Morgunblaðið - 25.08.2007, Side 6

Morgunblaðið - 25.08.2007, Side 6
6 LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR STEFÁN Guðmunds- son skipstjóri lést á Landspítalanum 19. ágúst sl. á 89. aldursári. Stefán fæddist í Hrólfs- skála á Seltjarnarnesi 3. október 1918. Foreldrar hans voru Elísabet Stefánsdóttir húsfreyja, f. 1891, frá Arkalæk, d. 1975, og Guðmundur Pétursson, f. 1881, út- vegsbóndi í Hrólfsskála, d.1958. Stefán hóf ungur að vinna við ýmis bústörf á Seltjarnarnesi. Eftir skyldunám í Mýrarhússkóla fór hann til náms við Héraðsskólann á Laug- arvatni. Meðfram námi starfaði hann hjá Eimskipafélagi Íslands á Gull- fossi 1 undir stjórn Sigurðar Péturs- sonar. Eftir farmannapróf frá Stýri- mannaskólanum árið 1943 varð Stefán stýrimaður og síðan skip- stjóri. Hann var skipstjóri á ýmsum skipum Eimskips, m.a. Tungufossi, Dettifossi, Mánafossi, Brúarfossi og Goðafossi, þar til hann lét af störfum fyrir aldursakir 26. október 1983, þá skipstjóri á Dettifossi. Hafði hann verið samfleytt til sjós í 49 ár, eða frá 15 ára aldri og vann allan þann tíma hjá Eimskipafélagi Ís- lands. Stefán var einn af þeim sem komu heim með Esjunni frá Pet- samo í Finnlandi þegar Gullfoss gamli var kyrrsettur í Kaup- mannahöfn á stríðsár- unum. Árið 1984 hóf Stefán störf við Sundlaug Sel- tjarnarness og starfaði hann þar uns hann varð rúmlega sjötugur. Stefán var mikill áhugamaður um garð- rækt. Á Seltjarnarnesi þótti ekki vænlegt að rækta gróður en hann sýndi að það var vel hægt og ræktaði hinn fallegasta garð við hús sitt Skála ásamt konu sinni og fengu þau oftar en einu sinni verðlaun fyrir hann. Stefán var heiðraður fyrir ævistarf sitt á sjómannadaginn árið 1998. Með Stefáni Guðmundssyni er genginn elsti Seltirningurinn, sem fæddur var þar og uppalinn og bjó þar alla tíð. Eftirlifandi eiginkona Stefáns er Guðrún Kristjánsdóttir. Þau eignuð- ust 4 börn. Fyrir átti Guðrún eina dóttur. Andlát Stefán Guðmundsson BÆJARRÁÐ Vestmannaeyja fer fram á að framkvæmdum við ferju- höfn í Bakkafjöru verði flýtt og að hún verði tilbúin árið 2009 en ekki 2010 eins og gert er ráð fyrir í sam- gönguáætlun. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem bæjarráðið boðaði til í gær um borð í togaranum Vestmannaey, en þar voru kynntar víðtækar hugmyndir ráðsins um mótvægisaðgerðir sem Eyjamenn horfa til vegna niðurskurðar í afla- heimildum. Fram kom á fundinum að Eyjamenn vilja líka sjá aukna áherslu á rannsókna- og skólastarf og að opinberum störfum verði fjölg- að. Ekki síst störf sem tengjast sjáv- arútvegi á einhvern hátt. Einnig er bent á nauðsyn þess að hlaupa undir bagga með útgerðum sem horfa á umtalsverða tekjulækkun. Líka að þegar aflaheimildir verða auknar komi þær í hlut þeirra sem nú mega þola skerðingu. Byggðarkvóti, línu- ívilnun og auðlindagjald á sjávarút- veg hefur lengi verið eitur í beinum Eyjamanna. Sveitarfélögin hafi frumkvæði „Með þessu hefur Vestmanna- eyjabær riðið á vaðið og orðið fyrst sveitarfélaga til að leggja fram að eigin frumkvæði tillögur af þessu tagi,“ sagði Elliði Vignisson bæjar- stjóri. „Það er trú okkar hjá Vest- mannaeyjabæ að þessar mótvægis- aðgerðir lukkist einungis ef þær eru unnar að frumkvæði sveitarfélag- anna sjálfra með stuðningi ríkisins þegar slíkt á við. Í viðbót við þessar tillögur verður gripið til mótvægis- aðgerða í samvinnu atvinnulífsins, Vestmannaeyjabæjar og íbúa en við lítum á þessar þrengingar sem verk- efni en ekki vandamál.“ Til að setja niðurskurðinn í samhengi þá skerð- ast aflaheimildir í þorski um þriðj- ung sem þýðir að hlutur Vestmanna- eyja fer úr tæpum 12 þúsund tonnum í um 8 þúsund tonn. Auk þess er skorið niður í ýsu og ufsa sem dekkir myndina enn frekar. „Þetta þýðir að 3,6 milljarðar hverfa úr veltu í sveitarfélaginu sem gerir um 11 milljarða á þremur árum. Það samsvarar rekstri Vestmannaeyja- bæjar í um sex ár,“ sagði Elliði. Þeg- ar horft er til framtíðar sagði Elliði úrslitaatriði að þegar kvótinn yrði aukinn á ný yrði honum úthlutað til þeirra sem nú verða fyrir skerðing- unni. „Ríkisstjórnin verður að tryggja þetta því þá er meiri von til þess að útgerðarmenn þrauki og líti á þetta sem millibilsástand.“ Elliði sagði næsta skref að senda tillögurn- ar til Árna Mathiesen fjármálaráð- herra og Össurar Skarphéðinssonar iðnaðarráðherra. Í tillögunum er m.a. lögð áhersla á að eigi síðar en í september nk. verði auglýst eftir tveimur starfsmönnum á vegum Nýsköpunarmiðstöðvar Ís- lands í Vestmannaeyjum. Flýti framkvæmdum  Bæjarráð Vestmannaeyja vill að ferjuhöfn í Bakkafjöru verði tilbúin árið 2009  Áhersla á skólastarf verði aukin Morgunblaðið/Sigurgeir Aðgerðir Páll Marvin Jónsson, Páley Borgþórsdóttir, Elliði Vignisson og Páll Scheving mynda bæjarráð Vestmannaeyja. Eftir Gunnhildi Finnsdóttur gunnhildur@mbl.is „ÞAÐ er alveg hryllileg umgengni. Fólk er, ef ég má orða það á góðri ís- lensku, mígandi og skítandi í garða. Ég fann hérna fyrir utan eldhús- gluggann hjá mér, þegar ég kom heim úr Þórsmörk í sumar, karl- mannsnærbuxur fullar af kúk. Svo eru náttúrlega glerbrot, sígarettu- stubbar og plastglös,“ segir Erna Valdís Valdimarsdóttir, íbúi í Þing- holtunum. Hún segir umgengni um miðborgina hafa hríðversnað í ár. Flestir íbúar miðborgarinnar hafa fram til þessa tekið því með stillingu þó að einhver óþægindi hljótist af skemmtunum um helgar og litið á þau sem óhjákvæmilegan fylgifisk þess að búa í hringiðu mannlífsins í miðbænum. Nú í sumar tala margir hinsvegar um að sóðaskapur, hávaði og skrílslæti í miðbænum hafi keyrt um þverbak og eru ýmsar ástæður þess nefndar, svo sem nýlegt reyk- ingabann og langur opnunartími skemmtistaða. Erna stóð nýlega fyrir undir- skriftasöfnun og lagði fram formlegt erindi fyrir borgarráð vegna hávaða og ónæði sem hlýst af bar í nágrenn- inu. „Breytingin var mjög afgerandi hérna í ársbyrjun þegar bar í götunni breytti rekstrarforminu hjá sér og fór að hafa opið til klukkan sex á morgnana og tók upp á því að spila gríðarlega háværa tónlist með alla glugga opna. Það breyttist allt. Þetta var bara rólegur bar áður, maður vissi ekki af honum.“ Úrræði íbúa óljós Erna segir það ekki liggja ljóst fyr- ir hvert íbúar geti snúið sér í svona málum. „Ég byrjaði á því að skrifa borginni, fyrst í gegnum heimasíðuna þeirra, en fékk engin viðbrögð. Síðan skrifaði ég öllum borgarfulltrúum, nema borgarstjóra, bréf og kvartaði. Það var tíunda apríl síðastliðinn og það voru tveir sem svöruðu mér per- sónulega og einn sem sendi erindið áfram. Allir sem ég talaði við þá sögðu að það eina sem við gætum gert væri að hringja nógu oft í lög- regluna og láta bóka kvörtun. Þegar það væru komnar nógu margar kvartanir, þá yrði eitthvað gert í mál- inu.“ Erna segir að hún og fleiri ná- grannar hennar hafi síðan hringt samviskusamlega í lögregluna þegar reglur voru brotnar á barnum í göt- unni, en ekkert hafi enn verið gert. „Það er eins og enginn sjái raunveru- lega um að embættin tengist. Það er ekkert samband þarna á milli.“ Hún segist hrædd um að valtað verði yfir íbúana því veitingahúsaeigendur séu sterkari sem hópur. „Ég er bara ein kona í Þingholtunum. Við borgararn- ir erum lítils metin oft þegar upp er staðið,“ segir Erna. Björn Ingi Hrafnsson formaður borgarráðs segir að á fundi ráðsins síðastliðinn fimmtudag hafi ekki ver- ið lagst gegn áframhaldandi rekstr- arleyfi skemmtistaðarins en bent hafi verið á ítrekaðar kvartanir íbúa og lögreglu falið að kanna hvort þær gefi tilefni til þess að takmarka opnunar- tímann. Allar tilkynningar skráðar Lögreglustjórinn á höfuðborgar- svæðinu gefur út rekstrarleyfi til veitinga- og skemmtistaða, en leggur til grundvallar umsagnir nokkurra aðila, þar á meðal borgarráðs. Stefán Eiríksson lögreglustjóri segir allar tilkynningar skráðar hjá lögreglu. „Ef fólk verður fyrir ónæði þá er ekkert annað að gera en að hringja í lögreglu og tilkynna það og lögreglan reynir að bregðast við því með viðeigandi hætti. Ef ónæðið er eðlilegur fylgifiskur þeirrar atvinnu- starfsemi sem leyfi er fyrir á þessum ákveðna stað, þá er ekki mikið við því að gera. Ef ónæðið stafar af því að menn eru að spila músík of hátt eða hafa opið þannig að hún heyrist út, þá eru það hlutir sem hægt er að laga.“ Hann segir að allar kvartanir og athugasemdir séu skoðaðar þegar rekstrarleyfi eru endurnýjuð, og ef ástæði þykir til eru gildandi leyfi aft- urkölluð. Opnunartími sé aftur á móti á ábyrgð borgaryfirvalda. „Borgaryfirvöld hafa kveðið á um það í lögreglusamþykkt að þau geti takmarkað opnunartíma staða ef það stafar frá þeim mikið ónæði, þannig að allar tímatakmarkanir og tak- markanir á starfsemi á tilteknum stöðum eru undir borgaryfirvöldum komnar. Það eru borgaryfirvöld sem hafa þarna úrslitaáhrif,“ segir Stefán. „Alveg hryllileg umgengni“ Morgunblaðið/Fríða Miðbærinn Margir íbúar miðborgarinnar segja ónæðið af skemmtanalífinu komið yfir öll eðlileg mörk. Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is ALMENN notkun á forgangsorku í íslenska raforkukerfinu mun aukast um 17% fram til ársins 2015 og um 57% alls til 2030 ef ný raforkuspá Orkuspárnefndar gengur eftir. Þetta er talsvert meiri aukning en gert var ráð fyrir í eldri spá frá 2005 en Orku- stofnun hefur nú gefið út endurreikn- aða raforkuspá sem byggð er á nýj- um gögnum og breyttum forsendum. „Árleg aukning notkunar er 1,9%. Áætluð forgangsorka hefur aukist um 355 GWh fram til ársins 2030 við þennan endurreikning frá spánni 2005 og er aukningin mest á höfuð- borgarsvæðinu,“ segir í samantekt Orkustofnunar. Meðal þess sem áhrif hefur á aukna orkunotkun er að reiknað er með meiri hagvexti en gert var í spánni 2005, meiri fólksfjölda í land- inu í samræmi við þróun síðustu tveggja ára, auk þess sem nú er gert ráð fyrir að nýjar íbúðir verði stærri en áður var lagt til grundvallar orku- spánni. Á seinasta ári var raforkuvinnsla rafveitna samtals 9.925 GWh og var hún 22 GWh minni en spáin frá 2005 gerði ráð fyrir en engu að síður var heildarálag á kerfið nánast eins og áætlað var. Notkun í stóriðju er 58 GWh meiri en spáð var. Fram kemur í nýju raforkuspánni að raforkunotkun á heimilum hefur aukist verulega á síðasta áratug. Í fyrra var mikil aukning í almennri heimilisnotkun miðað við fjölda heim- ila. Þá kemur í ljós að raforkunotkun sumarbústaða jókst um 8% á seinasta ári en aukningin á árinu á undan var 14%. Á sama tíma fjölgaði sumarbú- stöðum um 4%. „Ein ástæða aukinnar notkunar rafmagns í sumarbústöðum gæti ver- ið fjölgun heitra potta sem eru raf- kyntir. Líkleg notkun slíkra potta er um 2,5 MWh á ári, “ segir í raforku- spánni. Raforku- notkun auk- ist mikið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.