Morgunblaðið - 10.08.2007, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 10.08.2007, Blaðsíða 32
32 FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Halldóra Ein-arsdóttir fæddist í Hnífsdal 13. júní 1924. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Eir 1. ágúst síðast- liðinn. Halldóra fluttist ung til Bol- ungarvíkur. Hún var dóttir hjónanna Ein- ars Guðfinnssonar, útgerðarmanns í Bolungarvík, frá Litlabæ í Skötufirði og Elísabetar Hjaltadóttur, hús- freyju frá Bolungarvík. Halldóra var þriðja í hópi níu systkina, hin eru: Guðfinna, f. 1920, d. á fyrsta aldursári, Guðfinnur, f. 1922, d. 2000, kvæntur Maríu Haralds- dóttur; Hjalti, f. 1926, kvæntur Guðrúnu Halldóru Jónsdóttur; Hildur, f. 1927, gift Benedikt Bjarnasyni; Jónatan, f. 1928, kvæntur Höllu P. Kristjánsdóttur, d. 1992, seinni kona hans er Sigrún Óskarsdóttir; Guðmundur Páll, f. 1929, kvæntur Kristínu Mars- ellíusdóttur; Jón Friðgeir, f. 1931, kvæntur Ásgerði Hauksdóttur, d. 1972, seinni kona hans er Margrét Kristjánsdóttir; Pétur Guðni, f. 1937, d. 2000, kvæntur Helgu Aspelund. Á heimili foreldra Hall- dóru í Bolungarvík var einnig fleira heimilisfólk, þar á meðal uppeldissystir, Halldóra Pálína Halldórsdóttir, f. 1929, d. 1987, gift Ísleifi Magnússyni, f. 1927, d. 1996 og Una Halldóra Halldórsdóttir, f. 1933, sem átti þar athvarf til margra ára, gift Geir Guðmunds- syni, f. 1931. Halldóra giftist 26. október 1947 Guðrúnu Halllgrímsdóttur. Börn þeirra eru Ingvar Bjarki, f. 1991, Hallgrímur Hrafn, f. 1993 og Hall- dóra Björk, f. 1998. Halldóra ólst upp í Bolungarvík. Ung fór hún til náms við Kvenna- skólann í Reykjavík og var þar árin 1940-1942. Síðan fór hún í Hús- mæðraskólann í Reykjavík og lauk kennaranámi frá Húsmæðrakenn- araskóla Reykjavíkur árið 1946. Fyrstu námsárin bjó hún á heimili frænda síns, Jóns Helgasonar bisk- ups, en hin síðari á heimili vinkonu sinnar og skólasystur, Guðrúnar Ó. Halldórsdóttur í Háteigi, dóttur Halldórs Þorsteinssonar og Ragn- hildar Pétursdóttur. Auk æsku- heimilisins urðu bæði þessi heimili henni mjög kær. Á árunum 1949- 1959 kenndi Halldóra m.a. við Melaskólann í Reykjavík og Gagn- fræðaskólann við Hringbraut, og við Kvennaskólann í Reykjavík frá 1952-1959. Halldóra hélt fjölda námskeiða fyrir húsmæður og mat- sveina, m.a. á Vestfjörðum. Þá kenndi hún fyrir ýmis félagasam- tök, þ.á m. Húsmæðrafélag Reykja- víkur. Halldóra var í skólastjórn Kvennaskólans í Reykjavík frá árinu 1965 og var formaður stjórn- arinnar frá 1981 til 1987. Þá veitti hún forstöðu nefnd sem skipulagði aldarafmæli skólans og var í rit- nefnd bókarinnar „Kvennaskólinn 1874-1974“. Heimili Halldóru og Haraldar var lengst af á Ægisíðu 48 í Reykjavík. Heimili þeirra hjóna var öllum opið og sóttu þang- að margir, en þau voru afar gest- risin og lögðu ríka áherslu á að búa fjölskyldu sinni gott heimili. Síðasta árið dvaldi Halldóra á Landakotsspítala og síðan á Hjúkr- unarheimilinu Eir. Útför Halldóru verður gerð frá Neskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Haraldi Ásgeirssyni verkfræðingi, frá Sól- bakka við Önund- arfjörð, f. 4. maí 1918. Foreldrar hans voru Ásgeir Torfason, skipstjóri og fram- kvæmdastjóri, f. 1877, d. 1955 og Ragnheiður Eiríks- dóttir húsfreyja, f. 1891, d. 1991. Har- aldur var lengst af forstjóri Rannsókn- arstofnunar bygging- ariðnaðarins. Har- aldur og Halldóra eignuðust fjögur börn: 1) Elísabet, f. 1949, gift Gunn- ari Erni Guðmundssyni. Börn þeirra eru a) Bárður Örn, f. 1974, kvæntur Agnesi Andrésdóttur, sonur þeirra er Alexander Örn, f. 2006, b) Halldór Örn, f. 1979, sam- býliskona Jaqueline Downey og c) Sólveig Ragnheiður, f. 1986. 2) Ragnheiður, f. 1951, gift Hallgrími Guðjónssyni. Börn þeirra eru a) Haraldur, f. 1974, kvæntur Önnu Blöndal, synir þeirra eru Hall- grímur f. 2003 og Kári f. 2005, syn- ir Önnu og stjúpsynir Haraldar eru Benedikt og Halldór Karlssynir, f. 1996, b) Kári Guðjón, f. 1977, kvæntur Eyrúnu Nönnu Ein- arsdóttur, sonur þeirra er Þór, f. 2007, c) Margrét Halldóra, f. 1986 og d) Ásgeir, f. 1992. 3) Ásgeir, f. 1956, kvæntur Hildigunni Gunn- arsdóttur. Dóttir Ásgeirs er Tinna Laufey, f. 1975, sonur hennar er Pétur Bjarni Einarsson, f. 2002, börn Ásgeirs og Hildigunnar eru Gunnar Steinn, f. 1986 og Ragn- heiður Steinunn, f. 1990. 4) Einar Kristján, f. 1964, kvæntur Helgu Tengdamóðir mín, Halldóra Ein- arsdóttir, er látin eftir erfiða sjúk- dómslegu. Það er ekki auðvelt að skrifa um hana eftirmæli án þess að þau verði tilfinningasöm því hún var svo einstaklega vönduð kona. Ég kynntist Halldóru fyrst þegar ég var nýorðinn átján ára, dauðfeim- inn stráklingur skotinn í dóttur hennar. Hún tók mér strax vel, var nærgætin og hlý og án nokkurra fyr- irfram myndaðra skoðana. Ég minn- ist þess að í einni af mínum fyrstu heimsóknum sem ég kom í eldhúsið til hennar henti það mig að mölbrjóta húsbóndastólinn við eldhúsborðið, en Halldóra skellihló og gerði góðlátlegt grín að þessari óheppni. Halldóra var alltaf einstaklega hláturmild og hafði svo smitandi hlátur að hreif alla við- stadda. Í gegnum árin tókst með okkur sterk vinátta og naut ég þess alla tíð að eiga hana að. Halldóra var alin upp í stórri fjöl- skyldu í Bolungarvík og það mótaði hana. Víkin og fjölskyldan var henni mikils virði og hún lagði mikla rækt við þessi tengsl. Mér fannst alltaf að Halldóra gæti fundið gott í hverjum manni og ekki spillti það fyrir ef þeir voru að vestan. Ég heyrði hana reyndar aldrei hallmæla nokkrum manni né taka undir slæmt umtal. Þetta hugarfar hefur haft mikil áhrif á mig og reyndar á alla sem þekktu hana, en sérstaklega þó börnin sem lærðu að kynnast þessum einstaka eiginleika. Hún gerði aldrei mun á al- múgamanni eða ráðherra, allir voru jafn velkomnir í hennar hús. Hún var gestrisin með afbrigðum og ekki ósjaldan sátu í kaffi hjá henni ösku- karlar eða starfsmenn verktaka eða borgarinnar sem unnu einhver störf úti í götu. Ef þannig stóð á hjá henni gaf hún þeim vindla húsbóndans eða konfekt. Að sjálfsögðu sótti fólk í slíka manneskju, vinir og vandamenn voru stöðugt að koma, ungir sem aldnir. Hún var skilningsrík og hafði hæfileika að hlusta, að hugga og gefa góð ráð. Hún hafði í reynd einstaka hæfileika að umgangast fólk. Börnin okkar voru svo heppin að fá að vera á heimili afa og ömmu meðan þau voru í námi í Reykjavík. Þau tóku auðvitað ástfóstri við ömmu sína, sem ásamt afa, ekki bara fæddi þau, heldur veitti þeim tilsögn í gegnum ung- lingsárin. Halldóru fannst t.d. elsti sonur okkar ekki vera nógu duglegur að stunda skólaböllin og neytti allra ráða til að fá hann til að stunda þau meira, þar væru jú stúlkurnar sem hann þyrfti að kynnast. Einhverju sinni var pilturinn lasinn og taldi Halldóra að hann ætti ekki að fara í skólann þennan morgun því hann þyrfti að vera orðinn frískur til að fara á ballið þá um kvöldið. En þann- ig var hún, svo glaðsinna og blíðlynd og leit lífið oft allt öðrum augum en við hin. Halldóra var auk þess frábær húsmóðir, ekki eingöngu þannig að allt væri snyrtilegt heima við, heldur var hún hagsýn og nýtin og frábær að matreiða. Það er mikil eftirsjá í henni, en það er okkur hinum huggun að vita að nú hefur hún öðlast frið. Við sem eftir sitjum munum geyma hana í minn- ingunni og sú minning mun hafa bæt- andi áhrif á okkur til framtíðar. Far þú í friði, Halldóra mín. Gunnar Örn. Tengdamóðir mín Halldóra Ein- arsdóttir er fallin frá. Hún bjó alla ævi við góða heilsu, en síðustu mán- uðina sótti hart að henni illvígur öldr- unarsjúkdómur, sem varð henni að aldurtila. Hér er gengin ákaflega góð kona sem sárt er saknað af öllum sem hana þekktu. Huggun harmi gegn er að Halldóra átti langa og mjög far- sæla ævi. Ég man vel þegar ég hitti Halldóru fyrst, á tröppunum á Ægissíðu 48. Þetta var fyrir 34 árum og Halldóra nálgaðist fimmtugt. Mér er vel minn- isstætt vinalegt bros hennar þá. Það var sem af henni stafaði einlæg hlýja, jafnframt sem maður skynjaði að hér fór kona sem hafði til að bera mikla lífsgleði og atorku. Þetta skyndiálit á Halldóru átti ekki eftir að breytast í tímanna rás. Einstök góðvild og ljúf- mennska hennar snart alla sem hana hittu. Hjá henni var einnig alltaf stutt í glaðværð og hlátur. Öllum þótti ákaflega vænt um þessa konu. Sjálfur heyrði ég hana aldrei hall- mæla nokkrum manni. Hún hafði einstakan hæfileika til að bera, að draga fram kosti fólks sem okkur hinum fannst á einhvern hátt stór- gallað. Það var því eðlilegt að mikið var um að fólk í vanda leitaði ráða hjá þessari traustu konu. Halldóra var harðdugleg og vinnu- söm. Hún var menntaður hússtjórn- arkennari sem rak sjálf óvenjulega myndarlegt heimili. Minnisstæð eru öll matarboðin á Ægissíðunni þar sem húsfreyjan fór á kostum í mat- seldinni. Halldóra vann lengi ötul- lega utan heimilis við kennarastörf, auk þess að láta til sín taka við ýmis félagsstörf. Hún var í reynd baráttu- kona fyrir jafnrétti kynjanna. Halldóra var mjög mikilvæg sinni fjölskyldu. Hún var glöð og stolt af sínum vestfirska uppruna. Hún mátti líka vera það, því stórfjölskyldan frá Bolungarvík telur vissulega öðlings fólk. Segja má að þau Haraldur hafi haldið úti „opnu húsi“ í Vesturbæn- um fyrir ættmenni sín að vestan þeg- ar þau áttu leið til Reykjavíkur. Þetta var sannarlega gagnkvæmt þegar þeirra fjölskylda heimsótti Vestfirð- ina. Stöðug umhyggjusemi fyrir sín- um nánustu var henni í blóð borin, nokkuð sem hún vafalítið lærði strax í foreldrahúsum. Móður-, ömmu- og langömmuhlut- verkinu skilað Halldóra alltaf af stakri prýði. Heimilið á Ægissíðunni var ætíð eftirsóttur íverustaður barnanna. Börnin elskuðu Halldóru og hún elskaði þau öll skilyrðislaust. Stóri vinningur Halldóru í lífinu er Haraldur tengdapabbi. Þetta er sannarlega gagnkvæmt. Hjónaband þeirra í nær 60 ár var þeim báðum ómetanlegt og bar ríkulegan ávöxt. Öll fjölskyldan og vinir standa sann- arlega í þakkarskuld við þessi sæmd- arhjón. Ég þakka þeim sérstaklega fyrir gott vinarþel gagnvart foreldr- um mínum heitnum. Ég veit að arf- leifð Halldóru mun lifa í hjörtum okkar allra um ókomin ár. Ég kveð hana með miklum söknuði. Það hafa vissulega verið forréttindi að eiga samfylgd með Halldóru í lífinu. Hallgrímur Guðjónsson. Elskuleg tengdamóðir mín hefur kvatt. Sorgin er stór en við eigum ótal margar góðar minningar. Minn- ingar um einstaka konu, sem var gædd miklum mannkostum og per- sónutöfrum og hafði sjálf svo fallega lífssýn að unun var að fylgja. Halldóra hafði einstaklega létta lund og stórt hjarta. Halldóra faðm- aði og kyssti og hún hvatti og hrós- aði. Halldóra gerði alla menn betri í kringum sig. En hver var þessi sólargeisli vest- an úr Bolungarvík? Halldóra ólst upp í stórum hópi systkina, sem voru henni afar kær. Hún kom til Reykja- víkur 15 ára gömul og gekk í Kvenna- skólann og varð húsmæðrakennari og hún kynntist Haraldi. Eignuðust þau fjögur börn og skópu sér fallegt heim- ili við Ægisíðuna. Á heimilinu ríkti glaðvær tónn og allir voru velkomnir. Myndir koma upp í hugann. Ég á tröppunum á Ægisíðunni svo- lítið feimin og óstyrk að finna Ásgeir en tekið fagnandi og hrifin inn. Halldóra á Ægisíðunni, öll fjöl- skyldan í mat, börn og barnabörn, rifjaðar upp sögur og atvik, Hallóra í essinu sínu og hlær svo dátt. Halldóra kát að vanda svingandi um á Ægisíðunni í Marimekko-kjól með nokkur barnabörn að skottast í kringum sig. Við foreldrarnir að sækja börnin eftir dagstund hjá ömmu og afa. Börnin taka á móti okk- ur með uppbrettar ermar, nýbúin að skúra forstofuna, fægja silfrið, þurrka af bókum og baka stafla af pönnukökum. Þetta var kannski ekki alveg á færi 3 ára barna að okkar mati en allir brosandi og stoltir af dags- verkinu. Alltaf líf og fjör á Ægisíðunni, vinir og ættingjar að vestan að koma eða fara og alltaf tími fyrir spjall og kaffi- bolla. Halldóra var ráðagóð og hvergi var betra að eiga orðastað en við hana þegar eitthvað bjátaði á enda voru ófáir sem leituðu til hennar. Halldóra var kjörkuð og áræðin og hún hvatti fólk til dáða og samgladdist svo inni- lega yfir smáu og stóru. Halldóra var mikill fagurkeri hafði sérstakan áhuga á fallegri hönnun og handverki. Handofnar gardínur, hnífapör og stell, allt vel valið og stíl- hreint og fróðleg og skemmtileg saga á bak við hvern hlut. Halldóra og Haraldur áttu afar fal- legt samband og þau voru gæfurík í lífinu, þau áttu hvort annað og það var yndislegt að sjá að þau vissu það bæði, allan tímann, alltaf. Hamingja þeirra mun lifa áfram í hjörtum okkar og barna okkar. Hjartans þakkir fyrir að fá að vera með í þessu fallega ferðalagi. Hildigunnur Gunnarsdóttir. Í dag kveðjum við ástkæra tengda- móður mína, Halldóru Einarsdóttur. Halldóra eða Dódó eins og hún var venjulega kölluð var frá Bolungarvík. Bolungarvík var sveitin hennar og að hennar mati var hvergi betra að vera og hvergi betra fólk. Halldóra var glæsileg kona og það geislaði frá henni góðmennskan og hjartahlýjan. Hún var mikil fjöl- skyldukona og frábær gestgjafi, en heimili hennar og Haraldar stóð ætíð opið ættingjum og vinum sem til þeirra leituðu. Halldóra hafði það fyr- ir venju í mörg ár að bjóða börnum, tengdabörnum og barnabörnum í mat á þriðjudagskvöldum og þá mættu allir sem tök höfðu á. Halldóra reiddi þá gjarnan fram frábæra fiskrétti en hún var snillingur í gerð fiskrétta og langt á undan sinni samtíð í elda- mennsku. Á þessum kvöldum þegar fjölskyldan hittist var jafnan hlegið mikið og rætt um það sem hæst bar á góma í þjóðfélaginu hverju sinni. Þessi kvöld voru ómetanleg og styrktu fjölskylduböndin mikið. Halldóra var mjög mikil húsmóðir og fyrirhyggjusöm en fljótlega eftir að ég og Einar sonur hennar fórum að vera saman byrjaði hún að safna fyrir okkur í búið. Hún fór oft til Bolung- arvíkur og kom þá gjarnan við í Ein- arsbúð og keypti eitthvað fyrir okkur í búið eins og potta, skálar, glös og fleira. Hún var einstaklega smekkleg í vali sínu og alltaf kom hún með eitt- hvað fallegt. Þegar við Einar fórum svo að búa var komin fullur skápur á Ægissíðunni af alls konar hlutum í búið. Halldóra var lærður húsmæðra- kennari og mjög fær í sínu fagi. Hún fór ekki alltaf troðnar slóðir í mat- argerð, var mjög hugmyndarík og hellti sér út ýmiskonar tilraunir. Eitt árið var mynta könnuð út í æsar, næst var það kúmen, en hún var óhrædd við að prófa sig áfram. Hún var mér góður kennari. Hún kenndi mér að út- búa og baka gerdeig sem var nýtt fyr- ir mér og hinn fræga fjölskyldujóla- graut. Ef ég lenti í vandræðum eða eitthvað vantaði í uppskrift gat ég alltaf treyst því að hún hafði ráð um það hvernig maður gæti bjargað sér. Nú er að leiðarlokum komið og vil ég þakka tengdamömmu samfylgd- ina, megi góður guð vaka yfir henni. Hvíl í friði, elsku Dódó. Helga. Amma var yndisleg manneskja sem hafði mikil áhrif á alla í kringum sig, ekki síst okkur barnabörnin. Amma var alltaf elskulegheitin upp- máluð, allir voru velkomnir heim til hennar, hvenær sem var og henni fannst enginn fá almennilega að borða. „Viltu ekki bjóða honum/henni eitthvað að borða?“ Heyrðum við systkinin iðulega þegar við fengum einhverja vini okkar í heimsókn á Æjó, en við höfum öll búið þar í gegn- um tíðina. Það var lögð áhersla á það hjá ömmu, að enginn væri svangur í hennar húsi og hundarnir okkar gerðu sér fljótlega grein fyrir þessu. Þeir horfðu á ömmu með sínum bestu hvolpaaugum þegar þeir voru á Æg- isíðunni, með ágætis árangri: „Æ, má ég ekki gefa honum eitthvað að borða, (allir hundar voru karlkyns hjá ömmu) hann er svo svangur,“ sagði amma. Hundurinn okkar, Dimmal- imm, svaf af þessum sökum alltaf fyr- ir utan svefnherbergisdyr hennar ömmu, matarástfangin. Amma talaði aldrei illa um neinn, hún sá alltaf það besta í öllum, og leit tilveruna bjartari augum en við flest. Ef menn voru drykkfelldir og óstýri- látir eins og mennirnir sem voru sett- ir í poka á sveitaböllunum í Bolung- arvík, þá voru þetta „gleðimenn“. Enginn var leiðinlegur heldur var sumt fólk „sérstakt“ og aldrei var nokkur maður baktalaður. Þegar rigndi, var almættið að þvo fyrir okkur trén. Amma var alvarleg af því leyti, að hún vildi alltaf koma vel fyrir. Hún gekk alla tíð í háhæluðum skóm, hár hennar og föt voru alltaf til fyrir- myndar. Amma var góð við allt og alla og oft var góðmennska hennar grátbrosleg. Hún kom sér ósjaldan í hlægilegustu vandræði vegna kærleika síns, en hún mátti ekkert aumt sjá og var alltaf að hjálpa öllum. En þótt við hefðum hlegið, hló amma alltaf mest, með sínum innilega hlátri. Hún hafði mikinn húmor fyrir sjálfri sér og gerði hiklaust grín að því hvernig hún hafði hegðað sér eða komið fram, allt frá því hún var í Kvennaskólanum, talandi sína vest- firsku, til okkar tíma. Amma var goðsögn í lifanda lífi í okkar æsku. Allir vinir okkar vissu hver amma Dódó var. Jú, hún bar þetta einkennilega vestfirska nafn: „Dódó,“ hún átti BMW sem hún not- aði til að stökkva á hraðahindrunum, hún gerði bestu fiskibollur norðan Alpafjalla og fór spes útí búð til þess að kaupa ís. Allir vildu kynnast þess- ari kjarnakonu og ofur-ömmu. Amma var fjallkona Íslands holdi klædd; hraustleg og falleg, dugleg og vel máli farin, kærleikinn uppmálaður og Ís- lendingur fram í fingurgóma. Allir elskuðu Halldóru Einarsdótt- ur eins og hún elskaði alla. Hennar verður sárt saknað, en hún skilur eftir sig arfleifð bjartsýnis og gleði og er það von okkar og stefna að sjá heim- inn með hennar augum. Hvíl í friði, elsku amma. Bárður Örn, Halldór Örn og Sólveig Ragnheiður. Á Ægisíðu 48 hefur maður lært margt um dagana. Þar voru mann- kostir ekki bara orðin tóm og er það mikil gæfa að hafa átt ömmu Æjó að fyrirmynd. Hún hafði ekki þann hátt- inn á að predika yfir manni en öllum sem hana þekktu var ljóst hvað hún stóð fyrir; ástúð, siðgæði, umhyggju, trúmennsku og tillitssemi. Auk þess hafði hún sterka réttlætistilfinningu sem gat skorið þvert á staðalmyndir og þjóðfélagsstöðu. Það var ekki þar með sagt að hún hefði ekki haft gam- Halldóra Einarsdóttir Elsku amma Halldóra, takk fyrir allar góðu stundirnar, sem við áttum með ykkur afa Har- aldi á Ægissíðunni. Við munum seint gleyma þeim. Halldór og Benedikt. HINSTA KVEÐJA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.