Morgunblaðið - 13.08.2007, Side 18

Morgunblaðið - 13.08.2007, Side 18
fjármál fjölskyldunnar 18 MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ Einu sinni voru piltur ogstúlka. Þau átt legg ogskel og léku sér að þeimstundunum saman. Þetta var á 19. öld. Þá voru strákur og stelpa. Strákurinn átti Star Wars Lego, Playmobil, PlayStation, reið- hjól, fótbolta, púsluspil, bækur og kubba svo aðeins fátt eitt sé nefnt. Stelpan átti margt af því sama og auk þess Bratz-dúkkur og Barbie. Samt var eins og þau vissu aldrei hvað þau áttu að leika sér með. Þetta var á önd- verðri 21. öldinni. Og svo kvörtuðu þau sáran yfir að vanta hitt og þetta í safnið. Það var eins og þau væri aldrei alveg ánægð. Þau áttu svo sem ekki langt að sækja það. Fullorðna fólkið á 21. öld- inni var svolítið svoleiðis. Það hélt að til þess að láta sér ekki leiðast þyrfti það sífellt að vera að kaupa hluti, safna hlutum, henda hlutum og kaupa nýja hluti. Blessuð börnin læra það sem fyrir þeim er haft. Svo herbergin þeirra voru full af dóti. Fullorðna fólkið þótt- ist auðvitað ekkert skilja í þessu – eins og börnin hefðu farið sjálf að kaupa allt þetta dót! Hið sanna var, að fullorðna fólkið var eins og jólasveinar – allt árið. Það færði börnunum ekki bara gjafir þegar þau áttu afmæli eða á jólunum, það gaf þeim dót í tíma og ótíma. En svo fussaði það og sveiaði yfir því hvað nútímabörn ættu mikið af dóti, eins og það væri börnunum að kenna og sagði að þetta hefði verið allt öðruvísi þegar það var að alast upp. Samt hélt það áfram að gefa börnunum svona mikið dót. Fullorðna fólkið á öndverðri 21. öldinni fór reglulega í gegnum dótið sitt til þess að henda því sem því fannst gamalt og ljótt en miklu sjaldnar fór það í gegnum barna- herbergin, ef til vill vegna þess að því fannst einhvern veginn erfiðara að henda barnadóti en fullorðins. Nei-ið er mikilvægt Góð leikföng eru jafnmikið gull í dag eins og í gamla daga. Þau þroska börn og efla. En lítið inn í barna- herbergin, farið í gegnum dótið og metið hversu miklir peningar liggja í dótinu þar. Verðmætinu í gullinu verða ekki metin til fjár en draslið mætti geyma á betri stöðum eins og á bankabókum barnanna. Undir drasl flokkast dót sem er óvandað og eyði- leggst fljótt, er lítt þroskandi og oft- ast aðeins stundargaman en kostar samt peninga. Bankabókin getur nýst í framtíð- inni, það gerir dótið ekki. Það verður án efa komið í svartan plastpoka og í Sorpu áður en áratugurinn er úti – án þess að nokkurn tímann nokkur hafi leikið sér með það að ráði. And- virði dótsins gæti hins vegar verið drjúgur framtíðarsjóður. Það er því mikilvægt fyrir full- orðna fólkið að hugsa sig þrisvar um áður en það gefur barninu gjöf. Í fyrsta lagi: Er leikfangið þroskandi fyrir barnið? Í öðru lagi: Hefur barn- ið þörf eða not fyrir leikfangið? Og í þriðja lagi: Hversu lengi mun leik- fangið endast? Í neyslusamfélagi nútímans getur peningagjöf stundum komið sér bet- ur, jafnvel fyrir barn sem þá fær tækifæri til þess að skipuleggja sjálft hvað það gerir við peningana sína. Samfélagið hefur líka breyst og góð- ur undirbúningur fyrir lífið, eins og menntun, skiptir sífellt meira máli fyrir starfsval og frama. Menntun getur verið af margvíslegum toga og kostnaðarsöm, eins og að fara sem skiptinemi, og þá getur verið gott að eiga framtíðarsjóð að grípa til. Nauðsynlegt orð í orðasafni for- eldra er orðið nei. „Nei“ er hins vegar ekkert svar eitt og sér. Það er mjög mikilvægt að útskýra ástæðuna að baki og fara í gegnum ferlið miðað við þroska barnsins svo það geri sér grein fyrir hvers vegna það fær ekki leikfangið sem verið er að auglýsa í sjónvarpinu eða það sem er í litskrúð- uga auglýsingabæklingnum. Það þýðir heldur ekkert að segja: „Mamma fékk nú aldrei svona þegar hún var lítil.“ Í því felst sáralítil út- skýring fyrir barnið sem ef til vill langar í leikfangið eftir sem áður. Flest börn geta hins vegar skilið hvers vegna sumt er hægt og annað ekki sé það útskýrt fyrir þeim. Sam- ræður barna og fullorðinna er því besti undirbúningurinn undir líf í neysluheimi. uhj@mbl.is Leggðu leikföngin inn á banka- reikning Morgunblaðið/Ómar Ofgnótt leikfanga Það er mikilvægt fyrir fullorðna fólkið að hugsa sig þrisvar um áður en það gefur barninu gjöf. Í fyrsta lagi: Er leikfangið þroskandi fyrir barnið? Í öðru lagi: Hefur barnið þörf eða not fyrir leikfangið? Og í þriðja lagi: Hversu lengi mun leikfangið endast? Góð leikföng eru jafnmikið gull í dag og á fyrri tímum. Þau þroska börn og efla. En lítið inn í barnaherberg- in, farið í gegnum dótið og metið hve miklir fjármunir liggja í dótinu. Verðmætin í gullinu verða ekki metin til fjár en draslið, segir Unnur H. Jóhannsdóttir, má geyma á betri stað eins t.d. á bankabókum barnanna.                   !   " # $ " "  " %&'  #(  "  # $  ()  *% " ! "  + "                                !"  #     $%&          '    (   $ '  ' %   )    '       '        $   $       *     Vicky Hansen er 35 ára einstæð móð- ir sem er hingað komin til að heim- sækja íslenska vinkonu sína sem bjó lengi í Danmörku. „Þannig spara ég strax mikla pen- inga, þ.e. með því að gista frítt,“ segir Vicky og hlær glaðlega. “Hins vegar hefur Reykjavík komið á óvart hvað varðar möguleika á ókeypis og ódýr- um stöðum sem hægt er að heim- sækja ásamt börnum sínum. Það vantar þó helst einhvers konar yfirlit í formi bæklings eða þess háttar þar sem góðir, ódýrir og spennandi stað- ir fyrir börn og fullorðna eru tíund- aðir.“ Ekki svo galin hugmynd þar sem ferðamannastraumurinn til landsins eykst stöðugt. Líklegast er þó enn nokkuð langt í land að sjá Ís- land auglýst sem paradís barna- fjölskyldanna, eða hvað? „Reykjavík er tilvalin fyrir ferðamenn með börn að sækja heim,“ segir Vicky. „Og það er nú ekki bara af því að ég fæ fría gistingu hér að ég valdi landið. Ég hef verið ein með son minn síðan hann var 8 mánaða og síðan þá hef ég reynt margs konar ferðamáta. Þegar sonur minn var 2ja ára fór ég ásamt honum og nokkrum vinkonum í sól- Er Ísland barnvænt land fyrir ferðamenn? Ljósmynd/ Halldóra Traustadóttir Mæðgin Vicky Hansen og sonurinn Arthur skemmtu sér konunglega við að gefa öndum við Reykjavíkurtjörn. Hvað hefur Ísland upp á að bjóða fyrir barnafjöl- skyldur sem koma hingað sem ferðamenn og hafa ekki alltof marga peninga í vasanum? Halldóra Traustadóttir hitti einn slíkan ferðamann með 5 ára syni sínum við Tjörnina í Reykjavík  Börn eru forvitin um peninga og áhugasöm að læra um þá. Að kenna börn- um um hringrás þeirra hjálpar þeim að skilja gildi peninga. Fjármálakennsla ætti að leggja áherslu á í uppeldinu þar sem samhengið á milli vinnu og pen- inga er óhlutbundnara nú en þegar peningaseðlar og mynt voru í umferð.  Börn eru eins og aðrir upptekin af því sem þau eiga. Þeirra peningar hafa því meira gildi fyrir þau en annarra. Þau hafa því flest áhuga á að safna pen- ingum. Fyrir þau yngstu er gott að sýna og safna peningunum í hlutbundnu formi til þess að byrja með, það er seðlum og mynt, en síðar má fara með þá í bankann og stofna bankabók.  Börnum áskotnast oft peningar í afmælisgjöf. Sé þeim sýnt fram á gildi þess að safna þeim saman með ákveðið markmið í huga, t.d. til þess að kaupa eitt veglegt leikfang, þá finnst þeim það þjóðráð. Börn þurfa þjálfun í því eins og öðru.  Börn eru flest alvön tölvum og kunna jafnvel betur á þær en fullorðnir. Það er sniðugt að hafa bankabókina þeirra í heimabankanum og leyfa barninu að fylgjast reglulega með tölunum þar. Börn eru flest kappsöm og vilja sjá töluna hækka og leggja því talsvert á sig til þess.  Það eru ýmsar leiðir til þess að gera sambandið á milli vinnu og peninga gegnsærra hjá börnum. Það má greiða þeim fyrir einstök viðvik á heimilinu eða umbuna þeim fyrir skólanám. Ef þau fara með dósir í endurvinnslu í Sorpu þá læra þau að fyrir hverja dós fá þau pening og svo má í einstökum til- vikum gefa þeim dótadraslið sem þau langar að kaupa til þess að leggja inn á bankareikninginn – og kíkja svo á heimabankann! Fjármálaráð fyrir börn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.