Morgunblaðið - 13.08.2007, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 2007 9
TILBOÐ -á völdum vörum
www.tk. is
*Fallegur penni fylgir hverri sölu - Líttu á www.tk.is
13.-19. ágúst
verslun fyrir þig
*meðan birgðir endast
HVERFISGÖTU 6, 101 REYKJAVÍK, SÍMI 562 2862
HAUST 2007
Skeifan 11d • 108 Reykjavík • sími 517 6460
www.belladonna.is
Opið mán.-fös. kl. 11-18, lau. kl. 11-15
Nýjar
vörur frá
Stærðir 42-56
grein en allt getur gerst líkt og
áhorfendur urðu síðar vitni að í tölt-
inu. Þórarinn reið úrslitin af miklu
öruggi og lagði allt undir. Var hann
gríðarlega góður á brokki og stökki
en hann fékk 8,5 fyrir þær gangteg-
undir. Í töltinu hafði hann mikla yf-
irburði yfir hina og fékk 9,17 fyrir.
Það fór um mann smáónotatilfinn-
ing þegar honum tókst ekki að
leggja Kraft í fyrsta skeiðsprettin-
um. Sú tilfinning hvarf þó fljótt
þegar Þórarinn tók hina tvo sprett-
ina af miklu öryggi. Þannig að fyrsti
spretturinn skipti engu máli þar
sem það þarf bara tvo heila spretti
til að fá fulla einkunn. Svo fór að
Þórarinn vann fimmganginn með
einkunnina 7,79 og nældi sér þar
með í einn heimsmeistaratitil. Í
öðru sæti var Frauke Schenzel á
Næpa vom Kronshof með ein-
kunnina 7,52. Anna Skúladóttir á
Fönix vom Klosterbach átti bestu
skeiðsprettina en hún endaði í
fjórða sæti með einkunnina 7,31.
Rúna Einarsdóttir kom svo næst á
eftir henni með einkunnina 7,05.
Í slaktaumatölti var okkar helsta
von Eyjólfur Þorsteinsson á Háreki
frá Vindási en hann var í öðru sæti
eftir forkeppni. Efst var hin þýska
Jolly Schrenk á Laxness vom Sör-
tal. Eyjólfi tókst gríðarlega vel upp
með hæga töltið og fékk fyrir það
8,5. En Jolly rúllaði upp frjálsu
ferðinni og slaktauminum. Fór því
svo að Jolly vann með
8,50 en Eyjólfur varð
annar með 8,29.
Loksins skeiðað
til sigurs
Skeiðgreinarnar hafa
reynst okkur Íslending-
um eitthvað erfiðar á
nokkrum síðustu heims-
meistaramótum. Svíar
hafa þar verið með mikla
yfirburði og unnið allar
skeiðgreinar á síðustu
þremur mótum. Ísland
vann síðast skeiðgrein
árið 1999 í Þýskalandi
þegar Sigurbjörn Bárð-
arson varð heimsmeistari
í 250 metrunum á Gord-
on frá Stóru-Ásgeirsá.
Annað var uppi á ten-
ingnum á þessu nýliðna
móti. Á fimmtudag sneri
Sigursteinn Sumarliða-
son blaðinu við fyrir okk-
ur og vann gæðinga-
skeiðið á Kolbeini frá
Þóroddsstöðum. Á föstu-
dag náði svo Bergþór
Eggertsson besta tíman-
um í fyrri tveim sprett-
um 250 metra skeiðsins
og fór hann brautina á
21,55 sekúndum. Seinni
tveir sprettirnir fóru svo
fram á laugardag. Eng-
um tókst að bæta um
betur þannig að Bergþór
vann þá grein og náði því
öðru gulli til Íslands í
skeiðgreinunum. 100
metra fljúgandi skeiðið
fór svo fram í gær. Berg-
þór Eggertsson var
greinilega mjög heitur
þessa helgina því hann gerði sér lít-
ið fyrir og sigraði þá grein einnig á
tímanum 7,63 sekúndum. Sigur-
steini tókst ekki að leggja klárinn
sem hann var með, Kolbein frá Þór-
oddsstöðum, en hann náði aftur á
móti öðru sætinu í 250 metrunum.
Mjög góður árangur hjá strákunum
enda kominn tími á það að við feng-
um einhver gull á þessum vígvelli.
Þó svo að Jóhann R. Skúlason
hafi ekki náð að næla sér í þriðja
heimsmeistaratitilinn í tölti fór
hann ekki alveg tómhentur heim.
Hann reyndist vera heimsmeistari í
fjórgangsgreinum en það er reikn-
að út frá stigum úr fjórgangi og
einni töltgrein. Heimsmeistari í
fimmgangsgreinum varð svo Þórar-
inn Eymundsson. Samanlagður
fimmgangssigurvegari er saman-
lögð stig úr þremur greinum, ein
töltgrein, ein skeiðgrein og fimm-
gangur.
Mótið var í flestalla staði mjög
vel heppnað. Skipulag og aðstaða
fyrir áhorfendur og knapa var gríð-
arlega góð og ekkert út á það að
setja. Blaðamenn fengu aftur á móti
frekar lélega aðstöðu og stundum
gekk erfiðlega að fá upplýsingar um
úrslit og þess háttar. Vonandi sjá
skipuleggjendur næsta heimsmeist-
aramóts sér hag í því að hafa þessa
hluti á hreinu á næsta móti. Næsta
heimsmeistaramót veður haldið í
Brunnadern í Sviss 2009.
Vonbrigði Jóhann Skúlason, sitjandi heimsmeistari í tölti, fetar á Hvin frá Holtsmúla eftir að skeifa fór undan.
Fræknir félagar Þórarinn Eymundsson átti
góða innistæðu fyrir því að fagna á heims-
meistaramótinu á Krafti frá Bringu, enda tvö-
faldir heimsmeistarar á ferð.