Morgunblaðið - 13.08.2007, Page 7

Morgunblaðið - 13.08.2007, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 2007 7 MIKILL fjöldi var á Króksmótinu á Sauðárkróki um helgina en þar kepptu rúmlega eitt þúsund drengir og stúlkur í 5., 6., og 7. flokki í knattspyrnu. Er það met- þátttaka til þessa en alls kepptu rúmlega 100 lið alls staðar að af landinu.Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður knattspyrnudeildar Tindstóls, setti mótið en þetta er 20. Króksmótið sem félagið held- ur. Setningarathöfnin fór fram á laugardagsmorgninum að við- stöddu fjölmenni á íþrótta- leikvanginum og síðan var flautað til leiks og fótbolti spilaður af full- um krafti. Að lokum var svo kvöldvaka og skemmtiatriði fyrir mótsgesti.Morgunblaðið/Björn Björnsson Þúsund kappsfullir krakkar SUNN, Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi, hafa sent umhverfisráð- herra og bæjarstjórn Fjallabyggðar áskorun um að beita sér fyrir friðlýs- ingu Héðinsfjarðar sem friðlands eða fólkvangs. Friðlandið yrði stofnað ekki síðar en jarðgöngin milli Siglu- fjarðar og Ólafsfjarðar verða opnuð en undirbúning friðlýsingar, merk- ingar gönguleiða og brúun lækja og mýrlendis þarf að hefja sem allra fyrst, að mati samtakanna. Góð áhrif á ímynd svæðisins „Fjallabyggð og byggðarlög í ná- grenninu hafa mikla hagsmuni af því að friðland verði stofnað á norðan- verðum Tröllaskaga, með eins konar hjarta í Héðinsfirði. SUNN telja því að eðlilegt sé að sveitarfélagið beiti sér í málinu með umhverfisráðherra. Þá er ekki ólíklegt að hinn siglfirski samgönguráðherra hafi áhuga á mál- inu. Friðlýsing myndi hafa afar góð áhrif á ímynd svæðisins alls og vafa- lítið stuðla að auknum ferðamanna- straumi um norðanverðan Trölla- skaga og auka þannig þau jákvæðu áhrif sem fólk á svæðinu vonast til að skapist vegna jarðganga og vegar sem liggur þvert yfir Héðinsfjörð,“ segir í áskoruninni. Bent er á að þótt Héðinsfjörður verði ekki friðland eða fólkvangur við opnun jarðganganna þurfi að gera friðunarráðstafanir þegar vegur verður kominn. Um þetta hafi land- eigendur, náttúruverndaryfirvöld, SUNN og fjölmargir aðrir sem hafa tjáð sig verið sammála. „Koma þarf á fót móttöku fyrir gesti, bílastæðum, göngustígum og brúm yfir læki og um mýrlendi. Allar slíkar aðgerðir munu gagnast betur ef landið verður formlega friðlýst og komið á landvörslu og upplýsingagjöf fyrir ferðafólk,“ segir þar enn fremur. Vilja friðlýsa Héðinsfjörð VEGNA frétta um að ríkið sitji eitt að skattgreiðslum á þriðja þúsund manns sem ekki séu með aðrar tekjur en fjármagnstekjur, en þær renna einungis til ríkisins, hefur fjármálaráðuneytið látið greina fjár- magnstekjur þessa hóps. Í tilkynn- ingu frá ráðuneytinu er tilgreint að 2.381 einstaklingur sé einungis með fjármagnstekjur og 90% þeirra séu með minna en 50 þúsund krónur í fjármagnstekjur á ári. Að stórum hluta sé þarna um að ræða ungt fólk sem ekki er á vinnumarkaði en af þeim 2.381 einstaklingi sem þarna um ræði greiði einungis 116 ein- hvern fjármagnstekjuskatt. Á árinu 2006 var fjöldi hjóna sem ekki var með neinar aðrar tekjur en fjármagnstekjuskatt alls 150. 57% þeirra voru með minna en 100 þús- und krónur á árinu í fjármagns- tekjur og 61% með minna en eina milljón króna í fjármagnstekjur. Einungis 51 hjón í þessum hópi greiða einhvern fjármagnstekju- skatt. Hafa minni fjármagns- tekjur ♦♦♦ Skólavörðustíg 21, Reykjavík sími 551 4050 Glæsileg brúðarrúmföt í úrvali

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.