Morgunblaðið - 10.08.2007, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.08.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 215. TBL. 95. ÁRG. FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is SÆL OG SÁTT KOM ÚT ÚR SKÁPNUM FYRIR ÞREMUR ÁRUM OG SEGIR ÞAÐ LÍTIÐ MÁL AÐ VERA LESBÍA >> 42 ÞAR SEM HJARTAÐ RÆÐUR FÖR LISTAHÁTÍÐ Í SÚÐAVÍK >> 18 FRÉTTASKÝRING Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is KJARASAMNINGAR stéttarfélaga með samtals um 100.000 félagsmenn renna út um og eftir áramótin og mun undirbúnings- vinna við gerð nýrra samninga hefjast með haustinu. Samningar stærstu verkalýðs- félaganna renna út um áramótin en smærri samningar og samningar við einstök fyr- irtæki renna út á fyrstu mánuðum næsta árs. Beggja vegna samningaborðsins segjast menn búast við því að viðræður verði mál- efnalegar og niðurstaða muni nást sæmi- lega sársaukalaust. Á heildina litið er til- finningin sú að almenn velmegun á vinnumarkaði sé nokkuð mikil og lítill áhugi hjá launþegum á vinnudeilum. Athygli vakti þegar Morgunblaðið sagði frá því í gær að félagsmenn í VR leggi jafn- vel meira upp úr lengra orlofi og sveigj- anlegri vinnutíma en launahækkunum í komandi viðræðum. Talsmenn launþega taka undir að fólk velti fleiru fyrir sér en laununum, þótt ekki setji allir fleiri frídaga á oddinn. Ýmis önnur réttindamál komi til álita t.d aukin veikindaréttindi og að minnka bil milli launataxta og greiddra launa. Þá sé uppi umræða um hvernig upp- ræta megi kynbundinn launamun. Efnahagsástand skiptir máli Hjá Samtökum atvinnulífsins segja menn að umræðan um lengra orlof hafi í raun ekki komið þeim á óvart. Breytingar hafi orðið á samfélaginu á undanförnum árum og ára- tugum og Íslendingar vilji nú gjarnan taka sér frí um vetur. Aftur á móti sé erfitt að meta hvað þetta viðhorf sé algengt eða hvað það ristir djúpt. SA þyki frí orðin vel löng, einkum í ljósi manneklu á vinnumarkaði. Þá segja menn hjá SA að ekki sé enn ljóst hvað kjaraþættir sem ekki snerta peninga muni vega þungt þegar viðræður hefjast. Und- irbúningsvinna mun hefjast innan einstakra stéttarfélaga og að henni lokinni er lands- samböndum falið samningsumboð. Nokkuð ljós mynd af helstu kröfum og málefnum ætti að vera komin þegar ársfundur ASÍ verður haldinn dagana 18.-19. október. Efni þeirra og framgangur viðræðnanna almennt mun væntanlega ráðast af ástandi atvinnu- og efnahagsmála á þeim tíma. Við- mælendur nefndu sem dæmi að enn sé ekki ljóst hve víðtæk áhrif samdráttur þorsk- veiðiheimilda mun hafa og óljóst hvert gengi krónunnar verður. Morgunblaðið/Ásdís Kaldur Það er ekki fyrir hvern sem er að vinna úti við að vetrarlagi. Samningar að renna út Semja þarf fyrir 100.000 launþega næsta vetur 26 79 / IG 13 Stanga sett tilbúin í veiðiferðina Þú færð IG-veiðivörur í næstu sportvöruverslun RAUÐAR tölur gáfu til kynna fall á öllum helstu hlutabréfavísitölum heims í gær þegar fjárfestar flýðu áhættusamar fjárfestingar á við hluta- bréf, af ótta við alþjóðlegt hrun á lána- mörkuðum. Evrópskar vísitölur tóku dýfu þegar Evrópski Seðlabankinn til- kynnti að hann myndi veita nær 95 milljörðum evra inn á evrópska banka- markaðinn til að draga úr þeim óró- leika sem bandarísku húsnæðislánin hafa valdið og koma í veg fyrir lausafjárskort. Tilkynningin fylgdi í kjöl- far tilkynningar franska bankans BNP Paribas um að hann hefði fryst innstæður í þremur sjóðum sem höfðu fjárfest í áhættusömum húsnæð- islánum í Bandaríkjunum. Íslenska úrvalsvísitalan lækkaði um 1,6% og gengi krónunnar fór niður um 2% en lækkun hér heima er frekar rakin til þess að markaðurinn sé að leiðrétta sig en erlends óróa. | 12 Rautt Brugðist við tölum Enn rauðir markaðir Reuters TILKYNNING um að lítil, tveggja sæta Cessna-152-flugvél með tveimur mönnum innan- borðs hefði hrapað í hrauninu suður af álverinu í Straumsvík barst til Fjarskiptamiðstöðvar lög- reglunnar kl. 19.09 í gærkvöldi. Lögreglubíll frá Hafnarfirði var strax sendur á vettvang og var kölluð til þyrla, sem flutti menn- ina á slysa- og bráðadeild Landspítala – háskóla- sjúkrahúss en erfiðlega gekk að komast að vél- inni þar sem hún lenti í Kapellu- eða Selhrauni um 6 km frá veginum. Að sögn vakthafandi lækn- is voru mennirnir afar brattir miðað við óhappið en þegar Morgunblaðið fór í prentun var ekki gert ráð fyrir að þeir yrðu lagðir inn heldur út- skrifaðir eftir frekari rannsóknir. Ekki var talið að mennirnir þyrftu á áfallahjálp að halda. Þeir vildu ekki ræða við fjölmiðla. Rannsókn á tildrögum slyssins hófst strax í gærkvöldi og mun standa yfir næstu daga.. Þykja hafa sloppið vel „Þetta lítur frekar illa út,“ sagði Þorkell Ágústsson, rannsóknarstjóri Rannsóknarnefnd- ar flugslysa, sem staddur var á vettvangi seint í gærkvöldi ásamt lögreglumönnumÞorkell segir ekki vitað hvað vélin féll úr mikilli hæð en hann sagði ótrúlegt hvað mennirnir hefðu sloppið vel miðað við hve illa flugvélin, sem lá á bakinu, væri farin, en mestu skemmdirnar væru á skrokknum. Spurður hvernig stæði á því sagði hann mögu- legt að mennirnir hefðu náð að rétta vélina af áð- ur en hún féll til jarðar en hann telur hana þó hafa komið tiltölulega bratt inn til nauðlendingar. Rannsókn á tildrögum slyssins hófst strax í gær- kvöldi og mun standa yfir næstu daga. Flugvél með tvo innanborðs brotlenti í Kapelluhrauni  Þyrla flutti mennina á slysadeild  Líðan þeirra furðugóð miðað við aðstæður, segir læknir  Rannsókn slyssins hófst strax í gærkvöldi                        Ljósmynd/Gísli Jökull Gíslason Brotlenti Vélin hrapaði til jarðar í Kapellu- eða Selhrauni, um 6 km frá veginum. Tveir voru í vélinni og voru þeir fluttir með þyrlu á slysadeild. Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur ylfa@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.