Morgunblaðið - 13.08.2007, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 13.08.2007, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Lloret de Mar 14. september frá kr. 49.990 Vikuferð m/fullu fæði Heimsferðir bjóða einstakt tilboð á einn vinsælasta áfangastað Costa Brava strandarinnar við Barcelona, Lloret de Mar. Hótel með góðri aðstöðu, garði, sundlaug og veitingastað. Stutt í golf og á ströndina. Öll herbergi með baði, sjónvarpi og síma. Gríptu tækifærið og tryggðu þér góðan sumarauka á Lloret de Mar á frábærum kjörum. Verð kr. 49.990 - með fullu fæði Netverð á mann. Flug, skattar og gist- ing í tvíbýli með fullu fæði á Hotel Ancla í 7 nætur, 14. september. HELGARUMFERÐIN til höfuð- borgarsvæðisins kom einkum norð- an af landinu að þessu sinni. Rólegt var hjá Selfosslögreglunni og um- ferðin svo þétt að norðan að öku- mönnum gáfust vart tækifæri til hraðaksturs. Lögreglan á Blönduósi, sem er landsþekkt sem hraðabani í umferðinni, hafði þó í nógu að snú- ast. Stöðvuðu lögreglumenn um- dæmisins 26 ökumenn fyrir hrað- akstur á tveimur tímum á Þverár- fjallsvegi, en hann liggur á milli Blönduóss og Sauðárkróks. Voru fjórir af þessum 26 ökumönnum mældir á 135 til 138 km hraða, en þarna er hámarkshraði 90 km á klukkustund. Á Snæfellsnesvægi fauk hjólhýsi útaf veginum rétt við Lísuhól. Slitn- aði hjólhýsið í miklum strekkings- vindi frá bifreiðinni sem dróg það og er talið gjörónýtt. Að öðru leyti gegn sunnudagsumferðin rólega fyrir sig. 26 teknir fyrir hrað- akstur við Blönduós Eftir Gunnhildi Finnsdóttur gunnhildur@mbl.is HELGA Sif Friðjónsdóttir, doktor í hjúkrunarfræði, telur að efla þurfi geðrækt í framhaldsskólum og að æskilegt væri að heilbrigðisstéttir sinntu ungmennum á framhalds- skólaaldri betur, meðal annars í for- varnarskyni gegn áfengisofneyslu. Þetta kom fram í doktorsverkefni hennar þar sem hún kannaði áfeng- isneyslu ungs fólks. Rannsóknin byggir á gögnum sem safnað var í framhaldsskólum árið 2004. „Ef grannt er skoðað þá vant- ar nánast alla heilsugæslu fyrir þennan hóp. Þau útskrifast úr tí- unda bekk, þar sem þau hafa aðgang að skólahjúkrunarfræðingum og svo skila þau sér illa inn í heilbrigð- iskerfið eftir það. 60 prósent fólksins í úrtakinu höfðu orðið drukkin einu sinni eða oftar síðastliðna 30 daga. Bara þessi mikla tíðni segir manni það að þetta er heilbrigðisvanda- mál,“ segir Helga. Hún leggur áherslu á að aðalatriðið sé að draga úr skaðanum sem áfengisofneysla hefur í för með sér. Þrenns konar drykkjumynstur Helga setti upp tölfræðimódel til þess að greina á milli ólíkra hópa í úrtakinu. Hún komst að því að drykkjumynstri framhalds- skólanema má gróflega skipta í þrennt. Fyrsti hópurinn, um helm- ingur úrtaksins, verður tiltölulega sjaldan drukkinn, en drekkur þá álíka oft bjór og léttvín. Næsti hóp- ur, sem 43 prósent framhalds- skólanema tilheyra, eru í nokkuð mikilli áfengisofneyslu. Þau drekka mun oftar bjór en fyrsti hópurinn og sækja til dæmis meira á vínveitinga- hús. „Það er eitthvað sem við þyrft- um að fara að skoða betur og kanna af hverju þessir krakkar eru inni á skemmtistöðunum,“ segir Helga. Um sjö prósent framhalds- skólanema tilheyra, að mati Helgu áhættuhópi hvað áfengisneyslu varðar. Það er hópurinn sem verður oftast drukkinn. „Þau drekka meiri bjór og meira vín en jafnaldrar þeirra og líka talsvert af landa. Það má segja að þessir krakkar séu komnir í mjög alvarlega áfeng- isneysluhegðun.“ Helga segir að taka þurfi tillit til þessa ólíku hópa í forvarnarstarfi. Síðastnefndi hópurinn þurfi ekki bara hjálp vegna áfengisneyslu, heldur þarf líka að styðja þau í öðr- um efnum, til dæmis að tengjast skólanum betur. Hvað þau 43 pró- sent varðar sem drekka næst oftast, segir Helga að þar þurfi að finna leiðir til þess að þau dragi úr neysl- unni með það í markmiði að draga úr skaðlegum áhrifum ofneyslu. Dýrt að bregðast seint við Helga telur að það þurfi að efla geðræktarstarf inn í framhalds- skólana. „Ég myndi fyrst og fremst vilja fá heilsugæslu inn í framhalds- skólana þannig að þessum krökkum verði sinnt.“ Ljóst er að talsverður kostnaður myndi fylgja því að ráða heilbrigð- isstarfsfólk til starfa við framhalds- skólana en Helga telur að kostn- aðurinn sé meiri við það að bregðast ekki við fyrr en að unga fólkið sé bú- ið að koma sér í veruleg vandræði, til dæmis með ölvunarakstri. Hún nefnir líka að ungmenni glími við ýmis önnur geðræn vandamál, til dæmis þunglyndi og kvíða, sem þau þurfi ekki síður hjálp við. Efla þarf geðrækt og heilsu- gæslu í framhaldsskólum Morgunblaðið/Ómar Forvarnir Helga Sif Friðjónsdóttir segir að miða þurfi forvarnir við þarfir ólíkra hópa ungs fólks. SÚ ÓVENJULEGA sjón blasti við mörgum gestum Hinsegin daga í miðbæ Reykjavíkur á laugardaginn að sjúkraflutningamaður var á ferð um svæðið á mótorhjóli. Hann var þar til að sinna þeim neyðartilfellum sem upp komu á svæðinu en um er að ræða til- raunaverkefni í því skyni að stytta viðbragðstíma sjúkraflutninga- manna og draga úr útköllum sjúkrabíla þegar um fjölmenna við- burði er að ræða. Jón Viðar Matthíasson, slökkvi- liðsstjóri hjá Slökkviliði höfuðborg- arsvæðisins, segir þetta fyr- irkomulag hafa verið reynt áður, fyrst á Lýðveldishátíðinni á Þing- völlum árið 1994. „Það er eilíf barátta hjá okkur að reyna að stytta útkallstímann og það er ástæðan fyrir því að við er- um að prófa þetta.“ Viðar segir starfsmann slökkviliðsins eiga hjól- ið sem ekið var um bæinn og hafi sá komið með þá hugmynd hvort ekki ætti að nýta hjólið í þetta verk þar sem hann hafði komið á því í vinn- una. Vel var tekið í það en sá sem sinnti útköllum á hjólinu var ekki eigandinn sjálfur heldur annar starfsmaður slökkviliðsins. „Þetta hefur jafnframt verið reynt á stærstu ferðahelgunum í sumar því þar erum við aðallega að glíma við það hve erfitt er að kom- ast ferða sinna þegar fólk er að fara út úr bænum. Þá var eigandi hjóls- ins staðsettur á Litlu kaffistofunni.“ Viðar segir þetta fyrirkomulag stytta útkallstímann verulega og á laugardaginn kom það berlega í ljós hve vel tókst til. Þá sinnti sjúkraflutningamaðurinn 3-4 minniháttar tilfellum og gat dregið úr útköllum sjúkrabílanna með að sinna sjúklingunum strax á staðn- um. Að sögn Viðars er það í skoðun hvort mótorhjólið verði í viðbragðs- stöðu á menningarnótt en þá verð- ur meiri viðbúnaður í bænum en á Hinsegin dögum. Spurður hvort það borgi sig ekki að hafa þennan háttinn á segir Viðar: „Um leið og það skiptir sköpum þó ekki sé í nema örfáum tilfellum þá borgar það sig.“ Morgunblaðið/Júlíus Neyðartilvikum sinnt á hjóli ÞÉTT var setið í fangageymslum lögreglu höfuðborgarsvæðisins í fyrrinótt en mikið var að gera hjá lögregluþjónum umdæmisins alla nóttina. Töluvert var um slagsmál og pústra en mannmargt var í mið- borginni. Ölvun var almenn og voru níu handteknir fyrir akstur undir áhrifum áfengis. Lögregla var köll- uð til um klukkan tvö á skemmti- staðinn Kaffisetrið vegna hópslags- mála. Höfðu dyraverðir á staðnum kveikt öll ljós og slökkt á tónlistinni þegar lögreglumenn bar að garði en þá voru upphafsmenn átakanna horfnir á braut. Einn fékk áverka á andlit og var fluttur á slysadeild en enginn var handtekinn vegna máls- ins. Flúði fáklæddur úr íbúð sinni eftir misþyrmingar Nokkru áður hafði lögreglu borist tilkynning um að nakinn maður væri á hlaupum eftir Bíldshöfða. Þegar lögreglumenn komu á vettvang kom í ljós að maðurinn var blóðugur í framan og einungis klæddur í nær- buxur. Höfðu þrír menn ráðist inn á manninn þar sem hann lá sofandi í íbúð við Tangarhöfða en hann kom- ist út við illan leik. Þegar lögregla fór þangað voru mennirnir búnir að rústa tveimur herbergjum íbúðar- innar. Neituðu mennirnir að yfir- gefa íbúðina og kom til handalög- mála milli þeirra og lögreglu. Voru tveir handteknir. Um klukkan hálf- þrjú var lögreglu síðan tilkynnt um að maður hefði verið sleginn í andlit- ið með glerflösku á skemmtistaðn- um Sólon. Maðurinn var fluttur á slysadeild en framtennur losnuðu auk þess sem efri vör mannsins rifn- aði. Árásarmaðurinn komst undan. Slagsmál og ölvun í borginni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.