Morgunblaðið - 10.08.2007, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 10.08.2007, Blaðsíða 29
móti var vinátta hennar fölskvalaus og sýndi hún okkur Ragnýju og börnunum okkar ávallt mikla hlýju og væntumþykju. Hún var kröfu- hörð og fylgin sér, en alltaf var góð- ur hugur að baki. Hún skilaði sínu æviverki af mikilli prýði og getur ættbogi hennar verið stoltur af slíkri kjarnakonu. Guð blessi minn- ingu hennar. Jóhannes Kári Kristinsson. Það fyrsta sem ég man eftir ömmu Ragný var þegar hún kom í heimsókn á Húsavík. Við vorum ný- flutt í flotta einbýlishúsið sem pabbi hafði byggt. Amma frá Reykjavík var að koma í heimsókn og allt átti að vera svo fínt. Ég man að ég starði á hana, þessa fínu konu, sem mér fannst vera eins og drottningin af Saba. Ég lét fara lítið fyrir mér og það lá við að ég hneigði mig þegar hún labbaði inn í húsið, mér fannst hún vera svo rosalega flott kona. Það næsta sem er mér minni- stætt, er þegar ég fékk að fara til Reykjavíkur í heimsókn til ömmu. Mér fannst við amma ekkert lítið flottar, þegar að við stigum upp í strætó, ég í nýju fötunum sem ég fékk fyrir ferðalagið og amma mín svona rosalega fín og flott. Þetta var merkisdagur í lífi mínu, líka það að fara í strætó! sem var búið að vera langþráður draumur. Svoleiðis far- artæki voru ekki til á Húsavík. Síð- an líður tíminn og við fjölskyldan flytjum suður til Reykjavíkur og þá hófust samskipti okkar ömmu meir. Er mér mjög minnistætt öll sunnu- dagskaffiboðin. Þar komu pabbi, bræður hans og fjölskyldur saman og áttu góðar stundir. Það kemur einnig upp í hugann minn þegar amma fór að huga að framhaldsskóla fyrir nöfnu sína. Hún hvatti mig að skrifa niður það sem ég gæti hugsað mér að læra. Ég vissi ekkert hvað ég ætti að velja og langaði bara að hvíla mig á skóla. Sem betur fer lét hún mig ekki í friði og ákvað að hárgreiðslunámið yrði fyrir valinu. Amma var ákveðin kona, ég lét til leiðast og fór í námið, nánast eingöngu fyrir hana. Amma sá um að sækja um skólann (stelpan skyldi fara í framhaldsskóla) og sá um að koma mér að á hárgreiðslu- stofu, á ég henni það að þakka. Nú var komið að mér að bera ábyrgðina á hárgreiðslunni á þessari glæsilegu konu. Ekki mátti gleyma að taka frá hvíta lokkinn og bera í hann sér- stakan lagningarvökva með bláum blæ. Amma var ekki bara flott og fín, hún var gullfalleg, ég gat oft starað á myndir af henni ungri. Mik- ið reyndi ég að sjá einhvern svip með mér og henni, mig langaði svo að líkjast henni. Amma var einnig dugleg, sterk og ákveðin kona. Það er skrítið að hugsa til þess að nú sé amma Ragný farin þó svo að við fengum ákveðinn undirbúning. En það hlýjar mér að hugsa til þess að hún játaði kristna trú sína hvar sem er og var stolt af því, hún sótti kirkju og bað bænir sínar á kvöldin. Elsku pabbi og föðurbræður, ég votta ykkur samúð mína. Ragnheiður Guðjohnsen. Elsku amma Ragný, litrík, sterk, lífseig, gestrisin, dugleg og hrein- skilin og ekki af því skafið, flott kona! Okkur eru afar minnisstæð öll sunnudagskaffiboðin á Ljósvalla- götunni, „på dansk måde“ með al- vöru heitu súkkulaði og meðfylgj- andi kræsingum. Eins frænkuboðin sem að þú tókst upp á fyrir okkur sonadætur þínar og tókst sjálf þátt í. Megum við stelpurnar svo sannarlega þakka þér það, sem við stálpuðu stelpurn- ar höfum svo haldið nokkuð við án þín, okkar kæra, þegar árin liðu. Þar var glókollurinn Arnór stakur en var þá fluttur til útlanda og fann sig örugglega ekki útundan. Mikið varstu orðin þreytt og sátt og tilbúin að kveðja þennan heim, en þetta eru mikil tímamót hjá okkur og verður sárt að finna fyrir auðu sætinu á meðal okkar. Elsku amma okkar, hvíl í friði! Arnór, Sigríður Matthildur og Þóra Kristín. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2007 29 ✝ Hilmar NjállÞórarinsson fæddist á Akranesi 12. september 1923. Hann lést á heimili sínu 1. ágúst síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Þórarinn Þórarinsson frá Skálatanga, f. 2.10. 1892, d. 8.12. 1927 og Valgerður Helgadóttir frá Uppkoti, f. 5.5. 1896, d. 6.9. 1954. Hilmar átti tvö systkini. Alsystir hans var Sigríð- ur Ásta, f. 3.4. 1916, d. 1958. Hálf- bróðir hans í móðurætt er Janus Bragi Sigurbjörnsson, f. 15.12. 1931. Hilmar kvæntist 4.12. 1948 Kristbjörgu Þórðardóttur, f. 12.8. Synir Þórðar og Hjördísar eru: c) Hjörleifur, f. 26.9. 1984 og d) Hilmar Njáll, f. 19.7. 1986; 2) Val- gerður, f. 15.5. 1956, gift Elvari Hólm Ríkharðssyni, f. 14.1. 1954. Synir Elvars og Valgerðar eru: a) Hilmar Hólm, f. 17.7. 1972, sam- býliskona Dagný Harðardóttir, f. 7.7. 1974. Dóttir Dagnýjar er Thelma Rán Óttarsdóttir, f. 12.4. 1996, b) Bjarki Þór, f. 3.5. 1981, sambýliskona hans er Linda María Þorsteinsdóttir, f. 22.10. 1979. Sonur þeirra er Ríkarður Flóki, f. 3.4. 2007. Hilmar hafði mikið yndi af tón- list og var handlaginn með af- brigðum. Eftir að hann hætti að vinna lagði hann stund á útskurð og eftir hann liggja margir fal- legir útskurðarmunir. Hann var í Félagi eldri borgara á Akranesi og gengdi þar um tíma nefndar- störfum. Á sínum yngri árum stundaði hann sjómennsku og vann sem verkamaður, síðast í Trésmiðjunni Akri á Akranesi. Útför Hilmars verður gerð frá Akraneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. 1926, d. 8.1. 2006. Börn þeirra eru: 1) Þórður Hafsteinn, f. 18.5. 1951. Fyrri eig- inkona hans er Guð- laug Guðmunds- dóttir, f. 22.5. 1952. Þau skildu. Synir Þórðar og Guðlaugar eru: a) Guðmundur, f. 30.10. 1973, sam- býliskona Chloé Leplar, f. 9.12. 1975, sonur þeirra er Daní- el Peter, f. 23.12. 2006, b) Sveinn Ósk- ar, f. 17.11. 1978, sambýliskona Íris Dögg Guðmundsdóttir, f. 19.5. 1981, sonur þeirra er Guðmundur Veigar, f. 13.2. 2006. Sonur Írisar er Karl Rúnar Arnórsson, f. 24.6. 1998. Seinni kona Þórðar er Hjör- dís Kristinsdóttir, f. 19.11. 1950. Elsku pabbi minn. Það er komið að kveðjustund, stund sem ávallt kemur manni í opna skjöldu. Margs er að minnast og kveðjuorðin þín þegar þú heimsóttir mig í síðustu viku ylja mér. „Elsku stelpan mín“ sagðirðu um leið og þú fórst. Það var í síðasta sinn sem við sáumst þó við töluðum nokkrum sinn- um saman í síma eftir það. Einu sinni var þessi stelpa þín, sem nú er á sextugsaldri, lítil og átti sól- bjarta daga á Akranesi. Sunnudags- morgnarnir voru okkar. Ég fór með þér á Langasandinn, niður á Breið eða í heimsókn til Önnu frænku í Uppkoti. Á meðan eldaði mamma sunnudagslærið á sinn einstaka hátt. Í þessum ferðum okkar fundum við alltaf einhver verðmæti – snæris- spotti varð að sippubandi í höndunum á þér og netakúlur og steinar voru miklar gersemar í okkar augum. Það lék reyndar allt í höndunum á þér – þegar ég fékk sérherbergi smíðaðir þú svefnsófa, hansahillur og síðar snyrtiborð handa stelpunni þinni. Þetta síðasta sumar þitt hefur að mörgu leyti verið gott, veðurfarslega sem og á öðrum sviðum. Á síðustu misserum hefur litla fjölskyldan okk- ar stækkað. Þrír litlir, hraustir og fal- legir langafadrengir hafa sett mark sitt á lífið. Þú varst stoltur af litlu krílunum og áttir góðan dag með þeim í Hafnarfirðinum hjá Þórði og Hjördísi fyrir tveimur vikum. Þar hittir þú flesta afa- og langafastrák- ana þína. Ég fann að slíkar stundir voru þér mikils virði. „Ég átti mjög góðan dag í gær,“ sagðirðu við mig um daginn en þá höfðu Bragi og Elín boðið þér í bíltúr upp í Borgarnes þar sem þið nutuð gestrisni Bigga og Ásu. Og það voru góðir dagar í júní þegar nafni þinn kom frá Danmörku í heimsókn. Þið voruð miklir vinir og spjölluðuð saman um heima og geima og farnir voru smátúrar upp í Borg- arfjörð, um Skagann og til Reykja- víkur. Allt frá því að strákarnir mínir voru litlir hafa stundirnar með afa verið einstakar. Þú vaktir áhuga þeirra á sögu og landafræði svo eitt- hvað sé nefnt. Við vorum alltaf svo velkomin til ykkar mömmu. Það var mikið áfall þegar mamma veiktist. Þið voruð miklir félagar og vinir. Þú heimsóttir hana á hverjum degi þar til yfir lauk og missir þinn var mikill. Þú hefur staðið þig eins og hetja og þér hlotnaðist að halda sjálf- ur heimili til dauðadags eins og þú hafðir óskað þér. Elsku pabbi minn. Við Elvar, strákarnir okkar og fjöl- skyldur þeirra þökkum þér fyrir allt. Minning um góðan mann lifir í hjört- um okkar. Hvíldu í friði. Þín dóttir, Valgerður Hilmarsdóttir. Það var sunnudagsmorgunn í lok júlí, sólríkur og hlýr, eins og flestir dagar þessa blessaða sumars. Í Jað- arsbakkalaug á Akranesi mættu fastagestir. Í hópi þeirra var Hilmar Njáll mágur minn, sem nú hefur kvatt okkur svo óvænt. Þar synti hann af festu og öryggi sína fimm hundruð metra, sem var upphafsverk hans hvern dag. Þennan morgun var ákveðið að hann kæmi með okkur El- ínu í Borgarnes til að heimsækja Birgi bróður minn og Ásu. Dagurinn var ánægjulegur. Við nutum ferðar- innar. Hilmar rifjaði upp þann tíma þegar hann fór með Suðurlandinu í Borgarnes og á hestum að Indriða- stöðum í Skorradal, þar sem hann dvaldi í sveit á sumrin. Frá þeim tíma hefur margt breyst. Við ræddum at- burði Egilssögu en í Íslendingasög- um var Hilmar vel lesinn og minn- ugur. Við rifjuðum upp ferð Hilmars og Diddu systur minnar, þegar þau fóru á reiðhjólum eftir malarveginum frá Akranesi í Borgarnes, eins og ekkert væri eðlilegra fyrir harðfull- orðin hjón. Reiðhjólin voru þeirra fararskjótar. Aldrei eignuðust þau bíl og voru ánægð með hjólin sín. Flest sumur hjóluðu þau kringum Akrafjall og tóku þá afa- og ömmudrengina með. Í lok ferðarinnar kvöddumst við og hann hafði á orði hve vel hann hefði notið dagsins. Andlát voru víðs fjarri í hugum okkar. Ég man fyrst eftir Hilmari þegar hann kom á heimili okkar, trúlofaður Diddu. Hann var sjómaður, hávaxinn og sterklegur. Þau hófu búskap á neðri hæðinni. Ég varð tíður gestur hjá þeim. Þar voru bækur, sem ég hafði ekki áður lesið en þau hjónin deildu sameiginlega áhuga á lestri góðra bóka. Þórbergur, Laxness, Tolstoj og Gorki ásamt fleiri sígildum höfundum skipuðu virðulegan sess á heimili þeirra og opnuðu mér nýja veröld. Þessi fyrstu hjúskaparár þeirra voru þó ekki hamingjan ein. Hilmar þurfti að glíma við alvarleg veikindi um langt árabil og gat þá lítt stundað vinnu. Didda vann utan heimilis. Gleði þeirra var fölskvalaus þegar þau eignuðust börnin tvö Þórð og Valgerði, sem voru þeirra stærsta gjöf. Hilmar var mikill hagleiksmaður. Í veikindum sínum, smíðaði hann og skar út fjölda fallegra gripa, sem prýddu heimili þeirra og heimili vina og ættingja. Seinni hluta starfsæv- innar, þegar heilsan varð betri hóf hann störf við smíðar í Trésmiðjunni Akri en þar vann hann til starfsloka. Það var mikið áfall fyrir Hilmar þegar Didda veiktist skyndilega. Hún dvaldi á Sjúkrahúsi Akraness í eitt og hálft ár, þar til hún lést í janúar 2006. Við þessar breyttu aðstæður kom vel í ljós mikill styrkur og yfirvegun, sem Hilmar bjó yfir. Umhyggja hans og kærleikur reyndist systur minni ljós- ið bjarta í veikindum hennar. Það var aðdáunarvert að fylgjast með yfir- vegun hans og raunsæi eftir að hann þurfti að takast á við að búa einn. Það er erfitt að sjá ættingja og vini hverfa á stuttum tíma en vissan um góðan samastað þeirra gerir það létt- bærara. Við Elín og börnin okkar Þorvaldur og Bryndís þökkum allar góðu stundirnar gegnum árin og sendum Þórði og Völlu og fjölskyld- um þeirra innilegar samúðarkveðjur. Bragi mágur Hilmar Njáll Þórarinsson ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HLÖÐVER HELGASON, áður til heimilis á Vesturgötu 69, Reykjavík, sem lést fimmtudaginn 2. ágúst á Hrafnistu í Reykjavík. Jarðaförin fer fram frá Grafarvogskirkju, föstudaginn 10. ágúst 2007 kl. 15:00. Sigurður Hlöðversson, Hlöðver Hlöðversson, Sævar Hlöðversson, María Pétursdóttir, Hjálmar K. Hlöðversson, Elínborg Pétursdóttir, Guðjón H. Hlöðversson, Björg L. Ragnarsdóttir, Hafdís Hlöðversdóttir, Sigmar Teitsson, Gunnar Hlöðversson, Sigurlaug M. Ólafsdóttir, Valgerður O. Hlöðversdóttir, Pétur Andrésson. ✝ Elsku mamma okkar, Guðrún Jónsdóttir frá Möðruvöllum 1, Kjós, lést í Sunnuhlíð, þriðjudaginn 7. ágúst. Sigrún Guðmundsdóttir, Sigurður Guðmundsson og aðstandendur. ✝ Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og lang- amma, GUÐRÚN SIGRÍÐUR PÉTURSDÓTTIR, Hrafnistu í Reykjavík, áður Víðimel 44, lést þriðjudaginn 7. ágúst. Auðunn Ágústsson, Sigurbjörg Guðmundsdóttir, ömmubörn og langömmubörn. ✝ Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og kveðjur við andlát og útför sonar míns, GARÐARS JÓNASSONAR, Aðalstræti 74, Akureyri. Sérstakar þakkir til starfsfólks gjörgæsludeildar Landspítalans við Hringbraut fyrir góða umönnun. Sigríður Garðarsdóttir. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, INGILEIF FJÓLA PÁLSDÓTTIR, Suðurgötu 39, Hafnarfirði, sem lést á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði, miðvikudaginn 1. ágúst, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði, mánudaginn 13. ágúst kl. 15.00. Soffía Sigurðardóttir, Markús Kristinsson, Eiður Sigurðsson, Hrafnhildur Sigurðardóttir, Eðvarð Jónsson, Páll Sigurðsson, Benný Þórðardóttir, Ragnar Sigurðsson, Unnur Guðnadóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.