Morgunblaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2007 31 fyrir öllum gluggum og draga þau á engan hátt úr ljósflæðinu. Þau birgja heldur ekki útsýnið í garð- inn og út á götuna, en umhverfið er einmitt það sem húsráðendur kunna hvað best að meta. Þar iðar allt af lífi á sumrin og nágrannar banka upp á og líta inn. Svarthvítar ljósmyndir Stíll heimilisins er léttur og lif- andi en svolítið óvenjulegt að á veggjum eru margar svarthvítar ljósmyndir, m.a. eftir Sissu. „Sissa ljósmyndari hefur oft myndað fjöl- skylduna í gegnum tíðina og hún á heiðurinn af mörgum þessara mynda. Auk þess eru þarna mynd- ir eftir Ragnheiði Jónsdóttur, Hring, Georg Guðna og Ingi- björgu Magnadóttur. Upp að vegg í ganginum hallast svarthvít mynd í glerramma, óvenjuleg og frjáls- leg uppstilling. Þá mynd tók eldri bróðir heimasætunnar af systur sinni. Baðherbergið er kapítuli út af fyrir sig þótt það sé ekki nema rúmir tveir fermetrar. Í byrjun var dönsk listakona, Anne Tine Foberg, fengin til að mála freskur á veggina fyrir ofan flísarnar auk þess sem hún skreytti baðkerið að utan. Þar kom að íbúunum fund- ust freskurnar orðnar svolítið dökkar og íþyngjandi. Þær hurfu undir málningu en skreyting bað- kersins fékk að halda sér. Áður hafði verið búið að hanna kostn- aðarsamar breytingar á baðher- berginu en endirinn varð sá að ný málning og lagfæringar upp á 10- 20 þúsund krónur nægðu til að baðherbergið varð eins og nýtt. Sómi götunnar Með tíð og tíma er hugmyndin að breyta neðri hæðinni og flytja þá m.a. svefnherbergi þangað nið- ur og opna síðan út í garðinn sem er hrein paradís á sumrin, með pöllum, grasflöt og fallegum birki- og reynitrjám. Þá verður einnig ráðist í að steina húsið að utan. Líklega er þetta eina húsið í göt- unni sem enn heldur sínu upp- runalega útliti; þaki, þakkanti, og öllu tilheyrandi, meira að segja gömlu útihurðinni. Það er því og verður sómi götunnar um ókomna tíð. Úti í glugga Flestir hengja myndir á veggi en hér eru þær gluggastáss. Myndina tók Sissa ljósmyndari. Bjart Baðherbergið er ekki stórt en nýlega var málað yfir dönsku fre- skurnar á veggjunum en baðkarið ber enn merki listakonunnar. Kristall Þrátt fyrir einfaldleikann fer kristalskrónan vel yfir borðstofuborðinu. Öðru vísi eldhúsborð Eldhúsið er með flotuðum borðum og tveir veggir eru múraðir og síðan eru þeir lakkaðir með glæru lakki. Á kommóðunni Skemmtileg upp- stillinn er komm- óðunni í svefn- herbeginu. Þar standa m.a. skrýtnir skór. Eins og myndverk Húsfreyjan segist ekki hafa tímt að láta taka niður loftlúguna þótt hún sé farin að þreytast. Hagvöxtur, verðbólga og hagstjórn: Ráðstefna til heiðurs Edmund Phelps nóbelsverðlaunahafa í hagfræði. Fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins, kl. 14:00-17:00, föstudaginn 31. ágúst. Prófessor Edmund Phelps hefur á undanförnum árum átt í margvíslegu samstarfi við kennara Háskóla Íslands. Hann var gerður að heiðursdoktor við skólann árið 2004. Í tilefni þess að árið 2006 hlaut hann nóbelsverðlaunin í hagfræði býður viðskipta- og hagfræðideildin til þessarar ráðstefnu honum til heiðurs. 14:00-14:15 Setning. Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson. 14:15-14:30 Gylfi Zoega, Háskóli Íslands. Stutt yfirlit yfir framlag Edmund Phelps til hagfræði. 14:30-15:00 Philippe Aghion, Harvard University „Education and Growth after Nelson and Phelps“. 15:00-15:30 Luis Cunha, Universidade Nova de Lisboa, „Real Appreciation and the Current Account: A New Rationale for Euro Countries“. 15:30-16:00 Amar Bhide, Columbia Business School, „Why They Stay at Home: The Globalisation of Venture Capital Businesses“. 16:00-16:30 Edmund Phelps, Columbia University. 16:30-17:00 Spurningar og umræða. 17:00 Léttar veitingar í Þjóðminjasafni. Fundarstjóri er Már Guðmundsson hjá Alþjóðagreiðslubankanum í Basel. Aðgangur er ókeypis. Fundurinn verður haldinn á ensku. Ráðstefna þessi er fjármögnuð með styrk frá Landsbanka Íslands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.