Morgunblaðið - 13.08.2007, Side 14

Morgunblaðið - 13.08.2007, Side 14
14 MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Í HNOTSKURN »Pervez Musharraf, forsetiPakistans, hvatti til taf- arlausra aðgerða til að „bjarga“ Pakistan og Afgan- istan frá íslamistum. » Hann sagði afturhalds-stefnu og ofbeldi þeirra hindra framfarir í löndunum. Kabúl. AP, AFP. | Fjögurra daga frið- arráðstefnu um 700 ættflokkahöfð- ingja, þingmanna, klerka og fleiri áhrifamanna í Afganistan og Pakist- an lauk í Kabúl í gær með fyrirheit- um um að uppræta hryðjuverkahópa í löndunum tveimur og berjast gegn ópíumútflutningi sem íslamskir öfgamenn stunda til að fjármagna uppreisn gegn yfirvöldum. Ráðstefnan var haldin til að ræða leiðir til að uppræta hryðjuverkanet- ið al-Qaeda og talibana-hreyfinguna í löndunum tveimur. Fulltrúarnir hétu því einnig í yf- irlýsingunni að beita sér fyrir sáttum við þá talibana sem fallast á að við- urkenna ríkisstjórn Hamids Karzais, forseta Afganistans. Stofnað verður sérstakt ráð, skipað 25 mönnum frá hvoru landi, til að stuðla að slíkum sáttum. Heita því að uppræta íslamskar öfgahreyfingar BANDARÍSKI loftfimleikamaðurinn Russell Spark í hjóli sem snýst á fjölleikasýningu í verslunarmiðstöð í Taguig-borg á Filippseyjum. Sýndar voru „mann- knúnar vélar“, auk loftfimleika. Reuters Mannknúnar vélar sýndar ÆVAFORN kýprusviðarskógur hefur fundist í Ungverjalandi og talið er að hann sé um átta milljón ára gamall, að sögn breska rík- isútvarpsins, BBC. Fornleifafræðingar fundu sextán vel varðveitta trjástofna í opinni kolanámu í borginni Bukkabrany í norðvesturhluta landsins. Trén hafa varðveist í heilu lagi en stærstur hluti skógarins breytt- ist í kol. Talið er að sandstormur hafi orðið á svæðinu og að sand- urinn hafi náð að vernda þau tré sem fornleifafræðingarnir fundu. Vonast er til þess að skógurinn varpi ljósi á hvernig loftslagið var á jörðinni fyrir átta milljónum ára. Um er að ræða stóra trjástofna sem eru þekktir sem mýrar- kýprusviður, sem óx í 200 til 300 ár. Stofnarnir eru 2-3 metrar í þvermál og 6 metrar á hæð. Þeir standa neðst í kolanámunni. Nú óttast menn þó að trén verði að engu þar sem búið er að fjarlægja efnið sem hefur varið þau öll þessi ár. Af þeim sökum hefur verið gripið til skjótra aðgerða til að varðveita þau eftir að tilraun til þess að flytja eitt af trján- um á brott mistókst. Fundu átta milljóna ára gamlan kýprusviðarskóg Ævafornir trjástofnar. FUNDIST hefur skjal í safni aust- ur-þýsku öryggislögreglunnar sem sannar að landamæraverðir fengu skýr fyrirmæli um að skjóta fólk sem reyndi að laumast yfir landa- mæri Austur-Þýskalands fyrir hrun Berlínarmúrsins. „Hikið ekki við að beita skotvopnum ykkar, jafnvel þegar menn fara yfir landamærin í fylgd kvenna og barna en það er að- ferð sem svikararnir hafa oft not- að,“ sagði í skjalinu. Stjórnvöld í Austur-Þýskalandi sögðu að aðeins hefði verið skotið á fólk ef öll önnur úrræði dugðu ekki, til að mynda viðvörunarskot upp í loftið. Blóði úthellt Minnst 1.245 manns létu lífið á flótta frá A-Þýskalandi. AP Vörðum var skipað að skjóta fólk til bana við landamærin CECILIA Sarkozy hefur getið sér orð fyrir að vera óútreiknanleg í hlutverki sínu sem forsetafrú Frakklands og hún er nú talin hafa sniðgengið George W. Bush, for- seta Bandaríkjanna, og eiginkonu hans um helgina þegar hún var þar í heimsókn ásamt Nicolas Sarkozy forseta. Sarkozy-hjónunum var boðið í skemmtiferð í grennd við sumarbústað Bush-hjónanna en franska forsetafrúin afboðaði komu sína á síðustu stundu og kvartaði yfir hálskvilla. Síðar sama dag sást hún á göngu með tveimur vinum sínum. Bush kvaðst vera „vonsvik- inn“ en skilja ákvörðun frúarinnar. Sögð hunsa Bush-hjónin Konulaus Laura og George W. Bush heilsa Nicolas Sarkozy. ALÞJÓÐLEGIR eftirlitsmenn sögðu í gær að þing- og forseta- kosningar sem fram fóru í Sierra Leone á laugardag hefðu verið frjálsar og lýðræðislegar. Mikil kjörsókn var og úrslit kosninganna ættu að liggja fyrir í lok vikunnar. Mikil kjörsókn BANDARÍSKIR björgunarmenn reyndu í gær að bjarga sex námu- verkamönnum sem urðu innlyksa í kolanámu sem hrundi í Utah fyrir viku. Þeir hafa hins vegar varað við því að björgunaraðgerðirnar á staðnum geti staðið í þrjár vikur. Fastir í námu NOURI al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, hefur boðað helstu stjórn- málaleiðtoga landsins til neyð- arfundar í vik- unni til að reyna að bjarga þjóð- stjórn landsins. Nær allir fulltrú- ar súnníta í stjórninni hafa sagt af sér. Að minnsta kosti sautján ráð- herrasæti eru tóm eða skipuð mönnum sem eru hættir að mæta á fundi ríkisstjórn- arinnar. Vonast er til að á neyðarfund- inum náist nýtt samkomulag um hvernig íraskir sjítar, súnnítar og Kúrdar eigi að skipta með sér völd- unum. Stærsti flokkur súnníta féllst á að senda fulltrúa á fundinn. Neyðarfundur boðaður í Írak Nouri al-Maliki TÖLVUÞRJÓTUM hefur tekist að brjótast inn á vefsetur Sameinuðu þjóðanna. Ásakanir um að Banda- ríkjamenn og Ísraelar hafi myrt börn voru birtar á netsvæði sem helgað er yfirlýsingum frá Ban Ki-moon, framkvæmdastjóra SÞ. Brutust í vef SÞ TVEIR menn eru alvarlega særðir eftir að til skotbardaga kom í Kalbakk- en-hverfinu í Ósló í gær. Annar mannanna var einnig með skurðsár eftir samúraísverð, að sögn lögreglu. Hinn maðurinn var með sverð í höndunum þegar hann fannst og aðeins klæddur nærfötum. Þriðji maðurinn slasaðist lítils háttar þegar hugs- anlegir árásarmenn óku á hann, að sögn fréttavefjar Aftenposten í gær- kvöldi. Hermt var að mennirnir þrír væru tamílar frá Sri Lanka. Lögreglan leit- aði í gærkvöldi að hópi tamíla sem tengjast hindúamusteri í nágrenninu. Þrír særðust í bardaga í Ósló Bangkok. AP. | Myntlaga vernd- argripir, sem sagðir eru gæddir töframætti, renna út eins og heitar lummur í Taílandi, þótt þeir séu stundum rándýrir og ef til vill ekki al- veg í samræmi við búddatrúna. Verndargripirnir eru kenndir við fornan taílenskan prins, Jatukam Ramathep, og voru fyrst seldir í sunnanverðu landinu árið 1987 fyrir sem svarar 130 krónum en sömu gripir eru nú seldir á jafnvirði rúmra 200.000 króna. Milljónir manna í Taílandi hafa fest kaup á slíkum verndargripum sem eru m.a. seldir á eBay. Hermt er að allt að tvær milljónir króna hafi feng- ist fyrir fágæta Jatukam-vernd- argripi. Verndargripaæðið hefur orðið til þess að fólk hefur brotist inn í versl- anir til að verða sér úti um þá og um 10.000 manns sváfu nótt eina í apríl fyrir utan skóla til að geta keypt verndargripi sem voru seldir þar dag- inn eftir. Kona lét lífið og tugir manna slösuðust í miklum troðningi sem varð þegar stóra stundin rann upp. Jatukam-verndargripir eru út um allt í Taílandi. Auðugir kaupsýslu- menn jafnt sem þátttakendur í póli- tískum mótmælum, kennarar og götusalar eru með slíka verndargripi í von um að þeir bægi hættunum frá og færi hamingju og auð. „Ég lenti í nokkrum bílslysum áð- ur. Þegar ég byrjaði að setja þessa verndargripi í leigubílinn og um háls- inn hefur ekkert komið fyrir bílinn, sama hvað ég keyri mikið og hversu þreyttur ég er,“ sagði Surasak Man- see, leigubílstjóri í Bangkok. „Ég veit ekki hvað þér finnst en konan mín hefur líka fengið nokkra happdrætt- isvinninga og við erum hamingjusam- ari en nokkru sinni fyrr.“ Framleiðendur verndargripanna höfða oft til vonarinnar um auðsæld og gefa þeim nöfn á borð við „flug- ríkur“, „skjótfenginn auður“, „auð- ugur án ástæðu“ og „ríkur fyrir kraftaverk“. Virtur fornleifafræðingur, Srisak Vallibhotama, rakti þetta til efna- hagslegrar hnignunar og pólitískrar óvissu í landinu. „Fólk snýr sér að hindurvitnum þegar því finnst að trúarbrögðin, þjóðfélagið og dóms- kerfið veiti ekki það öryggi og rétt- læti sem fólk þarf.“ Ásókn í verndargripi sem sagðir eru færa fólki auð AP Töfragripir? Stúlka virðir fyrir sér Jatukam-verndargripi í verslun í Bang- kok. Milljónir Taílendinga hafa keypt slíka gripi í von um auð og hamingju.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.