Morgunblaðið - 10.08.2007, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2007 43
Stærsta
kvikmyndahús
landsins
Kauptu bíómiða í Háskólabíó á Kauptu bíómiða í Háskólabíó á
The Transformers kl. 6 - 9 B.i. 10 ára
The Simpsons m/ensku tali kl. 6 - 8 - 10
The Simpsons m/ísl. tali kl. 6
Death Proof kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára
Miðasala á
Nýjasta meistaraverk
Quentin Tarantino
eeee
- LA Weekly
eeee
- T.S.K – Blaðið
eee
- S.V. – MBL
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 4 og 6 m/íslensku tali
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 m/ensku tali
Sýnd kl. 8 og 10:20
Frá leikstjóra
Sin City
„Gerir þig æstan fyrir
kvikmyndum á nýjan leik.“
- Peter Travers, Rolling Stone
eee
- V.J.V., TOPP5.IS
eeee
- A.M.G. - SÉÐ OG HEYRT
eeee
- Ó.H.T. – RÁS 2
eeee
- H.J., MBL
eee
- R.V.E., FBL
Sýnd með
íslensku og
ensku tali
eeee
- A.M. G., SÉÐ OG HEYRT
eee
- V.J.V., TOPP5.IS
eee
- R.V.E., FBL
eeee
- Ó.H.T., RÁS 2
eeee
- H.J., MBL
Sýnd með íslensku og ensku tali
www.haskolabio.is Sími - 530 1919
STÆRSTA MYND SUMARSINS
ÞEIRRA STRÍÐ. OKKAR HEIMUR
FRÁ MICHAEL BAY OG STEVEN SPIELBERG
BRUCE WILLIS ROSE MCGOWAN FERGIE
-bara lúxus
Sími 553 2075
Sýnd kl. 4, 7 og 10-POWERSÝNING
ÞEIRRA STRÍÐ. OKKAR HEIMUR
FRÁ MICHAEL BAY OG STEVEN SPIELBERG
STÆRSTA MYND SUMARSINS
10:00
42
.0
00
G
ES
TI
R
Á
10
DÖ
G
UM
42
.000
G
ESTIR
Á
10
DÖ
G
UM
Sýnd í
V.I.J. – Blaðið
V.I.J. – Blaðið
Þó að Forn-Grikkir hafi vegsamað ást-
arsambönd karla og drengja og að gríska
skáldkonan Saffó hafi ort konum ástarljóð á
eyjunni Lesbos hefur samkynhneigð gegnum
nær alla mannkynssöguna verið litin hornauga
og lítið um hana rætt.
Árið 1935, tveimur árum eftir að Hitler
komst til valda í Þýskalandi, var sett þar í
landslög grein sem kvað á um að hefði fólk
minnsta grun um samkynhneigð karlmanna
væri því skylt að tilkynna slíkt og að viðkom-
andi yrði tafarlaust sviptur borgaralegum rétt-
indum sínum. Lögin voru í gildi allt til ársins
1969.
Hörkunni gagnvart samkynhneigðum var
fylgt eftir á tímum McCarthyismans í Banda-
ríkjunum sem og í Ráðstjórnarríkjum Stalíns.
Jafnréttisbarátta samkynhneigðra komst
fyrst í fjölmiðla árið 1969 í Bandaríkjunum
þegar Stonewall-uppþotin áttu sér stað á sam-
nefndum bar fyrir samkynhneigða í New York.
Ekki var til orð yfir samkynhneigð á ís-
lensku fyrr en nýyrðið kynvilla birtist í Skírni
árið 1922 í grein Stefáns Jónssonar þar sem
fram komu skoðanir lærðra manna á því sem
síðar átti eftir að kallast samkynhneigð.
Í Íslenskri orðabók handa skólum og al-
menningi frá árinu 1978 er ekki að finna orðið
samkynhneigð. Orðið kynvilla er þó þar að
finna með útskýringunni ,,tilhneiging e-s til að
hafa kynmök við persónu af sama kyni og hann
er sjálfur“.
Árið 1924 var maður í fyrsta og eina sinn
dæmdur fyrir kynhneigð sína hér á landi þegar
Guðmundur Sigurjónsson Hofdal var dæmdur
í til 8 mánaða betrunarhúsvinnu fyrir holdlegt
samræði við einstaklinga af sama kyni. Féll
dómurinn samkvæmt 178. gr. hegningarlag-
anna frá 1869 en þau lög giltu hér í rúm sjötíu
ár.
Þann 12. febrúar árið 1940 voru ákvæðin
felld úr gildi. Ísland var annað Norðurland-
anna á eftir Dönum að afnema refsingar við
mökum samkynhneigðra án tillits til aldurs
þeirra eða samþykkis. Írland var síðasta ríki
Vestur-Evrópu að afnema slík refsiákvæði, ár-
ið 1993.
Eftir 1940 var samkynhneigðra hvergi getið
í íslenskri löggjafarumræðu í 45 ár eða þar til
árið 1985 þegar þingsályktunartillaga um af-
nám misréttis gagnvart samkynhneigðum var
borin fram á Alþingi.
Hörður Torfason var fyrsti Íslendingurinn
sem opinberlega kom út úr skápnum. Í viðtali í
tímaritinu Samúel árið 1975 lýsti hann opin-
berlega yfir samkynhneigð sinni en hann var
þar meðal annars spurður hvort möguleiki
væri á að hann tæki saman við lesbíu.
Samtökin ́78 voru stofnuð 2. maí 1978 með
undirheitinu Félag homosexual fólks á Íslandi
sem síðar var breytt í Félag lesbía og homma á
Íslandi.
Í byrjun níunda áratugarins lentu Samtökin
7́8 í deilum við Ríkisútvarpið þegar það síðar-
nefnda ákvað að ekki væri hægt að lesa upp til-
kynningu á vegum Samtakanna því þau inni-
héldu orðin lesbía og hommi. Það var ekki fyrr
en árið 1986, þegar leyfi til reksturs útvarps á
Íslandi var gefið frjálst, að Ríkisútvarpið
breytti afstöðu sinni.
Hinsegin dagar voru fyrst haldnir árið 1999
þegar blásið var til lítillar hátíðar á Ingólfs-
torgi til að minnast þess að 30 ár voru liðin frá
Stonewall-uppreisninni.
Ágrip af sögu samkynhneigðra
Morgunblaðið/Kristinn
Hörður Torfason Í viðtali í tímaritinu Samúel árið 1975 var Hörður meðal annars spurður
hvort möguleiki væri á að hann tæki saman við lesbíu!?