Morgunblaðið - 13.08.2007, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 2007 11
FRÉTTIR
ALDREI hafa jafnmargir lagt leið
sína á Fiskidaginn mikla á Dalvík en
þegar mest var voru yfir 35 þúsund
manns staddir í bænum.
Fjölmargir voru komnir í bæinn
þegar á fimmtudeginum en sjálfum
Fiskideginum var fagnað á laug-
ardaginn. Þegar leið á daginn hafði
myndast biðröð inn í bæinn og var
umferðin afar þétt á Dalvíkur-
afleggjaranum.
„Matarskammtarnir voru rúm-
lega hundrað þúsund og það gekk
vel að koma þeim út,“ segir Júlíus
Júlíusson, framkvæmdastjóri hátíð-
arinnar. Lagerinn sem geymir af-
gangsskammtana hefur aldrei verið
jafntómlegur að sögn Júlíusar og
mun stjórn hátíðarinnar hittast inn-
an skamms og ákveða hvaða hjálp-
arstofnun fær að njóta afganganna.
Júlíus segir Dalvíkinga vera í
skýjunum yfir hve vel tókst með há-
tíðina en umgengni gestanna var til
fyrirmyndar: „Hún var eiginlega
lygileg, á tjaldsvæðunum var varla
tyggjóbréf að sjá. Miðað við þennan
mannfjölda á þetta eiginlega ekki að
vera hægt.“
Morgunblaðið/Hjálmar S. Brynjólfsson
Mergð Talið er að yfir 35.000 manns hafi verið á Dalvík þegar mest var.
Metfjöldi á Fiskidegi
Alþjóðlegt Starfsmenn fyrirtækisins Sölku klæddu sig að nígerískum sið en það flytur ýmsar fiskafurðir þangað.
HINSEGIN dagar voru haldnir um
helgina og var hápunktinum náð á
laugardaginn þegar gleðigangan
hélt í allri sinni dýrð niður Lauga-
veginn.
Að mati lögreglunnar fylgdust
rúmlega 50 þúsund manns með her-
legheitunum en aldrei hafa jafn-
margir lagt leið sína í bæinn til að
taka þátt í hátíðahöldunum og
berja skrautleg atriði göngunnar
augum. Þegar fyrst var farið í
gönguna fyrir sjö árum mættu um
15 þúsund manns þannig að fjöld-
inn hefur vaxið gríðarlega.
Veðurblíðan sem lék við höf-
uðborgarbúa á laugardaginn hefur
eflaust haft sitt að segja um þennan
metfjölda en hitinn náði allt að
sautján stigum og var himinninn
heiðskír seinnipartinn. Það leikur
þó ekki nokkur vafi á að hvort sem
veðrið hefði verið gott eður ei hefði
fjöldi fólks lagt leið sína í miðbæ
Reykjavíkur enda hátíðin búin að
festa sig í sessi sem einn fjölmenn-
asti og líflegasti viðburður borg-
arinnar.
Fór fram úr björtustu vonum
„Þetta tókst frábærlega vel í alla
staði og allt gekk upp,“ segir Þor-
valdur Kristinsson, forseti Hinsegin
daga. „Meira að segja veðrið var
okkur hagstætt og þátttakan fór
fram úr okkar björtustu vonum.“
Um þrjátíu atriði voru í göngunni
sem aldrei hefur verið stærri eða
lengri.
Þorvaldur telur erlenda gesti
sem komu sérstaklega til landsins
vegna hátíðarinnar hafa skipt
hundruðum. Þá hafi líka samkyn-
hneigðir Íslendingar, sem búsettir
eru erlendis, komið til landsins sér-
staklega til að vera viðstaddir há-
tíðina en margir hverjir flúðu land
forðum daga.
„Líf samkynhneigðra snýst um
svo margt annað en réttindabar-
áttu. Það snýst um sjálfsvirðingu og
það að lifa í samfélagi við annað
fólk og til þess að svo megi takast
þurfum við stöðugt að undirstrika
að við erum til og erum sýnileg,“
segir Þorvaldur. „Það er ekkert
betra til þess að staðfesta tilveru
okkar en einmitt Hinsegin hátíð að
sumri til í dagsbirtu þannig að til-
gangur hátíðarinnar tekur aldrei
enda. Á hverju ári kemur mikill
fjöldi ungs fólks í gönguna í fyrsta
sinn sem ekki treysti sér árið áður
þannig að gangan hefur eilífan til-
gang til staðfestingar á lífi okkar.“
„Gangan hefur eilífan tilgang“
Morgunblaðið/Júlíus
Metfjöldi Að mati lögreglunnar voru yfir 50 þúsund manns sem tóku þátt í hátíðahöldum Hinsegin daga á laugardaginn. Veðrið lék við mannfjöldann.
Fögnuður Páll Óskar lét sitt ekki eftir liggja á þessari gleðihátíð. Skrautleg Þessi líflega drottning naut sín vel á háum stalli.