð var eins lítra flaska sem geymir sem eingöngu var notaður í framleiðslu á vetni með raf- kerfi bílsins. Boruð voru 3 5 mm göt í flöskuhálsinn með jöfnu millibili, í 2 göt voru settir blýpólar sem tengdir voru inn á rafgeyminn, 3. gatið er önd- un, síðan var slanga sett í tappann og hann settur á og slangan tengd við loftsíuna. Þannig má segja að vélin bjó til sitt eigið eldsneyti. Það helsta sem gert var að kveikj- unni var seinkað um 5–7% til að sam- stilla blossatíma eldsneytis og vetnis. Og besta útkoman var að nota litla dælu, t.d. rúðupissdælu, til að blása þessu inn, þá dettur manni í hug, aha: lítil forþjappa! Þar sem loftsogið eykst með seinkun kveikjunnar, og blása inn líka auka lofti, að vísu vetnisblönduðu. Með vetnisblönduðu loftinntaki jókst afl mótorsins og við aðstæður þar sem þurfti 70% orku mótors, þurfti bara 40% með þessari blöndu, vélarhitinn var lægri og að sama skapi minnkaði náttúrulega eldsneyt- isþörfin. Svona ætti að virka sem viðbót með öllu eldsneyti Hér er einföld aðferð til að fram- leiða vetni: 1 stk. 9 volta rafhlaða 1 stk. vatnsglas með vatni 1 stk. blý úr blýanti og brjóta það í tvennt 50 cm bjölluvír og klippa í tvennt Binda vírinn við bæði blýin og setja blýið í vatnsglasið og hafa gott bil á milli. Tengja vírendana við póla 9 volta rafhlöðunnar. Og sjá, bólurnar sem myndast við blýið sem tengt er við plúshluta raf- hlöðunnar eru vetni og við hitt blýið myndast súrefni. Ath.: ekki anda að sér vetnisguf- unni. DAVÍÐ DUNGAL, rafiðnfræðingur. Breyttu vélinni í bílnum þínum í tvinnvél og fáðu ókeypis bílstæði Frá Davíð Dungal

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.