Morgunblaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ MENNING TONY Blair, fyrrverandi forsætis- ráðherra Bretlands, hittir útgef- endur í október þar sem hann mun semja um margra milljóna punda samning um út- gáfu á endur- minningum sín- um, að því er Guardian greinir frá. Heimildar- maður segir að bókin verði lík- lega skrifuð í London þar sem Blair muni eiga spjall við skrásetjarann einslega, en viðstaddur verður líka Robert Barn- ett, amerískur lögfræðingur Blair. Random House og Harper Coll- ins, sem eru í eigu Rupert Murdoch- fjölmiðlasamsteypunnar, eru sögð vera hæstbjóðendur í bókina sem gæti fært Blair um fimm milljónir punda. Nokkrar áhyggjur eru af því að minningar Blair gætu skaðað eftir- mann hans í forsætisráðherra- stólnum, Gordon Brown, en þeir tveir hafa átt í nánu samstarfi í gegnum tíðina. Ævisaga Blair Vel borgað fyrir minningarnar Tony Blair LEIKKONAN Claire Danes mun leika í fyrsta skipti á Broadway í október þegar hún tekur að sér hlut- verk Elizu Doo- little í Pygmalion eftir George Bernard Shaw, en margir kann- ast eflaust betur við það leikrit sem söngleikinn My Fair Lady. Eliza er blóma- sölustúlka sem talar með sterk- um cockney-hreim en talmeinafræð- ingurinn Henry Higgins er sann- færður um að hann geti kennt henni að tala eins og dömu og þar með gert hana gjaldgenga hærra í þjóðfélags- stiganum en hún á að venjast. „Þetta er bæði spennandi og ógn- vekjandi,“ segir Danes sem er þó ekki alls ókunnug lykilrullum leik- bókmenntanna því hún átti ein- hverja eftirminnilegustu Júlíu hvíta tjaldsins í mynd Baz Luhrmans, Romeo + Juliet, auk þess að hafa leikið Mariu í Stage Beauty, stúlku sem þráði að leika þegar konum var ekki leyft að stíga á svið og hlutverk þeirra voru leikin af körlum. The Guardian greindi frá þessu. Danes á Broadway Claire Danes NÚ ER síðasta sýningarhelgi Blind Pavilion eftir Ólaf Elías- son. Verkið var sett upp á Sjónarhóli í Viðey í tengslum við Listahátíð 2005 en það var framlag Danmerkur á Feneyj- artvíæringnum árið 2003. Upp- haflega átti verkið aðeins að standa í Viðey í nokkra mánuði en gestir Viðeyjar hafa nú fengið að njóta þess í rúm tvö ár. Niðurtaka á verkinu hefst strax eftir helgi og í kjölfarið verður það flutt til nýrra heimkynna. Í dag verður einnig haldin Viðeyjarhátíð vegna 100 ára afmælis þorpsins í Viðey. Myndlist Blind Pavilion tekið niður Blind pavilion eftir Ólaf Elíasson. Á MORGUN kl. 15 verður opn- uð málverkasýning í Listasal Saltfiskseturs Íslands, Grinda- vík þar sem sýnd verða verk eftir Helgu Jensdóttur. Helga er flugumferðarstjóri að mennt en vinnur nú alfarið við mynd- list. Hún hefur stundað nám við Myndlistarskóla Kópavogs og einnig sótt Masterclass námskeið hjá Bjarna Sigur- björnssyni. Helga vinnur á valsaðar álplötur og styðst hún ekki síst við kort úr fluggeiranum og frá íslenska flugstjórnasvæð- inu. Sýningin mun standa til 10. september. Saltfisksetrið er opið alla daga kl. 11 - 18. Myndlist Styðst við kort úr fluggeiranum Verk eftir Helgu Jensdóttur. HÖNNUNARSÝNINGUNNI Magma /Kvika lýkur á morg- un. Ríflega tuttugu þúsund gestir hafa komið á Kjarvals- staði frá því að sýningin var opnuð um miðjan maí og skoð- að íslenska hönnun eftir rúm- lega áttatíu hönnuði. Hönn- unarsýningar af þessari stærðargráðu eru fáheyrðar á Íslandi en á sýningunni var lögð áhersla á að varpa ljósi á samtímahönnun auk þess að skapa vettvang fyrir opna umræðu um stöðu íslenskrar hönnunar. Leiðsögn verður um sýninguna í dag kl.15. Kjarvalsstaðir eru opnir daglega kl. 10-17. Hönnun Magma/Kvika lýkur á morgun Ullarstóll eftir Hildi Helgu Zoega. Eftir Ásgeir H. Ingólfsson asgeirhi@mbl.is MIKLAR hræringar hafa verið inn- an útgáfurisans Eddu útgáfu sem mun nú liðast í sundur í tvær mis- stórar blokkir. Einkahlutafélagið Mál og menning-Heimskringla bók- menntafélag mun kaupa allar útgáf- urnar nema Almenna bókafélagið, lager þeirra, útgáfurétt og þau verk sem eru í vinnslu en Ólafsfell ehf., félag í eigu Björgólfs Guðmunds- sonar, mun halda eftir bókaklúbb- unum og merki Almenna bóka- félagsins. Þá hafa örlögin nú hagað því svo að Tímarit Máls og menning- ar er aftur komið undir hatt útgáf- unnar sem það er kennt við. Árni Einarsson, sem tók við sem stjórnarformaður Máls og menning- ar af Þresti Ólafssyni á fimmtudag, segir að þau muni áfram halda vöru- merkjum allra forlaganna (Máls og menningar, Vöku-Helgafells, Iðunn- ar og Forlagsins) sem og Heims- kringlu sem er gamalt forlag sem endaði hjá Máli og menningu og hef- ur undanfarið gefið út fræðibækur. Þá hefur nokkuð verið rætt um húsnæði Bókabúðar Máls og menn- ingar á Laugavegi, en Eymundsson leigir húsnæðið af Máli og menningu og hefur þar samning sem gildir næstu árin. Mál og menning vill selja húseignina – en áður hefur fyrirtækið selt skrifstofuhúsnæði sem það átti á efri hæðum hússins. Hjá Eymundsson fengust þau svör að ekkert hefði verið rætt um að kaupa eignina. Bókaklúbbar óháðir forlögum Bókaklúbbarnir eru því það sem í raun er eftir af Eddu og telja bæði Ásgeir Friðgeirsson, talsmaður Björgólfs, og Árni Einarsson hjá Máli og menningu að það sé mikið gæfuspor. Víðast hvar séu þeir óháð- ir bókaútgáfunum og þannig verði það loks hérna líka. „Okkur finnst í rauninni ágætt að bókaklúbbarnir verði reknir sjálfstætt með við- skiptavininn í huga og við þurfum að keppa við önnur bókaforlög um að koma okkar bókum inn á þennan söluvettvang. Við teljum að góður agi muni fylgja því. Í fyrsta skipti er verið er að gera tilraun til þess að bókakaupandinn verði í öndvegi bókaklúbbsins og forlögin keppist við að koma sínu að, í stað þess að forlögin ákveði hvað verði boðið uppá. En nú er einhver að taka að sér að reka þetta með hagsmuni við- skiptavinarins í huga,“ segir Árni. Að sögn Ásgeirs Friðgeirssonar er hins vegar ekki ætlunin að gefa neitt út undir merkjum Almenna bókafélagsins þótt það sé ennþá á þeirra snærum, það sé í raun komið niður í skúffu. Í viðtali við Morgun- vakt Rásar 1 í gær sagði Þröstur Ólafsson að ástæðurnar þess að AB fylgdi ekki með í kaupunum væru fyrst og fremst tilfinningalegar. Á tímum kalda stríðsins stóðu Mál og menning og AB fyrir tvær ólíkar hreyfingar í íslensku þjóðlífi og því telur Þröstur að ekki hefði verið óskastaða að setja Almenna bóka- félagið undir Mál og menningu. Að reka bókaútgáfu eða fasteignafélag Markmið Máls og menningar seg- ir Árni „að reka dugmikla bókaút- gáfu með ásættanlegri rekstrar- niðurstöðu.“ Um hræringarnar segir Ásgeir Friðgeirsson einfaldlega að tilboð hafi borist og því hafi verið tekið en bætir svo við: „Mál og menning var sjálfseignarstofnun sem hafði þann eina tilgang að gefa út bækur. Þeir voru búnir að sitja þarna á fundum í ein 3–4 ár þegar þeir áttuðu sig á að þeir voru ekkert að gefa út bækur heldur bara að reka fasteignafélag.“ Breytt útgáfulandslag Gamla Edda skiptist upp í tvær útgáfublokkir  Almenna bókafélagið ekki selt Morgunblaðið/Ómar Til sölu Húsnæði Bókabúðar Máls og menningar verður líklegast selt en Penninn-Eymundsson er með leigusamning þar næstu árin. '  (&  )& ( % #  *#(&       !" # $ ! %$  )/ JK/7# . JA C%( * &'$(  %  $ +  & &, )  *+, !  % 6 *C* / (%( -%.! *+*-!$  %  $L -= ( 5 9-  * (/(M$A 6 *C* / *$ /+ -**$ 011"5- / #N +O #7&** -# *&/ - -4  PI  .  /#* (( 7(#+*6$ Eftir Ásgeir H. Ingólfsson asgeirhi@mbl.is „HEFURÐU tíma til að hlusta á langa sögu?“ spyr Silja Aðal- steinsdóttir mig þegar ég spyr hvernig eigendamál Tímarits Máls og menningar hafi þróast. „Þegar Edda losaði sig við TMM þá fór það til gamla eignarhaldsfélagsins, Máls og menningar-Heimskringlu, sem átti þá orðið hverfandi hlut í Eddu-útgáfu. Þá var ég beðin að prófa hvort hægt væri að hleypa lífi aftur í tímaritið og ég tók það að mér. Þetta var tilraun í eitt ár og ég fékk styrk frá þeim til þess að senda gömlum áskrifendum bréf. Ég sendi út um 2.000 bréf með fyrirspurnum til fólks hvort það vildi gerast áskrifendur og fékk það góða svörun að ég dreif í útgáfunni.“ Og gengið hefur verið gott. „Það var tilkynnt á fundinum í gær að það hefði verið 700 þús- und króna gróði af TMM í fyrra,“ segir Silja en bætir við: „En ég hef náttúrulega gefið þetta út heima hjá mér. Þetta er einyrkja- búskapur en ég hef þó alltaf getað borgað ritlaun. En nú yrði orðið frekar asnalegt að gefa blaðið áfram út í barnaherbergi við Hrísateig ef minn bakhjarl verður orðinn aðaleigandi Máls og menn- ingar. Það má því segja að við séum komin í hring sem mér finnst fjarska gleðilegt. Ég var orðin svolítið smeyk um það að tímaritið myndi deyja um leið og ég hætti, hvenær sem það gerist.“ Silja hefur beðið um að framtíð ritsins verði tekin til umræðu um áramót þar sem haustritin tvö eru það langt á veg komin að þeim verður lítið breytt úr þessu. „En þá þætti mér eðlilegt að útgáfan taki við fjármálunum, en það hef- ur verið mér lang-tímafrekast og leiðinlegast.“ Hún segir útgáfutíðnina henta blaðinu vel. „En hitt er annað mál að eitt af því sem ég hef þurft að passa mjög vel er að hafa heftin í þeirri lengd að ég þurfi ekki að borga hærri póstburðargjöld. Ég hef passað að hafa þau undir 250 grömmum – um leið og þau fara upp í 260 grömm rjúka póstburð- argjöldin upp. En ég vona að þeg- ar þetta er komið undir öflugra forlag þá verði ekki svona leið- indatakmarkanir á ritstjóra. Þá fyndist mér eðlilegt að leggja svo- lítið meira í myndir – að ég tali ekki um lit, nú er bara litur í kápu og búið.“ En hún vill ekki bylta blaðinu. „Ég held að það sé full- reynt að umbylta þessu riti, það er ávísun á hrun í fjölda áskrif- enda.“ TMM kemur heim Morgunblaðið/Brynjar Gauti Glöð Silja Aðalsteinsdóttir gleðst yfir því að Tímarit Máls og menningar sé komið aftur til Máls og menningar eftir nokkurra ára útlegð. ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.