Morgunblaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 38
38 LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Aukavinna – góð fjáröflunarleið Morgunblaðið leitar að einstaklingum sem geta tekið að sér blaðadreifingu virka daga jafnt sem helgar. Viðkomandi þarf að hafa bíl til umráða. Um er að ræða vel launuð verkefni sem henta jafnt einstaklingum í leit að aukavinnu og hópum í fjáröflun, t.d. vegna félagsstarfa. Vinsamlegast hafið samband sem fyrst við blaðadreifingu Morgunblaðsinsí síma 569 1440 eða á bladberi@mbl.is. H V ÍT A H Ú SI Ð / S ÍA UNDANFARIN ár hef ég þurft að ferðast til Færeyja oft á ári svo og mikið innanlands. Aðstaðan í flugstöðinni er alls ófullnægjandi og með ólíkindum að í dag skuli vera boðið upp á slíkt. Þegar flogið er út fyrir land- steinana verður að nota hlið 4, en þar er þröngur gangur með leit- artækjabúnaði inni í biðsal sem er 50-60 fermetrar að stærð með að- gangi að 2 snyrtingum sem á stundum er ekki hægt að loka. Inn af biðsalnum er fríhafnarverslun sem er 40 til 50 fermetrar að stærð með 2 afgreiðslulínum. Í biðsalnum eru sæti fyrir u.þ.b. 8 manns. Þegar flogið var með Fokkerum Flugfélagsins voru mest um 50 manns með vélunum, en eftir að færeyska flug- félagið Atlantic Air- ways hóf að fljúga með 4 hreyfla þotum sínum sem taka allt að 94 manns í sæti er álagið nær tvöfalt. Færeyska flugfélagið flýgur líka til Græn- lands frá Reykjavík- urflugvelli. Innritunarbiðröðin fyllir nær sal- inn frammi og þegar fara þarf í gegnum öryggishliðið er biðröðin þvert á aðrar og aðstaðan mjög erfið. Það er þó hátíð að fara úr landi á þennan hátt þar sem farangri er skilað frammi við innritun og að- eins er glímt við handfarangur og samfarþega inni í biðsalnum til brottfarar. En skandallinn verður fyrst kristaltær þegar komið er til lands- ins. Þá getur komið fyrir að bíða þurfi úti í vél áður en hægt er að nálgast flugstöðvarhöllina þar sem verið er að hleypa út í vél í innan- landsflugi á sama tíma. Þegar hægt er að fara inn í húsið bíður oftast hasshundur sem gengur að farþegum og farangri og hefur far- þegum jafnvel verið stillt upp eins og í amerísku bíómyndum við sak- bendingar svo hundurinn eigi betra með að sinna hlutverki sínu. Flest- ir farþegarnir koma við í fríhafn- arbúðinni þar sem varla er hægt að hreyfa sig þar sem farþegarnir eru sem síld í tunnu. Þegar svo farangurinn berst í hús á beinlínu færibandi sem er u.þ.b. 5,5 á lengd og endar við vegg, hleðst hann upp og dettur á gólfið eða lendir á far- þegum sem eru í þéttum hnapp við bandið, en fáir komast beint að svo stuttu bandi. Verður eitt alls- herjaröngþveiti á staðnum og liggur við stimpingum við farang- ursmóttökuna. Toll- vörðum er mjög erfitt um vik að sinna störf- um sínum við þessar aðstæður og með ólík- indum að þeir skuli hafa látið bjóða sér slíkar aðstæður við vinnuna. Þeir gera þó allt sem þeir geta til þess að öngþveitið verði ekki algjört. Þetta er sú sýn sem blasir við frændum vorum í Færeyjum og frá Grænlandi þegar þeir koma til alls- nægtalandsins Íslands. Enginn innanlandsflugstöð hér á landi er eins vanbúin og Reykja- víkurflugstöðin og ekki heldur flug- stöðvarnar hjá nágrönnum okkar. Fyrir nokkrum árum var varið vel á annan milljarð í endurbætur flugbrautanna á Reykjavík- urflugvelli, en enn er flugstöðin í meginatriðum gamall herbraggi frá stríðsárunum. Flugstöðin mun vera eina flugstöðin á landinu sem ekki er í eigu ríkisins, en Flugfélagið mun eiga heiðurinn af eign og rekstri hennar. Alls óskiljanlegt er að ekki skuli hafa fylgst að endurbygging flug- stöðvarinnar og flugbrautanna, hvað sem deilum um hversu lengi flugvöllurinn verður í Vatnsmýrinni líður. Ljóst er að langur tími líður áður en flugvöllurinn verður fluttur ef hann þá verður nokkurn tímann fluttur. Ekkert sambærilegt flug- vallarstæði er í næsta nágrenni og einnig ljóst að ef flytja á flugvall- arstarfsemina til Keflavíkur leggst stór hluti innanlandsflugsins niður. Þegar vegirnir á Snæfellsnes og norður í land voru orðnir klæddir bundnu slitlagi lagðist af flug til Hellissands og Blönduóss, einnig Sauðárkróks. Þegar það tæki sam- bærilegan tíma að aka suður til Keflavíkur, innrita sig tímanlega, bíða þar eftir flugi, fljúga og bíða eftir farangri og síðan akstur inn á Akureyri, og það tekur að aka til Akureyrar eftir endurbættu þjóð- vegakerfi verður það sama upp á teningnum. Einu flugvænu stað- irnir væru hugsanlega Egilsstaðir og Vestmannaeyjar (sem nú þegar þurfa ríkisstyrk til að flogið sé þangað). Með nýrri höfn á Bakka- fjöru leggst flug til Vestmannaeyja líklega einnig af. Í ljósi framangreinds tel ég Reykjavíkurflugvöll ekkert vera á förum. En hvað sem öllu líður getum við ekki boðið upp á þær aðstæður sem nú eru í flugstöðinni í Reykja- vík. Byggja verður nýja flugstöð nú þegar. Hún þarf ekki að kosta mjög mikið ef ekki er stefnt að minnisvarðabyggingu, aðeins bygg- ingu sem er til þess fallin að gegna því hlutverki að taka á móti ferða- fólki, bæði innanlands og frá ná- grönnum okkar á skammlausan og öruggan hátt. Hér fyrr á árum þegar mal- arvegir voru um allt og í ljós kom að einhverjir þeirra báru ekki um- ferðaþungann voru þeir styrktir þó að vitað væri að nýr vegur kæmi einhvern tímann og þá með slitlagi. Sama frumreglan virðist ekki ganga upp varðandi flugstöðina. Hver ber ábyrgðina, eigandinn (Flugfélagið), ríkið sem á allar aðr- ar flugstöðvar eða Reykjavík- urborg sem ekki hefur enn fundið lausn skipulagsmálanna? Vænt- anlega bera þeir af sér sökina sem ekki eiga en hinir grípa til aðgerða. Úrbóta er þörf strax, þær þola enga bið. Flugstöðin á Reykjavík- urflugvelli – Skandall Jóhann G. Bergþórsson skrifar um aðstöðu farþega í millilandaflugi á Reykjavíkurflugvelli »Engin innanlands-flugstöð hér á landi er eins vanbúin og Reykjavíkurflugstöðin og ekki heldur flug- stöðvarnar hjá nágrönn- um okkar. Jóhann G. Bergþórsson Höfundur er verkfræðingur og verktaki. VIÐ Íslendingar stöndum öðru megin við Evrópusambandið, og veltum fyrir okkur hvað það merki að vera Evrópuþjóð. Hinum megin við Evrópusambandið standa svo Tyrkir; sem örugglega teljast ekki til Evrópuþjóða en vilja samt komast inn. Við get- um leitað svara um hvað það er að vera Evrópuþjóð með því að skoða ágreining Tyrklands og Evr- ópusambandsins. Sjálfsmynd Evr- ópusambandsins stendur mörgum rót- um í þeirri fortíð sem rómverska heims- veldið var. Það náði allt í kringum Mið- jarðarhaf og vatna- svæði þess; og þar með talið yfir strend- ur Litlu-Asíu; sem nú telst til vesturhluta Tyrklands. Þar var að finna nokkur grísk borgríki, sem gengu síðar inn í Róma- veldi; og lifðu þannig áfram sem grískar borgir í allt að þús- und ár. Hjá þeim blómstraði evrópsk menning ekki síður en á gríska meg- inlandinu. Margar aðrar þjóð- ir voru einnig ná- grannar þessara As- íugrikkja, í gegnum tíðina, svo sem Föníkar, Lýdíu- menn, Pergamonar, Hittítar, Tró- verjar, Persar, Medar, Assýr- ingar, Parþar, Gyðingar, Arabar, Tyrkir; og margar smærri. Það sem greindi Grikkina frá ná- grannaþjóðunum var það sem kemur okkur til að líta á þá sem fyrirrennara okkar, en það var að þeim tókst að þróa fram skapandi sambland af fræðum og fé- lagsmálum, sem lið í vaxandi ný- sköpun og hagsæld. Margt stuðl- aði að þessu; svo sem vaxandi viðskipti um hafið, útbreidd borg- armyndun, vaxandi borgarastétt, menningaruppeldi og læsi. Grikkir virðast hafa náð forskoti í sam- virkni þessara þátta; sem síðar breiddist út yfir Evrópu; og sem varð á endanum það sem við þekkjum sem nú sem aðalsmerki evrópskrar menningararfleifðar. Hún hefur nú til dags gegn- umsýrt heimsmenninguna að miklu leyti en hefðbundnu vest- rænu þjóðirnar; svosem strandríki Evrópu; halda enn þá tryggilegu forskoti; í krafti sinnar einstæðu getu til að láta tækniþróun og lýðræði vinna saman. Bæði Tyrkir og Íslendingar þráast nú við að við- urkenna þennan upp- runa vestrænnar menningar sinnar: Við Íslendingar af því við erum eyþjóð sem freistar þess fremur að upphefja sjálfs- mynd sína sem for- ystuþjóð í varðveislu fornsagna síns nor- ræna afsprengi Evr- ópumenningarinnar og Tyrkir af því þeim er í mun að skapa þjóð- areiningu á svæði sem spannar ekki bara hinn evrópulegri vest- ræna enda sinn við Miðjarðarhaf, heldur líka sinn austræna enda sem liggur að löndum eins og Írak og Íran. Láta Tyrkir nú svo heita að þegnar síns fjölþjóðaríkis séu nánast allir afkom- endur Tyrkja, tyrk- neskumælandi og ísl- amstrúar. Hér eygi ég tillögu til úrbóta: Evrópusambandið ætti að gera gangskör að því að veita fé til kynningar á forn-gríska menningararfinum, bæði í EES- aðildarríki sínu Íslandi og í Tyrk- landi. Ekki til að ganga í berhögg við ríkjandi fortíðarsýn þessara ríkja, heldur til að styrkja og auðga þau stjórnmál, fræði, listir og trúarbrögð sem þar eru fyrir. Þannig munu þau bæði verða fær- ari um að nálgast fulla Evrópu- sambandsaðild á jafnræð- isgrundvelli. Evrópusambandið, Ísland og Tyrkland Tryggvi V. Líndal skrifar um Evrópumál Tryggvi V. Líndal »Evrópusam-bandið ætti að gera gang- skör að því að veita fé til kynningar á forn-gríska menningararf- inum, bæði í EES-aðildarríki sínu Íslandi og í Tyrklandi. Höfundur er þjóðfélagsfræðingur og skáld.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.