Morgunblaðið - 13.08.2007, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 13.08.2007, Blaðsíða 17
|mánudagur|13. 8. 2007| mbl.is daglegtlíf Hvað hefur Ísland upp á að bjóða fyrir barnafjölskyldur, sem koma hingað sem ferða- menn? »18 daglegt Það er að mörgu að huga ef það á að fá sér saltvatnsfiskabúr enda margir þættir sem spila saman svo búrið dafni. »19 gæludýr Miklir fjármunir liggja oft í leik- föngum barna, fjármunir sem stundum gæti verið betur fyr- irkomið á bankabókum. »18 fjármál Breska skáldið AlexanderPope sagði eitt sinn aðdómgreindinni væri hægtað líkja við úr, ekkert þeirra gengi eins en allir trúa sínu eigin úri best. Þetta á vel við í dag, þegar tími handtrekktu og sjálf- trekktu úranna er komin aftur eftir tímabil hátæknilegra en óspennandi kvartsúra. Tískan gengur hins vegar alltaf í hringi og síðustu tvo áratugi hefur sjálfvirku úrunum vegnað vel, bæði í sölu nýrra úra, en einnig hefur sala á notuðum úrum bókstaflega tekist á loft. Sigurður Björn Gilbertsson er einn þeirra sem fékk áhuga á sjálf- trekktu úrunum mitt í kvartsúra- æðinu sem gekk yfir heiminn. „Ég byrjaði að vinna hjá pabba á sumrin þegar ég var tólf ára að gera við Nintendo-tölvuspil. Ég dundaði mér við þessar viðgerðir í tugatali en síðan þegar ég byrjaði hérna fyr- ir alvöru í kringum tvítugt þá fékk strax rosalega mikinn áhuga á handtrekktum og sjálftrekktum úr- um og þá sérstaklega þessum sviss- nesku. Þá kviknaði áhuginn á því að gera upp þessi úr,“ segir Sigurður en á þeim tíma voru skúffur versl- unarinnar fullar af sjálfvirkum úr- um sem viðskiptavinir höfðu ann- aðhvort gefið eða skilið eftir. Vandamsamt verk Með tíð og tíma varð Sigurður færari í viðgerðum og fór að sér- hæfa sig í því að gera úrin al- gjörlega upp. Þannig er hægt að fá gamalt úr sem lítur út eins og nýtt, þó að eðlilegt slit fái að njóta sín ef það fer úrinu betur. „Í gegnum tíð- ina höfum við mikið verið að gera við gömul úr, t.d. fermingarúr eða erfðagripi. Maður þekkir úrin og veit hvernig þau eiga að vera. T.d. á Rolex er kassinn póleraður nema ofan á eyrunum þar sem hann er burstaður. Áður hafði ég lítið af al- mennilegum verkfærum þannig að það tók mikinn tíma að ná þessu þannig að þetta væri ásættanlegt.“ Það er líka vandasamt að gera upp marga af þessum dýrgripum og verður að hafa í huga, að t.d. Rolex Oyster Perpetual Precision getur hæglega farið á svipuðu verði eða hærra verði en nýtt úr. Þannig eru gömul úr af þessu tagi oft til sölu á um fjögur þúsund dollara eða um 250 þúsund íslenskar krónur. Við uppgerðina þarf einnig að hafa í huga að allt sem ekki stenst skoðun þeirra sem til þekkja rýrir gildi úrs- ins. „Ég fletti upp númerinu á þessu úri og það benti til þess að úrið væri frá svona 1942-1946,“ segir Sig- urður um úrið sem hann handleikur og því ljóst að þar er nokkur merk- isgripur á ferð. Það er jafnframt fyrsta úrið sem Sigurður gerði upp frá grunni og lítur út sem nýtt þrátt fyrir að vera rúmlega sextíu ára gamalt – og auðvitað gengur það eins og klukka. Vindur upp á sig Sigurður segir vinnu sína hafa kveikt áhuga hjá öðrum sem hafa þá farið út í að safna sjálfir úrum, enda af nógu að taka því í raun er ekki vitað hve lengi vandað úr endist – víst er þó að það geta verið ansi margar kynslóðir. Sigurður og faðir hans Gilbert úr- smíðameistari standa einmitt að framleiðslu sinna eigin sjálfvirku úra, JS Watch co., í félagi við tvo aðra áhugamenn, þá Júlíus Steinar Heiðarsson og Grímkel Pétur Sig- urþórsson, og er framleiðslan ein- mitt sprottin upp úr úraáhuga Sig- urðar. Og eins og til að undirstrika þetta klingja bjöllurnar á útidyrahurðinni er blaðamaður er að kveðja og inn ganga roskin erlend hjón og spyrja hvar íslensku úrin séu. ingvarorn@mbl.is Sjálftrekktu úrin eru sígild Morgunblaðið/G. Rúnar Smáatriði Það þýðir ekkert að vera skjálfhentur. Hér setur Sigurður Björn Gilbertsson saman sjálftrekkt armbandsúr úr fjölda smáhluta. Tími handtrekktu og sjálftrekktu úranna er kominn aftur eftir tímabil hátæknilegra en óspenn- andi kvartsúra. Ingvar Örn Ingvarsson kynnti sér gangverk þessarar tísku og tók Sigurð Björn Gilbertsson úraframleið- anda tali en hann á mikið safn af gömlum úrum. Flókið Úrverkið í Chronograph-úri er afskaplega flókið og mikil lista- smíði. Úrið heldur útliti sínu og heldur því sínum einkennum og er því mátulega snjáð og slitið en að sjálfsögðu ástandi með tilliti til verksins. Safn Sigurður á stórt safn af gæða úrum og hér sést hluti þeirra. Í kassanum eru m.a. nokkur Rolex úr, IWC, Girard Perregaux, Omega, Longines ofl. ÞAÐ var japanska fyrirtækið Seiko sem framleiddi fyrsta kvartsúrið ár- ið 1969, en þá hófst mikil framleiðsla úra, sem oft báru með sér gæðalegt yfirbragð sjálftrekktu úranna sem áður höfðu verið vinsælust. Kvarts- úrin voru þó, tækninnar vegna, mun ódýrari enda kröfðust þau ekki sömu færni og þarf til að hanna, smíða og setja saman sjálfvirkt úr. Afleiðingin varð sú að halla fór und- an fæti hjá mörgum af frægustu úra- framleiðendum heims sem brugðust gjarnan við með því að hefja eigin framleiðslu á kvartsúrum. Saga kvartsúranna Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.