Morgunblaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv.
Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
EINAR K. Guðfinnsson sjávarút-
vegsráðherra segir að ekki verði gef-
in út ný leyfi til hvalveiða í atvinnu-
skyni fyrr en markaðir fyrir hvalkjöt
opnist. Hann segir að hægar hafi
gengið að koma kjötinu á markað í
Japan en menn hafi séð fyrir.
Núverandi fiskveiðiári lýkur um
mánaðamótin og segir ráðherra að
ekki verði gefin út ný leyfi að svo
stöddu „Ég hef ekki talið að það væri
sérstakt tilefni til að taka þessi mál
til skoðunar vegna þeirrar óvissu
sem ennþá er uppi varðandi sölu á af-
urðunum. Ég tel að það þjóni engum
raunverulegum tilgangi að huga að
útgáfu á frekari kvóta á meðan sala
hefur ekki gengið fyrir sig,“ segir
Einar.
Reynslan af veiðunum góð
Hann segir ekki víst hvenær eða
hvort svo verður. „Það er auðvitað
mín stefna að það verði þannig.
Reynslan af hvalveiðum okkar í
fyrra var góð. Veiðarnar gengu vel
og allur ótti manna um að þær hefðu
neikvæð áhrif var ástæðulaus. Ég
hafði sjálfur áhyggjur af að þær
gætu haft áhrif til skamms tíma en
sem betur fer hafði ég á röngu að
standa. Það voru hvorki slæm áhrif
af veiðunum til lengri né skemmri
tíma.“
Einar segir að forsenda veiða sé að
markaður sé fyrir vöruna. „Við vit-
um að það er áhugi á japanska mark-
aðnum fyrir hvalkjötinu.“ Áður en ný
vara sé flutt á markaðinn þurfi hins
vegar að ganga frá ýmsum gæðamál-
um og það hafi gengið hægar en
menn hafi átt von á. „Ég trúi ekki
öðru en að markaðurinn muni opn-
ast. Það er ekkert í alþjóðalögum
sem bannar slík viðskipti.“
Aðspurður hvort ekki sé eðlilegt
að þeir útgerðarmenn sem stundi
hvalveiðar fái tækifæri til að láta
reyna á markaðinn segir Einar að
slík tækifæri séu fyllilega til staðar.
„Ég hef ekki orðið var við að um það
sé deilt. Þeir eiga vöruna tiltæka og
geta látið á þetta reyna með sýna-
töku og öðru, þannig að þetta hamlar
ekki á nokkurn hátt tilraunum
manna til að koma þessu í verð í Jap-
an.“
Einar segir það líka jákvætt og
áhugavert að innlendi markaðurinn
hafi tekið vel við hrefnukjöti og sala
hafi gengið vel.
Segir sönnunarbyrðina
lagða á hvalveiðimenn
Árni Finnsson, formaður Náttúru-
verndarsamtaka Íslands, segist
fagna ákvörðun ráðherra. „Mér
finnst þetta mjög skynsamleg
ákvörðun hjá sjávarútvegsráðherra.
Það er alveg ljóst að með þessu legg-
ur hann sönnunarbyrðina á hval-
fangarana. Þeir verða að sýna fram á
að það sé markaður fyrir vöruna í
Japan.“ Árni segir að þetta sé breyt-
ing frá því í fyrra þegar leyfin til at-
vinnuveiðanna voru gefin út. „Þá
keypti ráðherrann köttinn í sekkn-
um. Hann trúði því að þeir gætu flutt
kjötið út en annað hefur komið á dag-
inn. Nú hefur hann vaðið fyrir neðan
sig og segir að þeir verði að sýna
markaðinn áður en leyfi verða veitt.“
Árni telur að á næstu misserum
muni koma berlega í ljós að enginn
markaður sé fyrir vörurnar. „Og þá
er spilið búið. Ég tel að það sé lag
fyrir íslensk stjórnvöld að nýta sér
þessa ákvörðun og byggja betur
undir hvalaskoðun.“
Sjávarútvegsráðherra mun ekki gefa
út ný leyfi til hvalveiða í atvinnuskyni
Ekki forsendur fyrir frekari veiðum á hvölum meðan Japansmarkaður er lokaður
Morgunblaðið/RAX
Dregin á land Alls voru gefin út leyfi sl. haust fyrir veiðum á níu lang-
reyðum og 30 hrefnum í atvinnuskyni á yfirstandandi fiskveiðiári.
Í HNOTSKURN
»Síðastliðið haust gaf sjáv-arútvegsráðherra út leyfi
til atvinnuveiða á hvölum.
»7 langreyðar veiddust þáum haustið og 7 hrefnur af
atvinnuveiðakvótanum.
»Skiptar skoðanir eru ummálið innan ríkisstjórn-
arinnar. Umhverfisráðherra
hefur lýst sig andsnúinn veið-
unum.
»Sjávarútvegsráðherra seg-ir hvalveiðimenn geta haf-
ið útflutning þótt ný leyfi séu
ekki gefin út. Opnist mark-
aðurinn þá vilji hann gefa út
fleiri veiðileyfi.
inni og húsnæðið sé orðið of lítið
fyrir vaxandi fjölda nemenda. Með
nýju byggingunni fer öll starfsemi
og kennsla fram á einum stað.
Svafa segir það mjög góða til-
finningu að sjá verkið hafið en
mjög lengi var unnið að því þar sem
hönnunin var afar vandasöm. „Við
vildum tryggja að umhverfið og
húsið spiluðu vel saman. Þetta er
lágreist bygging sem kúrir í hlíð-
inni og það verður gaman að sjá
þetta verða að veruleika.“ Svafa
segir skólann verða opinn borg-
arbúum og að mikið tillit hafi verið
tekið til þarfa borgarbúa sem vilji
njóta náttúrunnar í Öskjuhlíðinni. Í
húsnæðinu verði m.a. kaffihús,
bókabúð, bókasafn og gallerí.
Listin hönnuð inn í húsið
HR hefur gert samning við sjö ís-
lenska myndlistarmenn um að þeir
leggi fram tillögur að listrænum
FYRSTA skóflustungan að nýrri
byggingu Háskólans í Reykjavík
við rætur Öskjuhlíðar var tekin í
gær. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarstjóri tók skóflustunguna við
hátíðlega athöfn en húsnæðið verð-
ur um 35 þúsund fermetrar að
stærð – ein stærsta bygging
Reykjavíkur. Gert er ráð fyrir að
hluti aðstöðunnar verði tilbúinn
undir kennslu í upphafi skólaárs
2009 en stefnt er að því að öll starf-
semi háskólans verði komin í hús-
næðið haustið 2010.
„Það er verið að byggja háskóla
sem verður einn best útbúni háskóli
í Evrópu,“ segir Svafa Grönfeldt,
rektor Háskólans í Reykjavík, „og
það gefur okkur gríðarleg tækifæri
til sóknar, bæði utanlands og innan-
lands.“ Þá segir hún bygginguna
hafa afar praktískt gildi fyrir skól-
ann þar sem kennsla fari nú fram á
fjórum mismunandi stöðum í borg-
þáttum í nýbyggingunni en hún er
enn á hönnunarstigi. Þessi samn-
ingur er sagður marka ákveðin
tímamót í samvinnu arkitekta og
myndlistarmanna en listamennirnir
munu fá meira svigrúm og frjáls-
ræði um hlutverk listrænna þátta í
byggingunni en venja hefur verið.
„Það er svo gaman að fá listamenn-
ina snemma í ferlinu því yfirleitt er
listin sett inn í húsið eftir á en með
þessu móti tekst okkur í rauninni
að hanna listina inn í húsið,“ segir
Svafa en að hennar mati er aðkoma
listamannanna mjög í anda HR þar
sem starfsmenn skólans leggi mikið
upp úr frjálsri og skapandi hugsun.
Hún segir þar ríkja ákveðinn anda
og vel takist að fanga hann með því
að ögra skynfærunum en ekki ein-
ungis einblína á fræðigreinarnar.
Í haust mun dómnefnd velja þá
listamenn sem eiga þess kost að
þróa hugmyndir sínar áfram.
Verður ein af stærstu bygg-
ingum Reykjavíkurborgar
Fyrsta skóflustungan tekin að nýrri háskólabyggingu
Morgunblaðið/Golli
Kyndillinn afhentur Sveinn Kristjánsson, formaður stúdentafélags HR, afhendir Svöfu Grönfeldt rektor kyndil
sem hópur nemenda hljóp með umhverfis tilvonandi byggingarsvæði til að helga sér það að fornum sið.
ust fíkniefni í fórum
þess. Í framhaldinu
var leitað þar sem
parið gisti og þar
fundust fíkniefni sem
talin eru vera kókaín,
samtals um 1,9 kg.
Karl Steinar Vals-
son, yfirmaður fíkni-
efnadeildar lögregl-
unnar á höfuðborgar-
svæðinu, sagði að í svona málum
ætti sér stað samvinna milli lög-
regluyfirvalda í löndunum tveimur.
Parið ætti hins vegar von á ákæru
í Danmörku og yrði dæmt fyrir
dönskum dómstólum.
Fíkniefnin voru
á leið til Íslands
Tekin með tvö kg af kókaíni í Danmörku
LÖGREGLAN á Ís-
landi hefur ástæðu til
að ætla að par sem er
í haldi lögreglunnar í
Kaupmannahöfn hafi
ætlað að flytja tæp-
lega tvö kíló af kók-
aíni til Íslands. Um er
að ræða 36 ára karl-
mann og stúlku sem
er undir tvítugu.
Karlmaðurinn hefur áður fengið
dóm fyrir fíkniefnamisferli hér á
landi.
Danskir lögreglumenn höfðu af-
skipti af parinu í miðborg Kaup-
mannahafnar 11. ágúst sl. og fund-
ROLF Johansen, stór-
kaupmaður, lést í
Reykjavík fimmtudag-
inn 23. ágúst, 74 ára að
aldri. Rolf var frum-
kvöðull á sviði innflutn-
ings til landsins upp úr
miðri síðustu öld og rak
um hálfrar aldar skeið
fyrirtæki sem bar nafn
hans.
Rolf fæddist á Reyð-
arfirði 10. mars 1933,
frumburður hjónanna
Thulins Johansen full-
trúa og Svövu Þorgerð-
ar Þórhallsdóttur Jo-
hansen.
Rolf ólst upp á Reyðarfirði og
stundaði síðan nám í Verslunarskól-
anum og í Samvinnuskólanum á Bif-
röst. Hann hóf ungur að þreifa fyrir
sér í sölumennsku og innflutningi.
Fyrirtæki sitt, Rolf Johansen &
Company, stofnaði hann fyrir liðlega
50 árum. Fyrirtækið er enn í fullum
rekstri þótt það hafi tekið breyting-
um í takt við breytta
viðskiptahætti.
Rolf var frumkvöðull
í innflutningi vara frá
Austurlöndum fjær, en
fyrirtækið flutti inn
japanska hjólbarða um
alllangt skeið. Fyrir-
tæki hans flutti inn
margar vörutegundir
og var m.a. um árabil
umfangsmikið í inn-
flutningi á áfengi og
tóbaki. Rolf reyndi
einnig fyrir sér í út-
flutningi og var líklega
sá fyrsti sem reyndi að
flytja út íslenskt vatn. Þá var Rolf
ræðismaður Mexíkó á Íslandi um
nokkurra ára skeið.
Eftirlifandi eiginkona hans er
Kristín Ásgeirsdóttir Johansen og
eignuðust þau sex börn, Agnesi,
Thulin, Svövu, Berglindi, Ásgeir og
Kristínu, sem öll lifa föður sinn.
Barnabörnin eru orðin fimmtán tals-
ins.
Andlát
Rolf Johansen