Morgunblaðið - 13.08.2007, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 2007 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
● VON er á nýjum tölum í dag frá
Hagstofunni um vísitölu neyslu-
verðs. Spám greiningardeilda bank-
anna ber ekki alveg saman um hvað
kemur upp úr hatti Hagstofunnar í
dag. Greiningar Kaupþings og Lands-
bankans reikna með 0,1% hækkun á
vísitölunni síðan í júlímánuði en
Glitnismenn spá 0,1% lækkun.
Gangi fyrri spáin eftir þá mun tólf
mánaða verðbólga fara úr 3,8% í
3,5%, en svo lítil hefur verðbólgan
ekki verið í tvö ár, eða síðan í júlí árið
2005. Bönkunum ber saman um að
útsölur og eldsneytislækkun í lok júlí
séu að draga úr verðbólgunni en hátt
húsnæðisverð haldi, sem fyrr, aftur
af lækkunarferli. Bent er á að elds-
neyti hafi síðan verið hækkað í
byrjun ágúst en það sé ekki inni í
væntanlegri mælingu Hagstofunnar í
dag.
Verðbólgudagur í dag
● GENGI japanska jensins hefur
styrkst verulega undanfarinn mánuð
gagnvart íslensku krónunni, meira
en annarra gjaldmiðla. Þannig hefur
jenið hækkað um 13,6% frá 10. júlí
sl. en á sama tíma hefur gengi gjald-
miðla annarra helstu viðskiptalanda
Íslands hækkað um tæp 9%. Banda-
ríkjadalur hefur hækkað um 8,8% en
evra, breskt pund og dönsk króna
um 8,9%. Það hefur færst mjög í
aukana að heimilin í landinu taki lán
í erlendum myntum og hefur jenið þá
verið einkar vinsælt þar sem vextir í
Japan eru með því lægsta sem þekk-
ist. Samhliða hækkun jensins hefur
höfuðstóll þeirra lána sem bundin
eru myntinni hækkað. Hjá bönkunum
fengust ekki nákvæmar upplýsingar
um hlutfall lána í jeni en þó sagt að
um stóran hluta væri að ræða.
Japanska jenið hækk-
að um 14% á mánuði
SAMKVÆMT frásögn breska blaðs-
ins Sunday Telegraph í gær, og vitnað
var til á fréttavef Morgunblaðsins,
gæti útrás íslenskra fyrirtækja til
Bretlands verið lokið í bili. Fjallað er
um fjárfestingar Baugs í Bretlandi og
því haldið fram að fjármögnun þeirra
verði erfiðari nú á tímum mikils óróa
á fjármálamörkuðum heimsins. Útrás
Íslendinga hafi byggst á aðgangi að
ódýru lánsfé, m.a. frá íslensku bönk-
unum Kaupþingi og Glitni, sem og
Royal Bank of Scotland.
Í umfjöllun Sunday Telegraph er
gefið í skyn að fjármögnunarleiðir
Baugs hafi orðið fyrir áföllum. Þessu
neitar Gunnar Sigurðsson, forstjóri
Baugs, í samtali við blaðið. Hann seg-
ir fyrirtækið hafa átt von á samdrætti
á mörkuðum um nokkurn tíma og
bendir á að Baugur hafi látið lítið fyrir
sér fara á þessu ári hvað yfirtökur
varðar. Fyrirtækið hafi haldið að sér
höndum í fjárfestingum, m.a. vegna
þess að fyrirtækin hafi verið verðlögð
of hátt. Af þeim sökum geti Baugur
mætt áföllum á fjármálamarkaði og
greiðslur afborganir af lánum séu vel
viðráðanlegar.
80 milljarða kaupgeta
Gunnar bendir á að þrátt fyrir tölu-
verða kaupgetu, upp á nærri 80 millj-
arða króna, hafi fyrirtækið varið mikl-
um tíma í að byggja upp og endur-
skipuleggja félög í eigu þess.
Segir Sunday Telegraph að Baug-
ur hafi á undanförnum árum notið
velgengni í Bretlandi og verið í lát-
lausum verslunarleiðangri. Orðið sér
úti um þekkt vörumerki á borð við
House of Fraser, Hamleýs og Oasis.
Eru eignir Baugs í Bretlandi metnar
á 1,5 milljarða punda, jafnvirði nærri
200 milljarða króna. Baugur hafi fjár-
magnað fjárfestingar sínar með
þrennum hætti.
Í fyrsta lagi afli fyrirtækið fjár-
magns með því að kaupa og selja
hlutabréf í fyrirtækjum. Þannig hafi
Baugur grætt 50 milljónir punda á því
að kaupa hlutabréf í Marks & Spenc-
er á síðasta ári og selja aftur á réttum
tíma. Í öðru lagi geri það fjármögn-
unarsamninga við banka á borð við
Kaupþing, Glitni og Bank of Scotland
sem hafi veitt félaginu lán sem nemi
hundruðum milljóna punda. Í þriðja
lagi endurfjármagni Baugur fyrir-
tæki, sem félagið eignist, og noti það
fé sem þannig aflast í aðrar fjárfest-
ingar. Frá því í vor hafi verslunar-
keðjurnar Iceland og Jane Norman
verið endurfjármagnaðar og afrakst-
urinn sé 422 milljónir punda.
Íslenska útrásin til
Bretlands á enda?
Forstjóri Baugs segir fyrirtækið hafa haldið að sér höndum
Útrás Baugur rekur fjöldann allan af verslunum og fyrirtækjum í Bret-
landi og meðal þeirra eru skartgripaverslanir Mappin & Webb í London.
Morgunblaðið/Golli
Sérfræðingar
sem við-
skiptablöð á borð
við Financial
Times og Wall
Street Journal
vitna til um
helgina spá
áframhaldandi
óróa á fjár-
málamörkuðum
þessa vikuna og
líkur á að verð hlutabréfa haldi
áfram að falla. Hætt sé við að já-
kvæðar hagtölur og gróðafréttir
skráðra fyrirtækja muni litlu
breyta þar um. Búist er við að
seðlabankar haldi áfram að spýta
inn lausafé á markaðina en skiptar
skoðanir hafa verið um tilætluð
áhrif þeirra inngripa, þær jafnvel
sagðar hafa virkað sem olía á eld-
inn. Á vef FT í gærkvöldi var reikn-
að með að evrópski seðlabankinn
færi fram á gjaldeyrisskipti við
þann bandaríska, til að geta lánað
evrópskum bönkum dollara til
skammtímafjármögnunar.
Rauðri viku
spáð áfram
Kauphöll Heldur
óróinn áfram?
SAMNINGAR hafa verið gerðir um
kostun á dagskrá Sýnar 2 til næstu
þriggja ára, en sjónvarpsstöðin hóf
um helgina útsendingar á enska
boltanum, sem síðasta tímabil voru
á Skjásporti Símans.
Kostunaraðilar eru Vodafone,
10-11, Iceland Express og trygg-
ingafélagið Vörður. Mun þetta vera
einn stærsti slíki samningur í sögu
íslensks sjónvarps, að sögn Ara Ed-
wald, forstjóra 365.
Kosta Sýn 2