Morgunblaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2007 53
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Ferðaklúbbur eldri borgara | 30. ágúst dagsferð
um suðurströndina, Seljalandsfoss, Skógafoss,
Dyrhólaey, Kerlingardalur og Vík í Mýrdal. Munið
haustlitaferðina 21. september, allir eldri borgarar
velkomnir. Upplýsingar og skráning í síma 892
3011, Hannes.
Félagsheimilið Gjábakki | Krummakaffi kl. 9 og
Hana-nú ganga kl. 10. Fyrirhuguð vetrardagskrá
Gjábakka verður kynnt nk. fimmtudag kl. 14. Allir
velkomnir.
Félagsstarf Gerðubergs | Alla virka daga kl. 9-
16.30 er opið fólki á öllum aldri, m.a. tréútskurður,
fjölbreytt handavinna, spilasalur o.m.fl. Þriðjud. 4.
sept. hefst glerskurður, fimmtud. 6. sept. myndlist
og föstud. 7. sept. er Breiðholtsdagur, fjölbreytt
dagskrá og viðburðir í hverfinu, nánar kynnt síðar.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið opið öllum. Skrán-
ing stendur yfir. Postulín, tölvur, ljóðagerð, klaustur,
bókmenntir, magadans eða hvernig vilt þú sjá
starfið í vetur? Hugmyndabankinn opin virka daga
kl. 9-16. Haustfagnaður 29. ágúst. Ferð í Kjós 30.
ágúst. S. 568 3132.
Kirkjustarf
Aðventkirkjan í Reykjavík | Biblíurannsókn fyrir
börn og fullorðna kl. 10. Einnig boðið upp á um-
ræðuhóp á ensku.
Aðventkirkjan í Reykjavík | Guðþjónusta kl. 11.
Ræðumaður Eric Guðmundsson.
Kristniboðssalurinn | Háaleitisbraut 58, 3 hæð.
Kristniboðsfélag karla verður með fjölbreytta dag-
skrá á komandi vetri. Næsti fundur verður mánu-
daginn 27. ágúst kl. 20. Skúli Svavarsson sér um
Biblíulestur. Allir karlmenn velkomnir.
Loftsalurinn, Aðventsöfnuðurinn í Hafnarfirði |
Guðþjónusta og biblíurannsókn kl. 11.
90ára afmæli. Í dag, 25.ágúst, er Sigríður
Stefánsdóttir, Kópavogs-
braut 83, níræð. Hún og eigin-
maður hennar, Árni Jóhann-
esson, dvelja nú í sumarhús-
inu Sundi og taka þar á móti
ættingjum og vinum frá kl. 14-
18 í dag.
80ára afmæli. Áttræðurer í dag Bent B. Jörg-
ensen bifvélavirkjameistari,
fyrrverandi verkstæðisfor-
maður og rekstrarstjóri. Hann
er ásamt fjölskyldu sinni að
heiman.
50ára afmæli. Fyrirhálfri öld fæddist önd-
vegiskonan Aðalbjörg Kol-
finna Örlygsdóttir. Didda
verður heima á afmælisdaginn
og tekur á móti vinum og
vandamönnum með bakkelsi,
ást og hlýju.
Brúðkaup | Gefin voru saman
í hjónaband 11. ágúst síðast-
liðinn af séra Írisi Kristjáns-
dóttur í Hjallakirkju Kópa-
vogi, Fríða Dendý Helgadótt-
ir og Magnús Rúnar Magnús-
son. Þau eru búsett í Reykja-
vík.
dagbók
Í dag er laugardagur 25. ágúst, 237. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Þú hefur breytt eftir mér í kenningu, hegðun, ásetningi, trú, langlyndi, kærleika, þolgæði. (Tím. 3, 10.)
Hafnarfjörður á sér ríka sögu,langa og samfellda, en bær-inn hefur leikið lykilhlut-verk í verslunar- og útgerð-
arsögu landsins.
Á Byggðasafni Hafnarfjarðar má
fræðast um sögu þessa merkilega bæj-
ar, eins og Björn Pétursson bæjar-
minjavörður segir frá: „Byggðasafnið
er að jafnaði með sex sýningar í gangi á
hverjum tíma í þremur húsum safnsins,
og eru sýningarnar bæði fjölbreyttar
og skemmtilegar.“
„Aðalsýningarhús byggðasafnsins er
Pakkhúsið að Vesturgötu 8. Þar er
stærsta sýningin, um sögu Hafnar-
fjarðar „Þannig var“, þar sem rakin er
saga bæjarins frá landnámi til okkar
daga. Í Pakkhúsinu er einnig sýning
fyrir börnin, þar sem sýnd eru leikföng
frá ýmsum tímum og sagt frá barna-
menningu bæjarins, og loks er í forsal
hússins sett upp ný sýning á hverju ári
–að þessu sinni um sögu Egyptalands
til forna sem sögð er með merkum
munum úr eigu Þjóðminjasafnsins sem
sumir eru rúmlega 4.000 ára gamlir,“
segir Björn. „Í Sívertsens-húsinu, sem
er elsta hús Hafnarfjarðar og kennt við
Bjarna Sívertsen, höfum við sett upp
sýningu um Bjarna og áhrif hans á
sögu bæjarins, og búið um húsið eins
og tíðkaðist í íslenskum heldrimanna-
húsum á 19. öld.“ Þriðja sýningarhús
Byggðasafnsins er Siggubær, við
Kirkjuveg 10: „Það er einn af síðustu
bæjum Hafnarfjarðar, lítið hús sem
varðveitt hefur verið sem heimili al-
þýðufjölskyldu í upphafi 20. aldar. Hús-
ið er kennt við Sigríði Erlendsdóttur
sem ánafnið safninu húsið. Í skúr við
Siggubæ er að finna sýningu um álfana
í Hafnarfirði, en eins og kunnugt er
búa álfar og huldufólk í hrauninu sem
Hafnarfjarðarbær er byggður á.“
Byggðasafn Hafnarfjarðar er opið
alla daga í sumar frá kl. 11 til 17, og á
fimmtudögum er opið til 21. „Í húsum
safnsins eru færir leiðsögumenn sem
taka vel á móti gestum, leiða þá um
sýningarnar á hverjum stað og fræða
um það sem fyrir augu ber,“ bætir
Björn við.
Aðgangur að Byggðasafni Hafnar-
fjarðar er ókeypis, en Glitnir er styrkt-
araðili safnsins.
Sjá nánar: www.hafnarfjordur.is/
byggdasafn.
Saga | Sumarsýning Byggðasafns Hafnarfjarðar segir sögu Egyptalands
Bæjarsaga í þremur húsum
Björn Pétursson
fæddist í Hafnar-
firði 1970. Hann
lauk stúdentsprófi
frá Flensborgar-
skólanum 1990 og
B.A prófi í sagn-
fræði frá HÍ 1994.
Björn hóf störf hjá
Byggðasafni Hafn-
arfjarðar árið 1994, fyrst sem aðstoð-
armaður forstöðumanns, en bæjar-
minjavörður frá 1996. Hann ritaði
sögu FH sem kom út 2006. Björn er
kvæntur Sigrúnu Hafsteinsdóttur
kennara og eiga þau tvö börn.
Tónlist
Íþróttahúsið Glerárskóla | Ópera Skagafjarðar ásamt Sin-
fóníuhljómsveit Norðurlands sýnir óperuna La Traviata á
Akureyrarvöku 25. ágúst kl. 16. Miðaverð 3.000 kr. Stjórn-
andi hljómsveitar Guðmundur Óli Gunnarsson. Leikstjóri
Guðrún Ásmundsdóttir. Listrænn stjórnandi Alexandra
Chernyshova.
Listagilið Akureyri | Kl. 21-22.30. AIM concerts stendur
að útitónleikum með Samúel J. Samúelsson Big Band. Tón-
leikarnir eru liður í Akureyrarvöku og er haldnir í samstarfi
við Landsbankann og Akureyrarstofu.
Myndlist
DaLí gallerí | Þorsteinn Gíslason (Steini) sýnir bókverkið
Fiskisögur í KomInn í DaLí Gallerí laugardaginn 25. ágúst
frá kl. 20-24.
Grafíksafn Íslands | Sýning Werner Schaub og Roswitha
Josefine Pape. Opnun laugardaginn 25. ágúst kl. 16. Sýn-
ingin stendur til 9. september, opið frá fimmtudegi til
sunnudags frá kl. 14-18.
HÉR sjást spænskir knapar ríða eftir ströndinni á klárum
sínum. En nú stendur yfir hrossakapphlaup á þessari
strönd sem er í bænum Sanlucar de Barrameda á Suður-
Spáni.
Það er líklega ekki leiðinlegt að vera á góðum og hrað-
skreiðum gæðingi á slíkum skeiðvelli í góðu veðri. Samt
þætti mörgum betra að vera á íslenskum töltara en þessu
stóra spænska hrossi sem hossast nokkuð hast áfram.
Spænskir knapar á fleygiferð
Riðið á ströndinni
Reuters
FRÉTTIR
Ekki bökuð
Í MYNDATEXTA með greininni
pítsubotninn er þurrkaður í átján
tíma, sem birt var í blaðinu í gær,
voru gerð þau mistök að jarðar-
berjaterta er sögð bökuð. Svo er að
sjálfsögðu ekki þar sem um hráfæði
er að ræða. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
LEIÐRÉTT
Dr. HOUCHANG Chehabi, prófess-
or í alþjóðasamskiptum og sögu við
Boston-háskóla, fjallar um stjórn-
arfar í íslamska lýðveldinu Íran í
opnum fyrirlestri á vegum Alþjóða-
málastofnunar Háskóla Íslands. Í
fyrirlestrinum leitar Chehabi svara
við því hvort kjör Mahmouds
Ahmadinejads í embætti forseta Ír-
ans hafi haft einhver áhrif á stefnu
íranska ríkisins. Að auki drepur
hann stuttlega á kjarnorkupró-
gramm Írans.
Houchang Chehabi er prófessor í
alþjóðasamskiptum og sögu við
Boston-háskóla. Prófessor Chehabi
hefur einnig kennt við Harvard,
Oxford og UCLA, auk þess að vera
handhafi bæði Alexander von Hum-
boldt og Woodrow Wilson styrkja.
Chehabi er menntaður í Frakklandi
og Bandaríkjunum. Hann hefur
gefið út bækurnar Iranian Politics
and Religious Modernism: The
Liberation Movement of Iran under
the Shah and Khomeini (1990) og
Distant Relations: Iran and Leb-
anon in the Last 500 Years (2006)
og hefur skrifað fjölda greina á
sviði alþjóðastjórnmála, með
áherslu á írönsk stjórnmál.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.
Hann verður á ensku, fer fram í
Árnagarði, stofu 311, og hefst kl.
12.10 á mánudag, 27. ágúst.
Írönsk stjórn-
mál á tímum
Ahmadinejads
STJÓRN VG í Hafnarfirði hefur
sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:
„Stjórn Vinstri grænna í Hafnar-
firði gerir alvarlegar athugasemdir
við þær aðferðir sem meirihlutinn í
Hafnarfirði beitir við skipulagsmál
miðbæjarins. Auk þess er lýst and-
stöðu við svo veigamikla breytingu
sem felst í fyrirliggjandi auglýsingu
bæjaryfirvalda að skipulagi miðbæj-
arins við Strandgötu 26-30.
Meirihlutinn fer fram með breyt-
ingartillögu um stærri byggingu en
gert er ráð fyrir í gildandi aðal-
skipulagi, en það felst í tillögu um
aukið byggingarmagn á fermetra.
Engar ráðstafanir hafa verið gerðar
vegna aukinnar umferðar og í engu
var leitað álits eða umsagnar hjá
þeim sem komu að uppbyggingu
gildandi miðbæjarskipulags.
Með þessu var hundsað samráð
við íbúa umfram það sem gert er ráð
fyrir í lögum auk þess sem í engu er
tekið tillit til neinnar stefnu um
heildaryfirbragð miðbæjarins um
hvort þar eigi að vera lágreist byggð
eða safn hárra bygginga, enda virð-
ist metnaður meirihlutans ekki
liggja til þess að vinna slíka stefnu-
mótun í sátt við íbúana.
Stjórn VG lýsir yfir fullum stuðn-
ingi við afstöðu bæjarfulltrúa VG við
afgreiðslu málsins á fundi bæjar-
stjórnar 12. júní síðastliðnum þar
sem fulltrúi VG greiddi atkvæði
gegn því að auglýsa tillögu að
breyttu deiliskipulagi fyrir lóðirnar
Strandgötu 26 – 30 og bókaði ástæð-
ur afstöðunnar.“
Segja samráð
við íbúana
hundsað
Fréttir á SMS