Morgunblaðið - 25.08.2007, Page 4
4 LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
UMFANGSMIKILLI leit á og við
Svínafellsjökul var haldið áfram í gær,
að Þjóðverjunum tveimur, Matthiasi
Hinz og Thomasi
Grundt, en af fasi
leitarmanna mátti
sjá að von um að
þeir fyndust var
afar veik. Þyrla
Landhelgisgæslu
Íslands, TF-EIR,
var notuð við leit-
ina fram eftir degi
og var henni m.a.
flogið upp á
Hvannadalshnjúk. Einnig leituðu um
fimmtíu manns á jörðu niðri, en gríð-
arlega erfiðar aðstæður settu strik í
reikninginn. Líkur eru á því að menn-
irnir hafi lent í ís- eða grjóthruni og
gera má því skóna að þeir finnist þá
ekki.
Víðir Reynisson sem stjórnar að-
gerðum á vettvangi var ánægður með
veðrið í gær enda hamlaði slæmt
skyggni leit á fimmtudag. „Leitarhóp-
arnir voru að mestu í um 1.200 metra
hæð, og þar hefur verið gott skyggni.
Þyrlan nýttist einnig mjög vel, bæði
til að flytja menn upp á jökul en einnig
til að fylgja eftir vísbendingum sem
við fundum í [gærmorgun].“
Vísbendingin var fótspor sem fund-
ust í töluverðri hæð og eru talin vera
eftir Þjóðverjana. Í kjölfarið var leit-
arsvæðið þrengt. „Það bendir allt til
þess, eftir að við skoðuðum búnað og
annað sem þeir skildu eftir í tjaldbúð-
unum, að þeir hafi ekki ætlað lengra
en í dagsferð. Slík ferð, frá þessu
svæði, getur hins vegar átt við nokkr-
ar leiðir frá tjaldinu. En við einbeitum
okkur að leit á þeirri leið sem við telj-
um líklegt að þeir hafi ætlað að fara.“
Víðir segir öruggt að mennirnir hafi
ætlað upp á Hvannadalshnjúk, og all-
ar upplýsingar sem borist hafa um
mennina staðfesta það. „Sú leið sem
liggur frá tjaldinu og upp á hnjúk er
afar erfið og skyggni hefur ekki verið
meira en upp í 1.800 metra. En það er
margbúið að fara upp á Hvannadals-
hnjúk síðan í byrjun ágúst – en þá aðr-
ar leiðir.“ Víðir segist telja fullvíst að
mennirnir finnist ekki í efstu brúnum
hnjúksins en þeir geti hins vegar verið
í einhverjum sprungum í nágrenninu,
og því verði að koma mönnum þangað
þegar skyggni gefst.
Framhaldið óvíst
Spurður út í hversu lengi verði leit-
að að Þjóðverjunum, finnist þeir ekki
um helgina, segir Víðir ómögulegt að
segja til um það. „Við tökum einn dag í
einu. Í [gær] var ákveðið að við mynd-
um alveg ábyggilega leita áfram á
[morgun]. Svo munum við skoða
framhaldið, með hliðsjón af því sem
við heyrum af þeim hópum sem eru
uppi að leita.“
Leitin er tæknilega afar erfið enda
ekki hægt að senda upp nema mjög
flinka fjallamenn. „Já, það er mikið
um sprungur og íshraun og í raun er
ekki hægt að lýsa þessu betur en
þannig að við séum að leita að nál í
heystakki. Leitarmenn sjá aldrei
nema nokkra metra fram á við, því
mikið er um bungur og sprungur.“
Öll ummerki líklega horfin
Sigurður Ásgeirsson, flugstjóri
TF-EIR, segir leitina erfiða, sér í lagi
fyrir þær sakir að svo langt sé um lið-
ið síðan þeir sáust síðast. „Þeir eru
búnir að vera týndir svo lengi, að
þetta er gríðarlega erfitt. Væntanlega
eru öll ummerki horfin, enda búið að
snjóa og rigna. Þá er jökullinn afar
sleipur og magnið af sprungum er
geysilegt.“
Hann segir menn hafa áhyggjur af
því að Þjóðverjarnir hafi lent í grjót-
eða íshruni, ef það reynist rétt og þeir
eru grafnir undir eru ekki miklar lík-
ur á að þeir finnist – í bráð.
Morgunblaðið/Frikki
Leitarsvæðið Björgunarmenn fínkembdu svæðið við Svínafellsjökul í gærdag og verður leit þar haldið áfram í dag.
Víðir Reynisson
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
ELLEFU ára drengur var hætt kominn þegar
hann rak á leku fiskikari út á Skorradalsvatn í
gær. Tveir kennarar hans og lögreglumaður
fóru á árabáti og björguðu drengnum þegar
hann hafði rekið yfir meira en hálft vatnið.
Hann var orðinn blautur og kaldur þegar hon-
um var bjargað.
Drengurinn var í haustferð ásamt tæplega
þrjátíu skólasystkinum sínum og þremur
kennurum úr Heiðarskóla í Borgarfirði. Þau
áðu í skátaskála sunnan við vatnið, fengu sér
nesti og fóru sum í berjamó. Helga Stefanía
Magnúsdóttir, skólastjóri Heiðarskóla, sagði
að nokkrir drengir hefðu þá farið niður að
vatninu og fundið þar fiskikarið.
Helga Harðardóttir var ein þriggja kennara
sem fylgdu nemendahópnum. Þegar hún kom
ásamt samkennara sín-
um að drengjunum var
einn þeirra kominn út í
karið nánast við vatns-
bakkann. Hann hélt í
annan endann á spotta
og félagar hans í hinn.
Þegar kennararnir
komu misstu þeir takið
eða slepptu en dreng-
urinn í karinu hélt í
sinn enda. Karið fór strax að reka frá landi að
sögn Helgu. Kennararnir reyndu að kasta
spottanum til drengsins en bandið var of stutt.
Vatnið var of kalt
„Þegar ég sá að bandið var of stutt reyndi ég
að synda. Það var bara hægt að vaða hálfan
metra og svo tók dýpið við. Ég gat bara ekkert
synt, vatnið var svo kalt,“ sagði Helga. Hún
hringdi strax í Neyðarlínuna eftir hjálp og
barst hjálparbeiðnin kl. 12.59, samkvæmt upp-
lýsingum lögreglunnar.
Drengurinn í karinu var með fötu og reyndi
að koma sér aftur að bakkanum án árangurs.
„Hann færðist bara lengra og lengra á ein-
hverjum sekúndum. Hann sagði að það væri
gat á karinu og við sögðum honum að vera
kyrr,“ sagði Helga. Henni þótti óratími líða
þangað til lögreglan kom og þá var drengurinn
kominn út á mitt vatnið. Í millitíðinni var
Helga búin að fara um nágrennið með rútubíl-
stjóra hópsins í leit að báti, að ráði lögregl-
unnar. Þau fundu árabáta sem allir voru ára-
lausir. Þá hringdi Helga að Hvammi hinum
megin vatnsins til að athuga hvort einhverjir
þar gætu komið á báti. Þar vissu menn af báti
við sumarbústað sunnan vatnsins sem væri á
kerru og með árar.
Þorsteinn Jónsson, lögreglumaður frá Borg-
arnesi, sótti árabátinn á lögreglubílnum. Helga
sagði að þau hefðu öll sest undir árar, kenn-
ararnir tveir og lögreglumaðurinn, til að róa
sem hraðast. Þeim var öllum létt þegar þau
höfðu náð drengnum um borð í bátinn.
Blautur upp úr og niður úr
„Þetta er sterkur og duglegur strákur. Hann
var mjög feginn að vera kominn um borð, en
var blautur upp úr og niður úr í hálfu kari af
vatni, og mjög kaldur,“ sagði Helga. Björg-
unarsveitarmenn frá Borgarnesi og Akranesi
komu kl. 13.28 og drógu árabátinn í land.
Þorsteinn taldi að kennararnir hefðu brugð-
ist hárrétt við aðstæðunum.
Helga segir að þau hafi rætt atvikið við
börnin þann stutta tíma sem gafst á heimleið-
inni. Hún sagði að sér væri mjög brugðið eftir
þessa þolraun, en sem betur fer hefði þetta far-
ið vel.
Ellefu ára dreng bjargað úr háska
Hætt kominn er hann rak á leku fiskikari út á Skorradalsvatn og var orðinn kaldur
LEITARMAÐUR frá Björgunarsveitinni Tindi frá Ólafsfirði slasaðist þegar
leitarflokkur hans var á leið upp á Svínafellsjökul. Manninum skrikaði fótur
og datt hann á öxlina sem fór úr lið. Var hann fluttur með þyrlu Gæslunnar,
TF-GNA, í Freysnes en svo fluttur til Reykjavíkur til nánari skoðunar.
Slasaðist við björgun
Leit að nál í heystakki
Yfirferð Eftir að þyrlan hætti leit í nágrenni Svínafellsjökuls í gær var hún
yfirfarin af Sigurði Ásgeirssyni flugstjóra og áhöfn vélarinnar.