Morgunblaðið - 13.08.2007, Side 28
Atvinnuauglýsingar 569 1100
Tollstjórinn í Reykjavík óskar eftir að ráða í stöðu fulltrúa í lögfræðideild á innheimtusviði.
Hjá tollstjóranum starfar hópur hæfileikaríks starfsfólks sem hefur það að markmiði að
veita góða og skilvirka þjónustu og standa vörð um hagsmuni almennings og atvinnulífs.
Lögð er áhersla á símenntun starfsmanna, heilsueflingu og góðan aðbúnað.
Stúdentspróf eða samsvarandi menntun.
Staðgóð almenn tölvukunnátta.
Gott vald á íslensku, bæði í ræðu og riti.
Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi til að
bera lipurð í mannlegum samskiptum,
séu kurteisir og búi yfir þjónustulund.
Krafist er traustra vinnubragða og
stundvísi.
Hreint sakavottorð.
Almenn afgreiðsla og þjónusta.
Upplýsingagjöf til viðskiptavina.
Móttaka viðskiptavina.
Símsvörun í þjónustuveri.
Undirbúningur vegna fjárnáma.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Athygli er vakin á að
umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
FULLTRÚI
Í LÖGFRÆÐIDEILD
Starfssvið:Menntunar- og hæfniskröfur:
Um er að ræða fjölbreytt verkefni sem hæfa jafnt körlum sem
konum. Áhersla er lögð á metnað og sjálfstæði starfsmanns og vilja
til að sanna sig í starfi. Möguleikar á starfsþróun eru miklir.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum opinberra starfs-
manna. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um
réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Nánari upplýsingar um starfið veita Guðfinna H. Þórsdóttir,
deildarstjóri lögfræðideildar, í síma 560-0442 og Harpa Hallsdóttir,
sérfræðingur á starfsmannasviði, í síma 560-0352.
Umsóknarfrestur er til 26. ágúst nk. Umsóknir merktar „fulltrúi í
lögfræðideild“ ásamt upplýsingum um menntun, fyrri störf,
meðmælendur og annað sem umsækjandi vill taka fram skal skila
til starfsmannasviðs embættisins Skúlagötu 17, 101 Reykjavík
eða í gegnum tölvupóst: starf@tollur.is
Raðauglýsingar 569 1100
Tilboð/Útboð
Auglýsing
um skipulag - Þingeyjarsveit
Tillaga að deilskipulagi vegna Stekkjarbyggðar,
frístundabyggðar í Lundi, Fnjóskadal,
Þingeyjarsveit. Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar
samþykkti 12. apríl að auglýsa tillögu að deili-
skipulagi frístundabyggðar í landi Lunds, skv.
25. grein laga nr. 73/1997 m.s.br. Um er að
ræða stækkun á áður skipulögðu svæði fyrir
frístundabyggð. Hið nýja skipulagssvæði er um
16,4 ha að stærð og liggur norðan núverandi
frístundabyggðar og skammt sunnan túna og
mannvirkja í Lundi og austan Lundsskógar-
vegar sem liggur í gegn um Lundsskóg.
Í tillögunni er gert ráð fyrir lóðum fyrir 26
frístundahús, svæði fyrir 8 til 10 smáhýsi og
reit fyrir golfskála en áætlað er að byggja upp
golfvöll á jörðinni.
Deiliskipulagið verður til sýnis á skrifstofu
Þingyejarsveitar, Kjarna, 650 Laugum frá 14.
ágúst 2007-11. sept. 2007. Nánari upplýsingar
eru veittar á skrifstofu Þingeyjarsveitar. Þá eru
upplýsingar og aðgengilegar á heimasíðu
Þingeyjarsveitar, www.thingeyjarsveit.is.
Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er
gefinn kostur á að gera athugasemdir við
breytinguna og skal þeim skilað skriflega til
skrifstofu Þingeyjarsveitar, eigi síðar en 25.
sept. 2007. Þeir sem ekki gera athugasemd við
tillögun teljast samþykkir henni.
10. ágúst 2007.
Sveitarstjórinn í
Þingeyjarsveit,
Sigbjörn Gunnarsson.
Tilkynningar
BORGARTÚN 3 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 3000 - MYNDSENDIR 411 3090
Auglýsing um breytingu á
Aðalskipulagi Reykjavíkur
Í samræmi við 18. gr. skipulags- og bygging-
arlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér
með auglýst til kynningar tillaga að breytingu á
Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001 - 2024.
Stækkun brunnsvæðis vatnsverndar í
Vatnsendakrikum, Heiðmörk
Gerð er tillaga að stækkun á núverandi brunn-
svæði í Vatnsendakrikum til vesturs, á mörkum
Reykjavíkurborgar og Kópavogsbæjar. Núverandi
grannsvæði vatnsverndar minnkar samsvarandi.
Breytingin nær til sveitarfélagsuppdráttar aðal-
skipulagsins þar sem gerð er grein fyrir vatns-
verndarsvæðum í Vatnsendakrikum í Heiðmörk.
Núverandi brunnsvæði stækkar til vesturs sem
nemur um 12 ha. á kostnað núverandi grann-
svæðis. Tillagan er í samræmi við samsvarandi
breytingar á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins
2001-2024 og svæðisskipulag vatnsverndar á höf-
uðborgarsvæðinu.
Nánar um tillögu vísast til kynningargagna.
Tillagan liggur frammi í upplýsingaskála skipulags-
og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar að Borgartúni
3, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 13. ágúst
2007 til og með 24. september 2007. Einnig má sjá
tillöguna á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is.
Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta
hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og
athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega
eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags-
og byggingarsviðs eigi síðar en 24. september
2007.
Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir inn-
sendar athugasemdir með tölvupósti.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins
frests, teljast samþykkja tillöguna.
Reykjavík, 13. ágúst 2007
Skipulagsstjóri Reykjavíkur
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
SVEITARSTJÓRN Hvalfjarðar-
sveitar hefur samþykkti nýtt
byggðamerki. Sveitarstjórn klofn-
aði í málinu, fjórir fulltrúar voru
fylgjandi samþykkt
en þrír á móti.
Sagt var frá
þessu á fréttavefn-
um skessuhorn.is.
Listum með 161
undirskrift kosn-
ingabærra íbúa var
skilað inn fyrir fundinn í dag en
þar var sveitarstjórn beðin að
fresta staðfestingu merkisins um
allt að eitt ár. Á meðan yrði af-
staða íbúa könnuð sem og vafa-
atriði varðandi lög og reglur.
Minnihlutafulltrúar bókuðu um að
undarlegt væri að ekki væri tekið
tillit til óska íbúanna þegar jafn-
margir og raun ber vitni skrifuðu
undir listann. Samkvæmt tölum frá
Hagstofu Íslands bjuggu um síð-
ustu áramót 441 18 ára og eldri í
Hvalfjarðarsveit þannig að þeir 161
sem skrifuðu undir ósk um frestun
eru um 37% kosningabærra íbúa
sveitarfélagsins. Í síðustu sveitar-
stjórnarkosningum greiddu 366 at-
kvæði í sveitarfélaginu.
Nýtt byggða-
merki samþykkt
28 MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Djúpivogur | Fyrrverandi biskup, séra
Sigurbjörn Einarsson, er ennþá í fullu
fjöri og má með sanni segja að hann beri
aldurinn einstaklega vel. Á dögunum fór
hann m.a. í siglingu til Papeyjar með
ferjunni Gísla í Papey, en báturinn er í
reglulegum áætlunarferðum milli lands
og eyja á sumrin.
Að siglingu lokinni steig Sigurbjörn
léttur á fæti á fasta landið og aðspurður
sagði hann að förin hefði öll verið hin
ánægjulegasta. Mest hefði komið honum á
óvart hve landmikil Papey væri.
Már Karlsson sem umsjón hefur með
Papeyjarferðum tók á móti Sigurbirni á
bryggjunni.
Morgunblaðið/Andrés Skúlason
Ferðir Már Karlsson, umsjónarmaður Papeyjarferða, og séra Sigurbjörn Einarsson.
Léttur á fæti
FRÉTTIR